Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Blaðsíða 12
12 | Fréttir 15.–19. júní 2011 Helgarblað
Í mars árið 2009 yfirtók skilanefnd
Kaupþings tískuvöruverslanakeðj
una Mosaic Fashions sem hafði fram
að því að mestu verið í eigu Baugs. Í
kjölfarið var ákveðið að stofna félagið
Aurora Fashions sem tók yfir rekst
ur verslanakeðjanna Karen Millen,
Coast, Warehouse og Oasis en versl
anakeðjurnar Shoe Studio og Princip
les settar í söluferli. Í byrjun þessa árs
var síðan ákveðið að aðskilja Karen
Millen frá Aurora Fashions.
Talið er að skuldir Mosaic Fash
ions hafi numið nærri 450 milljónum
punda þegar Kaupþing yfirtók félagið
árið 2009 eða nærri 85 milljörðum
íslenskra króna. Kaupþing var jafn
framt eini lánveitandi félagsins og fór
bankinn sjálfur með 20 prósenta hlut
í tískuvöruverslanakeðjunni. Sam
kvæmt yfirliti frá skilanefnd Kaup
þings hefur bankinn sett sér lang
tímamarkmið með þessar eignir og
ekki virðist standa til að selja þær á
næstunni.
„Rekstur Aurora hefur gengið bet
ur en upphaflegar áætlanir gerðu ráð
fyrir þrátt fyrir að umhverfið á bresk
um smásölumarkaði hafi verið erfið
ara en gert hafði verið ráð fyrir,“ segir
Davíð Stefánsson, upplýsingafulltrúi
skilanefndar Kaupþings. Á síðasta
rekstrarári Aurora skilaði félagið 17,8
milljóna punda hagnaði fyrir afskrift
ir eða um 3,3 milljörðum íslenskra
króna. Var það 36 prósentum betri ár
angur en árið áður. Árleg velta hjá Au
rora er um 90 milljarðar króna, rekur
félagið nærri 1.300 verslanir og hjá því
starfa um sjö þúsund starfsmenn. Ár
leg velta Karen Millen er um 45 millj
arðar króna og rekur félagið rúmlega
300 verslanir þar sem starfa um 1.800
starfsmenn.
Kaupþing eignaðist í Karen
Millen 2001
Ítarlega er farið yfir sögu Mosaic
Fash ions í viðauka fimm í skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis sem
dr. Magnús Sveinn Helgason skrif
aði. Segja má að afskipti Íslendinga
af þessu félagi megi rekja allt aftur til
ársins 2001 þegar fjárfestarnir Sig
urður Bollason og Magnús Ármann
leituðu til KB Banka eftir stuðningi til
að kaupa 49 prósenta hlut í verslana
keðjunni Karen Millen af hjónunum
Kevin Stanford og Karen Millen sem
voru að skilja á þeim tíma. Í þeim við
skiptum eignaðist KB Banki nærri 13
prósenta hlut í Karen Millen.
Árið 2003 yfirtók Baugur síðan
verslanakeðjuna Oasis og kom Kaup
þing einnig að þeim viðskiptum
ásamt Derek Lovelock, þáverandi for
stjóra Oasis, sem síðar varð forstjóri
Mosaic Fashions, og Richard Glan
ville, fjármálastjóra Oasis. Yfirtak
an kostaði 19,3 milljarða króna sem
á þeim tíma voru stærstu kaup Ís
lendinga. Árið 2004 keypti Oasis síð
an Karen Millen á 16 milljarða króna
og voru félögin sameinuð. Eignaðist
Baugur 44 prósent í félaginu, eigend
ur Karen Millen 25 prósent og Kaup
þing 20 prósent.
Nafni félagsins var síðan breytt í
Mosaic Fashions árið 2005 og var þá
skráð í íslensku Kauphöllina. Í sept
ember árið 2006 yfirtók Mosaic Fas
hions síðan verslanakeðjuna Rubi
con á 320 milljónir punda sem á þeim
tíma námu um 43 milljörðum ís
lenskra króna. Yfirtakan var fjármögn
uð af Kaupþingi sem á þeim tíma var
stærsta yfirtakan sem bankinn hafði
komið að. Rubicon átti tískuvörukeðj
urnar Warehouse og Principles auk
skófyrirtækisins Shoe Studio en eins
og áður kom fram seldi skilanefnd
Kaupþings Principles og Shoe Studio
árið 2009 þegar skilanefndin yfirtók
Mosaic Fashions og stofnaði í kjölfar
ið Aurora Fashions.
