Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Síða 46
Bubbi fæddist í Ólafsfirði og ólst þar upp. Hann lauk kennara-prófi frá Íþróttaskóla Íslands á
Laugarvatni 1961, handavinnukenn-
araprófi frá Kennaraskóla Íslands
1963 og stundaði nám við Íþróttahá-
skólann í Osló 1973–74 þar sem hann
lagði stund á nám er tengdist skíðum,
skíðagöngu og skíðastökki.
Bubbi var íþróttakennari við Haga-
skólann í Reykjavík 1961–63, kenn-
ari við Barnaskóla Ólafsfjarðar frá
1963 og hefur auk þess verið kennari
við Gagnfræðaskólann í Ólafsfirði frá
1965. Þá voru hann og kona hans for-
stöðumenn sundlaugar Ólafsfjarðar í
átta ár.
Bubbi starfaði víða á sumrum við
íþróttaþjálfun og sundkennslu, s.s. á
Hornafirði og í Vopnafirði, hefur starf-
að við þjálfun skíðafólks frá 1963 og
sinnt þjálfun allra íþróttagreina sem
stundaðar hafa verið í Ólafsfirði.
Bubbi og faðir hans létu smíða
fimm tonna trillu, Röst ÓF 9 árið 1971.
Þeir byggðu auk þess lítið salthús,
gerði síðan út og söltuðu sjálfir allan
sinn fisk en hættu útgerð árið 1991.
Bubbi hefur alla tíð tekið mik-
inn þátt í öllu sönglífi bæjarins, hefur
m.a. sungið með Karlakór Dalvíkur frá
árinu 2000 og hefur komið fram opin-
berlega sem einsöngvari.
Fjölskylda
Bubbi kvæntist 12.9. 1963 Margréti
Kristine Toft, f. 1.8. 1943, verslunar-
manni. Hún er dóttir Hartwig Toft, f.
í Danmörku 8.12. 1900, d. 1.5. 1991,
kaupmanns í Reykjavík, og k.h.,
Christine Toft, f. í Lübeck, Þýskalandi
f. 3.12. 1903, d. 16.1. 1958, húsmóður.
Börn Bubba og Margrétar Krist-
ine eru Ólaf Hartwig, f. 3.10. 1967,
íþróttakennari við Verkmenntaskól-
ann á Akureyri, en kona hans er Bryn-
dís Indiana Stefánsdóttir, f. 15.2. 1971,
kennari og eru börn þeirra Arnar, f.
16.1. 2000, Margrét Unnur, f. 20.8.
2002, og Elvar Björn, f. 19.6. 2006;
Kristinn, f. 26.5. 1972, fyrrv. skíðamað-
ur og húsasmiður í Noregi en kona
hans er Hlín Jensdóttir, f. 8.5. 1970,
aðstoðarkennari og eru synir þeirra
Matthías, f. 18.12. 2005, og Mikael Þór,
f. 19.9. 2007; Íris, f. 31.1. 1976, sjúkra-
þjálfari í Noregi en maður hennar er
Geir Andre Sædernes, f. 3.12. 1974,
tækniteiknari og verktaki, og eru börn
þeirra Tumi, f. 18.4. 2007, og óskírð
dóttir, f. 14.5. 2011.
Bræður Bubba eru Stefán Víglund-
ur, f. 14.12 1944, tómstundafulltrúi á
Dalbæ á Dalvík, kvæntur Huldu Þiðr-
andadóttur verslunarkonu og eru
börn þeirra Þyri, Fjóla, Helga og Gyða;
Guðmundur, f. 14.12 1951, leikari
og rithöfundur, búsettur í Reykjavík,
kvæntur Olgu Guðrúnu Árnadóttur
rithöfundi og eru börn þeirra Salka og
Finnur en sonur Guðmundar frá fyrra
hjónabandi er Flóki.
Foreldrar Bubba: Ólafur Stein-
grímur Stefánsson, f. 16.4. 1920, d.
28.11. 2003, sjómaður á Ólafsfirði, og
k.h., Fjóla Bláfeld Víglundsdóttir, f.
24.9. 1920, d. 3.4. 1973, húsmóðir.
Ætt
Ólafur er sonur Stefáns Hafliða Stein-
grímssonar og Jónínu Kristínar Gísla-
dóttur, í Miðbæ í Ólafsfirði.
