Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Blaðsíða 50
50 | Sakamál Umsjón: Kolbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is 15.–19. júní 2011 Helgarblað G ertrude Nadine Banis­ zewski var gefið nafn­ ið Gertrude Nadine van Fossan af foreldr­ um sínum þegar hún fæddist í september 1929. Árið 1940 horfði hún upp á föður sinn deyja úr hjartaslagi og fimm árum síðar hætti hún í skóla, sextán ára að aldri, til að ganga í hjónaband með John Baniszewski, átján ára dreng, en með honum eignaðist hún fjögur börn. Hjónaband þeirra var stormasamt en þeim tókst þó að hanga sam­ an í tíu ár. Þá flutti Gertrude inn til Dennis Lee Wright, 23 ára manns, sem fór illa með hana. Þau eignuðust eitt barn saman en Dennis lét sig hverfa eftir fæðingu þess. Í júlí 1965 sköruðust leiðir Gertrude og Lesters og Betty Likens. Lester og Betty unnu hjá farandtívolíi og stungu upp á því að Gertrude tæki dæt­ ur þeirra tvær, Sylvíu 16 ára og Jenny 15 ára, inn á heimili sitt sem leigjendur gegn 20 dala gjaldi á viku, rétt á meðan þau væru við störf í fylkinu. Systurnar gengu í skóla með börnum Ger­ trude og sóttu messur með Ger­ trude á sunnudögum. En þegar fyrsta greiðsla foreldranna barst ekki á réttum tíma tuktaði Ger­ trude systurnar til og bætti um betur þegar hún sakaði þær um að hafa stolið sælgæti og barði þær fyrir vikið. Þaðan í frá urðu bar­ smíðarnar reglubundnar. Fékk liðsauka við barsmíðar Í ágúst 1965 var líkamlegt og and­ legt ofbeldi í garð Sylvíu orðið dag­ legt brauð. Gertrude hvatti sín eigin börn til ofbeldis, meðal annars að hrinda Sylvíu niður stiga. Sylvía var sökuð um að stunda vændi og þurfti að hlusta á Gertrude fara með pre­ dikanir þar að lútandi. Eftir að Lik­ ens­systurnar sögðu að Paula og Stefanía, dætur Gertrude, stund­ uðu vændi bættist Gertrude liðs­ auki. Coy Hubbard, kærasti Stef­ aníu, skólafélagar hans og drengir úr nágrenninu voru kallaðir til til að aðstoða við barsmíðarnar. Jafn­ vel Jenný var neydd til að slá systur sína. Sylvía fór nú að missa þvag í tíma og ótíma og var fyrir vikið lok­ uð niðri í kjallara og Gertrude hóf hreinsunaraðgerðir, hellti sjóð­ andi vatni yfir hana og stráði salti í brunasárin. Hún var neydd til að vera klæðalaus og fékk sjaldan mat. Gertrude og tólf ára sonur hennar, John, neyddu hana oft og tíðum til að eta eigin hægðir. Stöku sinnum tókst Jenný Likens að komast í samband við Díönu, eldri systur þeirra, og lýsa því at­ læti sem þær systurnar bjuggu við, en Díana hélt að um væri að ræða ýkjur unglingsstúlkna og hunds­ aði frásögn Jennýjar. Seinna gerði Díana tilraun til að hitta systur sín­ ar en fékk ekki leyfi til að tala við þær. Hún greip til þess ráðs að fela sig í grennd við heimilið og þeg­ ar hún sá Jenný úti við gaf hún sig á tali við hana. Jenný sagði að hún mætti ekki tala við nokkurn mann og hljóp í burtu. Díana hafði í kjöl­ farið samband við félagsmálayfir­ völd. Þegar fulltrúi félagsmálayfir­ valda bankaði upp á hjá Gertrude neyddi hún Jenný til að segja að Sylvía hefði hlaupist að heiman og með þær upplýsingar í farteskinu hvarf fulltrúinn á braut. Meira ofbeldi og dauði Þann 21. október 1965 skipaði Ger­ trude John, Coy og Stefaníu að koma með Sylvíu upp úr kjallaran­ um. Sylvía var bundin í rúm og dag­ inn eftir trylltist Gertrude þegar hún sá að Sylvía hafði vætt rúmið. Við tóku hroðalegar misþyrmingar sem lauk með því að Gertrude reyndi að skrifa „Ég er vændiskona og stolt af því“ á kvið Sylvíu með sjóðandi heitri nál. Gertrude gafst upp á verkinu og skipaði Coy að ljúka því. Daginn eftir neyddi Gertrude Sylv­ íu til að skrifa bréf til foreldra sinna þar sem hún sagði meðal annars að hún hefði strokið af heimili Ger­ trude. Þegar Sylvía hafði lokið við bréf­ ið hleraði hún að John og Jenny ættu að fara með hana á ruslahaug skammt frá og skilja hana þar eftir til