Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2012, Side 25
Seedorf minnti á eftir þann leik
að Persie hefði heldur ekki staðið
sig sem skyldi með hollenska lands-
liðinu á Heimsmeistaramótinu í
Suður-Afríku 2010 og veltir fyrir sér
hvað valdi því að einn allra skæðasti
framherji heims finni ekki fjölina
sína í landsleikjum. Telur Seedorf
ekki ólíklegt að of mikil pressa sé
á Persie. Hann sé einfaldlega ekki
sami leikmaður með Hollandi og
með Arsenal.
Ráða enskir við Frakka?
Í dag, mánudag, fara fram síðustu
leikirnir í fyrstu umferð riðlakeppn-
innar á EM. Þá mætast annars vegar
England og Frakkland og hins vegar
Úkraína og Svíþjóð í D-riðli.
Engu þessara landsliða er spáð
sérstöku gengi á Evrópumótinu en
þó eru þeir til sem standa fast á því
að Englendingar geti komið á óvart
einmitt vegna þess að almennt sé bú-
ist við litlu. Franska liðið hefur ekki
verið ýkja sannfærandi að undan-
förnu og bæði landslið þurfa sannar-
lega á góðri byrjun að halda í keppn-
inni.
Svíar eru taldir töluvert sterkari en
Úkraína sem er nokkuð óskrifað blað
í keppninni. n
Sport 25Mánudagur 11. júní 2012
Dómaraskandall í boxinu?
n Sjö ára sigurganga Pacquiaos á enda
Þ
að er ekki venjan að áhorfend-
ur í hnefaleikahöllinni í MGM
Grand hótelinu púi að lokn-
um skæðum bardaga tveggja
fyrsta flokks hnefaleikara. Það gerð-
ist þó aðfaranótt sunnudags þegar
dómarar dæmdu Timothy Bradley
sigurinn gegn Manny Pacquiao þvert
á það sem við var búist.
Fréttaskýrendur klóruðu sér í
hausnum yfir niðurstöðu dómar-
anna enda augljóst flestum er með
fylgdust að Pacquiao, sem hef-
ur ekki tapað bardaga í sjö ár, var
mun öflugri í hringnum en keppi-
nauturinn.
Meira að segja umboðsmaður
beggja hnefaleikara gekk svo langt að
segja að niðurstaða dómaranna væri
án efa lægsti punkturinn á sínum
ferli sem umboðsmaður í faginu. „Ég
hef aldrei skammast mín eins mikið
fyrir hönd hnefaleika og nú.“
Pacquiao, sem er frá Filippseyj-
um, tók tapinu með jafnaðargeði en
ferill hans í hnefaleikum er með ólík-
indum góður. Hefur hann sigrað 54
sinnum og þar af 38 sinnum með rot-
höggi í keppni og tapið um helgina er
aðeins hans annað á ferlinum. Hefur
Pacquiao unnið átta titla í átta mis-
munandi þyngdarflokkum í grein-
inni en fyrsta og síðasta tap hans fyrir
keppnina um helgina varð árið 2005
gegn Erik Morales.
albert@dv.is
Úrslit
EM í knattspyrnu
Riðill A
Pólland – Grikkland 1-1
1-0 Lewandowski (17.) 1-1 Salpingidis (51.)
Rússland – Tékkland 4-1
1-0 Dzagoev (15.), 2-0 Shirokov (24.), 2-1 Pilar (52.),
3-1 Dzagoev (79.), 4-1 Pavlychenko (82.)
Staðan L U J T Skor Stig
1. Rússland 1 1 0 0 4:1 3
2. Grikkland 1 0 1 0 1:1 1
3. Pólland 1 0 1 0 1:1 1
4. Tékkland 1 0 0 1 1:4 0
Riðill B
Holland – Danmörk 0-1
0-1 Krohn-Dehli (24.)
Þýskaland – Portúgal 1-0
1-0 Gomez (72.)
Staðan L U J T Skor Stig
1. Danmörk 1 1 0 0 1:0 3
2. Þýskaland 1 1 0 0 1:0 3
3. Holland 1 0 0 1 0:1 0
4. Portúgal 1 0 0 1 0:1 0
Riðill C
Spánn – Ítalía 1-1
0-1 Di Natale (60.), 1-1 Fabregas (64.)
Írland – Króatía 1-3
0-1 Mandzukic (3.), 1-1 St. Ledger (19.), 1-2 Jelavic
(43.), 1-3 Mandžukic (48.)
Staðan L U J T Skor Stig
1. Króatía 1 1 0 0 3:1 3
2. Spánn 1 0 1 0 1:1 1
3. Ítalía 1 0 1 0 1:1 1
4. Írland 1 0 0 0 1:3 0
Barði frá sér Hér sést
Pacquiao ná inn höggi á Bradley
í bardaganum um helgina.
Mynd ReUTeRS
Tími Lees
Westwood
kominn?
Hann hefur tekið þátt í 57 stór-
mótum í golfi án þess að hampa
einum einasta titli hingað til.
Það er of langur tími að mati Lee
Westwood sem virðist fyrirmun-
að að sigra á einhverju af þeim
fjórum mótum sem teljast til stór-
móta í golfinu. En kannski er tím-
inn núna því fram undan er Opna
bandaríska mótið og Westwood
vann Nordea mótið í Svíþjóð um
helgina. Hvort það gefur hon-
um nægilegan byr til að komast í
fremstu röð um næstu helgi kem-
ur í ljós.
Verða að nýta
Ronaldo betur
Luis Figo, skærasta stjarna portú-
galska landsliðsins til margra
ára, segir liðsfélaga Cristiano
Ronaldo ekki leggja nógu mikla
áherslu á að koma boltanum
til hans hvenær sem færi gefist.
Ronaldo sé að hans mati sá eini í
liðinu sem geti á augnabliki skap-
að færi og skorað og ekki veiti af
eigi Portúgal að sigra Holland og
Danmörk í síðari tveimur leikjum
liðsins í sínum riðli.
EM VEislan Er hafin
Fór illa að ráði
sínu Robin van
Persie var klaufi í
fyrsta leik Hol-
lendinga á EM 2012.
Markahrókur Mario
Gomez skoraði fyrir
Þjóðverja. Margir spá
honum markakóngstitl-
inum á mótinu.