Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Síða 2
2 | Fréttir 15.–19. júní 2011 Helgarblað
Viðurkenndar
stuðningshlífar
í úrvali
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18
„Ég er loksins laus við fólkið úr íbúð-
inni minni en að öðru leyti er staðan
ekkert góð. Eignin mín er rjúkandi
rúst. Það er með ólíkindum að fólk
skilji svona eftir sig,“ segir Lárus Ingi
Magnússon sem losnaði við óboðna
gesti úr íbúð sinni í Kópavogi. Hús-
tökufólkið, eins og hann kallar það,
hafði hreiðrað um sig í tómri íbúð
hans og dvalið þar síðan í febrúar.
Það var ekki fyrr en í byrjun júní sem
Lárus endurheimti íbúð sína en kom
þá að henni í slæmu ásigkomulagi.
Flutti inn án samþykkis
Lárus leigði út íbúð sína til ungrar
konu en um áramótin ákvað hún að
flytja út og segja upp samningnum.
Eftir áramót hafði ungur maður sam-
band við Lárus og lét hann vita að
hann ætlaði að greiða þá leigu sem
konan skuldaði Lárusi sem og ganga
frá íbúðinni fyrir hana. „Ég vissi svo
ekki fyrr en hann var fluttur inn, án
minnar vitundar og algjörlega án
míns samþykkis,“ segir Lárus. Í fram-
haldinu hafði hann samband við lög-
reglu sem sagði honum í að rauninni
hefði hann engan rétt. Ekkert væri
hægt að gera þar sem hann væri ekki
með leigusamning í höndunum.
Tók málið í sínar hendur
„Fólkið flutti inn án þess að ég gæfi
samþykki og ég hef engan rétt. Þau
eru í húsinu mínu og það er ekk-
ert sem ég get gert. Það er gjörsam-
lega með ólíkindum að ég, sem eig-
andi hússins, þurfi bara að taka þessu
þegjandi og hljóðalaust.“ Það var ekki
fyrr en fyrir tilstuðlan lögreglumanns
sem Lárus losnaði loks við fólkið.
„Hann tók bara málið í sínar eigin
hendur og með klækjum náði hann
að koma fólkinu út,“ segir Lárus. Þar
fyrir utan þá hafði banki Lárusar
ákveðið að taka íbúðina yfir og stóð
til að gera það í vetur. Hún var því
metin í desember af bankanum þeg-
ar Lárus átti von á að leigjandinn færi
út í janúar. Nú mun bankinn þurfa
að meta eignina upp á nýtt og Lárus
kvíðir því. „Bankinn er þó búinn að
sýna mikinn skilning á þessu og er í
góðu samstarfi við okkur, sérstaklega
eftir að hann gerði sér grein fyrir að
þetta væri í raun og veru að gerast.“
Málið mun enda ofan í skúffu
Aðspurður hvort hann hyggist kæra
segir Lárus að lögreglan hafi sagt við
hann að það þýði lítið. Að málið muni
hvort sem er enda ofan í skúffu. Auk
þess hafi hústökufólkið lagt hluta af
leigunni sem fyrri leigjandi skuldaði
inn á reikninginn hans og hægt sé
að nota það gegn honum. „Eina sem
ég hef í hendi mér er að reyna að
draga fyrri leigjanda til ábyrgðar. Það
er hins vegar erfitt að draga fólk til
ábyrgðar sem á ekki neitt.“
Vill ekki vorkunn
Lárus segir að ástæða þess að hann
vilji segja frá þessu sé að hann vilji
vara fólk við. Hann segist ekki vilja
neina vorkunn en ef hann geti hjálp-
að fólki til að komast hjá svona löguðu
þá sé tilganginum náð. „Eftir þessa
reynslu þá vil ég bara segja við fólk að
maður tryggir alls ekki eftir á og þú ert
aldrei of mikið tryggður fyrir einhverju
svona. Ég mundi persónulega ekki
bara taka peningastöðuna hjá vænt-
anlegum leigjendum heldur einnig,
og alls ekki síður, þá mundi ég athuga
sakaferil. Það er í rauninni miklu mik-
ilvægara. Aðalmálið er ekki hvort leigj-
endur borgi á réttum tíma eða borgi
yfir höfuð heldur er hræðilegt að þurfa
að horfa upp á eigur sínar skemmdar
á þennan hátt. Það er alveg skelfilegt.“
Lárus stendur því uppi með tjónið
á íbúðinni og veit ekki til þess að hann
fái neitt bætt. „Það er fyrir mestu að
þau eru farin út en nú verður maður
bara að krossleggja fingur og vona að
bankinn sýni þessu skilning og dragi
þetta ekki til baka,“ segir Lárus að lok-
um.
