Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Blaðsíða 22
22 | Umræða 15.–19. júní 2011 Helgarblað
„Þetta getur verið
virkilega and-
styggilegur
andskotans
helvítis heimur.“
n Anita Briem ræddi meðal annars um
lífið í Hollywood og skuggahliðar
glansheimsins í opnuviðtali. – DV
„Þetta er skuldlaus eign
mín í Bandaríkjunum.“
n Jóhannes Jónsson
um rúmlega 600
fermetra hús á Flórída
sem hann seldi fyrir 154
milljónir króna til
bandarísks félags í
eigin eigu. – DV
„Ég hef ekkert komið að
neinni skoðun á því.“
n Steingrímur J. Sigfússon
aðspurður hvort það sé til
skoðunar af hálfu
fjármálaráðuneytisins að
taka upp kanadískan
dollar hér á landi. – DV
„Ellin er farin að bíta
alveg svakalega og ég er
kominn með gangráð og
allt.“
n Sigurður A. Magnús-
son rithöfundur segist
saddur lífdaga þegar
hann horfir yfir farinn veg
í viðtali við Þórarin
Þórarinsson. – Fréttatíminn
„Nei, það er óásættanlegt
og ég harma að það hafi
gerst. Það mun ekki koma
fyrir aftur.“
n Ólafur Jóhannsson um þá
staðreynd að hann hafi notað neftóbak
í beinni útsendingu á
landsleik í síðustu viku. Það
þótti vandræðalegt í ljósi
stöðu hans og átaks KSÍ
gegn tóbaksnotkun. – DV
Væntingar kvenna
Leiðari
Bókstaflega
Jón Trausti Reynisson ritstjóri skrifar.
Sótt að Guðmundi
n Lítil umræða hefur orðið um þau
skyndilegu vistaskipti Ásmundar
Einars Daðasonar að vippa sér
úr VG og yfir í
Framsóknar
flokkinn. Talið
er að sjálfur sé
þingmaðurinn
að hugsa um
framhaldslíf í
pólitík og að
hann hafi loforð
forystu Fram
sóknarflokksins um að fá öruggt
sæti á lista flokksins. Hermt er að
Þórólfur Gíslason, guðfaðir flokks
ins á Sauðárkróki, sé lykilmaður
í plottinu ásamt Sigmundi Davíð
Gunnlaugssyni formanni. Hann
er sagður ala með sér þá von að
sauðabóndinn Ásmundur eigi eftir
að ýta Guðmundi Steingrímssyni út
og hirða annað sætið á listanum.
Leitað að kjördæmi
n Guðmundur Steingrímsson
þingmaður er sagður vera undir
þrýstingi um að snúa aftur í Sam
fylkinguna. Hann mun ekki vera því
algjörlega fráhverfur í ljósi andúðar
forystu flokksins á nærveru hans.
Þó er talið líklegra að hann hrökkvi
undan Ásmundi Einari Daðasyni
úr Norðvesturkjördæmi og reyni að
komast í framboð í Suðurkjördæmi
sem er hálflemstrað eftir brott
hvarf Guðna Ágústssonar. Fram
tíðarmarkmið Guðmundar er sagt
vera að feta í fótspor föður síns og fá
leiðtogahlutverk í kraganum þegar
Siv Friðleifsdóttir fer út.
Ræðuhöfundur
Jóhönnu
n Mikið er spáð og spekúlerað í því
hver hafi samið hina illyrtu ræðu Jó
hönnu Sigurðardóttur sem innihélt
formælingar í
garð ríks fólks og
bjargálna. Talaði
Jóhanna um
„ofurlaunalið“,
„fjárglæframenn“
og „stóreigna
elítu“ sem fengju
ekki að soga til
sín hagvöxt. Sá
sem skrifar yfirleitt ræður Jóhönnu
er Hrannar B. Arnarsson, aðstoðar
maður hennar. Þeir sem hafa rýnt
í umrædda ræðu telja útilokað að
hann hafi komið þar að málum. Til
þess hafi hún verið í senn of illyrt og
vel stíluð. Ráðgátan er því óleyst.
Svipa Heiðars
n Athafnamaðurinn Heiðar Már
Guðjónsson hefur í nógu að snúast
þótt áform hans um að ná undir sig
Sjóvá hafi ekki gengið eftir. Nýverið
stofnaði hann, ásamt félaga sínum,
einkahlutafélag sem ber nafnið
Svarta svipan. Óljóst er hvað því
félagi er ætlað að gera en nafnið
er óneitanlega athyglisvert. Fjár
festirinn sem var einn nánasti við
skiptafélagi og starfsmaður Björgólfs
Thors Björgólfssonar á í útistöðum
við ýmsa, þeirra á meðal Má Guð
mundsson seðlabankastjóra. Velta
menn fyrir sér hvort Heiðar ætli sér
að beita svipunni á einhvern sér
stakan.
