Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2012, Blaðsíða 6
Engin ástæða til
að sElja hlutinn
Ólafur talaði mest
n Úttekt á kappræðum Sjónvarpsins
Í
slenskur tölvunarfræðingur,
Salvar Þór Sigurðarson, komst að
þeirri niðurstöðu að Ólafur Ragn-
ar Grímsson hefði talað lengst
allra á frambjóðendafundi RÚV síð-
astliðinn fimmtudag. Samkvæmt út-
tekt Salvars talaði Ólafur í 24 mín-
útur samtals, Andrea Ólafsdóttir í
14,9 mínútur, Herdís Þorgeirsdótt-
ir í 14,1 mínútu. Þóra Arnórsdótt-
ir talaði í 12,8 mínútur, Ari Trausti
Guðmundsson í 12,5 mínútur og
Hannes Bjarnason rak svo lestina
með 9,3 mínútur samtals. Það er
því ljóst að Ólafur talaði 10 mínút-
um lengur en Andrea sem kom næst
á eftir honum en þátturinn var 90
mínútna langur. Salvar útilokar ekki
skekkju í mælingum sínum enda
segir hann rannsóknina ekki vera
vísindalega. Hann mældi þó eins
vel og hann gat og notaði til þess sex
skeiðklukkur.
Forsetakosningarnar fara fram
30. júní næstkomandi.
6 Fréttir 11. júní 2012 Mánudagur
n Milljarðatap og deilur hafa ekki áhrif á Lífeyrissjóð verslunarmanna„Staða þeirra veik-
ist við hvern og
einn þeirra sem selur sig
út úr hópnum og styrk-
ir stöðu þeirra sem geta
náð til sín fyrirtækinu og
þar með gert eignir lífeyr-
issjóðanna verðlausar.
L
ífeyrissjóður verslunarmanna,
LV, ætlar ekki að fylgja for-
dæmi Lífeyrissjóðs starfs-
manna ríkisins og selja hlut
sinn í Bakkavör Group vegna
óánægju með umdeilt samkomu-
lag sem gerir bræðrunum Ágústi og
Lýði Guðmundssonum tækifæri á að
eignast um fjórðungshlut í félaginu
þar sem hlutur annarra hluthafa
myndi þynnast út við það. Bræðurnir
myndu þá greiða um fjóra milljarða
króna fyrir hlutinn, en því hefur verið
haldið fram að það sé nokkuð undir
virði félagsins, sem er metið á 20–40
milljarða króna.
Þórhallur B. Jósepsson, upplýs-
ingafulltrúi LV, segir hagsmunum
sjóðsins betur borgið með því að
vera áfram inni í Bakkavör Group.
„Það hefur ekki verið ákveðið að
selja. Þarna eru eru margir saman,
bæði lífeyrissjóðir og fleiri fjárfestar
og staða þeirra veikist við hvern og
einn þeirra sem selur sig út úr hópn-
um og styrkir stöðu þeirra sem geta
náð til sín fyrirtækinu og þar með
gert eignir lífeyrissjóðanna verðlaus-
ar,“ segir hann við DV.
Betra að eiga áfram í Bakkavör
LV, líkt og aðrir lífeyrissjóðir lands-
ins, hefur brennt sig illilega á við-
skiptum við fyrirtæki Bakkavarar-
bræðra. Á árunum 2008–2010
afskrifaði sjóðurinn tæplega 3,4
milljarða króna út af viðskiptum
með skuldabréf Bakkavarar. Þá þurfti
sjóðurinn að afskrifa 3,6 milljarða
vegna viðskipta með skuldabréf í Ex-
ista á sama tímabili. Þrátt fyrir hið
umdeilda samkomulag telja stjórn-
endur sjóðsins rétt að selja sig ekki
út úr Bakkavör líkt og LSR gerði. „Við
teljum meiri líkur á því að með því
að halda áfram samningaviðræð-
um og reyna að koma þessu í höfn,
að við endurheimtum sem mest af
því fé sem við eigum þarna kröfur
í,“ segir Þórhallur, sem hafnar þeirri
gagnrýni að sjóðurinn ætti að hætta í
viðskiptum við fyrirtæki manna sem
hann hefur tapað milljörðum króna
á. „Við getum ekki fjallað um þetta á
þeim grundvelli. Við erum með kröf-
ur þarna og hverjir svo sem sitja hin-
um megin við borðið, það skiptir
ekki máli hverjir þeir eru. Við þurfum
að gera hvað við getum til að endur-
heimta sem mest af kröfunum. Þá
höfum við ekki efni á að spyrja hvað
þeir heita eða hvort þeir séu héðan
eða þaðan,“ segir Þórhallur. Hann
hafnar því líka að Bakkavararbræð-
ur geti keypt hlut sinn í fyrirtækinu
á undirverði líkt og haldið hefur ver-
ið fram.
