Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Blaðsíða 36
Hvernig er lífið í Los Angeles?
„Lífið er yndislegt og um leið brjál-
æðislega bilað hark. Engir tveir dagar
eru eins og það gerist alltaf eitthvað
óvænt og spennandi, sama hvað er á
dagskrá hjá okkur.“
Saknið þið Íslands?
Alma og Camilla: „Já, við söknum
fjölskyldunnar alveg hrikalega. Þökk-
um Guði fyrir Skype svo að maður
getur haldið sambandi við fjölskyldu
og vini.“
Klara: „Ég sakna systra minna og
mömmu og pabba alveg skelfilega.
Fjölskyldan og vinir eru það sem ég
sakna við Ísland. Það er líka skrítið
að fylgjast með vinkonum mínum
og vinum eignast börn og gifta sig og
maður þarf að knúsa til hamingju í
gegnum internetið. En þannig er það
náttúrulega bara fyrir alla sem búa
erlendis.“
Steinunn: „Það erfitt að vera í burtu
frá fjölskyldunni en við höfum hver
aðra og það er afskaplega dýrmætt.“
Hvernig búið þið?
„Við búum þrjár saman í eins her-
bergis íbúð á Hollywood Boulevard
og njótum þess í botn. Fólk skilur
ekki hvernig við látum þetta virka,
að búa saman, vinna saman og vera
nánast alltaf saman þess fyrir utan.
Það er bara svo fáránlega skemmti-
legt að vera að upplifa þetta allt
saman að við getum ekki ímyndað
okkur neitt annað.“
Hvað er fram undan?
„Við erum að taka upp meira efni og
stefnum jafnvel á annað „mixtape“
í byrjun hausts. Þess utan erum við
að koma fram og syngja og erum í
viðræðum við plötufyrirtæki um út-
gáfu.“
Komið þið heim í sumar?
„Nei, líklega ekki, það er virkilega
dýrt að ferðast og við viljum einbeita
okkur að vinnunni. Það verður mik-
ið að gera hjá okkur í sumar og við
ætlum að koma heim um jólin í al-
mennilegt jólafrí í staðinn.“
Hvað ætlið þið að gefa þessu langan
tíma?
„Allan þann tíma sem þarf til að allt
gangi upp.“
Trúið þið að þið eigið eftir að slá
virkilega í gegn?
Klara: „Já, við værum ekki að þessu
ef við hefðum ekki trú á því. Við erum
búnar að leggja mikla vinnu og tíma
í þetta verkefni og trúum að það eigi
eftir að skila sér margfalt.“
Sjáið þið oft frægar stjörnur?
Alma: „Já, við sjáum oft þekkt andlit
hér í nágrenninu, í Runyon Canyon,
á skemmtistöðum, veitingastöðum
eða annars staðar. Klara er eiginlega
duglegust að spotta leikara úr alls
konar þáttum og segir okkur svona
laumulega á íslensku í hverju þeir
hafa leikið.“
Klara: „Já, og þegar þetta eru lítið
þekktir leikarar eða söngvarar sem
ég man ekki alveg hvaðan ég þekki
þá eyðileggur það næstum kvöldið
fyrir mér, því ég verð svo æst í að fatta
hver þetta var eða hvað hann heitir
að ég eyði öllu kvöldinu í símanum
að gúgla hver þetta var!“
Hvaða stjörnur eru ykkar fyrirmyndir?
Steinunn: „Við lítum mikið upp til
Lady Gaga og Katy Perry, einfaldlega
því þær hörkuðu og gáfust ekki upp
þó að þeim væri „droppað“ af stórum
plötufyrirtækjum. Þær héldu áfram
þangað til þær náðu þangað sem þær
eru í dag. Annars hlustum við mikið
á R&B og hip-hop svo sem Rihönnu
og Drake. Rihanna er líka með æðis-
legan fatastíl og þorir að fara sínar
eigin leiðir.“
Klara: „Það eru þeir sem gefast ekki
upp sem standa uppréttir á endanum.
Það eru þeir sem eru á toppnum í dag
sem hafa þraukað og verið þolinmóð-
ir. Það verður enginn stjarna eða slær
í gegn á einni nóttu. Ég held að fæst-
ir átti sig á því að fólk er búið að vera
í þessu lengi þegar allt gengur loks-
ins upp. Og við erum, miðað við okkar
uppáhaldsstjörnur, rétt að byrja.“
Hverju hafið þið þurft að fórna fyrir
bransann?
