Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2012, Síða 4
Verða að tala pólsku
n „Misskilningur,“ segir starfsmannastjóri
V
ið erum ekki á móti Íslending-
um en það er auðvitað heppi-
legt að starfsmennirnir geti
talað almennilega saman,
segir Sjöfn Guðmundsdóttir, starfs-
mannastjóri fyrirtækisins Borg-
arplasts hf., um auglýsingu sem birt-
ist á vefsíðu Vinnumálastofnunar á
dögunum þar sem fyrirtækið aug-
lýsti eftir starfsmönnum. Þar kem-
ur fram að menntunar- og hæfn-
iskröfur séu eftirfarandi: „Engar
kröfur eru gerðar um menntun, en
lögð er áhersla á stundvísi og snyrti-
mennsku. Viðkomandi þarf að vera
pólskumælandi og búa í Mosfells-
bæ.“
Sjöfn segir að Íslendingar hafi al-
mennt sýnt störfum sem þessum lít-
inn áhuga, en um er að ræða verk-
smiðjustarf. Því sé Borgarplast með
marga útlendinga í vinnu – aðallega
Pólverja.
„Þetta er samt bara einhver
misskilningur. Ég skal breyta aug-
lýsingunni ef þú vilt,“ segir Sjöfn að-
spurð um tungumálakunnáttukröfur
í auglýsingunni.
Samkvæmt tölum frá Vinnumála-
stofnun eru 10.887 manns atvinnu-
lausir á landinu öllu, þar af 9.080 ís-
lenskir ríkisborgarar. 273 þeirra búa
í Mosfellsbæ.
„Mér finnst þetta mjög skrítið,“
segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
aðspurður um málið. Hann kveðst
aldrei hafa heyrt annað eins.
4 Fréttir 11. júní 2012 Mánudagur
R
annsóknarfyrirtækið Kroll
dró upp afar dökka mynd
af íslenska fjárfestinum
Björgólfi Thor Björgólfssyni
í skýrslu sem unnin var fyr-
ir bandaríska lyfjafyrirtækið Barr árið
2006. Skýrslan var unnin fyrir Barr
vegna áhuga Björgólfs Thors og Acta-
vis á að kaupa króatíska lyfjafyrirtæk-
ið Pliva. Barr hafði einnig hug á því
að kaupa Pliva og var skýrslan notuð
gegn Björgólfi Thor í kapphlaupinu
um fyrirtækið í Króatíu. Upplýsingum
úr skýrslunni var meðal annars lekið
í fjölmiðla þar í landi. Svo fór á end-
anum að Björgólfur Thor varð und-
ir í kapphlaupinu um Pliva í október
2006 þegar Barr keypti fyrirtækið.
Í skýrslunni er fjallað um við-
skiptasögu Björgólfs Thors og stikl-
að á stóru í ævi hans. Sagt er frá Haf-
skipsmálinu og þeim áhrifum sem
rannsóknin á föður hans í því hafði
á Björgólf Thor, uppgangi Björgólfs
Thors í Rússlandi, sölunni á Bravo-
verksmiðjunni í Rússlandi, kaupun-
um á Landsbankanum og ævintýra-
legum ferli hans í viðskiptalífi Evrópu
eftir Rússlandsdvölina. Kastljósið
fjallaði um skýrsluna í fyrra, aðallega
um það sem þar kemur fram um við-
skipti Björgólfs Thors í Rússlandi. Það
sem vekur einna mesta athygli í skýr-
slunni er þó ekki umfjöllunin um við-
skipti Björgólfs Thors heldur myndin
sem dregin er upp af persónu hans.
Sagður hafa látið dólgslega
Í skýrslunni kemur meðal annars
fram að einn nánasti aðstoðarmað-
ur Björgólfs Thors á árunum fyrir
hrun hafi verið Grikki að nafni Con-
stantine Gonticas sem heimildar-
menn Kroll gáfu sína hæstu einkunn.
Gonticas vann að sölunni á Bravo-
verksmiðjunni í Rússlandi árið 2002
þegar hann var starfsmaður banda-
ríska fjárfestingarbankans Merrill
Lynch í Evrópu og fór síðar yfir til
fjárfestingarfélags Björgólfs Thors,
Novator. „Orðspor hans [Gonticas,
innskot blaðamanns] í fjármálaheim-
inum er afbragðsgott,“ er með-
al annars haft eftir ónafngreindum
heimildarmanni rannsóknarfyrirtæk-
isins.
Þá er haft eftir heimildarmanni í
skýrslunni að hann skilji ekki af hverju
Gonticas vinni með Björgólfi Thor.
„Thor er ríkur strákur sem á alla pen-
ingana ... Constantine er heilinn á bak
við fyrirtækið og vinnur alla vinnuna
... hann beygir sig í duftið fyrir Thor ...
hann ætti ekki að vera með þessum
mönnum, þetta er mjög skrítið. Hvað
í andskotanum er hann að gera með
þessum manni?“ er haft eftir heim-
ildarmanni um samband Gonticas og
Björgólfs Thors.
