Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2011, Page 54
54 | Sport 27.–29. maí 2011 Helgarblað
Á laugardagskvöldið fer fram stærsti
knattspyrnuleikur ársins þegar Barce-
lona og Manchester United berj-
ast um Meistaradeildartitilinn. Beð-
ið hefur verið með eftirvætingu eftir
leiknum en margir eru farnir að trúa
því að Manchester United geti mögu-
lega stöðvað hið ógnvænlega lið
Barcelona. Bæði lið eru nýkrýndir
meistarar í sínum löndum og alls ekki
ósanngjarnt að kalla þau tvö bestu lið
Evrópu þessa dagana. Er því við hæfi
að tvö bestu liðin berjist um sigur í
deildinni sem allir vilja vinna, sjálfa
Meistaradeildina. Liðin mættust síð-
ast í sama leik fyrir tveimur árum, þá
í Róm, en þar hafði Barcelona bet-
ur, 2–0, og átti United í raun aldrei
möguleika eftir að Börsungar skor-
uðu snemma. Nú eru United-menn
á heimavelli en leikið verður á hinum
nýja og glæsilega Wembley. Sir Alex
Ferguson hefur sagst hafa lært mik-
ið af leiknum fyrir tveimur árum og
veit hvað þarf til ætli hann að leggja
Barcelona að velli. En Barcelona er
með Messi og sama hvað þú leggur
upp þegar þú mætir Katalónunum. Ef
Messi er með og í stuði getur þú ekki
stoppað hann með vörubíl.
Vill vinna á Wembley
Manchester United varð fyrsta enska
liðið til þess að vinna Evrópukeppni
meistaraliða eins og hún var árið
1968. Það varð einnig fyrsta enska lið-
ið til þess að vinna Meistaradeildina
eftir að nafninu var breytt. Árið 1968,
aðeins tíu árum eftir að sjö leikmenn
United létust í flugslysi, var endur-
byggingin fullkomnuð og hampaði
liðið sigri í Evrópukeppninni eftir
framlengdan úrslitaleik við Benfice.
Sá leikur fór fram á Wembley og er
það í eina skiptið sem enskt lið hef-
ur unnið Evrópukeppni á Englandi.
Þjálfari liðsins þá var Sir Matt Busby
og fyrirliðinn Sir Bobby
Charlton sem í dag sinnir
starfi sem sendiherra Man-
chester United. Ferguson hef-
ur fyrir löngu jafnað og bætt af-
rek Busby margfalt en hann vill þó
vinna Meistaradeildina á heimavelli.
„Ég sá bara hvað þetta skipti þjóð-
ina miklu máli. Það héldu allir með
Manchester United, meira að segja
í Skotlandi þar sem ég bjó þá. Þetta
var ótrúlegt kvöld sem ég mun aldrei
gleyma en sjálfan langar mig að upp-
lifa þetta. Það væri líka enn einn flott-
ur kafli í annars magnaðri sögu Man-
chester United ef við yrðum fyrsta
enska liðið til þess að vinna Evrópu-
bikarinn tvisvar sinnum á Wembley,“
segir Sir Alex Ferguson.
Leikurinn er líka nokkuð söguleg-
ur fyrir Barcelona, þó aðeins þjálfara
þeirra, Pep Guardiola. Hann var mjög
góður leikmaður á sínum tíma og
árið 1992 vann hann fyrstu Meistara-
deildina með Barcelona eftir úrslita-
leik gegn Sampdoria á gamla Wem-
bley. „Það var yndisleg stund. Okkur
fannst við vera að vinna stærsta bik-
arinn á heimavelli fótboltans. Ég væri
vel til í að upplifa þetta aftur, nema
núna á þessum nýja og stórglæsilega
Wembley,“ segir Pep Guardiola.
Mun sinna mínu starfi
hundrað prósent
Þrátt fyrir haug af stjörnum verður
fyrsti maðurinn á leikskýrslu Sir Alex
Ferguson líklega Suður-Kóreumað-
urinn Ji-Sung Park. Ferguson kallar
jafnan alltaf eftir þjónustu Parks þeg-
ar kemur að stórleikjunum og hingað
til hefur hann skilað meira en góðu
dagsverki. Kæmi ekki á óvart ef hann
væri settur til höfuðs Lionel Messi,
í það minnsta að hjálpa Patrice Evra
með besta fótboltamann heims úti á
hægri vængnum.
