Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Blaðsíða 38
I
ngibjörg Halla er fædd og upp
alin í Hafnarfirði. „Það er svo eftir
minnilegt hvað allir krakkarnir
voru duglegir að leika sér saman
og það var svo mikil vinátta á milli
okkar þó svo að við þekkjumst ekki í
dag,“ segir Ingibjörg.
„Ég fór í alla skólana í Hafnar firði
þegar ég var í grunnskóla, Lækjar
skóla, Öldutúnsskóla og Víðistaða
skóla. Það var ekki af því að ég væri
alltaf að flytja, heldur fór það eftir geð
þótta bæjaryfirvalda hvaða skóli til
heyrði hvaða bæjarhluta. Eftir grunn
skólann byrjaði ég í Flensborg en
hætti svo og fór í barnastúss.“
Ingibjörg flutti svo til Færeyja 23
ára að aldri. „Það var alveg voðalega
gaman, alveg yndislegt! Foreldrar
mínir eru færeyskir og þetta var bara
eins og að koma á heimaslóðir fyrir
mig. Við bjuggum í Færeyjum í fjög
ur ár og ég átti auðvelt með að að
lagast þessu en strákurinn minn sem
var sjö ára á þessum tíma átti aðeins
erfiðara með að aðlagast þessu því
hann þurfti að læra bæði dönsku og
færeysku í skólanum. Færeyska og ís
lenska eru í raun mjög lík tungumál,
ef maður talar íslensku hægt og rólega
fyrir Færeying þá skilur hann alveg
hvað maður er að segja. Menningin
á Íslandi er mikið framar og færeysk
menning er alltaf aðeins á eftir.“
Þegar Ingibjörg kom heim aftur
fór hún að vinna á leikskóla og hefur
unnið alls kyns störf eftir það. „Ég
vann í verslun í nokkur ár, í Öskju
hlíðarskóla, og í dag vinn ég á tann
læknastofu svo ég hef gert sitt lítið af
hverju.“
Í sumar ætlar Ingibjörg á ættar
mót. „Þetta verður lítið mót með
systkinum mínum og afkomendum
okkar í Hvalfirði.“
Ingibjörg Halla ætlar ekki að halda
stóra veislu í tilefni afmælisins heldur
hafa smá kaffiboð fyrir fjölskylduna.
38 6.–8. júlí 2012 Helgarblað
Stórafmæli Ingibjörg Halla Guttesen Fríðudóttir 50 ára 7. júlí
72 ára 7. júlí
Ringo Starr sem var trymbill einnar vinsælustu
hljómsveitar allra tíma, Bítlanna.
14 ára 8. júlí
Jaden Smith, sonur Will Smith sem lék með
honum í myndinni Pursuit of Happyness.
66 ára 6. júlí
Hinn ógleymanlega svali Sylvester Stallone sem
lék í mörgum Rocky- og Rambo-myndum.
Ingibjörg Halla Ætlar að vera í rólegheitum á afmælinu.
Fór í alla skóla
í Hafnarfirði
Fjölskylda
Ingibjargar
Foreldrar:
n Fríða Hjálmarsdóttir f. 1.11. 1927 –
d. 1.7. 1998
n Elías Ívarsson f. 19.2. 1921 – d. 2.12.
2005
Systkin:
n Elín Elíasdóttir f. 29.12. 1949
n Ívar Hjálmar Elíasson f. 28.2. 1951
n Elsebeth Elena Elíasdóttir f. 4.9. 1953
n Bjarni Ómar Zachariasen Elíasson
f. 15.10. 1956
n Guðlaug Elíasdóttir f. 29.1. 1955
n Linda Elíasdóttir f. 17.9. 1958
n Eva Elíasdóttir f. 10.3. 1960
n Sveinn Elíasson f. 28.8. 1972
n Elías Rúnar Elíasson f. 16.6. 1977
Börn:
n Jóhannes Haukur Jóhannesson
f. 26.2. 1980
n Daniel Willemoes Olsen f. 26.5. 1990
Merkis-
atburðir
6. júlí
1189 - Ríkharður ljónshjarta var krýnd-
ur konungur Englands.
1859 - Queensland varð sjálfstæð ný-
lenda Breta í Ástralíu.
1946 - Íslendingar tóku við Reykjavíkurflug-
velli af Bretum við hátíðlega athöfn.
