Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2012, Blaðsíða 12
G
eir Haarde er holdgerving-
ur oflætis hér á landi. Hann
virðist trúa því að hann skuli
njóta guðlegra forréttinda,“
skrifar Björn Þorláksson, rit-
stjóri Akureyrar vikublaðs, í leiðara
um forsætisráðherrann fyrrverandi
og viðbrögð hans við dómi lands-
dóms. Blaðið hefur fyrir vikið skapað
sér ósætti við unga sjálfstæðismenn
á Akureyri en ungliðarnir sögðu
leiðarann vægast sagt ógeðfelldan.
„Eitt samfellt skítkast yfir fyrr-
verandi forystumenn Sjálfstæðis-
flokksins sem höfundurinn, Björn
Þorláksson, ber augljóslega afskap-
lega þungan hug til,“ skrifa sjálf-
stæðismenn á Facebook og bæta við
að undarlegt sé fyrir héraðsblað að
skrifa leiðara um mál sem þetta. „Rit-
stjórinn var á lista Vinstri-grænna
í síðustu bæjarstjórnarkosningum
og blaðið er greinilega að breytast í
áróðursrit þess flokks,“ segja norð-
lenskir ungliðar Sjálfstæðisflokksins.
Ekkert lært
„Geir Hilmar Haarde sakfelldur fyr-
ir brot, ekki gerð refsing en sakfelldur
fyrir vanrækslu á örlagatímum. Hann
ofsareiddist í kjölfarið, kannski vegna
þess að menn sem njóta forréttinda
lengi tapa veruleikaskyni,“ skrifar
Björn í leiðaranum umdeilda. „Venju-
legt fólk átti von á að sjá bæði hann og
gamla seðlabankastjórann skammast
sín, biðjast afsökunar, víkja af velli og
hleypa nýju fólki að þegar ljóst var að
draumsýn þeirra beggja og áratuga
vegferð var á sandi byggð.“
Vitnað er í ummæli Geirs H. Ha-
arde í Fréttatímanum 1. júlí síðast-
liðinn. Þar segist Geir hissa á að fá
ekki sýknu. Geir vitnar í viðtalinu í
samtal við ónefndan kunningja sinn.
„Niðurstaðan var fyrir þig eins og
10–1 sigur í fótboltaleik og þú þrasaðir
yfir því að markið sem þú fékkst á þig
væri rangstöðumark! Ég held þetta sé
ágæt lýsing á málinu,“ hefur Geir eft-
ir kunningjanum í Fréttatímanum.
„Er þetta ágætis lýsing á málinu, Geir?
Hver er hér fíflið og hver er dóninn?“
spyr ritstjóri Akureyrar vikublaðs og
virðist ekki taka undir með forsætis-
ráðherranum fyrrverandi um ágæti
greiningar mannsins ónafngreinda á
niðurstöðu landsdóms.
Stendur við hvert orð
Við DV segir Björn að hann standi
við hvert orð í leiðaranum og telji
ekki að of langt hafi verið geng-
ið. „Að sjálfsögðu stend ég við hvert
orð. Það segir sig sjálft að maður sem
gengur dæmdur til framtíðar segj-
andi þá sögu sem Geir sagði og vitn-
að er til í lok leiðarans hefur ekkert
lært af hruninu,“ segir hann og bætir
við að allt það sem stendur í leiðara
blaðsins blasi einfaldlega við. „Geir
hefur ekkert lært af aðdraganda
hrunsins. Hans heimur virðist mark-
aður sjálfsréttlætingum og jafnvel
sögufölsunum.“
Björn segir tilraun ungra sjálf-
stæðismanna í bænum til að stimpla
blaðið sem handbendi VG klassískt
bragð. „Þetta er bara klassískt þegar
á að vefengja trúverðugleika blaða-
manna og fjölmiðla.“
Milli tannanna á fólki
Akureyri vikublað hefur vakið mikla
athygli á því tæpa ári sem það hef-
ur komið út. Edward H. Huijbens,
varabæjarfulltrúi VG, skrifaði á sín-
um tíma grein um blaðið og sagði
það spyrja erfiðra og jafnvel leiðin-
legra spurninga. Blaðið hafði þá leg-
ið undir ámæli fyrir aðgangshörku.
Edward vitnaði til þess að viðmæl-
endur blaðsins hefðu sakað ritstjór-
ann um að hafa ekki rétt eftir sér.
Björn neitaði þá ásökunum um
slíkt í leiðara blaðsins og sagði tal
á þeim nótum jafn gamalt og sjálf-
stæða blaðamennsku. „Afkomulega
væri auðveldast í hvert skipti sem
einhver hringir í blaðið að segja:
Ég skal skrifa góða frétt um þig ef
þú auglýsir. En það er ekki blaða-
mennska. Það er vændi,“ skrifaði
Björn á sínum tíma í leiðara vegna
málsins.
