Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2012, Síða 26
26 Fólk 11. júní 2012 Mánudagur
Notar húmor í dansinum
n Berglind stendur fyrir vefsíðunni The Berglind festival
É
g held að málið sé að
fólk tengi sig við margt af
þessu og þess vegna finn-
ist því þetta fyndið. Það
finnst öllum gaman að því sem
það getur tengt sig við. Svo eru
gif-myndir bara svo fyndn-
ar, segir Berglind Pétursdóttir
sem stendur fyrir vefnum The
Berglind festival. Vefurinn er
gerður að erlendri fyrirmynd
en þar setur hún inn litlar
hreyfimyndir og skrifar við þær
stuttan skemmtilegan texta.
„Ég var mikið að skoða síðuna
gulirmidarurgledibankanum.
tumblr.com. Ég fór svo bara að
herma eftir. Þetta byrjaði allt
með þeim,“ segir Berglind sem
er hæstánægð með aðsókn-
ina að vefnum. „Ég hef ver-
ið með þetta í tæpan mánuð
eða síðan í maí. Aðsóknin fór
strax vel af stað og núna er ég
komin með 20 þúsund manns
sem kíkja þarna inn á hverj-
um degi. Ég held bara að það
séu flestir ánægðir með þetta
nema kannski einn og einn
sem finnst eitthvað pirrandi
að maður sé að apa svona eft-
ir öðrum. En er það ekki alltaf
þannig? Ég er bara að þessu til
að gleðja aðra.“
Berglind starfar sem sjálf-
stætt starfandi dansari og hef-
ur engan áhuga á að færa sig
í uppistandið. „Ég hef bara
gaman af húmor og á barn
með uppistandara. Það hjálp-
ar kannski til,“ segir hún hlæj-
andi en barnsfaðir hennar er
enginn annar en rapparinn
og uppistandarinn Dóri DNA
úr grínhópnum Mið-Íslandi.
„Ég tek dansinn mjög alvar-
lega. Er með dansflokka sem
heita Litlar nettar og Hnoð auk
þess sem ég er í stjórn Reykja-
vík Dansfestival. Auðvitað er
hægt að nota húmor í dansi
en það er mjög vandmeðfarið.
En maður reynir samt alltaf að
hafa þetta ekki of leiðinlegt.“
Aðspurð segist hún ekki
halda upp á neinn sérstak-
an grínista eða uppistandara.
„Mér finnst vinir mínir bara
fyndnastir. Þeir eru bestir. Og
gulir miðar.“
Upplifir æsku-
drauminn
Það má heldur betur segja
að æskudraumur Hauks
Harðarsonar, íþróttafrétta-
manns á RÚV, hafi ræst hvað
atvinnu varðar. Hann greindi
frá því á Facebook-síðu sinni
á fimmtudag að þegar hann
var unglingur hefði hann
ávallt valið sér sumarstörf
sem hentuðu vel með stór-
mótum í knattspyrnu. „Man
þegar ég var yngri og valdi
sumarstörf eftir því hvernig
það hentaði að horfa á stór-
mótið sem var yfir sumarið
með. Þeirri leit er nú lokið,“
skrifaði Haukur á síðuna.
Hann getur því unað sér því
vel næstu vikurnar yfir EM
í knattspyrnu og fær sem
fréttamaður greitt fyrir að
horfa á leikina.
S
ólveig Káradóttir, fyrir-
sæta og sálfræðing-
ur, og Dhani Harri son
gengu í það heilaga
um síðustu helgi. Á
meðal gesta í brúðkaupinu
voru stórstjörnur eins og Tom
Hanks, Eric Clapton og Paul
McCartney en Dhani er sonur
Bítilsins sáluga George Harri-
son.
Þó nokkrir Íslendingar voru
viðstaddir brúðkaupið. Má þar
nefna Kára Stefánsson, föður
brúðarinnar og forstjóra Ís-
lenskrar erfðagreiningar, Þór-
unni Antoníu Magnúsdóttur
og kærasta hennar Ágúst Bent
Sigbertsson, rappara og leik-
stjóra. Auk Ylfu Geirsdóttur
vöruhönnuðar en hún var
ásamt Þórunni brúðarmær.
