Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Síða 8
8 | Fréttir 15.–19. júní 2011 Helgarblað
Ingvi Hrafn kennir endurskoðanda um brot sitt:
Bókhald Ingva í ólestri
Í áritun endurskoðanda við ársreikn-
ing Langárveiða ehf., félags Ingva
Hrafns Jónssonar og konu hans, fyrir
árið 2004 kemur fram að bókhalds-
skráningu og vörslu fylgiskjala hafi
í veigamiklum atriðum verið ábóta-
vant. Segir að það eigi einkum við
um tekjuskráningu sem að stórum
hluta sé ekki til staðar. Af þeirri
ástæðu hafi verið byggt á innborg-
unum inn á bankareikninga í eigu
félagsins og reikninga í eigu eigenda
félagsins. Virðist vera sem bókhald
félagsins hafi um nokkurt skeið ver-
ið í miklum ólestri. Þegar DV hafði
samband við endurskoðanda félags-
ins vildi hann ekki tjá sig um málið.
Þess ber að geta að ársreikningurinn
er ekki endurskoðaður.
„Þessum kapítula í mínu lífi er
lokið. Ég hef ekkert meira um málið
að segja,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson
en hann og kona hans voru dæmd í
Héraðsdómi Reykjavíkur á dögunum
vegna skattskila og brota í rekstri á
fyrrnefndu félagi. Samkvæmt dóm-
inum oftöldu þau innskatt á árun-
um 2003 til 2006. Ingvi Hrafn fékk sex
mánaða fangelsi og sekt upp á fimm-
tán milljónir en Ragnheiður Sara,
kona Ingva, fékk þriggja mánaða
fangelsi og átta milljóna króna sekt.
Báðir dómarnir eru skilorðsbundnir.
Ingvi Hrafn sagði í þætti sínum
Hrafnaþingi, á ÍNN, að um væri að
kenna lélegum endurskoðanda sem
hefði komið þeim hjónum í þessa
klípu. Hjónin gerðu ekki athuga-
semd við efni ákærunnar fyrir dómi
en Ingvi Hrafn sagði að um væri að
ræða vanrækslu endurskoðanda eða
að um mistök hefði verið að ræða.
Fyrir dómi sagði fyrri endurskoðandi
þeirra hjóna að hann hefði aldrei
séð um virðisaukaskattskýrslur fyrir
félagið. Í viðtali við Pressuna í gær
sagði Ragnheiður Sara, eiginkona
Ingva, frá því að umræddur endur-
skoðandi væri Árni Björn Birgisson.
„Ég vil ekkert tjá mig um þetta,“ sagði
Árni Björn þegar DV náði tali af hon-
um.
Kennir öðrum um Ingvi Hrafn
hefur sagt að dómurinn sem hann
og kona hans fengu á sig í Héraðs-
dómi Reykjavíkur á dögunum sé
lélegum endurskoðanda að kenna.
„Megintilgangurinn er að berjast fyr-
ir því að það verði opnað einhvers
konar meðferðarheimili,“ segir Alma
Geirdal í samtali við DV. Hún stofnaði
nýlega ásamt manninum sínum sam-
tökin VökuRó sem ætlað er að berjast
fyrir málefnum átröskunarsjúklinga.
„Þetta er þvílík vinna og þetta er langt
ferli en það þarf einhver að berjast
fyrir þessu með undirskriftasöfnun og
fundum.“ Alma hefur sjálf barist við
átröskun og finnst vanta fleiri úrræði
fyrir átröskunarsjúklinga á Íslandi.
Hún vill jafnframt að skyldufræðsla
um átröskunarsjúkdóma verði tekin
upp í skólum og á vinnustöðum. Á
Facebook-síðu samtakanna segir að
VökuRó ætli jafnframt að bjóða upp
á fræðsluhópa fyrir átröskunarsjúk-
linga og aðstandendur þeirra.
Önnur samtök
átröskunarsjúklinga
VökuRó eru ekki fyrstu samtök-
in sem Alma stofnar til stuðnings
átröskunarsjúklingum en árið
2005 stofnaði hún samtökin For-
ma ásamt Eddu Ýri Einarsdóttur.
Markmið Forma voru mjög svip-
uð ef marka má gamla heimasíðu
samtakanna. Þar segir að Forma
beiti kröftum sínum til að fræða
fólk og bæta stöðuna. Alma sjálf
var skráð framkvæmdastjóri sam-
takanna og ráðgjafi í fullu starfi
en Edda var stjórnarformaður og
einnig í fullu starfi sem ráðgjafi.
Alma segir þær hafa steypt sér í
skuldir vegna vinnu við samtökin,
enda þáðu þær ekki laun í fyrstu og
gátu ekki sinnt annarri vinnu sam-
hliða.
