Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Side 42
Ísland er ekki lítið land. Ísland er
stórasta land í heimi,“ sagði Dorr
it Moussaieff forsetafrú í beinni út
sendingu Ríkissjónvarpsins eftir að
íslenska handboltalandsliðið vann
frækinn sigur á Spánverjum í undan
úrslitum á Ólympíuleikunum í Beij
ing árið 2008. Með sigrinum tryggðu
strákarnir okkar sér sæti í úrslitum
þar sem þeir urðu þó að lúta í lægra
haldi fyrir Frökkum. Auðvitað skipti
það litlu máli. Íslendingar höfðu
setið límdir við sjónvarpsskjáina og
horft á strákana okkar komast alla
þessa leið, vinna hvern leikinn á fæt
ur öðrum. Við, litla Ísland, kennd
um þessum þjóðum hvernig leika
átti handbolta. Það var það sem
skipti máli. Hvort það var gull, silfur
eða brons var aukaatriði. Þjóðhátíð
hófst á Íslandi eftir sigurinn á Spán
verjum og við gáfum bara í hátíðar
höldin þegar silfrið var í höfn. Þetta
eru jú allt eðalmálmar, eins og Adolf
Ingi Erlingsson orðaði það þegar við
fylgdum frækilegri frammistöðunni
eftir og unnum bronsið á EM árið
2009. Annað eða þriðja sæti, við vor
um „bezt“ í heimi.
Fálkaorður fyrir víkinga
Þegar toppnum er náð er fallið hátt.
Nokkrum dögum eftir að Íslending
ar fögnuðu handboltahetjunum sín
um með skrúðgöngu niður Lauga
veginn árið 2008, hrundi íslenska
bankakerfið. Úps. Geir H. Haarde
bað Guð að blessa Ísland. Þið vitið,
þetta bezta í heimi. Íslenska banka
kerfið setti ákveðin met, það var
kannski ekki bezt í heimi en fór held
ur betur fram úr sjálfu sér og gjald
þrot Kaupþings banka eitt og sér var
þriðja stærsta gjaldþrot sögunnar frá
árinu 1920. Við vorum því nálægt því
að vera bezt í gjaldþrotum. Áður en
bankakerfið hrundi höfðu íslensku
útrásarvíkingarnir keypt upp hálft
Bretland og Danmörku, og fólk alls
staðar í heiminum stóð á öndinni yfir
klókindum íslensku víkinganna í við
skiptum. Forsetinn sæmdi víkingana
fálkaorðunni, rétt eins og íslenska
handboltalandsliðið, fyrir framlag
sitt í að gera Ísland bezt í heimi.
How do you like Iceland?
Samkvæmt stubbagrein á Wikipedia
er frasinn best í heimi eða Ísland –
bezt í heimi „oft notaður af Íslend
ingum í hálfkæringi eða sem þjóð
remba.“ Vissulega er þessi frasi oft
notaður gríni og kaldhæðni, en þó
með alvarlegum undirtóni. Við erum
lítil en afrekum mikið og þess vegna
megum við segjast vera bezt. Með
Z því það er svalt. Við erum mjög
sannfærð um eigið ágæti og upp
tekin af því líka. Við spyrjum út
lendinga: How do you like Ice
land? Og við viljum fá jákvæð svör.
Við viljum að þeir lofsami hreint
loftið, guðdómlega ferskt vatnið,
stórbrotna náttúru, Bláa lónið og
bjartar nætur. Við erum ekki við
búin því að fá neikvæð svör. Þá
verðum við móðguð. Auðvitað, við
erum bezt!
„I hate Iceland!“
Það fékk því verulega á okk
ur þegar útlendingar fóru að tala
illa um okkur kjölfar í bankahruns
ins. Icesave var ekki að gera góða
hluti. Bretar flokkuðu okkur með
hryðjuverkamönnum og saklausir
íslenskir námsmenn sem dvöldu
í Bretlandi áttu fótum sínum fjör
að launa ef þeir misstu það út úr
sér að þeir væru Íslendingar. Einn
fékk hráka í andlitið, öðrum var
neitað um þjónustu í versl
un. Úps. Svo fór að gjósa
á Fimmvörðuhálsi og í
Eyjafjallajökli, við spúð
um ösku yfir alla Evr
ópu og lömuðum flug
samgöngur um allan
heim. Skoski gaur
inn sem hopp
aði inn í viðtal
á Sky News og
sagði „I hate
Iceland“ varð
of vinsæll á
YouTube til
þess að við
gætum
kyngt
því.