Fjóla var dóttir Víglundar Nikulás-
sonar, kennara og verkamanns, og Sig-
urlaugar Magnúsdóttur verkakonu, en
þau bjuggu í Glaumbæ í Ólafsfirði.
Bubbi býður til söngfagnaðar í
félagsheimilinu Tjarnarborg á Ólafs-
firði á afmælisdaginn, þar sem m.a.
þeir bræður, Glaumbæjarbræður,
munu troða upp, ásamt fjölda annarra
söngvara.
Steingrímur er fæddur á Siglufirði og ólst þar upp. Hann nam iðn sína í Siglufjarðarprentsmiðju
1958–62.
Steingrímur var vélsetjari við
Morgunblaðið 1963 en réðst síðan
aftur til starfa hjá Siglufjarðarprent-
smiðju og starfaði þar til 1968. Sama
ár fluttist Steingrímur til Keflavíkur og
hóf störf hjá Prentsmiðjunni Grágás
þar sem hann starfaði til 2005. Þá hóf
hann störf við vopnaleit Öryggisgæsl-
unnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og
starfaði þar til 2010.
Fjölskylda
Steingrímur kvæntist 28.12. 1968 Jó-
hönnu A. Jónsdóttur, f. 24.11. 1939,
verslunarmanni. Foreldrar henn-
ar voru Jón Sigurjónsson, bóndi að
Ási í Hegranesi, og k.h., Lovísa Guð-
mundsdóttir húsfreyja.
Dætur Steingríms og Jóhönnu eru
Ingunn Katrín, f. 24.7. 1969, arkitekt í
Reykjavík; Lovísa Jóna, f. 26.4. 1977,
verkefnastjóri hjá Velferðarráðuneyt-
inu, búsett í Keflavík en maður henn-
ar er Helgi Már Sigurgeirsson.
Systkini Steingríms eru Karl Jó-
hann, f. 5.10. 1946, búsettur í Reykja-
vík; Kristjana Jóhanna, f. 14.10. 1953,
húsmóðir á Kistufelli í Lundareykjar-
dal.
Foreldrar Steingríms:Alfreð Lilli-
endahl, f. 14.8 1909, d. 25.9. 1969, rit-
símavarðstjóri á Siglufirði, og k.h.,
Ingunn Katrín Steingrímsdóttir, f.
31.8. 1914, d. 2.6. 1961, húsmóðir.
Ætt
Alfreð var sonur Karls Lilliendahl,
kaupmanns á Vopnafirði, sem síðar
bjó á Akureyri, og Ágústu Lilliendahl
frá Kjarna í Eyjafirði en hún var dóttir
Jónasar, bónda þar á bæ. Ingunn Katr-
ín var dóttir Steingríms Benedikts-
sonar, skósmiðs á Ísafirði, og konu
hans, Kristjönu Katarínusdóttur.
46 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 15.–19. júní 2011 Helgarblað
Pálína fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún lauk hjúkrunar-prófi frá Hjúkrunarskóla Ís-
lands 1953, stundaði framhaldsnám
í heilsuvernd við Danmarks Sygep-
lejerske højskole ved Aarhus Uni-
versitet 1968–69 og nám í kennslu og
uppeldisfræði við Kennaraháskóla Ís-
lands 1976. Þá hefur Pálína sótt ýmis
námskeið á vegum Hjúkrunarfélags
Íslands og norrænna samtaka hjúkr-
unarfræðinga.
Pálína var hjúkrunarforstjóri við
Heilsugæslustöðina í efra Breiðholti
frá 1978 en lét af störfum fyrir aldurs
sakir 1997.
Pálína var fulltrúi Hjúkrunarfélags
Íslands í samvinnu Norrænna hjúkr-
unarfræðinga um árabil. Einnig sat
hún alþjóðaþing hjúkrunarfræðinga
í Seoul í Kóreu 1989. Hún gegndi
fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir
Hjúkrunarfélag Íslands, var m.a. vara-
formaður félagsins og formaður þess
1986–88. Hún var fulltrúi heilbrigð-
isráðuneytisins í skólanefnd Nýja
hjúkrunarskólans um árabil og sat í
stjórn Hollustuverndar ríkisins í fjög-
ur ár. Pálína var formaður Samtaka
lífeyrisþega innan Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga.
Hún er virkur félagi í Oddfellow-
reglunni og var á framboðslista sjálf-
stæðismanna til bæjarstjórnar á Álfta-
nesi 2010.