Í skýrslunni er Björgólfur meðal
annars sagður hafa greitt dyraverði
á næturklúbbi í Suður-Evrópu nokk-
ur þúsund evrur til að komast inn á
klúbbinn ásamt vinum sínum. Þegar
Björgólfur Thor þurfti að bíða eftir því
í nokkrar mínútur að komast inn á
staðinn er hann sagður hafa „…orðið
brjálaður … þessi maður heldur að
hann geti keypt allt.“
Hegðun Björgólfs sögð „ógeð-
felld“
Í skýrslu Kroll segir enn frekar að
einstaklingar sem fóru út á lífið með
Björgólfi og Gonticas hafi staldr-
að stutt við þar sem hegðun Björg-
ólfs Thors hafi ekki verið ásættanleg.
„Aðrir einstaklingar sem við rædd-
um við sögðu að þeir hefðu þurft að
„fara snemma heim“ þegar þeir fóru
út með Gonticas þegar Björgólfur var
viðstaddur vegna þess að þeim þótti
framkoma hans „svo viðbjóðsleg“.“
Ekki er útskýrt nákvæmlega við hvað
er átt með þessum orðum en skilja
má þau sem svo að íslenski fjárfestir-
inn hafi þótt skemmtanaglaður mjög
og „slegið um sig með peningum sín-
um“, eins og segir í skýrslunni.
Þá segir í skýrslunni að hugsan-
legt sé að Björgólfur hafi tileinkað sér
slíkan lífsstíl í Sankti Pétursborg þar
sem hann er einnig sagður hafa ver-
ið skemmtanaglaður og hrifinn af
glaumi næturklúbba. Myndin sem
dregin er upp af persónu Björgólfs
Thors í rannsóknarskýrslu Kroll er því
ekki mjög falleg.
Ragnhildur Sverrisdóttir, talskona
Björgólfs, segir skýrsluna unna að
beiðni Barr Pharmaceuticals þegar
fyrirtækið barðist við Actavis um lyf-
jafyrirtækið Pliva. „Liðu í þeirri bar-
áttu Barr var samantekt á orðrómi og
dylgjum, sem sett var fram á skýrslu-
formi.“
„Heldur að Hann
geti keypt allt“
n Slæmri hegðun Björgólfs Thors Björgólfssonar lýst í leyniskýrslu Kroll
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Sagður glaumgosi Rannsóknarfyrirtækið Kroll dró upp dökka mynd af persónu Björgólfs Thors í skýrslu um hann árið 2006. Íslenski
fjárfestirinn var sagður glaumgosi sem teldi allt vera falt. MYND SIGTRYGGUR ARI
Fundaði
með Google
Fulltrúar frá Google áttu fund
með Ólafi Ragnari Grímssyni,
forseta Íslands, á Bessastöð-
um á föstudag. Á fundinum var
rætt hvernig Íslendingar beita
upplýsingatækni til að tryggja
ábyrga og sjálfbæra nýtingu sjáv-
arauðlinda og til að hafa eftirlit
með veiðum. Þetta kemur fram á
vef forsetaembættisins.
Þar kemur einnig fram að
sendinefnd Google hafi átt í við-
ræðum við fyrirtæki á sviði upp-
lýsingatækni og í sjávarútvegi,
Siglingamálastofnun, Hafrann-
sóknastofnun, Vaktstöð siglinga
og fleiri í heimsókn sinni hingað
til lands. „Þegar ég hitti fulltrúa
Google á heimsþingi um höfin
sem The Economist skipulagði
í ársbyrjun bauð ég þeim að
koma til Íslands. Nú er verið að
leggja grunninn að spennandi
samstarfi,“ segir Ólafur Ragnar
einnig um heimsóknin Google á
Facebook-síðu sinni.
Ölvuð kona
féll í sjóinn
Hjón á fimmtugsaldri komust
í hann krappan í veiðiferð í
Keflavíkurhöfn á laugardag. Kon-
an kastaði út en festi spúninn í
þara á bryggjunni. Þegar hún hall-
aði sér fram af bryggjunni til að
kíkja vildi svo óheppilega til að
hún datt í sjóinn.
Maður konunnar og sonur
náðu að toga konuna upp úr kafi
og héldu henni við bryggjuna þar
til hjálp barst. Konan var nokkuð
ölvuð þegar atvikið átti sér stað.
RÚV greindi frá. Að sögn lög-
reglunnar á Suðurnesjum varð
konunni ekki meint af volkinu en
hún var flutt á sjúkrahús til að-
hlynningar enda orðið kalt eftir
veruna í sjónum.
Margir án vinnu Á tímum mikils atvinnuleysis kemur pólskukunnátta að góðum notum.