Steinunn „Eiginlega öllu! Við geng-
um í burtu frá samböndum, íbúðum
og bílum, frá ferlinum okkar heima
og erum þúsundir kílómetra frá fjöl-
skyldu og vinum.“
Alma: „Maður leggur mun harðar að
sér þegar maður hefur gengið í burtu
frá svona miklu og í raun verður sig-
urinn bara sætari fyrir vikið.“
Klara: „Við hreinlega tókum
ákvörðun um að við ætluðum að
gera þetta sama hvað! Og við viss-
um að það er ekkert grín að reyna
að láta drauma sína rætast. Það eru
bara örfáir í heiminum sem fá alvöru
tækifæri til þess. Við vitum að þó að
við höfum þurft að fórna ýmsu til að
komast hingað þá sé það og verði á
endanum þess virði. Ég veit að ef við
hefðum ekki ákveðið að gefa þessu
allt sem við eigum gæti ég ekki litið
til baka eftir 20 ár og hugsað „hvað
ef“. Ég myndi alltaf líta til baka með
eftirsjá.“
Eigið þið kærasta?
Steinunn: „Nei, við erum allar á
lausu í fyrsta sinn síðan við byrjuð-
um í Nylon 2004 og við höfum í raun
engan tíma fyrir samband eins og
staðan er í dag.“
Eruð þið eitthvað að „deita“?
Steinunn: „Maður leyfir sér að skoða
aðeins í kringum sig hérna. Allt öðru-
vísi „deit“-menning, hægt að fara út
að borða með einhverjum án þess
að það þýði neitt og maður hittir
viðkomandi aldrei aftur. Samt lang-
skemmtilegast bara að hafa gaman í
góðra vina hópi, maður hefur engan
tíma í eitthvað tilfinningavesen.“
Hvernig strákum hrífist þið af?
Steinunn: „Sjálfsöruggum húmorist-
um sem vita hvað þeir vilja í lífinu og
þora að taka áhættu.“
Klara: „Hæfileikum og sjálfsöryggi!
Það er bara eitthvað svo fáránlega
sexí að vera ógeðslega góður í ein-
hverju sem enginn annar er!“
Alma: „Já, það er engin ein steríó-
týpa sem ég hrífst af. Það er yfirleitt
bara einhver sjarmi, hæfileiki, drif-
kraftur og húmor sem hrífur mig.“
Hvernig strákum hrífist þig ekki af?
Steinunn: „Mönnum sem bera ekki
virðingu fyrir konum!“
Alma: „Það er fátt verra en óöruggir
karlmenn sem reyna að upphefja sig
á kostnað annarra.“
Klara: „Já, það er eiginleg ekkert
verra en tilgerð og taktleysi.“
Hvernig líst ykkur á ameríska stráka?
Steinunn: „Ég er ánægð með am-
erísku herramennina. Þeir eiga það
til að vera svolítið yfirborðskenndir
en það eru nokkrir góðir þarna inni
á milli.“
Á hvaða aldri eru aðdáendur ykkar?
Alma: „Við höfum spilað á nokkr um
af stærstu og vinsælustu skemmti-
stöðunum í Hollywood, eins og Ava-
lon, Supper Club og Colony. Það er
fólk a aldrinum 21–40 ára sem sæk-
ir þessa staði og það er aldurshópur-
inn sem tónlistin okkar er miðuð að
og yngra.“
Tókuð þið meðvitaða ákvörðun um
að gefa saklausu stelpurnar upp á
bátinn og auka á kynþokkann?
Steinunn: „Þetta hefur allt ver-
ið mjög eðlileg þróun frá því að við
byrjuðum í Nylon 2004 og þangað til
í dag. Við fórum frá því að vera ungar
stelpur í að verða þroskaðar konur og
meðfram því þróaðist bæði útlitið og
tónlistin.“
Eruð þið með stílista?
Alma: „Við stíliserum flest allt sjálf-
ar. Við erum duglegar að finna ódýr
föt, til dæmis á mörkuðum eða „vin-
tage“-búðum, og breyta þeim og
betrumbæta. Kvöldin fyrir gigg sitj-
um við yfirleitt fram á nótt og erum
að setja „studs“ á föt og sauma. Það
er enginn sem segir okkur hverju við
eigum að vera í, það er alltaf undir
okkur komið. Þeir stílistar sem við
vinnum með, til dæmis fyrir mynd-
bönd eða tónleika, fara í „show-
room“ eða búðir og finna föt fyrir
það lúkk sem við ákveðum í samein-
ingu. Það er alltaf gott að fá þannig
aðstoð.“
Hvernig flokkið þið tónlist ykkar?