Fjölskylda
Pálína giftist 16.6. 1954 Sigmundi
Ragnari Helgasyni, f. 7.12. 1927,
d. 2.11. 2008, skrifstofumanni og
bankamanni. Hann var sonur Helga
Kristins Jónssonar, verslunarstjóra
í Reykjavík, og k.h., Ingibjargar Sig-
mundsdóttur húsmóður.
Börn Pálínu og Sigmundar eru
Ingibjörg, f. 11.1. 1955, hjúkrunarfor-
stjóri, búsett í Hafnarfirði, gift Valde-
mar Pálssyni, löggiltum skjalaþýð-
anda og tónlistarstjóra Tónlistarsafns
Hafnarfjarðar, og eiga þau tvö börn;
Helga, f. 11.4. 1956, fulltrúi, búsett á
Ísafirði, gift Jóhanni K. Torfasyni, inn-
kaupastjóra Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Ísafirði, og eiga þau þrjú börn;
Helgi Kristinn, f. 15.6. 1967, læknir og
sérfræðingur í meltingarsjúkdóm-
um við Fjórðungssjúkrahúsið á Ísa-
firði, kvæntur Kristínu Örnólfsdóttur
kennara og eiga þau þrjú börn.
Systkini Pálínu: Finnur, f. 14.11.
1919, d. 18.8. 1997, var bókavörð-
ur á Seltjarnarnesi; Sigurjón Helgi,
f. 14.11. 1919, d. 24.12. 1936; Henný
Dagný, f. 29.4. 1922, d. 27.1. 2005, var
húsmóðir í Reykjavík; Ólöf Ingibjörg,
f. 4.10. 1923, d. 28.9. 1994, var hús-
móðir í Reykjavík; Jóhanna Kristín,
f. 31.5. 1935, d. 2006, var húsmóðir í
New York.
Foreldrar Pálínu voru Sigur-
jón Pálsson, f. 12.8. 1896, d. 15.8.
1975, sjómaður og vélgæslumaður
í Vestmannaeyjum og Keflavík, síð-
ar starfsmaður Reykjavíkurborgar,
og k.h., Helga Finnsdóttir, f. á Stóru-
Borg undir Eyjafjöllum 28.9. 1895, d.
25.4. 1989, húsmóðir og saumakona.
Ætt
Sigurjón var sonur Páls, útgerðar-
manns og sjómanns í Hjörtsbæ í
Keflavík Magnússonar, járn- og tré-
smiðs í Hjörtsbæ Hjartarsonar, frá
Járngerðisstöðum Jónssonar. Móðir
Magnúsar var Guðrún Jónsdóttir, b. í
Stóru-Garðhúsum í Höfnum og síð-
ar á Hópi í Grindavík Sighvatssonar,
og Þuríðar Pálsdóttur, b. í Hópi Þor-
kelssonar. Móðir Páls var Valgerður
Ólafsdóttir, b. á Minni-Þverá í Holta-
sókn í Fljótum í Skagafirði Þorsteins-
sonar.
Móðir Sigurjóns var Þuríður Niku-
lásdóttir, b. í Berjaneskoti undir Eyja-
fjöllum Nikulássonar, og Halldóru
Jónsdóttur, b. í Hátúnum og Dalbæ í
Landbroti Marteinssonar.
Helga var dóttir Finns, b. á Stóru-
Borg undir Eyjafjöllum, bróður Sig-
urðar, hreppstjóra og athafnamanns
í Vestmannaeyjum, föður Einars ríka,
föður Sigurðar heitins, forstjóra í Eyj-
um, og Ágústs, prófessors og fyrrv.
alþm. Finnur var sonur Sigurfinns, b.
í Ystabæli og Ystabæliskoti Runólfs-
sonar, Sigurðssonar, b. á Ólafsvöll-
um, bróður Sæmundar, b. í Eyvind-
arholti, föður Tómasar Fjölnismanns
og pr. á Breiðabólstað í Fljótshlíð, afa
Jóns Helgasonar biskups, og Tóm-
asar læknis, afa Tómasar yfirlæknis
og Ragnhildar, fyrrv. ráðherra Helga-
barna. Tómas Sæmundssonar var
einnig afi Álfheiðar, ömmu Sigurðar
Líndal lagaprófessors og Páls, ráðu-
neytisstjóra og Reykjavíkursagn-
fræðings, föður Þórhildar Líndal, for-
stöðumanns Rannsóknarstofnunar
Ármanns Snævars um fjölskyldu-
málefni, og Björns Líndal lögmanns.
