Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Blaðsíða 65
Sport | 65Helgarblað 15.–19. júní 2011
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
Íslenska landsliðið í knattspyrnu,
skipað leikmönnum 21 árs og yngri,
sá aldrei til sólar gegn jafnöldrum
sínum frá Sviss er liðin mættust í
Álaborg í gær. Var þetta annar leik-
ur liðsins í A-riðli úrslitakeppni Evr-
ópumótsins en honum lauk með
sigri svissneska liðsins, 2-0. Eru þetta
mikil vonbrigði fyrir liðið sem ætlaði
sér stóra hluti á mótinu en eins og
kunnugt er lá liðið einnig fyrir Hvít-
Rússum 0-2, í leik þar sem íslenska
liðið var lengst af sterkari aðilinn.
Lentu undir á fyrstu mínútu
Það var ljóst hvert stefndi frá fyrstu
mínútu því það tók Svisslendinga
ekki nema 50 sekúndur að koma
boltanum í netið. Var þar að verki
Fabian Frei sem var skyndilega
óvaldaður fyrir innan íslensku vörn-
ina og átti ekki í vandræðum með að
þruma skoppandi bolta í nærhorn-
ið, óverjandi fyrir Harald Björnsson
markvörð íslenska liðsins.
Fátt markvert gerðist næstu mín-
útur en ljóst var að svissneska lið-
ið hafði tögl og hagldir í leiknum,
þá sérstaklega á miðjunni. Íslensku
miðjumennirnir voru heillum horfn-
ir í fyrri hálfleik og áttu í mestu vand-
ræðum með að taka á móti send-
ingum frá samherjum og einnig að
koma boltanum sómasamlega frá
sér. Slíkt kann augljóslega ekki góðri
lukku að stýra.
Sóknarleikur Íslands var mjög til-
viljanakenndur og lítið skapandi.
Á sjöttu mínútu náði Kolbeinn Sig-
þórsson, framherji íslenska liðsins,
þó ágætisskoti af löngu færi en það
fór yfir. Á 10. mínútu var íslenska lið-
ið stálheppið að lenda ekki tveimur
mörkum undir en þá komst kant-
maður svissneska liðsins, Xherdan
Shaqiri, í upplagt færi. Hann hristi
af sér varnarmenn íslenska liðsins
og þrumaði að marki frá hægra víta-
teigshorni en Haraldur varði glæsi-
lega.
Gylfi Sigurðsson, sem átti ekki
góðan dag í íslenska liðinu, komst í
skotfæri á 23. mínútu en hann skaut
yfir af löngu færi. Tveimur mínútum
síðar náðu þeir Shaqiri og Innocent
Emeghara að tæta í sig íslensku vörn-
ina sem náði að koma í veg fyrir skot
á síðustu stundu. Léku þeir tveir ís-
lensku vörnina grátt í leiknum og eru
greinilega mjög efnilegir piltar þar á
ferð. Á 30. mínútu fengu Svisslend-
ingar enn eitt færið. Þá óð Granit
Xhaka upp allan völlinn án þess að
íslenska liðið næði að stöðva hann.
Hann átti fínt skot rétt yfir markið en
Xhaka var hreint magnaður á miðj-
unni í leiknum
Talsvert fjör færðist í leikinn á
32. mínútu þegar Íslendingar fengu
dauðafæri úr vel útfærðri skyndi-
sókn. Átti þá Rúrik Gíslason send-
ingu frá hægri sem Gylfi lét fara og
var þá fyrirliðinn, Bjarni Þór Við-
arsson, á auðum sjó. Svo virtist sem
Bjarni hefði beinlínis ekki trúað því
að hann væri í svo ákjósanlegri stöðu
og átti lélegt skot með tánni sem var
hættulaust. Bjarni átti þarna, eins og
svo oft í leiknum, slæma fyrstu snert-
ingu sem gerði honum erfitt um vik.
Mínútu síðar átti Rúrik hörkuskot fyr-
ir utan teig en þá varði Yann Somm-
er, markvörður Sviss, sem þurfti ann-
ars lítið að gera í leiknum.
