Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Blaðsíða 53
Fókus | 53Helgarblað 15.–19. júní 2011
Hvað er að gerast?
n Ferðalag í gegnum
íslenska tónlistarsögu
Söngkonan Sólveig Samúelsdóttir og gítar-
leikarinn Örn Arnarson leiða áhorfendur í
ferðalag í gegnum íslenska tónlistarsögu.
Sungið verður á íslensku en kynnt á ensku.
Tónleikarnir fara fram í Hörpu klukkan 17.
Aðgangseyrir er 3.000 krónur.
n Helgi Björns og gestir
Helgi Björns ætlar ásamt gestasöngvurum
að syngja klassískar íslenskar dægurperlur.
Gestasöngvarar eru Eivör, Högni Egilsson,
Bogomil Font, Mugison og Ragnheiður Grön-
dal. Auk þess kemur fjöldi hljóðfæraleikara
við sögu ásamt strengjasveit Rolands
Hartwell og Karlakórnum Þröstum. Tónleik-
arnir verða haldnir í Hörpu og byrja klukkan
21. Miðaverð er 3.500–8.900 krónur.
n Útgáfutónleikar GusGus
Hljómsveitin GusGus fagnar útgáfu nýrrar
plötu sinnar, Arabian Horse, með tvennum
útgáfutónleikum á Nasa við Austurvöll.
Fyrri tónleikarnir hefjast klukkan 20 en þeir
seinni á miðnætti. Plötusnúðurinn Margeir
sér um upphitun. Miðaverð er 2.900 krónur
og uppselt er á seinni tónleikana.
15
jún
Miðvikudagur
17
jún
Föstudagur
18
jún
Laugardagur
16
jún
Fimmtudagur
n Útgáfutónleikar Bubba
og Sólskugganna
Bubbi Morthens og Sólskuggarnir fagna
útgáfu nýrrar plötu með tónleikum í menn-
ingarhúsinu Hofi á Akureyri. Tónleikarnir
hefjast 20.30 og það kostar 3.900 krónur
inn.
19
jún
Sunnudagur
n Gamanleikurinn Hetja
Einleikurinn Hetja verður sýndur í Tjarnar-
bíói klukkan 16 og fer sýningin fram á ensku.
Leikritið er byggt á Bárðarsögu Snæfellsáss.
Hetja er þroskasaga um feðga. Leikari er
Kári Viðarsson og leikstjóri er Víkingur
Kristjánsson. Aðgangseyrir er 2.500 krónur.
eins og öðrum. Þetta hlýtur bara að
vera byggt á ákveðnum misskilningi.
Að menn hafi ekki talað nægilega
vel saman. Oft leysist þetta nú bara
með því að halda einn góðan fund.
Við hefðum nú bara gaman af því að
hitta Bubba og fleiri og ræða málin.
Fara yfir hlutina og ræða hvað það er
sem sem stendur út af.“
Deilt um útboðið
Í DV fyrir skömmu gagnrýndi Ingólf-
ur Arnarson eigandi HljóðX hljóð-
kerfi Hörpunnar og hvernig hefði
verið staðið að útboði þess. Hann
gagnrýndi að fyrirtækið Exton hefði
verið ráðgefandi í vali á kerfi og hefði
síðan tekið þátt í útboðinu sjálfu. Ex-
ton þótti svo eiga hagstæðasta til-
boðið og var hljóðkerfið keypt af því.
Þá taldi hann það svipað að banna
meðlimum Sinfóníuhljómsveitar-
innar að nota sín eigin hljóðfæri og
að banna öðrum listamönnum að
nota þann búnað sem þeir kjósa.
Höskuldur segir gagnrýni á kerfið
aðallega hafa komið úr einni átt og
almennt hafi verið mikil ánægja með
hljóðkerfið. „Við vorum með sér-
fræðinga á okkar snærum, erlenda
sérfræðinga sem og íslenska og þetta
kerfi varð ofan á. Við höfum ekki
heyrt annað en að flestir séu sáttir.
Þessi gagnrýni hefur mest öll kom-
ið úr einni átt og ég held að hluti af
þeirri skýringu séu viðskiptaleg sjón-
armið. Ég skynja þetta þannig að það
sé ákveðið svekkelsi í gangi hjá þeim
aðila sem barðist um að fá útboð-
ið á sínum tíma og varð undir. Eins
og gengur og gerist í viðskiptum. Út-
boðið samanstendur af verði, gæð-
um og þjónustu og sá aðili sem þótti
uppfylla allar þessar kröfur hvað best
varð fyrir valinu.“
Góðir og slæmir dómar
Bæði erlendis og hér heima hafa
birst góðir dómar um hljóm Hörpu.