Fjölmargir styrktu Forma
Fjölmargir studdu Forma sam-
tökin bæði með því að gefa vinnu
sínu og með fjárframlögum. Með-
al styrktaraðila sem skráðir voru á
heimasíðu samtakanna, þegar þau
lögðu upp laupana árið 2007, voru
Icelandair, Fréttablaðið, Master-
card, Esso og Sagafilm. Samtökin
héldu stóra tónleika árið 2006 þar
sem töluvert fjármagn safnaðist og
það sama ár fékk Forma samfélags-
verðlaun Fréttablaðsins, eina millj-
ón króna. Alma segir að mest af því
fjármagni sem samtökin fengu hafi
farið í leigu á húsnæði, í að greiða
fyrir auglýsingar og hluti eins og
boli og armbönd sem samtökin
létu búa til fyrir sig. Margir hafa
gefið vinnu sína en samtökin hafi
engu að síður þurft að greiða margt
úr eigin vasa. Alma segist vonast
til að sá peningur sem safnast fyrir
samtökin að þessu sinni fari ekki í
að greiða leigu.
Að sögn Ölmu lagði Forma upp
laupana í kjölfar þess að hún lenti
í bílslysi, var rúmliggjandi í þrettán
vikur og gat því ekki sinnt starfinu
sem skyldi.
Þurfa tóm til að berjast
„Þetta er náttúrulega sama málefni
en ég hef lært mikið af reynslunni.
Samtökin þurfa að fá meira tóm til
að berjast. Forma endaði bara ein-
hvern veginn á því að sinna tilfell-
um sem höfðu engan annan stað
til að fara á,“ segir Alma aðspurð
um hvort VökuRó séu ekki sömu
samtök og Forma, bara undir nýju
nafni. Hún segir svo ekki vera enda
séu aðrir sem standi að VökuRó og
aðrar áherslur. Þau eru nú að leita
að húsnæði undir samtökin sem og
styrktaraðilum. Þá eru þau einnig
komin í samband við fólk sem til-
búið er að gefa vinnu sína í þágu
samtakanna. Á döfinni hjá VökuRó
er að koma starfinu almennilega í
gang og halda styrktartónleika.
n Alma Geirdal stofnaði Forma árið 2005 n Var að stofna VökuRó, ný samtök átröskunar-
sjúklinga n Fjölmargir styrktu Forma og gáfu vinnu sína n Leigan át upp styrkina
Styrkir gegn átröskun
notaðir í húsaleigu
„Alma segir að mest
af því fjármagni sem
samtökin fengu hafi farið í
leigu á húsnæði, í að greiða
fyrir auglýsingar og hluti eins
og boli og armbönd sem
samtökin létu búa til fyrir sig.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Ný samtök Alma Geirdal stofnaði nýlega samtökin VökuRó til að
berjast fyrir málefnum átröskunarsjúklinga. Hún stofnaði samtökin
Forma árið 2005 en þau lifðu einungis í tvö ár. myNd GuNNAR GuNNARssoN
Börnunum ekið
til Gautaborgar
Vél Iceland Express sem lenti í Osló
á mánudag vegna bilunar lenti í
Keflavík skömmu fyrir miðnætti en
bilun varð í mælaborði vélarinn-
ar. Vélin var á leið til Gautaborgar í
gær en lenti í Osló til að taka fleiri
farþega. Í tilkynningu frá félaginu
kom fram að farþegunum sem voru
fyrir um borð, þar á meðal 38 sykur-
sjúk börn á leið í sumarbúðir í Sví-
þjóð, hafi verið ekið til Gautaborgar
í langferðabílum og komust þeir á
áfangastað skömmu eftir klukkan
23. Farþegar sem áttu bókað far frá
Gautaborg til Keflavíkur voru á hót-
eli í Gautaborg í nótt og fljúga heim
seinna í dag.
Margföld aðsókn
á vef Alþingis
Vefur Alþingis er hástökkvari vik-
unnar í samræmdri vefmælingu
Modernus. „Aðeins tvisvar síðan
mælingar hófust 2004 hafa fleiri
skoðað althingi.is, í lok ársins
2008 þegar hrunið var í hámarki
og svo í apríl 2010, þegar rann-
sóknarskýrslan leit dagsins ljós,“
segir í tilkynningu frá Alþingi
vegna aðsóknarinnar. Ríflega 30
þúsund manns heimsóttu vef-
inn samanborið við 10 þúsund
manns í vikunni þar á undan.
St. 41-46
Grensásvegur 8 &
Nýbýlavegur 12
Sími 517 2040
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
SKÓMARKAÐUR
St. 40-46
St. 41-50
St. 40-46
St. 41-46
Grensásvegur 8 &
Nýbýlavegur 12
Sími 517 2040
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
SKÓMARKAÐUR
St. 40-46
St. 41-50
St. 40-46
Góðir skór
Gott verð
St. 36-41
kr. 6.595
St. 36-41
kr. 5.895
St. 24-35
kr. .395
St. 41-46
kr. 6.795