Smábæjarbragur og átaka-
blaðamennska
Gagnrýni varabæjarfulltrúans vatt
nokkuð upp á sig en ummæli Ed-
wards um fréttablaðið Vikudag, sem
einnig er gefið út á Akureyri, vöktu
athygli. „[V]elta [má] fyrir sér hvort
hitt vikublaðið okkar, Vikudagur,
hafi þróað sína rýnilausu tegund
blaðamennsku, vegna þess að sam-
félagið er lítið og viðvarandi átaka-
blaðamennska gæti til lengdar graf-
ið undan jákvæðni og samstöðu í
samfélaginu,“ skrifaði Edward um
áskriftarritið Vikudag sem gefið hef-
ur verið út á Akureyri í nokkuð mörg
ár.
Kristján Kristjánsson, ritstjóri
blaðsins Vikublaðs, sagðist í samtali
við DV á sínum tíma ekki kannast
við að gagnrýnin á Akureyri viku-
blað væri réttmæt. Um „rýnilausa
blaðamennsku“ Vikudags sagði
Kristján: „Við höfum ekki verið að
telja eftir okkur að tala um hlutina
eins og þeir eru. Ég get alveg viður-
kennt að við höfum miklu frekar lagt
upp úr því að vera á jákvæðum nót-
um. Það er bara stefnan.“ DV spurði
Kristján hvort gerður væri greinar-
munur á jákvæðni og gagnrýnisleysi
á ritstjórn blaðsins. „Já, klárlega.“
Kristján sagðist ekki hafa tilfinningu
fyrir eða skoðun á hrósi varabæjar-
fulltrúans á vikuritinu sem hann rit-
stýrir.
Aðhaldslausir stjórnmálamenn
Oddur Helgi Halldórsson, oddviti
og stofnandi L-listans á Akureyri,
sagði í viðtali við Akureyri vikublað
á sínum tíma að hann yrði lítið var
við aðhald frá fjölmiðlum. „Ég verð
mjög lítið var við aðhald frá fjöl-
miðlum hér og verð að segja að
það mætti vera meira. Fjölmiðl-
ar hér eru ekki nógu gagnrýnir, ég
man sem dæmi þegar Sigrún Björk
Jakobsdóttir, fv. oddviti Sjálfstæð-
isflokksins, sagði um fjárhagsáætl-
un sem hún lagði fram að hún væri
„mjög metnaðarfull“. Þann dag átu
fjölmiðlar upp að fjárhagsáætlun-
in væri „mjög metnaðarfull“. Svo
daginn eftir sagði ég að þessi áætl-
un væri hreint ekkert metnaðarfull
og þá fóru sömu fjölmiðlar að birta
nýja fyrirsögn: „Ekki metnaðarfull
áætlun, segir Oddur Helgi“.“
Hér væri auðvitað betra að fjöl-
miðillinn legði sjálfstætt mat á at-
burði og nálgaðist þá gagnrýnið.
Vitnað er í viðtalið á Facebook-síðu
vikublaðsins og er gengið út frá
því að ritstjórn blaðsins og vefsins
akv.is sé umhugað um að uppfylla
aðhaldsskyldu sína.
Samfélag án eftirlits
„Viljum við lifa í umhverfi þar sem
valdamesti einstaklingurinn í 17.000
manna samfélagi lýsir fjölmiðlum
þannig? Er ekki varðhundshlutverk-
ið eitt af mikilvægustu hlutverkum
fjölmiðla?“ segir á Facebook-síðu
blaðsins. Lesendum er lofað því að
ritstjórn ætli sér að gera greinarmun
á upplýsingum sem raunverulega
varða almannahag og upplýsingum
sem lúta að sérhagsmunum. „Snúa
þarf vörn í sókn eftir það hrun sem
orðið hefur í staðbundinni fjölmið-
lun síðastliðin ár hér.“
Björn segir að blaðaútgáfan
gangi vel. Hann segir dreifingar-
svæði blaðsins vera að stækka til
austurs og vesturs. Blaðinu er í dag
dreift frítt á öll heimili á Akureyri og
í nágrenni, sem og Húsavík, Dalvík
og Fjallabyggð. Að auki segir Björn
að aukið verði við ritstjórnina á
næstunni.
„Þvert á það sem fræðin segja
þá hefur einmitt verið fullt rými og
12 Fréttir 11. júní 2012 Mánudagur
n Sjálfstæðismenn finna VG-slagsíðu n VG segir smábæjarmennsku einkenna blaðið
Er blaðið of
aðgangshart?
„Nei, það finnst mér alls ekki. Þeir
sem eru að reyna að stoppa blaðið
geta bara notað það sem klósett-
pappír ef þeir fíla það ekki.“
Sölvi Bernódus Helgason
21 árs, afgreiðslumaður
„Nei, það finnst mér ekki.“
Daníel Þórðarson
75 ára, vélstjóri
„Les ekki blaðið.“
Guðmundur Ægir Jóhannsson
52 ára, kaffihúsaeigandi
„Ég les bara því miður ekki blaðið.“
Dagný Ingólfsdóttir
45 ára, kaffihúsaeigandi
„Hef enga sérstaka skoðun á því.“
Yrja Dögg Kristjánsdóttir
25 ára, afgreiðslukona
frelsi til að hafa ágengan tón í þessu
blaði þótt afkoma þess byggist ein-
göngu á auglýsingum. Með öðrum
orðum þá fagna auglýsendur því að
það sé hægt að auglýsa í fríblaði sem
ekki er bara í sölufréttamennsku,“
segir ritstjóri blaðsins. n
Umdeildur ritstjóri Björn Þorláksson,
ritstjóri Akureyrar vikublaðs, er umdeildur
meðal stjórnmálamanna fyrir norðan.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Herskáa héraðs-
fréttablaðið „Ég er frjáls og óháður
v i k u b l a ð31. maí 201221. tölublað 2. árgangur
Hvað er ég að
gera, spyrðu!