Í október árið 2007 var Mosaic Fas
hions síðan afskráð úr Kauphöll Ís
lands þegar félagið Tessera Holding
ehf. yfirtók félagið. „Tessera Hold
ing var í eigu dótturfyrirtækis Baugs,
FCapital, Kaupþings, Fjárfestingar
félagsins Gnúps og Kevins Stanford
auk nokkurra af helstu stjórnendum
Mosaic Fashions og fyrrverandi eig
enda Karen Millen,“ segir í rannsókn
arskýrslu Alþingis.
Eignarhaldsfélagið FCapital
skuldaði Kaupþingi um 12 milljarða
króna samkvæmt skýrslu rannsókn
arnefndar Alþingis. Áður en Mosaic
Fashions var tekið af markaði fór F
Capital með 37 prósenta hlut í Mos
aic Fashions. Samkvæmt ársreikningi
FCapital fyrir árið 2007 fór félagið
með allan eignarhlut Baugs í Mos
aic eftir að félagið var tekið af mark
aði eða 49 prósenta hlut. Í árslok 2007
var sá hlutur metinn á 42 milljarða
króna miðað við núverandi gengi. Fé
lagið var úrskurðað gjaldþrota þann
17. desember árið 2010 en ekki er að
finna neinar upplýsingar um það hver
sé skiptastjóri þrotabúsins eða hvort
skiptum þess sé lokið.
Slóð af gjaldþrota
eignarhaldsfélögum
Eignarhaldsfélagið Tessera Holding
sem yfirtók Mosaic Fashions þeg
ar það var tekið af markaði árið 2007
hefur ekki verið úrskurðað gjaldþrota.
Hins vegar var skipuð skilanefnd yfir
félaginu þann 14. desember árið 2010
en í henni sitja þeir Þórður S. Gunn
arsson hæstaréttarlögmaður og Her
bert Viðar Baldursson, löggiltur end
urskoðandi. Lítil sem engin starfsemi
virðist hafa verið inni í þessu félagi. Í
ársreikningi félagsins fyrir árið 2010
kemur fram að eignir félagsins séu
nálægt 27 milljónum króna, skuldir
nema um 24 milljónum króna og er
eigið fé upp á þrjár milljónir króna.
Þegar yfirtakan á Mosaic Fashions átti
sér stað árið 2007 virðist Tessera því
einungis hafa yfirtekið önnur eign
arhaldsfélög enda eru engar skuldir
skráðar á þetta félag í skýrslu rann
sóknarnefndar Alþingis.
Félagið M. Fashions hf. skuldaði
Kaupþingi um 8,6 milljarða króna
samkvæmt skýrslu rannsóknar
nefndar Alþingis. Árið 2007 námu
skuldir M. Fashions hf. um 420 millj
ónum punda eða um 80 milljörð
um íslenskra króna. Í skýrslu rann
sóknarnefndar Alþingis kemur fram
að skuldir M. Fashions hf. við Kaup
þing hafi numið 8,6 milljörðum króna
og skuldir Mosaic Fashions Finance
Limited 68 milljörðum króna. Skuld
ir þessara tveggja félaga og FCapital
hjá Kaupþingi námu um 89 milljörð
um. FCapital virðist þó líka hafa átt
hlut í eignarhaldsfélaginu Milton sem
hélt utan um 31,4 prósenta hlut Baugs
í heildsölukeðjunni Booker Groop.
M. Fashions hf. var lýst gjaldþrota
árið 2009. Skiptum þrotabúsins er
ekki enn lokið en samkvæmt heim
ildum DV eru íslenskir lífeyrissjóðir á
meðal stærstu kröfuhafa M. Fashions
hf. vegna skuldabréfsins MOSAIC 05
1 sem félagið gaf út árið 2005. Útgefið
skuldabréf var upphaflega upp á sex
milljarða króna en talið er að ógreidd
ar eftirstöðvar þess nemi á bilinu
þremur til fjórum milljörðum króna.