n Lárus Ingi Magnússon bjóst við að afhenda bankanum íbúð sína þegar leigjandi færi út í
janúar n Hann vissi ekki fyrr en aðrir voru fluttir inn n Hústökufólkið fór illa með eignina
Loks Laus við
hústökufóLk
„Fólkið flutti inn
án þess að ég
gæfi samþykki og ég hef
engan rétt. Þau eru í hús-
inu mínu og það er ekkert
sem ég get gert.
Íbúð Lárusar Aðkoman var óskemmtileg þegar Lárus endurheimti íbúð sína.
Baðherbergið Slíkur var frágangurinn.
Bílskúrinn Svona var bílskúrinn eftir hústökufólkið.
Illa farin eign Parketið er illa farið sem og aðrir
hlutir, þar á meðal er brotin rúða.
Skæðir tölvuþrjótar herja á Íslendinga:
Tölvuhakkarar ráðast á CCP
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Hilmar Veigar Pétursson fram-
kvæmdastjóri CCP Tölvuhakkarar
LulzSec gerðu árás á heimasíðu EVE Online.
Tölvuhakkararnir í franska hakkara-
hópnum,LulzSec tilkynntu á þriðju-
dag um árás á heimasíðu tölvuleiks
CCP, EVE Online. „Við þurrkuðum
út „login server“ fyrir Eve Online
og tókum heimasíðuna þeirra óvart
niður í leiðinni,“ var skrifað á Twit-
ter-síðu LulzSec.
Tölvuhakkararnir í LulzSec hafa
verið stórtækir síðustu mánuði. Til
dæmist hökkuðu þeir sig inn á Play-
Station-vefþjóna Sony. Með því
tókst þeim að verða sér úti um pers-
ónuupplýsingar hundraða þúsunda
manna. Eftir atvikið lenti Sony í
miklum vandræðum vegna öryggis-
mála vefþjóna sinna. Hópurinn hef-
ur gefið sig út fyrir að vera mikið á
móti fyrirtækinu. Áður hefur kom-
ið fram að ætlunarverk þeirra sé að
knésetja það. CCP sendi út tilkynn-
ingu um viðamikinn samstarfs-
samning við Sony í síðustu viku.
Árásirnar á Sony og CCP eru þó ekki
einu aðgerðir LulzSec undanfar-
ið því nýlega hakkaði hópurinn sig
einnig inn á innri vef öldungadeild-
ar Bandaríkjaþings og birti upp-
lýsingar þaðan opinberlega. Einnig
hefur hópurinn hakkað sig inn hjá
fyrirtækjum tengdum bandarísku
alríkislögreglunni FBI og hjá breska
heilbrigðisráðuneytinu. Þá hefur
hann að auki stolið notendaupplýs-
ingum af klámsíðum og birt ósannar
fréttir hjá bandarísku fréttastofunni
PBS.
Ekki náðist í Hilmar Veigar Pét-
ursson, framkvæmdastjóra CCP, við
vinnslu fréttarinnar en samkvæmt
heimildum DV lá leikjahluti EVE
Online niðri ásamt innri vefjum hjá
fyrirtækinu svo sem tölvupóstur og
heimasíða þess.