Stórtöpuðu á fyrirtækjunum
Eins og fram hefur komið ákvað LSR
að selja öll hlutabréf sín í Bakkavör
vegna óánægju með samkomulag-
ið við bræðurna. Sjóðurinn tapaði
sömuleiðis háum fjárhæðum á við-
skiptum við fyrirtæki þeirra. LSR
afskrifaði 2.530 milljónir króna af
skuldabréfaeign sinni í Bakkavör á
árunum 2008 til 2010. Samkvæmt
skýrslu nefndar sem rannsakaði líf-
eyrissjóðina tapaði LSR 6,7 millj-
örðum króna á hlutabréfaeign sinni
í Bakkavör frá árslokum 2007 en LSR
var fjórði stærsti hluthafi félagsins
með 5,5 prósenta hlut.
LSR tapaði mest á hlutabréfaeign
sinni í Kaupþingi, alls 19 milljörðum
króna. Á kaupum sínum í Exista tap-
aði lífeyrissjóðurinn 4,2 milljörðum
króna og 6,7 milljörðum á Bakkavör
eins og áður sagði.
Einnig átti LSR skuldabréf í Kaup-
þingi, Exista og Bakkavör sem hafa
verið afskrifuð, um 7,3 milljarða
króna. LSR tapaði nærri 40 milljörð-
um króna á því að fjárfesta í félögum
tengdum Bakkavararbræðrum.
Gildi lífeyrissjóður, sem hefur líkt
og LSR og LV tapað miklu á Bakkavör
Group, á ennþá hlut í félaginu. Ekki
náðist í forsvarsmenn sjóðsins við
vinnslu þessarar fréttar.
Ágúst Guðmundsson
Þeir Lýður, bróðir hans,
geta eignast fjórðungs-
hlut í Bakkavör með
umdeildu samkomulagi
sem varð til þess að LSR
seldi sinn hlut í félaginu.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Vinningsmiðinn
seldur á Akureyri
Stálheppinn miðaeigandi var
með allar fimm tölurnar réttar
í lottóútdrætti helgarinnar og
hlýtur hann 73.106.160 krónur
í vinning. Miðinn var keyptur í
Leirunesti, við Leiruveg á Ak-
ureyri.
Fjórir fengu bónusvinning
og hlýtur hver þeirra rúmar
220 þúsund krónur í sinn hlut.
Fjórir voru með fjórar réttar
tölur í Jókernum og fær hver og
einn 100 þúsund krónur.
Grunur um
fíkniefnaakstur
Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir
á höfuðborgarsvæðinu á laugar-
dagskvöld grunaðir um akstur
undir áhrifum fíkniefna, að því er
fram kemur hjá lögreglu. Kona um
tvítugt var meðal annars handtek-
in rétt eftir átta og flutt til sýnatöku
á lögreglustöðina í Reykjavík.
Þá var þrítugur maður stöðv-
aður í Hafnarfirði upp úr klukkan
tíu og rétt fyrir ellefu var fertug-
ur karlmaður stöðvaður í Kópa-
vogi. Þeir voru báðir grunaðir um
akstur undir áhrifum fíkniefna.
Mennirnir voru handteknir og
fluttir á lögreglustöð. Lögregla
segir þau öll hafa verið frjáls ferða
sinna að sýnatöku lokinni.
Veltu bílnum
Lítill fólksbíll valt út af veginum
um Skeiðarársand, skammt vestan
Gígjukvíslar, rétt fyrir klukkan sex
á laugardagskvöld. Ökumaðurinn
missti stjórn á bílnum þegar hann
ók í ösku sem hafði safnast saman
á veginum. Vegagerðin var látin
vita og öskunni var rutt burt.
Tvær konur voru í bílnum.
Þær sluppu ómeiddar en bíll-
inn er talinn ónýtur. Konurnar
eru erlendir ferðamenn. Lög-
reglan á Hvolsvelli hvetur fólk til
að vera vakandi og láta vita ef það
keyri fram á ösku sem hafi safnast
saman á vegi. Að aka í ösku sé ekki
ósvipað því að lenda í lausamöl.
Frambjóðendur Ólafur Ragnar talaði
mest í kappræðum RÚV. Samkvæmt net-
könnun Plússins nýtur hann mest fylgis, eða
50,2 prósenta.