Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Blaðsíða 2
Úr ráðuneyti í fiskverkun É g var að bíða eftir strætó í Kaup- mannahöfn þegar einhver ís- lenskur maður gaf sig á tal við mig. Fyrst var ég ekkert spennt en hann var svo ágengur,“ seg- ir hin 45 ára Olivia Martinez, frá Suður-Ameríkuríkinu Ekvador, um aðdragandann að því að hún ákvað að flytjast til Íslands. Óhætt er að segja að saga Oliviu sé um margt sér- stök en hún var um tíma í góðu starfi í menntamálaráðuneytinu í Ekvador. Nokkrum árum síðar var hún hins vegar komin í fiskvinnslu Íslandi. Gekk menntaveginn Olivia fæddist í smábænum San Lor- enzo í Ekvador árið 1966. Faðir henn- ar var sjómaður en móðir hennar heimavinnandi húsmóðir. „Við áttum ekki mikið en foreldrar mínir voru baráttufólk. Faðir minn byggði húsið okkar með berum höndum – einn.“ Olivia fluttist síðar til borgarinnar Guayaquil til að ganga menntaveg- inn, tók stúdentspróf og nam síð- ar heimspeki. Þegar Olivia var langt kominn með heimspekinámið fæddi hún stúlkubarn og ákvað að hætta í námi og fara á vinnumarkaðinn. Hún hóf störf við leikskóla í borginni en fékk síðar starf sem kennari í grunnskóla. Þar vakti hún fljótlega athygli fyrir miklar gáfur og afbragðskennsluhæfileika. Ekki leið á löngu þangað til menntamálaráðu- neytið falaðist eftir kröftum hennar. „Þar fékk ég stóra skrifstofu fyrir mig sjálfa. Skólakerfið í Ekvador er tví- skipt; annars vegar höfum við einka- rekna skóla og hins vegar opinbera. Ég sá um að veita nýjum einkaskól- um rekstrarleyfi og tók ákvarðanir í málum kennara sem báðu um stöðu- hækkun í opinbera skólakerfinu.“ Evrópa heillar Hún hafði unnið í ráðuneytinu í fimm ár, eignast fjögur börn og sagt skilið við barnsföður sinn, þegar hún ákvað árið 2000 að taka þriggja mánaða launað leyfi frá ráðuneytinu. Evrópa heillaði og Olivia keypti sér flug- miða til Belgíu til að njóta lífsins. Frá Belgíu flaug hún svo til Danmerkur. Á strætóstoppistöð í Kaupmanna- höfn hitti hún íslenskan mann sem átti eftir að breyta lífi hennar að ei- lífu. Hann gaf sig á tal við hana og segir hún að hann hafi verið nokkuð ágengur en hún ákveðið að halda spjallinu áfram. „Ég endaði með því að tala heillengi við hann. Við urðum svo vinir.“ Vinskapur þeirra breyttist fljót- lega í rómantískt ástarsamband og maðurinn flutti með Oliviu til Ekvador. Þar dvöldu þau saman í eitt ár og giftu sig síðan. „Ísland tog- aði samt alltaf í hann. Þar var hann með rekstur og þar vildi hann vera. Ég hafði farið með honum þang- að einu sinni og var heilluð af landinu.“ Olivia ákvað að selja allt sitt hafurtask og flytja með honum til Íslands. „Ég ákvað að kýla bara á það. Hann átti stórt fyrirtæki á Ísa- firði og var vel stæður. Hann sagði að ég þyrfti aldrei að vinna aftur.“ Þau tóku börnin hennar fjögur með sér og settust að á Ísafirði. Atvinnulaus með fjögur börn Eins og dæmin hafa sannað endast ekki öll ástarsambönd að eilífu og sú varð raunin hjá Oliviu. Hún og sam- býlismaður hennar slitu samvistir og í kjölfarið missti hún vinnuna hjá ræstingarfyrirtæki sem eiginmaður hennar hafði útvegað henni. Árið 2006, þegar hér var komið sögu var Olivia, þessi fyrrverandi ráðuneytis- starfsmaður í Ekvador, stödd í smá- bæ á Íslandi með fjögur börn og án atvinnu. Hún kunni enga íslensku og einungis örlitla ensku. Á endanum fékk hún vinnu hjá fiskvinnslunni á Ísafirði. „Það var ólíkt öllu því sem ég hef áður starfað við. Ég leigði mér svo íbúð á Ísafirði þar sem ég og börnin gátum verið.“ Olivia segist hafa hugsað um að flytja aftur til Ekvador. „En ég var búin að selja allar eigur mínar. Ég seldi húsið – allt sem ég átti. Síðan er ástandið slæmt í Ekvador, það er meira en að segja það að finna sér starf.“ Sátt við lífið Olivia flutti síðan til Akureyrar og fór að vinna í pósthúsinu þar og fékk loks flutning til Reykjavíkur árið 2011. „Ég gat ekki búið í svona litlum bæjum ein. Ég er vön svo miklu fleira fólki, svo miklu meira lífi.