Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Blaðsíða 12
12 Fréttir 6.–8. júlí 2012 Helgarblað G uðbjartur Hannesson vel- ferðarráðherra lýsti því ný- lega yfir að æskilegt væri að birta félagsvísa reglulega, ekki síður en hagvísa. Þess- um hugmyndum framfylgir Vel- ferðarvaktin sem stofnuð var að frumkvæði stjórnvalda árið 2009. Stefna ríkisstjórnarinnar í þessum málum er í takt við þá þróun sem á sér stað í Evrópu og Bandaríkjunum um þessar mundir. Unnið er að ná- kvæmari og víðtækari mælistikum á lífsgæði en hagfræðin býður upp á og þessi vinna hefur skilað talsverðum árangri. Misvísandi mælikvarði Eftir seinni heimsstyrjöldina hefur fyrst og fremst verið litið til hagvaxtar, það er aukningar vergrar landsfram- leiðslu, þegar fjallað er um velgengni þjóða. Þó er ljóst að frumkvöðlar hagvaxtarmælinga væntu þess ekki að aðferðafræði þeirra yrði gerð að almennri reglu við mælingu lífskjara. Einn þeirra, nóbelsverðlaunahafinn Simon Kuznets, varaði beinlínis við því í áliti sem hann veitti Banda- ríkjaþingi árið 1934: „Velgengni þjóð- ar verður seint mæld á grundvelli þjóðartekna. Þegar stefnt er að aukn- um vexti verður að tiltaka hvað býr að baki vextinum og hver tilgang- ur hans er.“ Mengun, skógareyðing og vopnaframleiðsla eru dæmi um fyrirbæri sem auka hagvöxt en ekki endilega lífskjör. Framfarastuðull tekinn í notkun Í þingsályktun um eflingu græna hagkerfisins sem samþykkt var á Al- þingi þann 20. mars síðastliðinn er ákvæði um að samhliða hagvaxtar- mælingum skuli Hagstofa Íslands reikna og birta svokallaðan fram- farastuðul Íslands. Stuðlinum, sem á ensku kallast „the genuine progress indicator“, er ætlað að mæla í hversu miklum mæli hagvöxtur skilar sér í bættum lífskjörum. Þá eru tekn- ir til greina þættir eins og misskipt- ing tekna, atvinnustig, umhverfis- spjöll, lýðheilsa, menntunarstig og glæpatíðni. Kostnaðurinn af þessum neikvæðu áhrifum er þá dreginn frá vergri landsframleiðslu. Jafnframt er tekinn með í reikninginn sá tími sem varið er til vinnu og frístunda og það hvort hagvöxtur er sjálfbær eða byggist einungis á skuldsetn- ingu. David Cameron, forsætisráð- herra Bretlands, og Nicolas Sarkozy, fyrrverandi forseti Frakklands, hafa báðir farið lofsamlegum orðum um framfarastuðullinn og hefur hann verið tekinn í notkun víða á Vestur- löndum. Dæmi um fleiri mælikvarða eru vísitalan um þróun lífskjara (Human Development Index) og hin svokall- aða Better Life-vísitala sem OECD- ríkin tóku í notkun í fyrra. Þar eru mælingar á lífsánægju fólks teknar með í reikninginn. Stuðlarnir eru um margt líkir og eiga ýmislegt sameig- inlegt með framfarastuðlinum. Vísi- talan um þróun lífskjara hefur fest nokkuð í sessi og nýtur viðurkenn- ingar Sameinuðu þjóðanna. Gerð- ur er árlegur samanburður ríkja á grundvelli stuðulsins og þar trónir Noregur nú á toppnum. Ísland er í 14. sæti á listanum, Svíþjóð er í 10. sæti en Danmörk í því 16. Unglingar hamingju- samari í kreppunni Nýlega voru birtar niðurstöður um- fangsmikillar rannsóknar á ham- ingju og lífsánægju sem Dóra Guð- rún Guðmundsdóttir sálfræðingur gerði fyrir landlæknisembættið. Þar kemur fram að tekjur skýra minna en 1 prósent af hamingju Íslendinga. Þá hefur lítillega dregið úr hamingju Ís- lendinga eftir efnahagshrunið, og er það rakið til þess að verulega hefur fjölgað í hópi þeirra sem eiga erfitt með að ná endum saman. Þá vek- ur athygli að fleiri unglingar töldu sig hamingjusama árið 2009 en árið 2006. Þetta er talið skýrast af því að unglingarnir eyddu meiri tíma með foreldrum sínum eftir að kreppan skall á. Í skýrslunni kemur fram að 25 prósent þeirra sem hafa meira en milljón í fjölskyldutekjur á mánuði eiga erfitt með að ná endum saman. Ísland er nú í 19. sæti á lista yfir lífshamingju íbúa OECD-ríkjanna. Árið 2006 mældist hins vegar Ísland 4. hamingjusamasta þjóðin á grund- velli hinnar svokölluðu lífsánægju- vísitölu. Þótt rannsóknir OECD þyki nákvæmari má ætla að lífsánægja Ís- lendinga hafi minnkað nokkuð eft- ir efnahagshrunið, og samræmist þessi breyting að nokkru leyti niður- stöðum Dóru Guðrúnar Guðmunds- dóttur. Börnin vöktuð Fyrr á árinu kynnti Velferðarvaktin skýrslu um félagsvísa, en þeir eiga að auðvelda aðgengi stjórnvalda og