Ég er að sýna
ábyrga starfshætti
Ég heiti Aron og er söluráðgjafi hjá Glerborg. Þegar ég
lofa viðskiptavinum mínum CE vottun, þá er það vegna
þess að ég framkvæmi mín eigin próf og get lagt nafn
mitt og heiður að veði.
Dalshraun 13 • 220 Hafnarfjörður • Sími 565 0000 •
Fax 555 3332 • glerborg@glerborg.is • www.glerborg.is
ALTERNATORAR OG
STARTARAR Í BÍLA
Flestar gerðir á lager.
Viðgerðir og bilanagreining.
Ásco ehf - Glerárgata 34b v/ Hvannavelli · 600 Akureyri · Sími: 461 1092 · E-mail: asco@asco.i
s
BÍLARAFMAGN
VARAHLUTIR
RAFGEYMAR
ALPINE
HLJÓMFLUTNINGSTÆKI
ÁSCO
Svívirðileg framkoma hjá LÍÚ
Konráð Alfreðsson, formaður Sjómanna-
félags Eyjafjarðar, segir að nú þegar
sjómannadagurinn nálgast sé sér efst
í huga að sjómenn séu búnir að vera
samningslausir í eitt og hálft ár. „Þetta
er svívirðileg framkoma hjá LÍÚ að hafa
ekki fengist til að ræða kjarasamninga
vegna fyrirhugaðra breytinga á fisk-
veiðikerfinu. Þótt tekjur sjómanna séu
þokkalegar nú um stundir réttlætir ekk-
ert samningsleysi,“ segir Konráð.
Óvissan stingur sér víðar niður. Hin
opinbera rannsókn á Samherja og áhrif
þess máls á sjómenn er afleit bæði fyr-
ir fiskverkafólk í landi og umbjóðend-
ur Konráðs á sjó. Hann segir að skip
Samherja liggi sum hver við bryggju og
sjómenn hafi ekki atvinnu vegna rann-
sóknarinnar sem virðist vanreifuð. Biðin
eftir lyktum málsins hafi áhrif á Dalvík-
inga, Akureyringa og fleiri.
Spáð er blíðskaparveðri á sjómanna-
daginn nk. sunnudag en í huga Konráðs
sem reri áratugum saman er ekki síðra
að sækja sjó í skítabrælu. „Mig langaði
aldrei á sjó nema í vetrarvertíðinni, ég
vildi helst vera í landi á sumrin þegar
veðrið var best. Ég held það sé eitthvað í
fólki sem sækir sjóinn, glíman að takast
á við náttúruöflin og sigra, ögrunin, að
hún gefi þessu öllu gildi. Mér fannst t.d.
alltaf gaman í brælu þótt það væri ekki
alltaf auðvelt.“ a
Það hefur viðrað vel bæði á sjó og landi síðustu daga en formaður Sjóma
nnafélags Eyjafjarðar segir gaman á sjó í öllu veðri. Akureyri vikublað
óskar sjómönnum um land allt til hamingju með sjómannadaginn nk. sunn
udag. Völundur
v i k u b l a ð
10. maí 2012
18. tölublað 2. árgangur
ALTERNATORAR OG
STARTARAR Í BÍLA
Flestar gerðir á lager.
Viðgerðir og bilanagreining.
Ásco ehf - Glerárgata 34b v/ Hvannavelli · 600 Akureyri · Sími: 461 1092 · E-mail: asco@asco.is
BÍLARAFMAGN
VARAHLUTIR
RAFGEYMAR
ALPINE
HLJÓMFLUTNINGSTÆKI
ÁSCO
Tifandi tímasprengja í Mývatni
Í gögnum frá Umhverfisstofnun kemur
fram að í Ytriflóa Mývatns liggi 1000 lítra
olíutankur, sennilega fullur af olíu, sem
týndist af dráttarbáti Kísiliðjunnar hf.
síðasta sumarið sem hún starfaði.
„Mér finnst þetta afleitt,“ segir Árni
Einarsson, líffræðingur hjá Náttúru-
rannsóknastöðinni við Mývatn, en
Mývatnssvæðið er sérlega viðkvæmt.
Þ r er, auk náttúrufegurðarinnar, bú-
svæði margra fuglategunda á Íslandi
og silungsveiði. Kísiliðjan var starfrækt
nokkra kílómetra frá vatnsbakkanum
fram til ársins 2004 en kísilgúr var unn-
inn úr leðju sem dælt var upp af botni
Mývatns.