„Messi er einn besti leikmaður
heims. Það vita allir að einn varnar-
maður stöðvar hann ekki. Allt liðið
þarf að verjast honum. Við verðum
að hafa augu á honum allan leikinn.
Sumir leikmenn hafa sagt við mig að
ég sé maðurinn sem gæti stöðvað
hann. Það hljómar vel en ég veit alveg
að einn maður stoppar ekki Messi.
Það þurfa allir að leggja sig hundrað
prósent fram til þess,“ segir Park sem
veit bara að hann mun gefa sig allan
í leikinn.
„Ég veit ekki hvert mitt hlutverk
verður en ég veit ég mun sinna því
hundrað prósent hvað sem það verð-
ur. Allt til þess að vinna leikinn. Við
erum með frábæra miðjumenn í Car-
rik, Giggs og Anderson sem eru góð-
ir að brjóta niður sóknir. Ef við spil-
um eins og gegn Chelsea eða í öðrum
stórleikjum þá getum við vel mætt
Barcelona. Chicharito, Anderson og
Nani hafa allir verið að bæta sig leik
frá leik þannig það má ekki gleyma
sóknarleik okkar heldur,“ segir Ji-Sung
Park.
Xavi ber virðingu fyrir United
Þó það sé talað um Barcelona sem
sigurstranglegra liðið á Wembley er
Xavi, miðjumaður Barcelona, auð-
mjúkur í tali sínu um Manchester
United. Hann hefur alla jafna ávallt
talað vel um Ferguson og hans drengi
og í vikunni hefur hann farið lofsöm-
um orðum um Manchester-liðið.
„Fyrir mér er Manchester United liðið
sem við eigum að reyna líkjast,“ segir
Xavi. „Ekkert annað lið hefur haldið
dampi jafnlengi. Það sem Ferguson
hefur gert með þetta lið ber að virða.
Scholes og Giggs eru líka leikmenn
sem allir aðrir leikmenn eiga að horfa
upp til og læra af. Þeir eru viðmiðið,“
segir Xavi sem hrósar baráttuanda
Manchester United.
„Lykilatriðið í liði United er að það
Viktor Kassai – Ungverjaland
Aldur: 35 ára
FIFA-dómari síðan 2003
Stærsti leikur: Þýskaland – Spánn í
undanúrslitum HM 2010
Dómari leiksins er Ungverjinn Viktor
Kassai sem hefur getið sér gott orð á
undanförnum árum. Hann hefur notið
góðs af ungdómsdýrkun FIFA og fengið
stór verkefni á borð við undanúrslitaleik
Þýskalands og Spánar á HM í Suður-Afr-
íku. Í þeirri keppni var hann aðeins einn af
þremur dómurum sem dæmdi fimm leiki.
Vekur athygli að allir þessir þrír dómarar
voru þá og eru undir fertugu. Á laugardag-
inn verður hann yngsti maðurinn til þess
að dæma úrslitaleik Meistaradeildar-
innar. Kassai hefur þrívegis dæmt leiki í
Meistaradeildinni hjá Manchester United
og hafa þeir allir unnist.
Dómarinn
Bestu liðin Berjast
um stærsta Bikarinn
n Barcelona og Manchester United mætast í úrslitaleik
Meistaradeildarinnar n Leikurinn fer fram á Wembley en
hann hefur sögulegt gildi fyrir bæði lið n Síðast þegar þau
mættust fyrir tveimur árum vann Barcelona örugglega
Van der Sar
Ferdinand
Fabio
Carrick
Rooney
Valencia
Evra
Park
Vidic
Giggs
Hernandez
Líklegt byrjunarlið United
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Einstakt afrek
Ferguson vill
að United vinni
Evrópubikar á
gamla og nýja
Wembley.
Baráttuhundur Wayne
Rooney vill ekki upplifa
sömu sorg og 2009.
Sá besti
Lionel Messi