Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Síða 23
Umræða | 23Helgarblað 15.–19. júní 2011
Sykursnúður
og flautuketill
Svali H. Björgvinsson lýsti frá
úrslitakeppni NBA-deildarinnar í
körfubolta á Stöð 2 Sport. Hann þykir
vera einn af orðheppnustu íþrótta-
þulum landsins og kryddaði mjög
upplifun þeirra sem á hlýddu með
mögnuðum lýsingum. Vel heppnaðar
troðslur kallaði hann „kárahnjúkatroð“
og „hámenningartroð“ og líkti
mönnum við kjötsúpu, ýmis dýr og
vínarbrauð.
Hver er maðurinn?
„Ungur hógvær Valsmaður með of mikinn
áhuga á körfuknattleik og öðrum fögrum
hlutum í lífinu. Einn af fjölmörgum góðum
sonum séra Friðriks.“
Hvaðan kemur þessu orðaforði?
„Þetta snýst um að nýta þau orð sem
maður kann frekar en að kunna eitthvað
sérstaklega mörg orð. Ég er einfaldlega að
reyna að lýsa því sem ég sé í leiknum og ef
ég sé sykursnúð eða flautuketil, þá finnst
mér rétt að upplýsa fólk um að þarna hafi
verið sykursnúður eða flautuketill á ferð.“
Undirbýrð þú þetta sérstaklega?
„Ekki með öðrum hætti en þeim að ég hef
fylgst náið með þessari fögru íþrótt í nokkra
áratugi og reyni eftir bestu getu að útskýra
það sem ég sé í leiknum. Grunnregla mín í
þessum lýsingum er sú að reyna að vera ekki
mjög leiðinlegur, þannig að það fæli ekki
fólk frá leiknum.“
Hefur þú gaman af þessu?
„Mjög svo og ég vona að það skili sér með
einhverjum hætti. Auðvitað er þetta ein-
hvers konar bilun að lýsa íþróttaleikjum á
nóttinni í mörg ár. En þetta er bæði áhuga-
mál mitt og einnig gott geðlyf. Ég verð allur
skárri í skapinu eftir þessar lýsingar.“
Hefur þú fengið athugasemdir frá
íslenskufræðingum?
„Nei, ekki margar. Mér hefur fundist að það
séu næg verkefni fyrir þá og ugglaust brýnni
en þau að velta sér upp úr þessum lýsingum.
En ég hvet þá, sem og aðra, til að fylgjast
með leikjum, það er hressandi fyrir andann.“
Varst þú ánægður með úrslitin?
„Virkilega ánægður. Það þarf svo lítið til að
gleðja mig.“
Hvort liðið átti skilið að sigra?
„Dallas átti skilið að sigra, af þeirri einföldu
ástæðu að þeir hafa lagt meira á sig, voru
betur undirbúnir og vel skipulagðir.“
Hvaða leikmanni finnst þér skemmti-
legast að lýsa?
„Það er alltaf skemmtilegast að fjalla um
jaðartilvik og eitthvað sjaldgæft. Ég hef
mest gaman af því að lýsa einhverjum
furðubomsum sem fæstir þekkja. En
líklega er galdurinn bak við góðar sögur og
íþróttalýsingar að gera hversdagslega hluti
áhugaverða fyrir sem flesta.“ -KG
„Þetta er erfið spurning en ég held að hann
verði að taka ákvörðun um það sjálfur, hvar
hans samviska liggur.“
Björn Ingólfsson
53 ára fjármálastjóri
„Mín vegna mætti bara leggja niður þjóð-
kirkjuna. Ég er bara orðin leið á þessu.“
Sigríður Guðmundsdóttir
50 ára leiðsögumaður
„Já, tvímælalaust.“
Melkorka Sigríður
22 ára dansari
„Ég þekki svolítið inn á það og ég myndi
segja já.“
Þórunn Steinunn Jónsdóttir
86 ára eldri borgari
„Tvímælalaust miðað við allt sem á undan
er gengið.“
Hörður Torfason
Tónlistarmaður
Maður dagsins
Finnst þér að biskupinn eigi að segja af sér?
Skjöldungar Skátar úr Skjöldungum nutu veðurblíðunnar í Reykjavík á þriðjudaginn. Þegar ljósmyndara bar að garði voru þeir að gæða sér á pylsum og ætluðu svo
að skella sér í leiki. Mynd SIGTryGGUr ArI
Myndin
Dómstóll götunnar
„Einn er betri en enginn,“ skrifaði ég
á þessum sama stað þegar ljóst var
að aðeins einn maður yrði ákærður
fyrir allsherjar efnahagshrunið sem
varð á Íslandi haustið 2008. Það að
einhver skuli vera dreginn til ábyrgð-
ar fyrir gerðir sínar í opinberu lífi á Ís-
landi er nánast kraftaverk, og því taldi
ég skárra að einn þeirra sem ábyrgð-
ina báru skyldi látinn sæta henni en
enginn, þó vissulega hefðu þeir átt að
vera fleiri. Nú er ég þó alls ekki jafn
sannfærður um þessa lausn. Ef til vill
er einn ekki betri en enginn þegar öllu
er á botninn hvolft.