Samkvæmt upplýsingum Árna varð
óhapp síðustu dagana sem dráttarbátur
Kísiliðjunnar í Mývatnssveit var star-
fræktur. Munaði minnstu að báturinn
sykki og í látunum rann tankurinn í
vatnið. Starfsmenn urðu þess ekki var-
ir fyrr en þeir sigldu í land. Ótækt var
talið að liggja með tifandi mengunar-
tímasprengju í vatninu og var leitað
nokkrum sinnum sumarið 2004 en án
árangurs. Virðist sem málið hafi ætíð
farið furðu hljótt.
Talið er að tankurinn liggi á svæði
austan Slútness. Um tíma stóð bauja
þar sem starfsmenn töldu líklegast
að tankurinn hefði horfið en baujan
er löngu horfin í dag. Árni segir erfitt
að kalla menn til ábyrgðar þar sem
átta ár eru liðin síðan Kísiliðjan hætti
störfum. „En málið er ótækt, það er
engin spurning,“ segir Árni. Hann hefur
hins vegar ekki gefið upp vonina um að
tankurinn finnist og bindur vonir við
komandi sumar í þeim efnum, og þá að
annað hvort verði stuðst við flugvél eða
dvergkafbát. a
Höfði við Mývatn
7. júní 2012
22. tölublað 2. árgangur v i k u b l a ð
Mikill fjöldi báta sigldi í skemmtisiglingu í veðurblíðunni á sjómannadaginn á Pollinum á Akureyri. BÞ
Gerðu garðverkin skemmtilegri
Þýsk gæðatæki
sem auðvelda þér garðvinnuna
Garðsláttuvélar
Rafmagns- eða
bensíndrifnar
Einnig
mosatætarar,
jarðvegstætarar,
laufsugur,
hlífðarföt,
öryggisbúnaður
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · Fax 568-0215 · www.rafver.is
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Keðjusagir
Rafmagns- eða
bensíndrifnar
Sláttutraktorar
Ýmsar útfærslur
Hekkklippur
Rafmagns- eða
bensíndrifnar
Sláttuorf
Rafmagns- eða
bensíndrifin
Hre nsu u rusl og luppu frá kæru
Aðfarar ótt laugardags brutust þrjú
u gmen i inn í sundlaugin á Sval-
barðseyri. Lögr gla var kölluð til og
handtók ungmennin fti dálítið uppþot.
Sveitarstjó i Svalbarðsstrandarhrepps,
Jón Hrói Finnsson, hafði kall ð til lög-
regluna og stakk upp á því að í stað
þess ð krakkarnir yrðu kærðir og
þeim gerð fjárkrafa vegna kostnaðar
við hreinsun á heitum potti og fleira
gæfist þeim kostur á að ljúka málinu
með því að mæta til vinnu hjá hreppn-
um morguninn eftir og hreinsa rusl ut-
anhúss þar sem umhverfisvika stóð yfir
hjá sveitarfélaginu.
Klukkan 10 morguninn eftir mættu
ungmennin þrjú, illa sofin, en slógu ekki
slök við í hreinsunarstarfinu. „Þau
stóð sig með mikilli prýði,“ segir Jón
Hrói. „Það hefði verið vont fyrir okkur
að láta innbrotið óátalið, afleiðing þarf
að fylgja broti, en mér fannst þetta betri
kostur en að gera fjárkröfu og krakkarnir
nýttu tækifærið vel.
Í afbrotafræðum er m.a. fjallað um
stimplunaráhrif frá samfélaginu þar
sem getur orðið erfitt fyrir þá sem hafa
afplánað refsingu að endurreisa orðspor
sitt. Viðbragð sveitarstjórans er dæmi um
þveröfuga nálgun. „Þau báðust afsökunar,
eru greinilega bestu skinn og eiga skilið
annað tækifæri,“ segir sveitarstjóri Sval-
barðsstrandarhrepps. a
Velkomin í Norðurþing
(Húsavíkur – Kópaskers – Raufarhafna )
Fréttir og
umræða um
norðlensk
málefni er á
akv.is
2
24. maí 2012
NÝTT NÝTT NÝTT
MARGAR TEGUNDIR
AF EAR-CUFF
SKARTHÚSIÐ - LAUGAVEGI 44 - SÍMI: 562-2466
NÝTT T NÝT
MARGAR TEGUNDIR
AF EAR-CUFF
SKARTHÚSIÐ - LAUGAVEGI 44 - SÍMI: 562-2466
NÝTT NÝTT NÝTT
MARGAR TEGUNDIR
AF EAR-CUFF
SKARTHÚSIÐ - LAUGAVEGI 44 - SÍMI: 562-2466
NÝTT NÝTT NÝTT
MARGAR TEGUNDIR
AF EAR-CUFF
SKARTHÚSIÐ - LAUGAVEGI 44 - SÍMI: 562-2466
NÝTT NÝTT NÝ T
MARGAR TEGUNDIR
AF EAR-CUFF
SKARTHÚSIÐ - LAUGAVEGI 44 - SÍMI: 562-2466
T NÝTT NÝTT
MA GAR TEGUNDIR
AF EAR-CUFF
SKARTHÚSIÐ - LAUGAVEGI 44 - SÍMI: 562-2466
Bærinn óskar tilboða
í jafn réttisúttekt
Samfélags- og mannréttindaráð hefur
falið framkvæmdastjóra að óska eftir
tilboði í gerð launaúttektar hjá bænum.