Til dæmis lofsöng Jónas Sen gagn-
rýnandi Fréttblaðsins hljómburðinn
á opnunartónleikunum sem hann
gaf fimm stjörnur. Um rokk- eða
poppkafla þeirra sagði hann meðal
annars: „Það verður að segjast eins
og er að rokkið hljómaði alveg frá-
bærlega í salnum! Bassinn var ein-
staklega hljómmikill og breiður, og
tónarnir fyrir ofan tærir og fallegir.“
En gangrýnin hefur líka verið
neikvæð og er ekki bara komin frá
Bubba eða GusGus. Til dæmis hefur
Franz Gunnarsson tónlistarmaður
talað um lélegan hljóm á HAM-tón-
leikum á bloggi sínu. Þá birtist annar
dómur í Fréttablaðinu eftir Jónas Sen
um tónleika Ojos de brujo. Þar sagði
hann meðal annars: „Ég var ekki
ánægður með hljóminn í Silfurberg-
inu [...] Miðað við alla peningana
sem lagðir hafa verið í Hörpu þá trúi
ég ekki að hljóðkerfið þar sé lélegt.
Nei, sennilega var hljóðstjórnin bara
ekki nógu góð. Bassinn var leiðinlega
mattur; efsta tónsviðið ekki nægi-
lega tært og klingjandi.“ Þessi lýsing
Jónasar passar við þá gagnrýni sem
Birgir Þórarinsson úr GusGus hefur
sett fram á Meyer-hljóðkerfið sem er
í öllum sölum Hörpu.
Ingvar Jónsson tæknistjóri hljóð-
stjórnar í Hörpu segir að umræðan
um kerfið hafi almennt verið á lágu
plani og að hann hafi ekki enn heyrt
nein fagleg rök um að kerfið sé ekki
nægilega gott. „Ég gef lítið fyrir þá
gagnrýni að þetta kerfi henti ekki
ákveðinni tónlist. Hljóðkerfi hlýt-
ur að eiga vera þannig að það skili
bara eins hreinum og ólituðum tóni
og hægt er. Það á ekki að lita tóninn
neitt. Það hlýtur þá að vera algjör-
lega hljóðmannsins sem er að stýra
þeim viðburði hverju sinni að blanda
hljóminn að smekk hljómsveitarinn-
ar eða þess listamanns sem kemur
fram. Þannig að hljóðkerfið hlýtur að
vera hlutlaust í því máli. Það skiptir
engu máli hvaða miða þú setur fram-
an á grillið á hátölurunum. Hljóma-
ður hverrar hljómsveitar vinnur svo
að því að ná fram þeim hljómi sem
hann vill.“
Engin tæknileg rök
En geta mismunandi vörumerki ekki
skilað mismunandi gæðum að mati
Ingvars? „Auðvitað er það þannig en
markmiðið er alltaf það sama. Það er
bara spurning hvaða aðferð menn
nota við að ná því markmiði. Þessi
umræða hefur ekki verið á nein-
um tæknilegum grundvelli. Það eru
engin tæknileg rök sem liggja þarna
að baki. Þetta er huglægt mat fólks
á einhverjum hljómi. Það er hljóð-
mannsins eða hljómsveitarinnar
hverju sinni að ná því fram.“
Líkt og komið hefur fram var Gus-
Gus neitað um að setja upp sitt eigið
hljóðkerfi í húsinu og Ingvar kærir
sig lítið um að taka þátt í þeirri um-
ræðu þar sem hún sé í raun ekki á
tæknilegum grundvelli sem snýr að
hans sérfræðiþekkingu. „Þetta er í
raun eins og með hvert annað fyrir-
tæki sem á búnað. Þetta fyrirtæki er
að reyna ná inn tekjum á sinn bún-
að. Rekstarfélag Hörpu reynir að fá
tekjur inn á þann búnað sem það er
búið að kaupa og það er ekkert óeðli-
legt við það.“
Ingvar segir að það sé allur gangur
á því úti í heimi hvort að hús af þessu
tagi noti sín eigin kerfi eða ekki. „Oft
eru kerfi til staðar og stundum eru
engin kerfi. Sum hús eru jafnvel með
samninga við nokkrar mismunandi
leigur og listamenn geta þá valið.
Stundum eru bara alls engin kerfi og
listamenn sjá alfarið um þetta sjálfir.