Ábyrgð Geirs Haarde á efnahags-
hruninu er nokkuð ljós. Þó að fyrir-
rennari hans Davíð Oddsson hljóti að
teljast helsti arkitekt hrunsins hefði
Geir sem forsætisráðherra getað af-
stýrt því eða að minnsta kosti dregið
mjög úr áhrifum þess. Snemma árs
2006 voru íslensku bankarnir hætt
staddir í hinni svokölluðu „mini-
krísu“, sem var meðal annars til kom-
inn vegna lausafjárskorts. Með öðrum
orðum voru engir peningar lengur til
í bönkunum. Geir var þá utanríkis-
ráðherra og að nafninu til næst valda-
mesti maður ríkisstjórnarinnar, en
sem formaður stærri flokksins hafði
hann líklega meiri völd í reynd í staða
hans sagði til um.
Vitlaus stefna á fullri ferð
Í stað þess að hlusta á þær varúð-
arbjöllur sem þá klingdu og end-
urómuðu víða um heim var ákveð-
ið að gefa í. Bankarnir skyldu fá sitt
lausafé með jöklabréfum, ástarbréf-
um og Icesave, allt með ríkisábyrgð.
Þegar Geir varð svo forsætisráðherra
um sumarið var þessari stefnu hald-
ið áfram allt fram á síðasta dag, sem
gerði hrunið mun umfangsmeira en
annars hefði orðið. Í staðinn fyrir að
byrja að dæla upp úr lestunum þeg-
ar skipið var farið að leka, til dæmis
með því að takmarka vöxt bankanna,
ákvað skipstjórinn í staðinn að dæla
vatni inn, og gott ef hann fyllti ekki
björgunarbátana líka.
Látum þetta gott heita af sjó-
mannasamlíkingum í bili og snúum
okkur að Samfylkingunni. Þátttaka
Samfylkingarinnar í nýrri ríkisstjórn
Geirs árið 2007 var um margt stór-
slys. Þó Samfylkingin hafi verið sak-
laus af upptökum stefnunnar sem
leiddi til hruns tók hún þátt í hruna-
dansinum síðustu sporin, með þeim
afleiðingum að ábyrgðin var nú orð-
in svo dreifð að erfiðara var að benda
á höfuðpaurana.
Blásaklausir framsóknarmenn
Framsóknarmenn hafa jú sérstak-
lega gaman af því að minna Jóhönnu
á að hún var í ríkisstjórn á þessum
tíma. Sjálfir áttu þeir mun stærri þátt,
með því að sjá til þess að einkavæð-
ing bankanna yrði gerð eftir gömlu
helmingaskiptareglunni frekar en á
faglegum nótum, og með því að lofa
100 prósent húsnæðislánum í kosn-
ingunum 2003 sem hlaut að leiða til
allsherjar byggingarbólu, sem varð jú
reyndin.
En almættið virðist þrátt fyrir allt
eiga í hjarta sínu stað fyrir framsókn-
armenn, og þeir sluppu fyrir horn
með því að vera ekki í ríkisstjórn síð-
asta rúma árið fyrir hrun. Ábyrgð-
in var nú alls staðar (nema hjá VG).
Þetta hefði átt að hafa þann kost að
uppgjörið hefði ekki þurft að falla í
pólitískar skotgrafir, heldur hefði átt
að ná yfir alla flokka (nema VG). Al-
þingi hefði þannig átt að geta tekið
sameiginlega ákvörðun um að bæta
fyrir fyrri mistök.
En með því að vernda sitt eigið
fólk ákvað Samfylkingin að fara ekki
þessa leið. Með því að draga Geir
einan til ábyrgðar er auðvelt fyrir
andstæðinga Samfylkingar að tala
um pólitísk réttarhöld og skrípaleik,
og gott ef jafnvel fólkið sem varð illa
úti vegna afglapa hans finni ekki til
örlítillar samúðar, því það er ljótt að
sjá alla á móti einum og er þá ekki
spurt hvað þessi eini gerði af sér.
Þeir sem vilja að réttlætið nái að hafa
sinn gang í máli Geirs eru nú komir
í þá undarlegu stöðu að vera sakað-
ir um hefnigirni, á meðan aðrir sem
ábyrgðina báru en sluppu fyrir horn
geta sýnt fram á manngæsku sína
með því að vilja sleppa höfuðpaurn-
um einnig.
Að þessu leytinu er örlítið rétt-
læti ef til vill verra en ekkert, því það
minnir okkur á hversu mikið órétt-
læti hefur hér viðgengist.
Grey Geir
„En almættið virð-
ist þrátt fyrir allt
eiga í hjarta sínu stað fyrir
framsóknarmenn, og þeir
sluppu fyrir horn með því
að vera ekki í ríkisstjórn síð-
asta rúma árið fyrir hrun.
Kjallari
Valur
Gunnarsson