Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Blaðsíða 19
Fréttir | 19Helgarblað 15.–19. júní 2011 Í skýrslunni er Ólafi biskup lýst sem afar sterkum persónuleika og ákveðnum, mig langar til að spyrja þig hvort þú hafir að einhverju leyti óttast hann eða ítök hans í Þjóðkirkj- unni? „Nei, nei, ég gerði það ekki, ég gerði það ekki.“ Það hafði ekki nein áhrif á þín störf? „Áhrif? Auðvitað vill maður bera virðingu fyrir fólki. Það er bara mín frumafstaða og ég þekkti Ólaf ekki af neinu öðru en góðu sem sam- starfsmaður hans. Það er bara mann- legt að maður vilji ekki trúa ýmsu sem að borið er á menn að óreyndu. Ég vil yfirleitt ekki trúa neinu illu upp á nokkurn mann, hvorki þig né aðra.“ En hvernig er það í dag? Trúirðu frásögn þessara kvenna í dag eða tek- urðu einhverja sérstaka afstöðu til þess? „Ég vil forðast að taka afstöðu til þess en ég get sagt það að ég trúi því að eitthvað hafi gerst og ég hef alltaf trúað því að eitthvað hafi gerst sem ekki átti að gerast, sem var hörmu- legt.“ Í skýrslunni segir: „Áhrif Ólafs Skúla- sonar á samstarfsmenn sína og aðra starfsmenn kirkjunnar voru verulega mikil.“ Sjálfur lýsir Karl því hvernig Ólafur hélt tilfinningaþrungna ræðu yfir kirkjuráðsmönnum sem varð til þess að þeir sendu út stuðningsyfir- lýsingu, að hann hafi brugðist illa við fréttum sem honum mislíkuðu og viðurkennir að bréf frá lögmanni ekkju Ólafs hafi haft áhrif á máls- meðferð Guðrúnar Ebbu. Úr rannsóknarskýrslu Kirkjuþings Hvernig hefur þetta mál farið með trúverðugleika þinn í heild sinni? „Það er ekki mitt að dæma um það.“ Upplifirðu það á einhvern hátt? „Það er margt sagt, það er margt full- yrt í þeim efnum en ég vil ekkert leggja mat á það. Ég reyni að vinna verk heiðarlega og auðvitað tek ég það nærri mér þegar ég er vændur um óheiðarleika. Traust snýst um tilfinn- ingar og þegar um er að ræða kyn- ferðisbrot, þá er traust rofið og það er mjög sárt og á ekki að líðast á vett- vangi kirkjunnar. Ég hef sagt það skýrt og skorinort og barist fyrir því að kyn- ferðisbrot séu ekki liðin á vettvangi kirkjunnar og að hún hafi verkfæri til að takast á við það þegar að slíkt kem- ur upp af einurð og festu og að þeim sem brotið hefur verið á sé sýndur stuðningur. En stundum tekst okk- ur það ekki, þrátt fyrir góðan ásetn- ing, og stundum verðum við að horf- ast í augu við mistökin og gera gott úr þeim.“ En þú telur að þér sé stætt að sitja áfram sem biskup? „Ég hleyp ekki frá ókláruðu verki. Við erum hér úti í miðri á og við þurfum að komast yfir með það sem við erum með í fang- inu, til dæmis hvað varðar þessa sorg- arsögu og ég get ekkert hlaupið frá því. Eins freistandi og það væri þá get ég það ekki. Ég ber skyldur gagnvart þeirri stofnun og því hlutverki sem ég gegni.“ Margar spurningar hafa vaknað í tengslum við þetta mál og fólk hefur verið að fylgjast með þessu lengi. Ég er að velta því fyrir mér hvort að það sé kannski þitt mat að betra væri fyrir þjóðkirkjuna ef þú segðir af þér? „Já, það er þitt mat.“ Nei, ég er að spyrja þig? „Já ég er búinn að svara þér því, þú getur hald- ið áfram að þvæla með það en þú leiðir mig ekkert lengra í því, það er bara svoleiðis.