Í úttekt sem gerð var árið 2007 mæld-
ist ekki marktækur munur á launum
kynja að teknu tilliti til starfs, starfs-
sviðs, aldurs, starfsaldurs og vinnutíma
en ráðið telur mikilvægt að fylgjast vel
með svo sá góði árangur sem náðst hef-
ur í að jafna launamun kynjanna hjá
sveitarfélaginu haldist.
Guðrún Þórsdóttir, V-lista og
Regína Helgadóttir, B-lista létu á síð-
asta fundi ráðsins bóka sérstaklega
um mikilvægi nýrrar úttektar. „Ég
tel mjög mikilvægt að launamunur
kynjanna sé skoðaður til þess að hægt
verði að leiðrétta ef um misrétti sé að
ræða. Akureyrarbær getur ekki ver-
ið þekktur fyrir að borga ekki sömu
laun fyrir sömu vinnu,“ segir Guðrún
Þórsdóttir.
„Í ljósi umræðu um neikvæða þró-
un á launamun kynjanna einkum hjá
opinberum aðilum, tel ég brýnt að
vinnu við úttekt á launum starfsfólks
Akureyrarbæjar verði hraðað. Bendi
ég á í því sambandi að í Jafnréttis-
stefnu Akureyrarbæjar er kveðið á
um að úttektina eigi að gera vor-
ið 2012,“ segir Regína Helgadóttir
B-lista. a
Embættismenn í bómull
Að mestu er látið óátalið að for-
stöðumenn ríkisstofnana fari fram
úr fjárheimildum. Þetta segir Sig-
mundur Ernir Rúnarsson þingmað-
ur Samfylkingarinnar í Norðaust-
urkjördæmi. Í umræðu á Alþingi í
síðustu viku sagði þingmaðurinn
awð á sautján árum frá 1995-2012
hefðu aðeins tveir forstöðumenn
ríkisstofnana verið áminntir, fjór-
ir forstöðumenn hefðu fengið til-
sjónarmann með rekstri en tveir
forstöðumenn verið látnir víkja.
„Skyldi þetta vera í einherju sam-
ræmi við það sem gengur og gerist
á hinum almenna vinnumarkaði?
Spurði þingmaðurinn. „Hér búum
við við tvö kerfi,“ bætti hann við.
Ég er lagður í ei elti hér í þessum bæ
Segir sérleyfishafi – íhugar að flýja suðu
r til Reykjavíkur
Tryggvi Sveinbjörnsson sérleyfisha
fi hefur
ásamt Birni Mikaelssyni, fyrrverandi
yfirlög-
regluþjóni á Sauðárkróki, verið ákærð
ur fyrir
brot á hafnarbakkanum á Akureyri s
umarið
2010. Tryggvi segir að hann sé lagður í
einelti í
bænum og íhugi flutning suður til Reyk
javíkur.
Fyrirtaka í máli Sýslumannsins á Aku
reyri
gegn Tryggva og Birni fór fram í Héra
ðsdómi
Norðurlands eystra í gær. Áður haf
ði þeim
verið boðið að ljúka málinu með því a
ð greiða
50.000 króna dómssátt en því höfnu
ðu þeir.
Málsóknin gegn þeim er skýlaust bro
t á jafn-
ræðisreglu að sögn Tryggva og íhuga þe
ir Björn
gagnsókn, skaðabótamál. „Þetta mál
munum
við fara með alla leið upp í Hæstarét
t ef það
þarf til,“ segir Tryggvi.
Málsmeðferðin er meingölluð að
sögn
Tryggva. Hann segir að engin lögreglu
skýrsla
hafi verið tekin af hafnarstjóranum, se
m kærði
Tryggva og Björn sumarið 2010, en bro
t þeirra
var að bjóða farþegum af skemmtiferða
skipum
ferðir með rútu inni á svæði Akureyra
rhafnar.
Tryggvi segir að aðrir hafi fengið að
starfa á
sama svæði óráreittir, leigubílar og r
útur f á
SBA. Pappíra hafi þurft til að skera ú
r um að
viðskiptaumsvif þeirra Björns hafi átt
sér stað
innan marka hafnarsvæðisins og þó
tt hann
hafi fært bílana burt hafi málið ver
ið keyrt
alla leið í dómssal.
„Mér finnst út í hött að þetta mál sé
orðið
að dómsmáli. Hér er bara lögreglurík
i,“ segir
Tryggvi.
Hann segist handviss um að þeir B
jörn
hefðu aldrei verið ákærðir eða meðhö
ndlaðir
af svo mikilli hörku ef þeir væru in
nfædd-
ir Akureyringar. Hann hefur áður lýs
t þeirri
skoðun opinberlega að klíkukskapur s
é mikið
mein innanbæjar á Akureyri en þetta
er ekki
í fyrsta skipti sem Tryggvi lendir í átö
kum og
má nefna snerru hans og Sigurðar Guð
munds-
sonar bæjarfulltrúa í svokölluðu skil
tamáli.
