Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Blaðsíða 15
„Ísland getur vel orðið stórveldi í sjávarútvegsmálum innan Evrópu- sambandsins.“ Þetta sagði Bald- ur Þórhallsson, prófessor í stjórn- málafræði við Háskóla Íslands, en hann tók sæti á Alþingi í síðustu viku sem varamaður fyrir Mörð Árna- son. Baldur sagði þetta í fyrirspurn á Alþingi, sem hann beindi til þing- manna Sjálfstæðisflokksins, og þá sérstaklega til Bjarna Benediktsson- ar, formanns flokksins. Hann spurði ennfremur: „Við hvað er Sjálfstæðis- flokkurinn svona hræddur?“ Bjarni brást ókvæða við og spurði Baldur á móti: „Trúir þingmaður- inn því í raun og veru að með því að gangast undir fleiri svið Evrópusam- starfsins værum við að öðlast ein- hver völd?“ Talsvert var rætt um Evrópumál í síðustu starfsviku Alþingis, þar sem komu fram nokkur sjónarmið. Bald- ur sagði ennfremur að samningur- inn um Evrópska efnahagssvæðið, sem gekk í gildi árið 1994, væri liðin tíð, enda um ólýðræðislegan samn- ing að ræða sem færði Íslendingum takmörkuð áhrif. Þorgerður Katr- ín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, benti á að Íslend- ingar væru ekki að nýta sér öll þau tækifæri sem fælust í EES-samningn- um og vildi fara að fordæmi Norð- manna. Hún vill eftir sem áður að þingmenn sameinist um að ná sem bestum samningi í aðildarviðræðum við ESB. Yrðum stærst í sjávarútvegi Baldur benti á, að ef Ísland gerðist aðildarríki að ESB, þá yrðum við um leið stærsta fiskveiðiríki sambands- ins. „Ef við skoðum síðustu 10 ár, þá er heildarafli sem er veiddur við Ís- lands strendur um 25 til 30 prósent af heildarafla Evrópusambands- ins. Þetta fer auðvitað mikið eftir því hvernig árar í fiskveiðum en eftir sem áður er ljóst, að ef við værum aðild- arríki, þá værum við helsta fiskveiði- þjóð sambandsins. Það eitt og sér gefur okkur mjög sterka stöðu í ráð- herraráði sjávarútvegsmála, fram- kvæmdastjórn eða Evrópuþinginu. Í öðru lagi hefur Evrópusamband- ið sýnt að það vill nýta þá krafta og sérþekkingu sem til er í sjávarútvegs- málum. Gott dæmi er að þegar Norð- menn sömdu um aðild árið 1994, þá var samið um að þeir myndu leiða framkvæmdastjórn sjávarútvegs- mála. Sem var auðvitað eðlilegt, því Norðmenn hefðu orðið stærsta sjáv- arútvegsríki sambandsins á þeim tíma. Þess vegna er ég ekki í nokkr- um vafa um, að Íslendingar ættu alla möguleika á að leiða framkvæmda- stjórn sjávarútvegsmála, ef til aðildar kæmi.“ ESB vill nýta sérkunnáttu Baldur telur að Íslendingar geti áork- að miklu í sjávarútvegsstefnu ESB. Þar skipti smæð landsins í raun engu máli. „Í Evrópusambandinu er það þannig að sérkunnátta er nýtt til fulls. Þeir sem kunna að reka banka, fá þess vegna framkvæmdastjóra- stöðu efnahags- og peningamála. Lúxemborg hafði það embætti lengi vel, þrátt fyrir að vera smáríki, bara til að nefna dæmi. Svíar hafa verið leið- andi í umhverfismálum og fengu því framkvæmdastjórastöðu á sviði um- hverfismála. Þannig starfar Evrópu- sambandið einfaldlega.