“ „Ég var í sambandi við – það var ekki hérna – ég átta mig ekki á hvað þú ert að fara með þessari staðhæfingu því að ég var – það var samtal í gangi við Guð- rúnu Ebbu og hún hafði sína stuðningsmenn og talsmenn og ég gekk út frá því að – að það væri í góðum höndum. Stefanía Þorgrímsdóttir varð fyrir kynferðislegri áreitni af hálfu Ólafs árið 1963, tólf ára gömul. Hún var á sundnám- skeiði og hann var æskulýðsprestur með fermingarnám- skeið á sama stað. Þegar hún steig fram og sagði sögu sína í fjölmiðlum árið 1996 var hún vænd um lygar og fjölskylda hennar tók afstöðu með biskupnum. Hún hefur aldrei fyrir- gefið kirkjunni þann gjörning að draga hana inn í lögreglurannsókn fyrir að segja sannleikann. Ólafur kærði Stefaníu ásamt öðrum konum og opinber rann- sókn á vegum saksóknaraembættisins fór fram. Þegar saksóknari hafði farið yfir gögn í málinu og talað við yfir 200 manns þá var Ólafi ráðlagt að láta málið niður falla. Það var þó ekki fyrr en eftir að miklum óhroða hafði verið dreift í fjölmiðlum. Stefanía var ráðgjafi hjá Stígamótum þegar mál Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur og Dagbjartar Guðmunds- dóttur komu upp árið 1996. Þar sem hún bjó sjálf yfir þessari reynslu af Ólafi ákvað hún að stíga fram og segja sögu sína til þess að styrkja þær. Hún tók sér leyfi frá Stígamótum en sneri aldrei aftur til starfa. Aðeins einu sinni hefur Stefanía greint nákvæmlega frá því sem Ólafur gerði henni – í yfirheyrslum lögreglunnar. Særós Guðnadóttir varð fyrir kynferðislegri áreitni af hálfu Ólafs Skúlasonar árið 1972, sautján ára gömul. Móðir hennar vildi leggja fram kæru en Særós stoppaði hana af. Hún óttaðist viðbrögð annarra enda vissi hún af stelpu sem var úthrópuð dræsa í skólanum fyrir að segja skólameist- ara frá álíka reynslu af Ólafi fjórum árum áður. Hún var ung og skammaðist sín. Þar að auki kannaðist hún við dóttur Ólafs og vildi ekki særa hana með þessari vitneskju. Særós var nemandi í Réttarholts- skóla þar sem Ólafur var umsjónar- og enskukennari hennar. Hún þurfti að taka sjúkrapróf í ensku og ákveðið var að halda prófið í kirkju þar sem Ólafur þurfti að vinna að ræðu á meðan. Á meðan á prófinu stóð kom hann og nuddaði axlir hennar og sagði henni að vera ekki stressuð og slappa af. Þegar hún hafði lokið prófinu byrjaði Ólafur að káfa á henni og kyssa hana. „Ég varð skelfingu lostin og stökk á fætur og hljóp hljóð- andi að dyrunum sem hann hafði læst, hann kom á eftir en ég barði á dyrnar og öskraði. Þá greip hann höndunum fyrir andlitið og sagði: „Guð, fyrirgefðu, hvað hef ég gert?“ Síðan opnaði hann dyrnar fyrir mér og ég hljóp út,“ sagði Særós í viðtali við DV árið 2010. Hún steig fram árið 2009 þegar Sigrún Pálína kom fram í þættinum Sjálfstæðu fólki. Ólöf Pitt Jónsdóttir varð fyrir kynferðislegri áreitni af hálfu Ólafs Skúlasonar árið 1982, 26 ára gömul. Hann áreitti hana tvisvar – í annað skiptið var bænastund að hefjast á spítala og í hitt skiptið var hann umvafinn prestum. Enginn varð þess þó var þegar hann áreitti hana. Þau þekktust ekki áður en líkt og aðrar konur sem segja hér frá reynslu sinni átti Ólöf erfiða reynslu að baki, en hún eignaðist tvíbura eftir nauðgun fjórtán ára gömul. Ólöf sagði frá reynslu sinni í fyrsta skiptið í viðtali við DV árið 2010. Ólöf sagði í viðtalinu þá að hún hefði ekki viljað stíga fram fyrr en þá þar sem hún vildi ekki gera nýlátinni móður sinni það. Eftir áreitnina sagðist Ólöf eiga erfitt með stóra og mikla menn og að hún óttaðist þá. Minningar um það sem Ólafur sagði við hana og gerði sætu alltaf í henni og hún væri þjökuð af sektarkennd. „Af hverju leyfði ég honum þetta? Af hverju stoppaði ég þetta ekki?