1958 - Eyjólfur Jónsson synti frá Reykja-
vík til Akraness, en það er 22 kílómetra leið.
Sundið tók rúmlega 13 klukkustundir.
1964 - Malaví hlaut sjálfstæði frá Bretlandi.
7. júlí
1211 - Suðurlandsskjálfti, margir bæir
hrundu og 18 manns fórust.
1456 - Dómstóll skipaður af Kalixtusi
III páfa felldi dóminn yfir Jóhönnu af Örk úr
gildi og lýsti hana saklausa.
1637 - Hornsteinn var lagður að
Sívalaturni í Kaupmannahöfn.
1874 - Á Akureyri var vígður Gudmannsspít-
ali, sem var til húsa í Aðalstræti 14, en það er
elsta tvílyfta íbúðarhús á Íslandi, reist 1836.
1915 - Konur fögnuðu nýfengnum kosninga-
rétti sínum með hátíðarfundi á Austurvelli.
Sama dag stofnuðu þær Landspítalasjóð
Íslands.
1941 - Bandaríkjaher kom til landsins og tók
við vörnum þess af Bretum. Síðustu bresku
hermennirnir fóru héðan í apríl 1947.
1978 - Salómonseyjar fengu sjálfstæði
frá Bretlandi.
2005 - Fjórar sjálfsmorðssprengjuárás-
ir urðu 56 manns að bana í London.
8. júlí
1362 - Grundarbardagi á Grund í Eyjafirði, en
þar fóru Eyfirðingarað Smiði Andréssyni hirð-
stjóra og mönnum hans og drápu þá.
1853 - Koma Matthew C. Perry og svörtu
skipanna til Japans.
1903 - Upphaf síldarsöltunar á Siglufirði.
Síldarævintýrið sem þarna hófst stóð í 65 ár.
1922 - Ingibjörg H. Bjarnason var kjörin
á þing fyrst kvenna og tók hún sæti á Al-
þingi 15. febrúar 1923.
1951 - Tveir íþróttamenn slösuðust mikið
og aðrir tveir biðu bana í Óshlíð á milli Bol-
ungarvíkur og Ísafjarðar er bjarg lenti á 30
manna rútu sem þeir voru í.
n Skemmtun fyrir skapandi krakka
K
rökkum finnst flestum gam
an að föndra og fá að nota
sköpunargáfu sína. Það er
skemmtilegt í afmælum, sér
staklega þegar ekki er sól og
blíða á afmælisdaginn, að fá að búa
til sinn eigin partíhatt. Það er að sjálf
sögðu best að vera búin að undirbúa
þetta áður en afmælið byrjar og hafa
allt tilbúið fyrir hvern og einn. Það
sem þarf í þetta er eftirfarandi:
n Skapalón að hatti en þau er auðvelt að
finna á internetinu og prenta út
n Skæri
n Lím
n Karton í alls kyns litum
n Glimmer og alls kyns skraut
n Gatari
n Fíngerð teygja
Krakkarnir fá svo að velja sér karton og
setjast við borð. Svo geta þau skreytt
sinn hatt alveg eins og þau vilja og
nota þá liti sem þau vilja og það er al
veg öruggt að hver hattur verður mjög
persónulegur. Svo taka allir sinn hatt
með heim og þetta er eitthvað sem
gaman er að eiga seinna meir.
Afmælispartíhattur
Fyrir alllöngu síðan fæddist fögur snót fyrir Vestan og froskur
í Vestmannaeyjum. Lengi vel lifðu þau aðskildu lífi, fjölguðu
sér með eindæmum, komu sínum afkomendum á legg og
brölluðu eitt og annað. Leiðir þeirra lágu loks saman, rugluðu
þau saman reitum sínum, froskurinn breyttist í timburmann
og snótin varð hans handlangari. Fyrir tíu árum í Húsdýragarði
játaðist snótin froski og settust þau svo að í fögrum firði fyrir
Vestan. Fer ekki sögunum af þeim meir...
Senn munu þau fagna sínu hálfrar aldarafmælinu hvor og
tugi til í brúðkaupsafmæli á Eyjunni fögru. Þess er vænst
að froskurinn breytist í prins við þessi tímamót!
Heillaóskir eða samúðarkveðjur eru þegnar
með þökkum í formi sms skilaboða í tíma
og ótíma í síma: 897 9657 og 867 7942
Laufasjöurnar
110 ára afmæli