“ Smáríki velja sína slagi Í svari Bjarna Benediktssonar í síð- ustu viku sagði hann að áhrif Íslands yrðu lítil sem engin með fjóra til sex þingmenn á Evrópuþinginu. Sam- kvæmt Lissabon-sáttmálanum er reyndar tryggt að þeir yrðu sex, sem yrði hlutfallslega mesti þingmanna- fjöldi á hverja þúsund íbúa. En það er fleira sem kemur til, að mati Baldurs, sem mun tryggja Íslendingum áhrif þegar kemur að sjávarútvegsmál- um. „Nú er rétt að hafa það í huga, að það er ráðherraráðið sem er helsti löggjafaraðilinn, ekki þingið. Í ráð- herraráðinu er hefð fyrir því að mál séu leyst í sátt, oftar en ekki einróma, en þar sitja allir við sama borð, óháð stærð. Í framkvæmdastjórninni gætu Íslendingar einnig haft áhrif, þar sem þeir hefðu sína starfsmenn. Svo má ekki gleyma því að þingmannafjöld- inn á Evrópuþinginu segir ekki allt. Í fyrsta lagi þá kjósa þingmenn ekki eftir þjóðerni heldur eftir flokkslín- um. Í öðru lagi þá velja smáríki sína slagi og forgangsraða eftir þjóðar- hagsmunum. Það er alveg degin- um ljósara að sjávarútvegsmál væru númer eitt á lista íslenskra Evrópu- þingmanna og gætu þeir hæglega haft áhrif eftir því.“ Eigum góða samningamenn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði í samtali við DV að þrátt fyr- ir að margar mismunandi skoðan- ir væru á Alþingi á aðildarumsókn í ESB, væri mikilvægt að þingmenn sameinuðust um að ná fram sem bestum samningi í aðildarviðræðum við ESB. Þetta ætti sérstaklega við um sjávarútvegsmál. „Við Íslending- ar höfum sýnt það að við eigum mjög fært fólk þegar kemur að hagsmun- um Íslands í utanríkismálum. Þetta á ekki aðeins við um samninga okkar að EFTA eða NATO heldur einnig alla okkar aðkomu að hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna, svo dæmi séu nefnd. Okkur hefur gengið vel að koma okkar sjónarmiðum á framfæri og ég trúi ekki öðru en að við látum á það reyna að ná sem bestum samn- ingi.“ Þorgerður bendir þó á að varhuga- vert sé að gera of miklar breytingar á núverandi fiskveiðistjórnarkerfi Ís- lendinga. „Ég hef meiri áhyggjur af brölti ríkisstjórnarinnar hér heima í sjávarútvegsmálum, þar sem við höfum þó haft fiskveiðistjórnarkerfi sem hefur þótt eftirsóknarvert er- lendis. Ég ætla samt að leyfa mér að vera jákvæð, því þrátt fyrir að þetta hafi verið hatrömm rimma í þinginu um sjávarútvegsmálin, þá er ákveð- inn sáttatónn. Ég held að það sé mun styttra á milli manna í sjávarútvegs- málum heldur en látið hefur verið í veðri vaka.“ Fréttir | 15Helgarblað 15.–19. júní 2011 upplifa sé rofin. Einangrunin hefur vægast sagt mjög neikvæð áhrif á líf þeirra. Það er ekki á þau bætandi.“ Steinunn segir að nú sé þessi mála- flokkur inni á borði hjá innanríkis- ráðherra og því sé kjörið tækifæri að vekja máls á honum á ný. Mánaðarleg borgarferð DV ræddi einnig við þrjá meðlimi No Borders í Reykjavík sem sóttu fund- inn. Það voru þau Almar Erlingsson, Haukur Hilmarsson og Kristín Anna Hermannsdóttir. Þau sögðu blaða- manni frá því að No Borders væri al- þjóðlegt net grasrótarstarfsemi sem vinnur með flóttamönnum að frjáls- um ferðaflutningum fólks, en sam- tökin hér á landi voru stofnuð fyrir um hálfu ári. Meðlimir samtakanna hér á landi hafa undanfarið starf- að með flóttamönnum og unnið að úrbótum á aðstæðum þeirra hér á landi. Rétt eins og Steinunn, eru þau sammála um að réttast væri að flótta- fólk héldi til í Reykjavík, sökum þess að mestöll þjónusta sem það þarf að sækja er í höfuðborginni. Flóttafólk fær farmiða til þess að sækja nauðsynlega þjónustu til Reykjavíkur, svo sem lögfræðiþjón- ustu og aðstoð Rauða krossins, en hins vegar fær fólk einungis farmiða til þess að fara einu sinni í mánuði til borgarinnar í eigin erindagjörðum. „Á þennan hátt viðurkennir kerfið þörfina á því að fólk tengist íslensku samfélagi og menningu og að slíkri þörf sé ekki mætt í Keflavík. En það kemur hins vegar í veg fyrir að þeir geti aðlagast íslensku samfélagi,“ segir Haukur og Almar tekur und- ir: „Fólk fær sem sagt að brjótast úr samfélagslegri einangrun einu sinni á mánuði.