“ Ég varð bara alveg stíf. Sektarkenndin var gífurlega mikil. Þegar þetta kom í umræðuna vildi ég ekki stíga fram með þetta af því að mér fannst þetta svo ómerkilegt. En svo er þetta bara heil- mikið mál. Þetta var prestur og síðar varð hann biskup,“ sagði Ólöf í viðtalinu 2010. Eftir seinni samskipti þeirra Ólafs forðast hún hann og tók á sig krók ef hún hitti hann á förnum vegi. Hún segir að hún hafi þó einu sinni rekist á hann á götu úti og þá hafi hann sleikt út um. Dagbjört Guðmundsdóttir gerði tilraun til þess að upplýsa kirkjuna um ljótt leyndarmál árið 1996. Leyndar- málið varðaði atvik sem hún lenti í úti í Kaupmannahöfn árið 1979 þar sem Ólafur Skúlason réðst að henni með kynferðislegum tilburðum. Eftir mikinn þrýsting dró Dagbjört mál sitt til baka yfirbuguð af sársauka og sorg. Árið 2010 ræddi hún aftur um málið í viðtali við DV. Það gerði hún eftir að Guðrún Ebba Ólafs- dóttir óskaði eftir fundi með kirkjuráði. Ólafur var kennari hennar í Réttarholts- skóla og reyndist henni vel þar. Hann gifti hana og fyrrverandi mann hennar þegar hún var mjög ung og skírði son hennar. Dagbjört hafði áður lent í kynferðislegri áreitni og þegar Ólafur hafði sam- band við hana þar sem hún var búsett í Danmörku og bauð henni út að borða ákvað hún að taka eiginmann sinn með. Á veitingastaðnum strauk Ólafur upp lærið á henni ítrekað. Dagbjörtu fannst þetta óþægilegt en taldi þó að aðeins væri um vinahót að ræða þar sem hann gekk aldrei það langt. Hún brá sér frá borðinu til þess að huga að syni sínum sem var í pössun. Ólafur afsakaði sig einnig stuttu seinna og elti hana í átt að síma. Í viðtalinu árið 2010 sagði Dagbjört: „Um leið og ég lýk samtalinu og sný mér við stendur hann þéttingsfast upp við mig og hann skellir mér á vegginn. Áður en ég veit af þá er hann búinn að setja aðra höndina á brjóstið á mér og reynir að setja tunguna upp í mig. Hann biður mig um að senda fyrrverandi manninn minn heim þar sem sig langi svo til að sýna mér næturlífið í Kaupmannahöfn. Ég næ að slá hann utan undir, hleyp upp og segi fyrrverandi manninum mínum hvað gerðist. Við stöndum bæði upp. Ólafur er að koma upp stigann þegar við erum að ganga út af staðnum. Við náum leigubíl hjá Hovedbanegården en Ólafur nær að opna hurðina á leigubílnum og segja að ef okkur vanhagi um eitthvað í lífinu megum við leita til hans. Þetta eru mín síðustu samskipti við Ólaf Skúlason.“ Dagbjört og Sigrún Pálína kynntust síðar í gegnum sameiginlega vinkonu og deildu sameiginlegri reynslu og gerðu tilraun til þess að afhenda kirkjunni sameiginlegt leyndarmál sitt. Mikið fjölmiðlafár braust út í kjölfarið og var hún ásamt Sigrúnu Pálínu og Stefaníu kærð til lögreglunnar af Ólafi og þeim var hótað af mönnum innan kirkjunnar sem hún kallar Ólafs- menn. Dagbjört dró kæru sína til baka og Ólafur gerði það svo í kjölfarið. Sigrún Pálína Ingvarsdóttir- Mál Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur hófst þegar hún kvartaði undan séra Vigfúsi Þór Sigfússyni við siðanefnd presta og greindi frá athafnaleysi séra Pálma Matthíassonar sem hún hafði áður leitað til varðandi nauðgunartilraun Ólafs Skúlasonar. Fjallað var um málið í fjölmiðlum þar sem Ólafur sagði konurnar ljúga. Það var síðan þann 14. mars 1996 sem Ólafur Skúlason biskup sendi ríkissaksóknara bréf og fór fram á lögreglurannsókn á framburði kvenna sem sökuðu hann um kynferðis- brot. Frásögn Sigrúnar Pálínu er á þá leið að árið 1977 leitaði hún til Ólafs sem þá var prestur í Bústaðakirkju. Sigrún leitaði ráða vegna hjónabandserfiðleika sinna. Á kvöldfundi þeirra í Bústaðakirkju veittist, að sögn