Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2012, Síða 2
Heiðrún gefur
egg á indlandi
Dæturnar
óttaslegnar
„Þetta er búið að skemma sálina í
manni,“ segir Áslaug Ósk Hinriks-
dóttir í samtali við DV en hún býr
í íbúðinni í Norðlingaholti sem
þremenningarnir brutust inn í á
föstudag. Hún segir að henni sé
sama um hlutina sem þeir tóku en
erfiðara sé að horfa upp á dætur
hennar óttaslegnar. Áslaug skrifar í
löngum pistli á bloggsíðu sinni um
þessa lífsreynslu, en þar segir hún
meðal annars að innbrotsþjófarnir
hafi stolið öllu steini léttara. Margir
kannast eflaust við Áslaugu en hún
hefur í fjölmörg ár skrifað um bar-
áttu dóttur sinnar við krabbamein
á þessari sömu bloggsíðu. Í samtali
við DV segir hún erfiðast að horfa
á hvernig innbrotið hafi komið við
börnin: „Stelpurnar sem eru 8–10
ára gamlar þora ekki að vera einar
og víkja ekki frá mér. Þær þora ekki
út. Eru hættar að borða.“ Hún segir
að það muni taka þau þó nokkurn
tíma að jafna sig á þessu. „Þetta er
bara búið að eyðileggja fyrir okk-
ur, það mun taka einhvern tíma að
jafna sig, sérstaklega fyrir börn-
in mín.“
É
g á tvö börn sjálf og hugsa alltaf
að ef ég myndi sjálf þurfa hjálp
þá myndi ég vilja fá hana,“ seg-
ir Heiðrún Arna Friðriksdóttir
sem var stödd í borginni Delí á
Indlandi þegar DV náði tali af henni.
Þar er hún stödd til að gefa egg til
sænsks pars, tveggja karlmanna. Þeir
þurfa á staðgöngumóður að halda
og þess vegna fer eggheimtan fram á
Indlandi.
Önnur eggjagjöfin
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Heiðrún gefur egg. „Ég gaf egg á Ís-
landi í fyrra, mér fannst það ekkert
mál þannig að ég hugsaði að ég gæti
alveg gert það aftur. En ég vildi ekki
gera það á Íslandi því þetta er svo lítið
land,“ segir hún. Eftir að hafa gefið egg
á Íslandi í fyrra ákvað hún að athuga
hvort hún gæti gefið egg erlendis. „Út
frá því fór ég að leita að einhverjum
sem gæti tekið við alþjóðlegum gjafa,
sem myndi borga fyrir mig farið út og
svoleiðis. Þá rakst ég á þetta fyrirtæki
sem var stofnað fyrir 10 árum og heit-
ir Global Egg Donors,“ segir hún. Fyr-
irtækið er með útibú meðal annars í
Kaliforníu í Bandaríkjunum, á Ind-
landi og í Mexíkó. Umsóknarferlið
hjá þeim er langt og strangt og að-
eins einn af hverjum 15 sem sækir um
kemst að sem gjafi.
Sænskt hommapar fær eggið
Eggið sem Heiðrún gefur fer til
sænskra karlmanna sem fyrir eiga
eitt barn og hafa verið saman í tólf
ár. „Það eru sænskir hommar sem
eignuðust barn með hjálp stað-
göngumóður fyrir ári þannig að þetta
er þeirra annað barn.“
Heiðrún verður samtals í níu daga
úti og leggur af stað heim á föstudag.
„Það er mjög vel hugsað um mann
hérna og ég fer í læknisskoðun ann-
an hvern dag. Við erum sjö hérna
saman núna sem eru komnar
mislangt í ferlinu. Ég er búin að vera
að sprauta mig síðan í síðustu viku og
fer svo í eggheimtu á þriðjudaginn.“
Eftir að Heiðrún hefur gefið egg-
ið verður það frjóvgað og stað-
göngumóðir kemur til með að ganga
með barnið. Staðgöngumæðrun hef-
ur verið umdeild en Heiðrún segir að
vel sé búið að þeim staðgöngumæðr-
um sem eru þarna á vegum Global
Egg Donors. „Þær búa á hóteli fyrir
ofan klíníkina, fá húsnæði, pening,
hreint vatn, mat, menntun og vel er
hugsað um þær.“
Vissi ekki að þetta
væri möguleiki
Heiðrún segist ekki hafa leitt hugann
að því að gefa egg fyrr en hún sá aug-
lýsingu um eggjagjafa eftir að hún
eignaðist börnin sín. „Ég vissi í raun-
inni ekkert að þetta væri möguleiki.
Hélt kannski frekar að þetta væri
bara eitthvað sem konur gerðu inn-
an fjölskyldu sinnar en ekki að þetta
væri eitthvað sem maður gæti gefið
nafnlaust. Ég sá svo auglýsingu frá
Art Medica þar sem auglýst var eftir
eggjagjöfum. Eftir að ég komst að því
fannst mér ekkert mál að gera þetta.
Enda er mikil bið eftir eggjum á Ís-
landi, það eru um 100 pör á biðlista
hjá Art Medica.“
Veit ekki hvort hún gefur aftur
Hún segist þó ekki vera viss um að
hún muni gefa egg aftur. „Ég veit
ekki hvort ég muni gera þetta aft-
ur. Það er kannski alveg nóg að gera
það tvisvar. Ég veit að margar vin-
2 Fréttir 11. júní 2012 Mánudagur
„Ég gaf egg á
Íslandi í fyrra,
mér fannst það ekkert
mál þannig að ég
hugsaði að ég gæti
alveg gert það aftur.
n Tveggja barna móðir hjálpar sænsku hommapari n Gefur egg í annað sinn
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Á tvö börn sjálf Heiðrún á sjálf tvö börn
og segist hefðu viljað fá hjálp ef hún hefði
ekki getað eignast börn sjálf því hún skilur
hversu dýrmætt það er.
Þess virði Heiðrún með stúlku
sem fæddist í síðustu viku gegn-
um Global Egg Donors. Hana eiga
tveir ástralskir menn.
Handtekinn á
nærbuxunum
Ungur maður á þrítugsaldri var
handtekinn að kvöldi föstudags
við Urðarholt í Mosfellsbæ. Mað-
urinn var einungis klæddur í
bol og nærbuxur þegar hann var
leiddur út í lögreglubíl, að sögn
sjónarvotta. Fjórir lögreglubíl-
ar voru fyrir utan heimili manns-
ins í dágóðan tíma og þar á meðal
bifreið rannsóknarlögreglunnar.
Varðstjóri lögreglunnar á Krók-
hálsi verst allra frétta, vísar á
rannsóknarlögregluna og segir
málið á viðkvæmu stigi. Heim-
ildir DV herma þó að handtakan
tengist handtöku þriggja manna
sem brutust inn í íbúð í Norð-
lingaholti á föstudag, ætluðu að
brjótast inn í aðra og óku loks
glæfralega um Mosfellsbæ á stoln-
um bíl. Vitni að handtöku manns-
ins á föstudagskvöld lýsa því
þannig að hann hafi verið leiddur
út í lögreglubíl klæddur í fátt ann-
að en bol og nærbuxur. Maður-
inn hafði læst sig inni og þurfti því
sérfræðing til að opna lásinn að
heimili hans.