Sandkorn
tryggVagötu 11, 101 reyKjaVÍK
Útgáfufélag: DV ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is
Ritstjórnarfulltrúi:
jóhann Hauksson, johann@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Karl Sigurbjörnsson biskup heldur áfram ótrúlegum spuna sínum til að halda valdastöðu sinni
á kostnað þjóðkirkjunnar, sem hann
starfar fyrir, og kvennanna, sem urðu
fyrir kynferðisofbeldi af hálfu forvera
hans í valdastóli.
Þegar Karl Sigurbjörnsson bisk
up fékk í hendurnar bréf um að fyrr
verandi biskup hefði misnotað dóttur
sína tók Karl ákvörðun um að hunsa
það. Hann svaraði því ekki og það var
ekki skráð hjá Biskupsstofu fyrr en eftir
að DV hóf umfjöllun um það, meira en
ári eftir að það hafði borist. Þegar Karl
frétti af ásökunum þriggja kvenna um
kynferðisbrot biskupsins gegn þeim
skrifaði hann undir stuðningsyfirlýs
ingu við biskupinn. Því næst ákvað
hann að reyna að fá konurnar til að
sættast við kynferðisbrotamanninn.
Nú þegar upp hefur komist um at
hæfi Karls lýsir hann því sem svo að
honum þyki leitt að hafa „brugðist
væntingum“ kvennanna, líkt og kon
urnar hafi gert sér of miklar vænting
ar; þær hafi kannski verið óraunsæjar
og tilætlunarsamar. Kjarninn í spuna
Karls á kirkjuþingi er að hann hafi ekki
brugðist einn og sér, og að hann hafi
ekki nauðsynlega gert neitt rangt, held
ur hafi vandamálið verið samspil af
væntingum kvennanna og viðbragða
hans. Í stað þess að biðjast umbúða
laust afsökunar á misgjörðum sínum
setur hann þær í samhengi við hugar
ástand kvennanna. Þar sækir hann í
hefðina. Í gegnum tíðina hafa valda
miklir karlar gjarnan beitt fyrir sig hug
arástandi kvenna, þegar þeir eru sak
aðir um að brjóta á þeim.
Iðrun Karls og beiðni um fyrirgefn
ingu er skilyrt. Hann iðrast þess að
eins, að konurnar hafi gert vænting
ar til hans og hann ekki uppfyllt þær.
Hann áréttaði þetta skýrt þegar blaða
maður DV spurði hann hvort beiðni
hans um fyrirgefningu byggði á því
að hann hefði gert eitthvað rangt. „Ég
sagði, ég biðst fyrirgefningar á því að
hafa brugðist væntingum þeirra sem
til mín leituðu.“
Til samanburðar mætti segja að
Ólafur Skúlason, sem fjöldi kvenna
segir hafa beitt sig kynferðisofbeldi,
hefði getað iðrast þess að væntingar
hans og kvennanna hafi ekki farið sam
an þegar hann leitaði á þær. Staðreynd
in er sú að Ólafur gerði eitthvað rangt,
einn og sér og án ábyrgðar kvennanna.
Karl gerði annað rangt, einn og sér. Og
hann heldur áfram að breyta rangt.
Fórnarlömb Ólafs Skúlasonar hafa
þurft að líða fyrir gjörðir og aðgerða
leysi Karls. Þjóðkirkjan er rúin trausti
vegna starfa Karls og Ólafs, sem hann
studdi. Einu hagsmunirnir sem felast
í því að Karl verði áfram biskup eru
því hagsmunir Karls sjálfs að halda
valdataumunum. Annaðhvort finnst
honum hann sjálfur vera mikilvægari
en þjóðkirkjan, eða hann tekur eigin
hagsmuni fram yfir hana. Vænting
ar til hans fara hratt minnkandi, en
hann heldur samt áfram að bregðast
þeim.
Þeirri kenningu er oft haldið á lofti að innan við tvö prósent þeirra sem sitja í fangelsum
heimsins viðurkenni sök. Flestir eru
sem sagt fórnarlömb kerfisins. Saka
menn Íslands eru ekki frábrugðn
ir öðrum að þessu leyti. Hver man
ekki Árna Johnsen og afbrot hans.