Sigurður var sonur Ögmundar, pr. að
Krossi, bróður Böðvars, pr. í Holta-
þingum, afa Þuríðar, langömmu
Vigdísar Finnbogadóttur. Ögmund-
ur var sonur Högna, prestaföður og
prófasts á Breiðabólstað Sigurðsson-
ar. Móðir Sigurðar á Ólafsvöllum var
Salvör, systir Jóns, pr. á Hrafnseyri,
afa Jóns Sigurðssonar forseta. Salvör
var dóttir Sigurðar, í Ásgarði í Gríms-
nesi Ásmundssonar.
Móðir Helgu var Ólöf Þórðardóttir
á Stóru-Borg.
Sigjón fæddist í Brekkubæ og ólst þar upp í foreldrahúsum við öll almenn sveitastörf þess tíma.
Hann stundaði tónlistarnám hjá föð-
ur sínum á uppvaxtarárum og sótti
síðar tónlistarnámskeið í Reykjavík.
Sigjón stundaði búnaðarstörf á
búi foreldra sinna fram á fullorðinsár
og varð þar síðan bóndi eftir að hann
kvæntist.
Sigjón var tónlistarkennari í þrjá
áratugi, var kórsstjóri hjá Karlakórn-
um Jökli og organisti.
Sigjón hefur setið í sóknarnefnd
og starfaði með og sat í stjórn ung-
mennafélagsins.
Fjölskylda
Sigjón kvæntist á hvítasunnu 1962
Kristínu Einarsdóttur, f. 10.8. 1942,
húsmóður sem auk þess starfar við
dvalarheimili aldraða. Hún er dóttir
Einars Jóhannssonar, bónda og bú-
fræðings á Geithellum, og Laufeyjar
Karlsdóttur húsfreyju.
Börn Sigjóns og Kristínar eru
Einar, f. 9.3. 1962, nú heimavinnandi
en leggur haga hönd á ýmis störf;
Bjarni, f. 21.8. 1963, bóndi á Forn-
ustekkum, í sambúð með Ásthildi
Gísladóttur, bónda og húsfreyju;
Þórólfur, f. 27.1. 1965, hótelstjóri í
Skagafirði en kona hans er Guðný
Vésteinsdóttir; Ragnheiður, f. 12.5.
1967, þjónustufulltrúi hjá Síman-
um á Hornfirði; Helga Vilborg, f. 4.9.
1968, mjólkurfræðingur og forstjóri,
búsett á Höfn á Hornafirði, gift Þór
Halldórssyni rafeindavirkjameist-
ara.
Systkini Sigjóns eru Sigríður B.
Kolbeins, f. 13.7. 1927, prestsfrú, nú
búsett í Garðabæ, gift sr. Gísla H.
Kolbeins, áður presti í Sauðlauksdal,
á Melstað í Vestur-Húnavatnssýslu
og í Stykkishólmi; Baldur, f. 13.8.
1936, d. 19.5. 2010, vélstjóri á Höfn í
Hornafirði.
Foreldrar Sigjóns voru Bjarni
Bjarnason, f. 10.5. 1897, d. 12.3.
1982, bóndi, organisti, kórstjóri, og
nefndarmaður í Brekkubæ í Nesjum,
og k.h., Ragnheiður Sigjónsdóttir, f.
11.4. 1892, d. 23.12. 1979, húsfreyja.
Ætt
Bjarni var sonur Bjarna Jónassonar,
b. í Tanga, Holtum og Brekku, og k.h.,
Sigríðar Jónsdóttur húsfreyju.
Ragnheiður var dóttir Sigjóns Pét-
urssonar, b. á Fornustekkum, og k.h.,
Ingibjargar Gísladóttur húsfreyju.
Pálína Sigurjónsdóttir
Fyrrv. hjúkrunarfostjóri og fyrrv. formaður Hjúkrunarfélags Íslands
Sigjón Bjarnason
Bóndi, tónlistarkennari og kórstjóri í Brekkubæ í Nesjum
Björn Þór Ólafsson
Íþróttakennari á Ólafsfirði
Steingrímur Lilliendahl
Prentsmiður í Keflavík
80 ára 17. júní
80 ára á fimmtudag
70 ára á fimmtudag
70 ára 17. júní