„Ég er að gefast upp á Akureyri, ég er l
agður
í einelti í þessum bæ. Ætli maður hrek
ist ekki
um síðir suður“, segir Tryggvi. a
tryggva og Birni er stefnt fyrir að b
jóða túristum rútuferðir
Völundur
„Ógeðsleg kattaklósett“
Ragnheiður Gunnarsdóttir hjá
Kisukoti á Akureyri gagnrýnir Ak-
ureyrarbæ fyrir fálæti gagnvart
vaxandi fjölda útigangskatta og
villikatta. Á vefsíðunni akureyri-
vikublad.is í umræðum um meint
kattafár á Akureyri og þagnandi
smáfugla segir Ragnheiður:„Fjöldi
útigangskatta og villikatta er að
verða mikill hér í bæ og hef ég varla
orðið tölu á því hversu mörgum kött-
um ég er búin að ná á þessu ári sem
enginn hefur átt. Margsinnis hef
ég talað við bæjaryfirvöld að gera
eitthvað í málunum. Og hvað segja
þeir: Jú þetta er ekkert vandamál
hér í bæ!“
Blaðið bar þessi ummæli undir
Eirík Björn Björgvinsson bæjar-
stjóra sem svaraði þannig: „Þann
27. mars sl. svaraði ég Ragnheiði í
tölvupósti m.a. með þessum orðum;
„Ég get ekki tekið undir með þér að
við gerum lítið úr þessu máli en sjá-
um það ekki endilega sem vandamál
heldur sem verkefni.“ Eiríkur segir
að erindi Ragnheiðar hafi fremur
snúið að því að sveitarfélagið styddi
rekstur athvarfs fyrir ketti en bær-
inn hafi ekki verið tilbúinn til þess.
„Við hlustum á allar ábendingar
frá íbúum um lausagöngu katta og
bregðumst við þeim með viðeigandi
hætti.“
Sverrir Páll Erlendsson mennta-
skólakennari og íbúi við Ásveg segir
í umræðunum á akureyrivikublad.
is: „Kattafárið hér á Brekkunni
hefur fælt alla f gla úr garðinum
mínum í fimmtán ár og blómabeðin
mín eru ógeðsleg kattaklósett, þar
er allt í kattaskít og maður fer varla
út í garð öðru vísi en með gúmmí-
hanska ef maður ætlar að gá að
gróðri. Mér finnst eiga að banna
fólki að halda húsdýr ef það getur
ekki hugsað um þau og varið aðra
fyrir þeim“. a
Sjúkraþjálfari raddbandanna
Akureyringar eiga sinn fulltrúa í
Bakú. Þórhildur Örvarsdóttir radd-
þjálfari himinlifandi með að Ísland
sé komið í úrslit
Ég held það séu nokkrir samverk-
andi þættir sem færðu okkur þennan
góðan árangur. Fyrst og fremst hið
stórgóða lag hennar Gretu Salóme,
Never Forget, og svo auðvitað frábær
flutningur hennar, Jónsa og bakradd-
anna. Síðast en ekki síst má nefna
góða hönnun, leikstjórn og mynd-
vinnslu á atriðinu,“ sagði Þórhildur
Örvarsdóttir klukkan sex að morgni í
Bakú og var ekki farin að sofa vegna
mikilla anna þegar hún gaf sér tíma
til að hafa samskipti við Akureyri
vikublað.
Akureyringurinn Þórhildur er
landsmönnum vel kunn sem söng-
kona og söngkennari. Hennar hlut-
verk í Evróvisjón er að vera radd-
þjálfari hópsins. „Mitt hlutverk hér
úti í Bakú er að sjá til þess að allir
söngvararnir séu í topp formi radd-
lega. Þetta er kannski ekki ósvip-
að því þegar íþróttamenn eru með
sjúkraþjálfara með sér í keppnis-
ferðum, nema hvað ég sé um radd-
böndin,“ segir Þórhildur.
Aðspurð segir hún að stemningin
í hópnum sé frábær. „Við skemmt-
um okkur konunglega. Allir í hópn-
um eru fagmenn útí fingurgóma og
leggja sig fram. Í svoleiðis aðstæðum
myndast góður andi. Það eru algjör
forréttindi að fá að kynnast og vinna
með öllu því frábæra fólki sem að
þessu kemur.“
En telur Þórhildur möguleika á
að keppn n næsta ár verði haldin í
stækkuðu Hofi?!
„Ég vil nú helst ekki vera mikið að
spá til um úrslitin og í raun má segja
að það að komast uppúr undanúr-
slitunum sé mikill sigur. Þessi keppni
hefur oft, þrátt fyrir alla veðbanka,
verið óútreiknanleg þannig að það
getur allt gerst og í gegnum allt þetta
ferli hefur okkur verið spáð góðu
gengi. En við skulum endilega halda
þessu opnu með stækkun Hofs.“ a
Þetta er kannSki ekki ósvipað því þ
egar íþróttamenn eru með sjúkraþjálfa
ra með
sér í keppnisferðum, nema hvað ég sé
um raddböndin.