“ Í dag vinnur Olivia sem bréfberi í póst- dreifingarstöðinni í Hafnarfirði. Hún finnur styrk í trúnni á guð og börnin hennar hafa aðlagast Íslandi vel. „Í dag líður mér vel á Íslandi en hver veit. Kannski að ég fari einn daginn aftur til heimalands míns,“ segir Oli- via, fyrrverandi ráðuneytisstarfs- maður í Ekvador. n Olivia Martinez sagði skilið við gott starf í Ekvador og flutti til Íslands Mögnuð saga Olivia kveðst kunna vel við sig á Íslandi. Hún starfaði áður í menntamálaráðuneytinu í Ekvador en er nú bréfberi í Hafnarfirði. 2 Fréttir 6.–8. júlí 2012 Helgarblað Flótti Tom Cruise 3 Erlendir blaðamenn og ljós-myndarar veittu Tom Cruise eftirför á bílum á laugardag þegar ekið var með hann um borgina. Líf- verðir og ökumenn Cruise beittu ýmsum klækja- brögðum til að reyna að losna við pressuna. Mikil eftirspurn er eftir myndum af leik- aranum, sérstak- lega eftir að eigin- kona hans, Katie Holmes, sótti um skilnað fyrir bandarískum dómstól- um í síðustu viku. Í DV á miðviku- dag var meðal annars sagt frá því hvernig lífvörðum Tom Cruise tókst að snúa á blaðaljósmyndara sem eltu Hollywood-stjörnuna á rönd- um. Kærður fyrir njósnir 2 DV greindi frá því á miðvikudag að lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu hefði borist kæra og beiðni um opinbera rann- sókn vegna meintra brota Pálma Har- aldssonar, Iceland Express ehf., Björns Vilbergs Jónsson- ar og annarra ótil- greindra starfsmanna Iceland Express ehf. gegn WOW air. Kær- an varðar meintar njósnir Pálma og Iceland Express um rekstur WOW air. Skarphéðinn B. Steinarsson, forstjóri Iceland Express, sagði að kæran kæmi sér á óvart en neitaði þó ekki að fyr- irtækið hefði fylgst með tetra-rásinni sem málið snýst um. Ólafur Ragnar forseti 1 Ólafur Ragnar var endurkjör-inn forseti Íslands um liðna helgi. Í DV á mánudag var farið yfir það sem klikkaði hjá Þóru Arnórsdóttur frambjóðanda. Þóra hafði lengi vel forskot í skoð- anakönnunum en fylgi hennar í þeim minnkaði þegar líða tók að kosningum. „Hún er þekkt sjónvarpskona en hafði aldrei tjáð sig um önnur mál. Maður fékk það stundum á tilfinninguna að það væri erfitt fyrir hana að tjá sig nema að hafa skrifað það fyrir- fram,“ sagði Jón Hákon Magnússon almannatengill um baráttu Þóru. Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni Baldur Eiríksson blaðamaður skrifar baldure@dv.is Kíktu á heimasíðu okkar og skoðaðu matseðilinn ! Einn vinsælasti Kebab staðurinn á höfuðborgarsvæðinu! www.alamir.is Hamraborg 14 a 200 Kópavogi Sími 5554885 Virkir dagar:11–21 Helgar:13–21 „Ég var búin að selja allar eigur mínar. Ég seldi húsið – allt sem ég átti Ofsaakstur bifhjóla- manns Karlmaður um þrítugt var tekinn fyrir ofsaakstur á Miklubraut í Reykjavík á fimmta tímanum síð- degis á miðvikudag. Sá ók bif- hjóli á 191 kílómetra hraða austur Miklubraut, á milli Kringlumýrar- brautar og Háaleitisbrautar, en þarna er 60 km hámarkshraði. Maðurinn, sem hefur alloft áður gerst sekur um umferðarlagabrot samkvæmt tilkynningu frá lög- reglu, var sviptur ökuréttindum á staðnum. Samkvæmt sektarreikni sem aðgengilegur er á vef Umferð- arstofu gæti ökumaðurinn átt yfir höfði sér ákæru og dóm. Góðborgarar skiluðu veskinu Starfsmenn með hóp leikskóla- barna fundu veski á bak við Kópa- vogsskóla á fimmtudag. Starfs- mennirnir gerðu það eina rétta í stöðunni og komu veskinu til lögreglunnar. Lögreglan hafði svo upp á eiganda veskisins og kom því í hans hendur. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að viðkom- andi hafi verið mjög ánægður með að endurheimta veskið sitt. Þá fékk lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu tilkynningu um að ungir piltar væru að strengja eitt- hvað yfir akbrautina í Grundar- gerði og hefta umferð. Lögreglan fór á vettvang og kom þá í ljós að um einangrunarlímband var að ræða sem hafði verið strengt yfir akbrautina. Voru piltarnir farnir af vettvangi en lögreglan fjarlægði límbandið. Að sögn lögreglu getur svona háttsemi verið varasöm og hættuleg fyrir vegfarendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.