Þingmaðurinn hafði sannanlega tek
ið ófrjálsri hendi byggingavörur til
eigin nota og látið skrifa þær á Þjóð
leikhúsið. „Mistök, sem strax voru
leiðrétt,“ sagði hann þegar öll sund
voru að lokast. Seinna skýrði hann
þetta þannig að sem formaður bygg
inganefndar Þjóðleikhússins hefði
hann ekki fengið sanngjörn laun og
unnið langt umfram eðlilega kröfu.
Hann fór því í byggingavöruverslun
og tók út laun sína. Dómstólar litu
málið ekki sömu augum og dæmdu
manninn í fangelsi. „Samsæri,“ sagði
hinn dæmdi um framgöngu lögreglu
og dómstóla áður en fangelsishurðin
skall í lás að baki hans.
Útgerðarmaðurinn, og seinna þingmaðurinn, Ásbjörn Óttarsson „lenti í“ þeirri ógæfu
að fá greiddan út arð úr hlutafélagi
sínu á tapári. Þetta er ólöglegt en
vandinn var sá að þingmaðurinn
hafði ekki hugmynd um að stórfé
hefði streymt inn á einkareikninga
hans. Slæmur endurskoðandi hafði
að hans sögn útfært málið með
þessum hætti. Sjálfur var hann eins
grandalaus og geit á beit í grösugri
fjallshlíð. Þegar nánar var spurt út
í endurskoðandann sem um ræðir
þá kom á daginn að hann var látinn.
Hann gat því ekki varið það að hafa
komið aumingja Ásbirni í klípuna.
En farsællega leystist málið með því
að enginn aðhafðist nokkuð. Þing
maðurinn situr enn á Alþingi og
þurfti ekki að setja upp sömu þyrni
kórónuna og flokksbróðir hans sem
hafnaði á Kvíabryggju þar sem hann
bruddi grjót í rúmt ár.
Nú er þriðja fórnarlambið sprottið fram. Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarpsstjóri ÍNN, hefur und
anfarin ár haft það starf með höndum
að dæma jafnt lifendur sem dauða
fyrir afbrot þeirra og axarsköft. Hann
þykir vera einstaklega óvæginn þjóð
félagsrýnir sem engum hlífir nema
allra bestu vinum
sínum í Sjálfstæðis
flokknum. Ingvi
Hrafn er nýjasta
fórnarlamb samsæris
skattsins, lögreglu,
dómstóla og óhæfs
endurskoðanda.
Hann lenti í þeim
ósköpum, ásamt eig
inkonu sinni, að nýta
í eigin þágu skattfé
almennings. Fyrir
þetta lentu þau hjónin
fyrir dómstólum og
var úrskurðað að þau
skyldu greiða hátt í 20
milljónir króna vegna
þjófnaðarins eða fara
í fangelsi að öðrum
kosti.
Málsvörn sjónvarpsstjórans er kröftug og samanstendur af vörn þingmannanna tveggja.
Í fyrsta lagi eru hjónin saklaus vegna
þess að slæmur endurskoðandi kom
þeim í klípuna. Þá liggur fyrir að skatt
rannsókn
arstjóri og lögregla
vissu af sakleysi
þeirra. Dómstóll
inn var sömuleið
is upplýstur um
yfirvofandi dóms
morð en dómar
arnir létu ekki
segjast og dæmdu
blessuð hjónin
í fangelsi. Þarna
var því um víð
tækt samsæri
að ræða ásamt
því að óhæfur
endurskoðandi átti upptökin að
glæpnum. Aðeins biskup Íslands, Karl
Sigurbjörnsson, gerði sér grein fyrir
því að þarna var um að ræða syndir
hinna saklausu. Og hann breiddi út
náðarfaðm sinn og tók við hjónunum
sem þurfa að þola ranglæti heimsins,
líkt og hann sjálfur.
Syndir hinna
SaklauSu
Svarthöfði
„ Iðrun Karls og
beiðni um fyrir-
gefningu er skilyrt.
Er þig farið að
langa til að sofa?
„Já, dálítið. Það væri ágætt að
geta farið að sofa svolítið núna. En
bara af því að ég þarf þess,“ segir
Árni Rúnar Hlöðversson með-
limur hljómsveitarinnar FM Belfast.
Hljómsveitin gaf út plötuna Don´t
Want to Sleep fyrir stuttu og er á
ströngu tónleikaferðalagi um
þessar mundir. Sveitin er þekkt
fyrir að halda uppi stuðinu
en þarf greinilega á svefni að
halda eftir mikla vinnutörn að
undanförnu.
Spurningin