Steinunn og Alma: „Dance elect-
ropop! Í nýjustu lögunum okkar sem
við höfum verið að vinna í síðustu
mánuði eru líka smá hip-hop áhrif á
köflum.“
Klara: „Við hlökkum til að leyfa fólki
að heyra nýja efnið! Það kemur út í
sumar.
Lifið þið á þessu?
Alma: „Þetta er full vinna, en við
gerum ýmis verkefni meðfram til að
eiga í okkur og á, svo sem að syngja
„demo“ og semja fyrir aðra.“
Er þetta mikið hark?
Steinunn: „Þetta er bara endalaust
mikið hark!“
Hversu mikil er samkeppnin?
Alma: „Já, það er sjúklega mik-
il samkeppni í þessum bransa og
það eru svo margir akkúrat hérna í
Hollywood að fást við það sama. Við
höfum hitt marga tónlistarmenn í
svipuðum sporum og við erum í. Við
erum búnar að lenda í misheiðar-
legu fólki og höfum þurft að koma
okkur út úr óþægilegum aðstæð-
um, samningum og samstarfi sem
gekk ekki upp. En við lærðum þvílíkt
mikið af því og erum að vinna með
frábæru fólki í dag. Það hafa flestir
þekktir tónlistarmenn í dag gengið í
gegnum svipað ferli.“
Eruð þið alltaf jafn góðar vinkonur?
Steinunn: „Ég get með sanni sagt að
við erum mun betri vinkonur í dag.
Við erum eins og gott vín, verðum
bara betri og betri með aldrinum.“
Klara: „Mér finnst við frekar eins og
ostur. Tíminn gerir okkur bara sterk-
ari og harðari.“
Eigið þið samleið með vinum ykkar
á Íslandi sem eru komnir með fjöl-
skyldu og börn?
Steinunn: „Samleið og ekki samleið
með barnafjölskyldunum, þetta er
öðruvísi líf sem við kusum að lifa og
í staðinn njótum við þess að sjá fjöl-
skyldur vina okkar dafna.“
Klara: „Það er skrítið að fylgjast með
æskuvinkonum sínum verða mæður
og eiginkonur og vera sjálfur bara í
Hollywood, lengst í burtu. Mér þyk-
ir sárt að missa af brúðkaupi tveggja
æskuvina minna í þessum mánuði
til dæmis. En það er samt sem áður
dásamlegt að vita að vinkonur mín-
ar séu líka að fá sína drauma upp-
fyllta, þó að þeir séu ekki þeir sömu
og mínir.“
Hvað finnst fjölskyldum ykkar um
þetta ævintýri?
Alma: „Við erum rosalega heppnar
að eiga góða að og fjölskyldur okkar
styðja 100 prósent við bakið á okkur.“
Klara: „Við værum ekki hérna nema
fyrir þau! Það er ómetanlegt að eiga
svona dásamlegt fólk á bak við sig.
Við komum allar frá nánum og heil-
um fjölskyldum sem hafa alla tíð
hvatt okkur áfram.“
Steinunn: „Fjölskyldurnar okkar eru
og hafa alltaf verið okkar helstu og
bestu aðdáendur frá upphafi og eru
með okkur í öllum ósigrum og sigr-
um.“
Er mikið djammað?
„Við höfum gaman af því að fara út
því að skemmtanalífið hérna er svo
margbreytilegt og er líka partur af
því mynda sambönd við fólk í tón-
listarbransanum. Hérna er hægt að
Íslensku stelpurnar í The Charlies búa og starfa í Los Angeles þar sem þær vinna
hörðum höndum að því að slá í gegn. Klara Ósk Elíasdóttir, Alma Guð-
mundsdóttir og Steinunn Þóra Camilla Sigurðardóttir eru fullvissar um
að þeim takist ætlunarverk sitt og segjast ekki ætla að gefast upp fyrr en þær
hafa öðlast frægð og frama. Stelpurnar eru í fyrsta skiptið allar á lausu en þær
fórnuðu meðal annars samböndum sínum við kærastana á Íslandi til að láta
reyna á drauminn um að slá í gegn. Þær segja breytt og ögrandi útlit hluta af
eðlilegum þroska. „Það er bara eitt-
hvað svo fáran-
lega sexí að vera ógeðs-
lega góður í einhverju
sem enginn annar er!
Fórna öllu Fyrir Frægðina
Bestu vinkonur
Stelpurnar hafa unnið
saman síðan þær
byrjuðu með Nylon
árið 2004. Þær eru
sammála um að þær
séu enn nánari í dag
en þá.
36 Viðtal 6.–8. júlí 2012 Helgarblað