4
17. maí 2012
Ruslagámastöð í Innbæn-
um veldu hneyksl n
Mikil óánægja er með l Innbæ-
inga um s ðsetningu gámasvæðis
s m mun að sögn ósáttra þrengja
að eina leikvelli hverfisins, Leiru-
velli Á kynningarfundi um nýtt
deiliskipulag í síðustu viku birtist
þessi skoðun en tillagan að nýju
deiliskipulagi hlaut að öðru leyti
fremur góðan hljó grunn.
„Það veldur hneykslan okkar
flestra sem höfum komið að þessu
máli, íbúar, leiðsögumen og fleiri,
að bærinn ætlar sér að koma
ruslagámastöð fyrir á leikvellin-
um. Rétt við hliðina á
sambýli sem þar er,
beint á móti elsta
húsi bæjarins,
Laxdalshúsi, og
í næsta nágrenni
við vinsælustu
ísbúð landsins,“ segir Sigurbjörg
Pálsdóttir íbúi í Innbænum. „Við
höfum með öllum ráðum barist fyrir
því að fá endurgerðan Leiruvöllinn í
Hafnarstræti og hafa þær umræður
farið fram allt frá því 2004.“
Sigurbjörg segir að umburðarlyndi
ríki í Innbænum gagnvart fyrirtækj-
um og þeirri umferð sem þeim fylgi en
„það væri hins vegar að æra óstöðugan
a ætla sér að bæta við þeirri u ferð
sem myndi fylgja ruslagámunum, svo
ekki sé talað um það ónæði sem þeim
fylgir, vond lykt, óþrifnaður, flugur og
annar ósk pnaður. Það er að okkar
mati fráleitt að koma gámunum fyrir
á leiksvæði í miðju íbúðarhverfi.“
Sigurbjörg segir brýnt að koma
í veg fyrir þessa staðsetningu og að
vandað verði til verka við úrbætur
á Leiruvelli.a
Ve slunarma ur segir Gle ár o
áróðursst ð fyrir Evrópusambandið
Óánægja ríkir meðal andstæðinga
aðildar að Evrópusambandinu
eftir að Jakob Björnsson fram-
kvæmdastjóri Glerártorgs heimil-
aði Evrópustofu að kynna Evrópu-
sambandið í verslunarmiðstöðinni
Glerártorgi. Hjörleifur Hallgríms
verslunarmaður segir að um opinbert
rými sé að ræða. Hann telur óviðeig-
andi að rekinn sé áróður fyrir ESB
fyrir framan fólk í verslunarferð.
„Hvernig stendur á því að þarna er
leyfð kynning á ESB?“ spyr Hjörleif-
ur. „Með þessu er Glerártorgi breytt í
áróðursstað,“ bætir hann við.
Jakob Björnsson, framkvæmda-
stjóri Glerártorgs, segir málið byggt
á misskilningi. Ef Glerártorg hefði
aðeins heimilað einum aðila með
einn málstað að kynna sig væri það
sannarlega óhæfa. Þeir sem vilji
kynna mótrök gegn aðild að ESB
geti hins vegar allt eins gert það inn-
an veggja verslunarmiðstöðvarinnar.
„Þetta er ekki ólíkt því og ef menn
vildu dreifa miðum í göngugötunni,
þeir sem vilja kynna sér sjónarmið
lesa eða hlusta en ekki þeir sem það
ekki vilja. Ég gæti sagt þér ýmislegt
um mínar skoðanir á hinu og þessu
en það er ekkert samhengi milli þess
og þess sem kynnt er á Glerártorgi.
Við höfum leyft forsetaframbjóðend-
um, talsmönnum Samherja og mörg-
um öðrum að hafa þarna kynningu,
þetta er opið rými,“ segir Jakob. a
Veðrið er stærsta ævintýrið
„Veður hefur vissulega breytileg áhrif á starfsemi
eins og ferðaþjónustu en við reynum að láta veðr-
ið aldrei hafa slæm áhrif á okk-
ur. Því til staðfestingar nefni ég
að við lýsum bara veðrinu á þrjá
vegu; veður getur verið „very good“,
veður getur verið „good“ og svo
getur veður verið „refreshing“ sem
er þessi týpa sem við erum með
núna,“ sagði Sævar Freyr Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Saga Travel
á Akureyri, fannbarinn en í fínu skapi þegar blaðið
hafði tal af honum í óveðurshvellinum miðjum nú
í vikunni.
Sævar segir að starfsfólk í ferðaþjónustu taki veðr-
áttunni eins og hún birtist. Saga Travel sé með það mikla
„vöruflóru“ að þeirra fyrirtæki hafi getað brugðist við
norðanhretinu með breyttum áfangastöðum. Spurð-
ur um viðbrögð útlendinganna við norðanáhlaupinu
segir Sævar að veðrið sé oft stærsta ævintýrið í augum
þeirra sem sækja Ísland heim. „Við höfum til dæmis
aldrei fengið meira hrós frá okkar viðskiptavinum en
sl. vetur þegar veðrið varð þannig í einni ferðinni að við
komumst ekki aftur heim til Akureyrar heldur urðum
að gista á Húsavík.“
Saga Travel fékk nýsköpunarverðlaun frá Akureyrar-
bæ fyrir skemmstu en fyrirtækið er vaxandi í ferðaþjón-
ustu og mun veita allt að 14 manns atvinnu í sumar. a
logi Már einarsson arkitekt kynnir tillögu að nýju
deiliskipulagi fyrir Innbæinn. Fram kom í máli hans
að sakir þess hve Innbærinn þykir merkilegt hverfi
hafa íbúar ekki alfrjálsar hendur þegar kemur að
framkvæmd eins og þeirri að velja lit á húsið sitt.