Sigrúnar, Ólafur að henni eftir að hafa lokkað hana inn í gluggalaust herbergi. Sigrún lýsti því hvernig Ólafur skellti hurðinni í lás, lagðist ofan á hana og gerði tilraun til að nauðga henni og hvernig hún komst undan. Þegar Ólafur gaf kost á sér í biskupskjöri 1978 fannst Sigrúnu Pálínu það erfið tilhugsun að hafa kynferðisafbrotamann sem biskup. Hún tók þá ákvörðun að segja frá meintri árás Ólafs og hafði samband við Sigurbjörn Einarsson biskup. Sigurbjörn gaf henni áheyrn og boðaði Ólaf og Sigrúnu saman á fund. Á fundinum brást Ólafur illur við og gaf í skyn að Sigrún væri geðveik. Lyktir þetta árið urðu þær að Sigurbjörn biskup sagðist ekki geta gert neitt fyrir Sigrúnu annað en að biðja fyrir henni. Árið 1994 leitaði Sigrún Pálína til séra Vigfúsar Þórs Árnasonar sem gerði ekkert í málinu. Í febrúar 1996 kærði Sigrún Pálína séra Pálma Matthíasson til siðanefndar Prestafélags Íslands. Í framhaldinu birtust í helgarblaði DV ásakanir þriggja kvenna á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um kynferðislega misnotkun og tilraun til nauðgunar. Sú eina sem kom fram undir nafni var Sigrún Pálína Ingvarsdóttir. Allar sögðu þær frá kynferðislegu ofbeldi þáverandi biskups. Siðanefnd vísaði kæru Sigrúnar Pálínu á hendur biskupi til stjórnar Prestafélags- ins sem tók þá formlega ákvörðun um að siðanefnd skyldi fjalla um kæruna. Að eigin frumkvæði báðu tveir prestar biskup um að leita sátta. Það voru þeir sr. Hjálmar Jónsson og sr. Karl Sigur- björnsson. Þeir beittu einnig konurnar töluverðum þrýstingi um að láta málið niður falla. Í kjölfarið byrjaði mikið fjöl- miðlafár og séra Ólafur kærði Sigrúnu Pálínu, Stefaníu Þorgeirsdóttur og Guðrúnu Jónsdóttur sem þá starfaði hjá Stígamótum til Rannsóknarlögreglu ríkisins. Ólafur gerði kröfu um opinbera rannsókn og málshöfðun vegna rangra ásakana og ærumeiðandi aðdróttana. Ólafi var í framhaldi ráðlagt af ríkis- saksóknara að draga kærur sínar til baka. Hann sagði af sér embætti sínu árið 1996 á kirkjuþingi. Í viðtali við Vikuna 2. júlí 2009 rak Sigrún Pálína Ingvarsdóttir sögu sína í fyrsta sinn frá því hún lýsti atburðunum í Bústaðarkirkju í DV 13 árum fyrr og Birgir Ás Guðmundsson sem var þá organisti í Bústaðarkirkju staðfesti sögu hennar. Guðrún Ebba Ólafsdóttir Árið 2010 fékk Guðrún Ebba Ólafsdóttir loks áheyrn kirkjuráðs eftir að hafa beðið þess í heilt ár. Á fundinum sagði hún frá kynferðislegu of- beldi sem hún sætti af hendi föður síns frá barnæsku. Faðir Guðrúnar Ebbu var Ólafur Skúlason sem sætti ásök- unum um að hafa beitt kynferðisof- beldi á meðan hann var biskup. Eftir fundinn sagði Guðrún Ebba „Þetta var mikill léttir, ég finn að þessu fylgir mikið frelsi. Mér fannst það mjög mikil- vægt að kirkjuráð fengi að heyra mína sögu. Eins og komið hefur fram þá vildi ég líka að komið yrði í veg fyrir að þetta gæti gerst aftur, að kynferðisbrotamenn gætu komist til æðstu metorða.“ Eftir fund Guðrúnar Ebbu ákvað kirkjuþing að skipa sannleiksnefnd til þess að rannsaka við- brögð og úrlausn mála innan kirkjunnar við ásökunum á hendur Ólafi Skúlasyni. Fórnarlömb Ólafs sambandi verður þó einnig að gera þann fyrirvara að fram hafa komið upplýsingar sem ótvírætt benda til þess að Ólafur Skúlason hafi sjálfur leitast við að bæla niður eða lægja umræðu um málið, eins og má ráða af þeirri atvikalýsingu sem sett er fram í C-hluta skýrslunnar. Á því leikur ekki vafi að mati rann- sóknarnefndarinnar að meta beri framgöngu einstakra vígðra þjóna og