Það
má
enginn hata Ísland. Eitthvað varð að
gera og bezta land í heimi dó ekki
ráðlaust. Við fór
um því í ímynd
arherferðina
Inspired by
Iceland og
dæmi hver
fyrir sig
hvort
hún
virkaði. Ferðamannasumarið 2010
varð mjög gott og búist er að við að
ferðamannasumarið 2011 slái öll
met. Við erum nokkuð góð í þessu,
jafnvel bezt.
Krúttleg samheldni
Íslendingar eru skemmtilega klikk
aðir. Við erum sjúk í nýjungar og
sláum hvert metið á fætur öðru í
þeim efnum. Heimsmet í internet
notkun, heimsmet í Facebooknotk
un. Við erum vel upplýst og við erum
klár. Við eigum fallegustu konurnar
og sterkustu mennina. Samt erum
við bara 300 þúsund. Íslensk gen
eru bezt.
Þrátt fyrir fámenni eigum
við ótrúlega mikið af afreks
fólki á ólíkum sviðum sem
hefur látið að sér kveða um
allan heim. Við fyllumst
stolti þegar fjallað er um
íslensk afrek á erlendri
grundu og springum
næstum úr þjóðremb
ingi þegar við montum
okkur af þeim. Þegar við
búumst við velgengni á
erlendri grundu, hvort
sem það er í handboltanum
eða Eurovision, þá sameinumst
við fyrir framan sjónvarpsskjáina, í
heitu pottunum, í stórmörkuðun
um, á götum úti. Alls staðar má sjá
ummerki um merkisviðburðina og
allir tala um þá. Hin krúttlega ís
lenska samheldni er dásamleg.
Það getur ekki verið annað en
jákvætt að lifa eftir þeirri lífs
speki að við séum bezt í
heimi, þrátt fyrir að það
sé stundum bara í gríni.
Þann 17. júní kemst ís
lenska lýðveldið á eft
irlaunaaldur og við
fögnum 200 ára af
mæli Jóns Sigurðs
sonar sjálfstæðis
hetju. Við skulum
einnig fagna því
að Ísland sé bezt
í heimi, að okkar
mati alla vega, og
það er nóg.
solrun@dv.is
Kl. 13–17
Hljómskálagarður
Skátaland verður með leiktæki, þrauta-
brautir og fleira
Ókeypis er í leiktækin í garðinum
14.00 Tóti trúður
14.25 Glímusýning
14.50 Fimleikadeild Ármanns
15.15 Kínversk kung fu-sýning
15.40 Skylmingafélag Reykjavíkur
16.00 Fallhlífastökk
16.05 Aikido-sýning
16.30 Jiu jitsu-sýning
Kl. 13.30 og 14.30
Hallargarður
Brúðubíllinn. Ævintýri Lilla
Kl. 13.30–17
Ingólfstorg
Barna- og fjölskylduskemmtun á Ingólfs-
torgi
Sirkus Íslands með götuleikhús og sirkus-
skóla
Sirkussýningar: kl. 14.15, 15.30 og 16.30
Kl. 14
Arnarhóll
Barna- og fjölskylduskemmtun á Arnarhóli
14.00 Eldfærin. Borgarleikhúsið
14.15 Ballið á Bessastöðum. Þjóðleikhúsið
14.30 Gosi. Klassíski listdansskólinn
14.40 Galdrakarlinn í Oz. Borgarleikhúsið
14.50 Gýpugarnagaul. Möguleikhúsið
15.05 Íþróttaálfurinn og Solla stirða úr
Latabæ
15.25 Atriði frá Danslistarskóla JSB
15.35 Dansflokkurinn Rebel
15.45 Skókassasirkusinn
15.55 Bollywood-danssýning Yesmine
Olsson
16.10 Breikdanshópur Natöshu
16.15 Þröstur Leó og Gói leika lausum hala
16.30 Vinir Sjonna
Kl. 14–17
Listhópar Hins hússins
14.00 Götuleikhúsið sýnir á Skothúsveg-
inum við Tjörnina
14.15 Danshópurinn Skarkali á Austurvelli
15.00 UngSaga býður í ammæli Nonna Sig
við Alþingishúsið. Kökur og kruðerí í boði,
láttu sjá þig!
Kl. 16
Bænastund í Hallgrímskirkju
Bænastund fyrir Íslandi með þátttöku fjöl-
margra kristinna trúfélaga. Börnin velkomin
Kl. 17
Dansleikur á Ingólfstorgi
Komið og dansið
17. júní 2011
Dagskrá
Gaman
fyrir
börnin
42 17. júní
„Ísland – Bezt í heimi!“