að deyja. Sylvía reyndi þá að flýja en hafði ekki erindi sem erfiði. Í refsingarskyni var Sylvíu enn og aftur fleygt niður í kjallarann þar sem hún var barin ítrekað og miskunnarlaust. Þann 26. var far­ ið með Sylvíu upp með það fyrir augum að setja hana í bað, en þeg­ ar upp var komið og búið að setja hana í baðkarið kom í ljós að hún var liðið lík. Stefanía missti stjórn á sér og krafðist þess að Hobbs, vinur Coys, hefði samband við lögregluna sem hann og gerði. Þegar lögregluna bar að garði framvísaði Gertrude strokubréfi Sylvíu, en Jenný tókst svo lítið bar á að hvísla að einum lögregluþjóninum: „Hjálpaðu mér héðan og ég skal segja þér allt sam­ an.“ Það varð til þess að lögreglan fann lík Sylvíu og Gertrude, Paula, Stefanía, John, Hobbs og Coy voru handtekin sökuð um morð. Mál­ ið var á sínum tíma kallað „versti glæpur framinn gegn einstaklingi í sögu Indíana­fylkis“. Til að gera langa sögu stutta var Gertrude sakfelld fyrir morð og dæmd til lífstíðarfangelsisvistar. Hún áfrýjaði dómnum en var sak­ felld á ný árið 1971. Þrátt fyrir viðamikil mótmæli fékk Gertrude reynslulausn árið 1985. Hún fór til Iowa þar sem hún dó úr lungnakrabba í júní 1990, sex­ tug að aldri. n Gertrude Nadine Baniszewski var einnig þekkt undir nöfnunum Gertrude Wright og Nadine van Fossa n Gertrude stóð fyrir pynting- um á Sylvíu Likens, táningsstúlku sem hún hafði tekið inn á heimili sitt„Hjálpaðu mér héð- an og ég skal segja þér allt saman. Versti glæpur í sögu Indíana Hjón grafin lifandi: Mannrán og Morð Tiffany Ann Cole fæddist 3. desember 1981. Í félagi við þrjá karlmenn, Alan Wade, Bruce Nixon og Michael Jackson, kærasta sinn, skipulagði Tiff- any mannrán og morð á hjón- um í Duval-sýslu í Flórída. Að sögn saksóknara var ljóst að ekki hefði verið um skyndihugdettu að ræða hjá fjórmenningunum því þeir höfðu tekið hjónunum gröf í Charlton-sýslu tveimur dögum áður en þeir bönkuðu upp á hjá þeim undir því yfirskyni að þeir þyrftu að komast í síma. Tiffany Cole var vel kunn- ug hjónunum Carol og Reggie Sumner og hafði verið ná- granni þeirra þegar þau bjuggu í Suður-Karólínu. Þá hafði Tiff- any keypt af hjónunum bíl þeg- ar þau fluttu til Flórída í mars árið 2005. Síðla sumars 2005 gerðu Tiffany og kærasti hennar, Michael Jackson, sér ferð til Flórída til að ganga frá pappír- um vegna kaupanna á bílnum og bjuggu þá á heimili Sumner- hjónanna. Skömmu síðar, í júlí 2005, bönkuðu Tiffany og félagar hennar þrír upp á hjá Sumner- hjónunum og báðu um að fá að nota símann. Fyrirvaralaust var Reggie tekinn kverkataki og þröngvað til að láta af hendi hraðbankakort og lykilnúmer. Að því loknu voru hjónin bundin og kefluð með einangr- unarlímbandi. Þeim var síðan fleygt í farangursrými eigin bifreiðar og síðan ekið sem leið lá yfir fylkjamörkin til Georgíu. Þar beið hjónanna gröf sem þeim var fleygt ofan í bundn- um og kefluðum og þau grafin lifandi. Tiffany beið ekki boðanna í kjölfar glæpsins og veðsetti skartgripi og fleiri muni úr eigu Sumner-hjónanna og með hraðbankakorti náðust meira en þúsund Bandaríkjadalir út af reikningi þeirra. Æðibunugangurinn varð til þess að þrír af fjórmenning- unum voru gripnir glóðvolgir á hóteli í Suður-Karólínu eftir að hafa notað hraðbankakort- ið þar. Við réttarhöldin síðar voru kviðdómurum sýndar ljósmyndir af Tiffany Cole og tveimur vitorðsmanna henn- ar með fullar hendur fjár þar sem þau fögnuðu vel heppn- aðri aðgerð með kampavíni í eðalvagni. Tiffany Cole fékk tvöfaldan lífstíðardóm og Wade og Jakc- son fengu dauðadóm. Nixon bar hins vegar vitni gegn fé- lögum sínum og vísaði lögreglu á lík hjónanna. Hann játaði sig sekan um annarrar gráðu morð og fékk 45 ára dóm. Gertrude Nadine Baniszewski Stóð fyrir ótrúlegum misþyrmingum á Sylvíu Likens sem að lokum leiddu til dauða hennar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.