annarra starfsmanna þjóðkirkjunn- ar á árinu 1996 í því ljósi að ásakan- irnar beindust að æðsta yfirmanni kirkjunnar og hirði prestanna, sjálfum biskupnum. Þá verður ráðið af fram- burði þeirra sem fyrir nefndina komu að áhrif Ólafs Skúlasonar á samstarfs- menn sína og aðra starfsmenn kirkj- unnar voru verulega mikil. Biskup- inn hafi verið með mikinn og ráðandi persónuleika, hann hafi farið sínu fram og óhikað látið í ljósi afstöðu sína um stöðu málsins. Menn hafi verið dregnir í dilka sem annaðhvort „með honum eða á móti“. Hafi hann þannig með framgöngu sinni haft mótandi áhrif á aðgerðir einstaklinga sem að málinu komu, hvort sem er á vettvangi kirkjuráðs, Prófastafélags Íslands eða stjórnar Prestafélags Ís- lands.“ Samstaða um yfirlýsingu Í þriðja kafla skýrslunnar á blað- síðu 19 er fjallað um yfirlýsingar kirkjuráðs frá 1. mars 1996 og aðal- fundar Prófastafélags Íslands í tilefni af biskupsmálinu. Þar segir: „Það er í fyrsta lagi niðurstaða rannsóknar- nefndarinnar að þeir kirkjuráðsmenn sem stóðu að yfirlýsingu ráðsins 1. mars 1996 hafi gert alvarleg mistök í merkingu 1. gr. starfsreglna um nefnd- ina með því að gefa hana út opinber- lega á þeim tíma að virtu efni yfir- lýsingarinnar og stöðu málsins. Í öðru lagi er það niðurstaða nefndarinnar að þeir prófastar sem stóðu að yfirlýs- ingu á vettvangi Prófastafélags Íslands 7. mars 1996 hafi gert alvarleg mistök í merkingu 1. gr. starfsreglna um nefnd- ina með því að gefa hana út opinber- lega á þeim tíma að virtu efni hennar og stöðu málsins. Þá verði að álíta yfir- lýsinguna fullnægja þeim skilyrðum að vera talin tilraun til þöggunar í þeirri merkingu sem lögð er til grund- vallar í kafla 2 í A-hluta skýrslunnar.“ Á aðalfundi Prófastafélags Íslands 7. mars 1996 var samþykkt yfirlýsing sem laut að málefnum biskups, hún er birt á blaðsíðu 98 í skýrslu rannsókn- arnefndar kirkjuráðs og er svohljóð- andi: „Prófastar lýsa hryggð sinni og áhyggjum vegna þeirrar aðfarar sem gerð hefur verið að biskupi Íslands, herra Ólafi Skúlasyni, með ósönnuð- um aðdróttunum í hans garð, þar sem gróflega er vegið að mannorði hans og starfsheiðri. Prófastar lýsa andúð sinni á gáleysi þeirra fjölmiðla, sem í umfjöllun sinni hafa látið líta svo út sem þessar ásakanir væru sannaðar. Þetta hefur valdið biskupi og fjöl- skyldu hans þjáningu og miska og öll- um þeim sem unna kirkjunni sárind- um og hryggð. Lýsum við samúð með öllum þeim sem þjáðst hafa vegna þessa máls. Prófastar harma þá stöðu sem upp er komin. Nauðsynlegt er að brugðist verði við af festu og ábyrgð. Því er í alla staði eðlilegt að fela málið dóm- bærum aðilum enda er það fullvissa okkar að þá muni sakleysi biskups sannast. Væntum við þess að söfnuðir landsins slái sem fyrr skjaldborg um kirkjuna og það sem hún stendur fyrir. Prófastar telja sjálfsagt að sá horn- steinn réttarfars í siðuðu samfélagi sé í heiðri hafður að hver maður skuli sak- laus teljast uns sekt hans er sönnuð, svo að ein lög gildi í landinu fyrir alla þegna þess. Átelja prófastar sérhverja tilraun til þess að vefengja þessa meg- inreglu réttarríkisins og vara við þeirri vá að mannhelgi sé vanvirt.“ Í Morgunblaðinu, sem út kom 8. mars 1996, var vísað til þess að sr. Guðmundur Þorsteinsson, sem hafði verið kjörinn formaður Prófastafé- lags Íslands á aðalfundinum deginum áður, hefði sagt að „algjör samstaða [hefði] verið á fundinum um álykt- unina, en félagsmenn hafi verið 16“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.