“ Kristín Anna segir slíkar ferðir yfirleitt ekki endast lengur en í einn dag, þar sem fólk eigi ekki kost á því að borga fyrir gistingu í borginni. Stærsta mannréttindamálið Þremenningarnir benda á ýms- ar fleiri ástæður. Í Reykjanesbæ sé flóttafólk oft auðkennt sem slíkt vegna húðlitar, en í Reykjavík væri auðveldara fyrir fólk að falla inn í hópinn, þar sem samfélagið sé stærra og fjölmenningarlegra. Þá segir Kristín Anna að sér finnist ein- faldlega mannúðlegra að slíkir gest- ir séu tíu mínútum frá menningar- legum fjölbreytileika heldur en frá flugvellinum, þar sem hægt sé að koma þeim strax úr landi ef þeir fái neitun. Almar segir að nálægð gisti- heimilisins við flugvöllinn lengi hafa verið talin til kosta: „Og það kannski lýsir því viðhorfi sem hefur gengið varðandi flóttamenn á Íslandi, það er að koma þeim út úr landinu sem fyrst með sem minnstum kostnaði.“ Haukur samsinnir þessu: „Við vilj- um að þau séu tíu mínútum frá sam- félagi en ekki tíu mínútum frá brott- vísun.“ Margt flóttafólk sækir vinnu á meðan hælisumsókn þeirra er til umfjöllunar. Þau benda á að á Suð- urnesjum sé mikið atvinnuleysi og mikið álag á félagslega kerfinu sem hefur þau áhrif að sérstakar kring- umstæður flóttamanna séu ef til vill síður teknar til greina. Enn fremur vilji sumt flóttafólk læra íslensku á meðan það dvelur hér á landi og í Reykjavík séu skilyrði til íslensku- náms fjölbreyttari. Allt þetta og meira til telja þau skjóta sterkum stoðum undir það að heimili fyrir flóttamenn sé staðsett í höfuðborginni. „Það er ekki verið að biðja um neina ölmusu, ríkið borgar nú þegar fyrir aðstöðuna. Það er einungis verið að biðja um stefnubreytingu. Þetta er pólitískt mál en ekki efnahagslegt eða fjárhagslegt,“ segir Almar. Þau setja málið í samhengi við þá áherslu sem Reykjavíkurborg hefur lagt á mann- réttindi og nefna til að mynda þegar Laugavegi var breytt í mannréttinda- veg í þrjá daga, en með þessu væru „orðin að öðlast verknað,“ segir Hauk- ur og bætir við: „Ég held að þetta yrði kannski einhver stærsti mannrétt- indasigur Reykjavíkurborgar síðustu ára, en þetta myndi gerbreyta að- stöðu flóttamanna á Íslandi.“ „Ég held að þetta yrði kannski einhver stærsti mannréttindasigur Reykjavíkurborgar síðustu ára, en þetta myndi gerbreyta aðstöðu flóttamanna á Íslandi. Baldur Þórhallsson, varaþingmaður og prófessorEr ekki í vafa um að Íslendingar geta haft mikil áhrif á sjávarútvegsstefnu ESB. n Íslendingar verða stærsta fiskveiðiþjóð ESB, verði af að- ild n Gætum haft ómæld áhrif að mati Baldurs Þórhalls- sonar n Þorgerður Katrín telur vannýtt tækifæri falin í EES-samningnum n Bjarni Benediktsson ítrekar andstöðu TekisT á um evrópumál Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is „Ef við værum að- ildarríki – þá vær- um við helsta fiskveiði- þjóð sambandsins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Varar við of miklum breytingum á fiskveiði- stjórnarkerfi Íslendinga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.