Þórunn Antonía var þess
heiðurs aðnjótandi að fá að
syngja fyrir brúðhjónin og
brúðkaupsgestina en það er
ekki á hverjum degi sem ís-
lensk söngkona syngur fyr-
ir slíkar stórstjörnur. Þór-
unn er góðvinur
brúðhjónanna en
hún hefur með-
al annars sung-
ið bakraddir í
hljómsveit Dhan-
is, Thenewno2.
Þórunn hef-
ur verið að gera
það gott hér
heima undan-
farið í þáttunum
Steindinn okkar
og Týnda kyn-
slóðin auk þess
sem lög eins og
Too Late For
Love hafa notið
mikilla vinsælda. Yfir 100.000
manns hafa horft á mynd-
bandið við lagið á YouTube en
hún var einnig valin söngkona
ársins á Hlustendaverðlaun-
um FM 957 fyrir skemmstu.
Hún gat ekki verið viðstödd
hátíðina þar sem hún var
einmitt stödd í umræddu
brúðkaupi.
Leynd yfir brúðkaupinu
Mikil leynd ríkti yfir brúðkaup-
inu sem fór fram í London en
athygli vekur að ekkert hefur
verið fjallað um það í bresku
pressunni. Þykir það undr-
um sæta þar sem breska slúð-
urpressan er ein sú aðgangs-
harðasta í heiminum og vegna
þess að sonur eins Bítlanna,
sem eru í guðatölu í Bretlandi
líkt og víðar, var að gifta sig.
Brúðurin var samkvæmt
heimildum DV einkar glæsi-
leg en það var hönnuðurinn
heimsfrægi Stella McCartney
sem hannaði brúðarkjólinn.
Hún var einnig viðstödd
athöfnina en hún er dóttir
Pauls McCartney. Stella hefur
hannað föt á ótal stórstjörnur
og má sem dæmi nefna að hún
hannaði brúðarkjól Madonnu
þegar hún giftist Guy Richie.
asgeir@dv.is
n Sólveig Káradóttir og Dhani Harrison giftu sig n Þórunn Antonía söng
Stjörnum prýtt
Bítlabrúðkaup
Dhani og Sólveig Giftu
sig um þarsíðustu helgi.
Þórunn Antonía Söng
fyrir brúðhjónin og gesti.
McCartney, Clapton og Hanks Voru meðal gesta í brúðkaupinu.
Hildur á
Springsteen
Femínistinn og nýstirnið
Hildur Lilliendahl Vigg-
ósdóttir skellti sér á tón-
leika með bandaríska tón-
listarmanninum Bruce
Springsteen þegar hún
var stödd í Mílanó á Ítal-
íu á dögunum. Samkvæmt
fésbókarsíðu Hildar voru
tónleikarnir góðir og ekki
skemmdi fyrir að „Boss-
inn“ byrjaði tónleikana,
sem haldnir vour á San
Siro-leikvanginum, 20 mín-
útum fyrir auglýstan tíma
auk þess sem Springsteen
spilaði mun lengur en bú-
ist var við af stórstjörn-
unni. Bruce Springsteen
er einmitt stærsta nafnið á
Hróarskelduhátíðinni sem
fram fer eftir nokkrar vikur.
Fagnar 1 árs
ríkisborgararétti
Jussanam Da Silva stóð í
ströngu fyrir rúmlega ári. Þá
var henni og dóttur hennar
vísað úr landi í kjölfar skiln-
aðar. Jussanam og dóttir
hennar höfðu aðlagast lífinu
á Íslandi vel. Jussanam vann
á frístundaheimili og söng í
frístundum og dóttir henn-
ar var í hjúkrunarnámi. Hún
sóttist stíft eftir því að fá að
dvelja áfram hér á landi og
eftir harða baráttu var henni
fenginn ríkisborgararéttur
vegna þess hve menningarlíf-
ið nýtur góðs af veru hennar
hér. Jussanam heldur tón-
leika í Gamla bíói þann 18.
júní til að fagna eins árs af-
mæli ríkisborgararéttarins og
til að kynna ný lög.
Húmoristi Berglind segist ekki hafa neinn áhuga á uppistandi. Hún segist
hins vegar eiga barn með uppistandara sem útskýri kannski húmor hennar.