hagsmunaaðila að upplýsingum sem varpa ljósi á þjóðfélagsástandið. Að sögn Ingibjargar Broddadóttur, starfsmanns Velferðarvaktarinn- ar, fylgist Velferðarvaktin sérstak- lega með velferð barna. Hún segir að gögn vaktarinnar bendi til þess að al- mennt farnist börnum vel þrátt fyrir efnahagshrunið og það virðist betur fylgst með þeim. „Auðvitað þrengdi að fjárhagslega hjá mörgum heimil- um vegna kreppunnar, en svona al- mennt séð virðist það ekki hafa bitn- að á börnunum,“ segir Ingibjörg en bætir við: „Hins vegar höfum við til- finningu fyrir því að þau börn sem áttu erfitt fyrir kreppu, þeim hafi farnast verr í kreppunni. Nú erum við að skoða betur þennan hóp.“ „Hvert ár í ævi barns skiptir svo miklu máli“ Ingibjörg segir að brugðist hafi verið fljótt við þegar kreppan skall á. Jafn- vel strax fyrir jólin 2008 hafi sveitar- félög og ýmsar stofnanir tekið hönd- um saman og myndað samstarf í eins konar velferðarteymum til að vakta bæði börnin og stöðu velferðarmála í samfélaginu. „Hjá okkur sem erum fullorðin tekur kreppan ekki nema brot úr okkar löngu ævi,“ segir Ingi- björg. „En börn eru kannski fimm ára þegar kreppan skellur á og tíu ára þegar kreppunni lýkur. Þetta er helmingurinn af ævi þeirra og hvert ár í ævi barns skiptir svo miklu máli. Þetta eru mótunarárin.“ Ingibjörg bendir á að efnalitlir foreldra hugsi jafnvel um börnin sín og efnameiri foreldrar. Þá séu almennt séð tengsl milli efnahagslegra gæða og ham- ingjunnar sáralítil. Hagvöxtur ágætis þumalputtaregla Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, lektor við hagfræðideild Háskóla Íslands, segir að hagvöxtur sé ágætis þumalputta- regla, sérstaklega hjá vanþróuðum ríkjum. „En eftir því sem ríki þró- ast fara þau að meta æ meir þætti á borð við öryggi og umhverfisvernd,“ segir Tinna. „Ef maður skoðar mynd af framfarastuðlinum og hagvexti hlið við hlið þá eru línurnar ekkert sérlega ólíkar framan af. En því rík- ari sem samfélög verða, því meiri er munurinn,“ segir hún og bætir við: „Þetta byggir auðvitað dálítið á verð- mætamati. Fyrir nokkrum áratugum þegar samfélagið var ekki jafn þróað og nú tók fólk um brjóst sér þegar keyrt var framhjá álveri og fannst at- vinnuuppbyggingin alveg dásam- leg. En það myndum við aldrei gera núna, því við höfum áhyggjur af um- hverfisspjöllum.“ n Hamingjan mæld í tölum „Velgengni þjóðar verður seint metin á grund- velli þjóðartekna. Þegar stefnt er að auknum vexti verður að tiltaka hvað býr að baki vextinum. n Íslendingar taka framfarastuðul og félagsvísa í notkun 14–15 ára Drengir Stúlkur 10 0 20 30 40 50 60 70 % Börn á aldrinum 14–15 ára segjast verja tíma með foreldrum sínum eftir skóla alla virka daga. Ljóst er að börn verja meiri tíma með foreldrum sínum eftir að efnahagskreppan skall á. Það má líklega rekja til þess að atvinnustig hefur lækkað og vinnutími fólks styst talsvert frá hruni. Gögnin eru úr skýrslu Velferðarvaktarinnar um félagsvísa. Verja tíma með foreldrum 20 10 20 06 20 06 20 06 20 10 20 10 Noregur Ástralía Holland Bandaríkin Nýja Sjáland Kanada Írland Liechtenstein Þýskaland Svíðþjóð Sviss Japan Hong Kong Ísland Suður-Kórea 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 Katar Lúxemborg Singapúr Noregur Brúnei Hong Kong Bandaríkin Sam. a. furstad. Sviss Holland Austurríki Kúveit Kanada Svíþjóð Ástralía Írland Ísland 1 2 3 4 5 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 Árið 2011 var Ísland í 14. sæti yfir þau lönd í heiminum þar sem hagvöxtur er mestur. Ísland lendir þó í 16. sæti þegar ríkjunum er raðað eftir vísitölu um þró- un lífskjara. Þótt lífskjör séu talin best í Noregi búa þrjár þjóðir við meiri hagvöxt en Norðmenn miðað við höfðatölu. Hagvöxtur ársins 2011 var 3,1 prósent og hefur hann aukist síðan. Samkvæmt Gylfa Zoëga, prófessor í hagfræði við HÍ, er hagvöxturinn á Íslandi með því besta sem gerist á Vesturlöndum. Sums stað- ar á Norðurlöndunum eru þó lífskjör talin betri, en lífskjör á Íslandi árið 2011 þóttu betri en í Danmörku. Lífskjör og hagvöxtur HeiMild AGs oG ÞróUnAráætlUn sÞ Jóhann Páll Jóhannsson blaðamaður skrifar johannp@dv.is ólík lífskjör Hagvöxtur þykir ekki lengur fullnægjandi mælikvarði á lífsgæði þjóða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.