Það er allt til og ég hef persónulega
lent í öllum þessum aðstæðum og
það er engin algild regla fyrir því.“
Skilmálar í skoðun
Steinunn Birna Ragnarsdóttir, tón-
listarstjóri Hörpu, segir ranghermt
að húsið sé ekki ætlað fyrir allar
tegundir tónlistar eins og sjá megi
á bókunum þess. Annað sem hef-
ur mikið verið rætt eru þeir skilmál-
ar sem tónlistarmönnum eru settir
vegna tónleikahalds í húsinu. Stein-
unn segir þá í endurskoðun.
„Skilmálar Hörpu eru í endur-
skoðun eftir margar verðugar ábend-
ingar frá tónlistarmönnum. Eins og
komið hefur fram er fyrirmynd þeirra
frá öðrum tónlistarhúsum erlend-
is þar sem sambærilegt hús hefur
aldrei verið til á landinu. Aldrei hef-
ur staðið annað til hjá stjórnendum
hússins en að gera þessa skilmála
aðgengilega fyrir tónlistarmenn um
leið og hagsmuna hússins er gætt.
Rík ábyrgð fylgir því að tryggja að sú
mikla fjárfesting sem húsið er skili
viðunandi rekstrarafkomu.“
Þá segir Steinunn að stjórnendur
hafi ekkert leyfi til að niðurgreiða
til ákveðinna aðila tónleikaaðstöðu
sem er í beinni samkeppni við þá
tónleikastaði sem hingað til hafa
sinnt þessum viðburðum.
Ekki leitað að fíkniefnum
Gerðar hafa verið athugasemdir við
svokallaða leitarskilmála Hörpunn-
ar en Steinunn segir þá hafa verið
ranglega túlkaða. „Einn þeirra skil-
mála sem tekinn hefur verið úr sam-
hengi og mistúlkaður er svokallað
leitarákvæði, en það lýtur að því
að heimila yfirvöldum vopna- eða
sprengjuleit. Til dæmis getur það
átt við þegar öryggisstig hússins er
hækkað vegna stórra viðburða eins
og til dæmis þings Norðurlandaráðs
þegar allir forsætisráðherrar land-
anna eru saman komnir í húsinu í
einu. Þarna er alls ekki átt við fíkni-
efnaleit þótt einhverjir hafi kosið að
túlka það þannig.
Þá óskar Steinunn þess að mál-
efnalegum rökum sé beitt í þeirri
umræðu sem á sér stað. „Það er
sjálfsagt að koma með ábending-
ar og leyfa ólíkum sjónarmiðum að
hljóma. En það er ansi hvimleið sú
klisja að þeir sem kunna að meta
sígilda tónlist hljóti að vera einhver
einangruð „elíta“. Eða eins og einn
ágætur söngvari sagði eftir opnun-
arhelgi Hörpu sem var afar fjölsótt:
„Skrýtið með þessa elítu á Íslandi,
hún er alveg 35.000 manns.“ Mig
grunar raunar að hún sé miklu stærri
því margir kunna að meta ólíkar tón-
listarstefnur og það er óþarfi að tefla
þessu fólki gegn hvert öðru sem ein-
hverjum andstæðingum. Tónlistar-
unnendur eru bara venjulegt fólk og
vill einmitt sækja fjölbreytta viðburði
og kynnast ólíkum listamönnum í
tónlistarhúsinu okkar allra.“
Klassíkin ríkjandi
Þegar skoðað er hvað er framundan
á dagskrá Hörpu kemur í ljós að 12
af 19 viðburðum eru klassík, tveir
flokkast undir popp og fimm flokkast
undir annað eða falla þar á milli. DV
flokkar dagskrána eftir klassík, poppi
og svo það sem fellur þar á milli eða
er blanda af hvoru tveggja. Ef skoðuð
er dagskráin frá opnun sést að klass-
ískir viðburðir eru 23, poppviðburð-
ir eru sex og viðburðir sem flokkast
undir annað/blandað eru 19 talsins.
Af þeim 19 eru átta sem eru bland af
poppi og klassík eða með klassísku
ívafi.
Á þessum tölum einum og sér er
ljóst að klassík hefur verið ráðandi í
Hörpu það sem af er. Popp er í tölu-
verðum minnihluta en nokkuð fjöl-
breytt úrval er af tónlist og viðburð-
um sem falla þarna á milli.
asgeir@dv.is
Bubbi Ætlar ekki að spila
í Hörpu fyrr en skipt hefur
verið um stjórn.