Meintur áróðursVettVangur Völundur
Þegar Veður skipast í lofti þurfa ferðaþjónustuaðilar eins og Saga travel að geta kúvent í hendingskasti. Völundur
leikVöllurinn seM sagður er í niðurníðslu. Völundur
ve r missa vinnu hjá LA
En fjórir nýir leikara ráðnir
Ein og hálf staða verður lögð nið-
ur hjá Leikfél gi Akureyrar næsta
leikár frá því sem nú er. Um ræðir
stöðu smiðs í 100% s arfi og 50%
starf sem snýr að ýmsum verkefn-
um. Eiríkur Haukur Hauksson fram-
kvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar
segir að alls verði níu föst störf hjá
LA næsta vetur, fjórir fastráðnir
leikarar og fimm í öðrum störfum,
þ.á.m. hann sjálfur.
Hann segir síðasta leikár hafa
gengið vonum framar. Félagið hafi
nánast daglega verið nálægt gjald-
þroti og rekstrarstöðvun vegna
lausafjárvanda. Fólk sjái fram á betri
tíma þótt mjög mikið aðhald verði í
rekstrinum næsta leikár. a
sæVar freyr
sigurðsson
Þykir óvægið Á skömmum tíma hef r Akureyri vikublað geti sér orð sem óvægið og frekar herskátt hé aðsfréttablað.
v i k u b l a ð31. maí 201221. tölublað 2. árgangur
Hvað er ég að
gera, spyrðu!
Ég er að sýna
ábyrga starfshætti
Ég heiti Aron og er söluráðgjafi hjá Glerborg. Þegar ég
lofa viðskiptavinum mínum CE vottun, þá er það vegna
þess að ég framkvæmi mín eigin próf og get lagt nafn
mitt og heiður að veði.
Dalshraun 13 • 220 Hafnarfjörður • Sími 565 0000 •
Fax 555 3332 • glerborg@glerborg.is • www.glerborg.is
ALTERNATORAR OG
STARTARAR Í BÍLA
Flestar gerðir á lager.
Viðgerðir og bilanagreining.
Ásco ehf - Glerárgata 34b v/ Hvannavelli · 600 Akureyri · Sími: 461 1092 · E-mail: asco@asco.i
s
BÍLARAFMAGN
VARAHLUTIR
RAFGEYMAR
ALPINE
HLJÓMFLUTNINGSTÆKI
ÁSCO
Svívirðileg framkoma hjá LÍÚ
Konráð Alfreðsson, formaður Sjómanna-
félags Eyjafjarðar, segir að nú þegar
sjómannadagurinn nálgast sé sér efst
í huga að sjómenn séu búnir að vera
samningslausir í eitt og hálft ár. „Þetta
er svívirðileg framkoma hjá LÍÚ að hafa
ekki fengist til að ræða kjarasamninga
vegna fyrirhugaðra breytinga á fisk-
veiðikerfinu. Þótt tekjur sjómanna séu
þokkalegar nú um stundir réttlætir ekk-
ert samningsleysi,“ segir Konráð.
Óvissan stingur sér víðar niður. Hin
opinbera rannsókn á Samherja og áhrif
þess máls á sjómenn er afleit bæði fyr-
ir fiskverkafólk í landi og umbjóðend-
ur Konráðs á sjó. Hann segir að skip
Samherja liggi sum hver við bryggju og
sjómenn hafi ekki atvinnu vegna rann-
sóknarinnar sem virðist vanreifuð. Biðin
eftir lyktum málsins hafi áhrif á Dalvík-
inga, Akureyringa og fleiri.
Spáð er blíðskaparveðri á sjómanna-
daginn nk. sunnudag en í huga Konráðs
sem reri áratugum saman er ekki síðra
að sækja sjó í skítabrælu. „Mig langaði
aldrei á sjó nema í vetrarvertíðinni, ég
vildi helst vera í landi á sumrin þegar
veðrið var best. Ég held það sé eitthvað í
fólki sem sækir sjóinn, glíman að takast
á við náttúruöflin og sigra, ögrunin, að
hún gefi þessu öllu gildi. Mér fannst t.d.
alltaf gaman í brælu þótt það væri ekki
alltaf auðvelt.“ a
Það hefur viðrað vel bæði á sjó og landi síðustu daga en formaður Sjóma
nnafélags Eyjafjarðar segir gaman á sjó í öllu veðri. Akureyri vikublað
óskar sjómönnum um land allt til hamingju með sjómannadaginn nk. sunn
udag. Völundur
Þett
r b a
kl sískt þegar
á v fengja
t úverðugleika
blaðamann
og fjöl iðla