Stjórnendur Mosaic enn við völd
Þrátt fyrir að skilanefnd Kaupþings
hafi yfirtekið Mosaic Fashions árið
2009 var ekki skipt um stjórnend
ur hjá félaginu. Sem dæmi um það
má nefna að Derek Lovelock, sem
var forstjóri Mosaic Fashions áður
en það fór í þrot, starfar í dag sem
stjórnarformaður Aurora Fashions,
arftaka Mosaic og Richard Glanville,
fyrrverandi fjármálastjóri Mosaic
starfar í dag sem fjármálastjóri Au
rora Fashions. Eins og áður kom
fram voru þeir stjórnendur hjá Oasis
áður en Baugur yfirtók félagið árið
2003. Mike Shearwood, fyrrverandi
aðstoðarforstjóri Mosaic, er forstjóri
Aurora Fashions í dag.
Derek Lovelock átti 6,6 prósent
í Mosaic Fashions en í dag fer skila
nefnd Kaupþings með 90 prósenta
hlut í Aurora Fashions og stjórnend
ur hjá fyrirtækinu með tíu prósenta
hlut. Ekki liggur ljóst fyrir hversu
stóran hluta Derek Lovelock fer með
af þeim tíu prósentum. Það vekur þó
athygli að fyrrverandi stjórnendum
Mosaic Fashions sem stjórnuðu fé
laginu þegar það fór í þrot sé gefið
tækifæri til að fara áfram með stjórn
hjá nýja félaginu og að þeir skuli jafn
framt koma að eignarhaldi hins nýja
félags.
Einnig má geta þess að fyrir hönd
skilanefndar Kaupþings sitja tveir
fyrrverandi starfsmenn Kaupþings
í stjórn Aurora Fashions. Páll Ólafs
son, sem starfaði áður sem sérfræð
ingur hjá Kaupþingi í London starfar í
dag hjá skilanefnd Kaupþings og situr
í stjórn Aurora Fashions sem fulltrúi
skilanefndarinnar. Það gerir líka Jó
hann Pétur Reyndal, fyrrverandi
framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjaf
ar Kaupþings og núverandi fram
kvæmdastjóri hjá skilanefndinni.
„Allar ákvarðanir skilanefndar
Kaupþings eru teknar með tilliti til
markmiðs og lagalegrar skyldu skila
nefndar sem er að hámarka verð
mæti eigna bankans til hagsbóta fyrir
kröfuhafa,“ segir í svari frá skilanefnd
Kaupþings við fyrirspurn DV um það
hvers vegna stjórnendur hjá Mosaic
Fashions hafi ekki verið vikið frá störf
um eftir að félagið fór í þrot.
n Fer með 90 prósenta hlut í Aurora Fashions og Karen Millen sem áður voru í eigu Mosaic Fashions n Sömu stjórn-
endur og voru áður yfir Mosaic eru hjá nýja félaginu n Íslenskir lífeyrissjóðir tapa á gjaldþroti Mosaic Fashions
Skilanefndin stór á
s ásölumarkaðnu
„Allar ákvarðanir
skilanefndar Kaup-
þings eru teknar með tilliti
til markmiðs og lagalegrar
skyldu skilanefndar sem
er að hámarka verðmæti
eigna bankans til hags-
bóta fyrir kröfuhafa.
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Sömu stjórnendur Derek Lovelock, stjórnarformaður Aurora Fashions, Mark Shearwood
forstjóri og Richard Glanville fjármálastjóri. Þeir voru yfirstjórnendur Mosaic Fashions áður
en félagið fór í þrot.
Fyrrverandi veldi Baugs Mosaic Fashions var áður í eigu
Baugs. Félagið var stórtækt í yfirtökum á breskum tískuvöru-
verslanakeðjum fyrir bankahrunið en Kaupþing fjármagnaði
þær að stórum hluta með lánsfé. Skilanefnd Kaupþings fer með
90 prósenta hlut í Aurora Fashions og Karen Millen í dag sem
áður voru undir Mosaic Fashions áður en félagið fór í þrot.