Svisslendingar voru þó með völd-
in á miðjunni og á 37. mínútu tættu
þeir íslensku vörnina í sig en fram-
herji þeirra, Mario Gavranovic, leik-
maður Schalke í Þýskalandi, náði
ekki að skora. Það gerði þó Emeghara
þremur mínútum síðar, þegar sviss-
neska liðið fór enn og aftur illa með
íslensku vörnina. Haraldur var þó
óheppinn, hann varði skot Emeghar-
as upp í loftið, en boltinn féll niður
og skoppaði í markið án þess að Ís-
lendingar næðu að hreinsa frá.
Skárri seinni hálfleikur
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari íslenska
liðsins, gerði eina breytingu í hálfleik
en þá kom Björn Bergmann Sigurðs-
son inn á í stað Alfreðs Finnbogason-
ar sem komst aldrei í takt við leikinn.
Björn Bergmann og Birkir Bjarna-
son, sem kom inn á skömmu síðar í
stað Bjarna Þórs, voru frískir en það
skilaði þó litlu. Lítið var um skapandi
sóknarleik af hálfu íslenska liðsins.
Þegar liðið sótti hlupu nær allir leik-
menn í beina línu uns einn þeirra
hafði misst boltann of langt frá sér.
Þverhlaup voru engin og leikmenn
voru ekki nógu yfirvegaðir á síðasta
þriðjungi vallarins.
Á 56. mínútu fengu Íslendingar
sennilega besta færi sitt í leiknum
þegar Gylfi átti fína sendingu fyrir
mark Svisslendinga. Kolbeinn náði
að teygja sig í boltann á bak við sviss-
nesku vörnina en hitti boltann illa.
Boltinn skoppaði í átt að markinu en
þá kom Fabian Frei á harðaspretti og
náði að hreinsa í burtu. Á 65. mín-
útu áttu Íslendingar ágæta sókn sem
Birkir Bjarnason bjó til. Náði Kol-
beinn þá skoti á mark en boltinn fór
í varnarmann, þaðan aftur til Birkis
sem renndi boltanum áfram. Þar var
Rúrik mættur fyrir aftan vörn Sviss
en hann var rangstæður. Boltinn lak í
markið, án þess að Rúrik snerti hann,
en markið var réttilega dæmt af enda
hafði Rúrik áhrif á leikinn.
Emeghara hélt áfram að gera Ís-
lendingum lífið leitt og á 80. mín-
útu var hann kominn í gott færi eftir
vel útfærða skyndisókn en Harald-
ur náði að verja. Síðasta færi leiks-
ins fékk svo varamaðurinn Nassim
Ben-Khalifa en Haraldur varði vel frá
honum.
Haraldur bestur í íslenska liðinu
Fátt var jákvætt í leik íslenska liðsins
í gær nema þá helst Haraldur í mark-
inu sem kom í veg fyrir stórtap. Sviss-
neska miðjan var miklu betri og áttu
Íslendingar í stökustu vandræðum
með að senda boltann á milli sín.
Leikmenn íslenska liðsins virkuðu
taugastrekktir á löngum köflum og
áttu í erfiðleikum með grundvallar-
atriði eins og að taka á móti bolta
og senda auðveldar sendingar. Það
skal þó tekið fram að svissneska lið-
ið er greinilega eitt það öflugasta á
mótinu, eins og var reyndar vitað.
Íslenska landsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 21 árs og yngri tapaði gegn Sviss,
2-0 n Sanngjörn úrslit þar sem leikur Íslendinga var losaralegur og tilviljanakenndur
Svisslendingar voru miklu betri
„Leikmenn ís-
lenska liðsins
virkuðu taugastrekktir á
löngum köflum og áttu í
erfiðleikum með grund-
vallaratriði.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Reynir að hægja á Emeghara
Eggert Gunnþór Jónsson átti í
miklum erfiðleikum með Innocent
Emeghara í leiknum. Emegh ara
skoraði annað mark Sviss.
’1 Frei, ’40 Emeghara
Lið Íslands:
Haraldur Björnsson – Eggert Gunnþór
Jónsson, Hólmar Örn Eyjólfsson, Jón
Guðni Fjóluson, Hjörtur Logi Valgarðs-
son – Guðmundur Kristjánsson, Bjarni
Þór Viðarsson (Birkir Bjarnason ‚60),
Gylfi Þór Sigurðsson – Alfreð Finnboga-
son (Björn Bergmann Sigurðsson ‚45),
Rúrik Gíslason, Kolbeinn Sigþórsson.
Sviss - Ísland 2-0