Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Blaðsíða 44
44 Úttekt 6.–8. júlí 2012 Helgarblað Kommentafíkill Nafn: Ragnar Þórisson Búseta: „Bý í Bandaríkjunum. Nánar tiltekið í Kaliforníu.“ Fjölskylda: „Giftur maður í Kaliforníu með hund. Svo á ég þrjár dætur.“ Hvers vegna tekur þú þátt í umræðum í kommentakerfinu: „Ég hef nú verið að velta þessari spurningu fyrir mér sjálfur. Þetta er eiginlega bara fíkn. Ég hef þurft að taka mér tak en þetta togar alltaf aftur í mann. Ég geri mér nú ekki miklar vonir um að breyta einhverju – en mann langar til að vera með í umræðunni. Hins vegar held ég að athugasemdadálkarnir geti haft einhver áhrif á pólitíkina – þetta er lýðræðið.“ Hvernig hefur fjölskyldan tekið í þessi athugasemdaskrif þín? „Maður gerir ættingja og vini alveg brjálaða á því að vera alltaf að tjá sig þarna.“ Hvað eyðir þú löngum tíma á dag í að kommenta? „Svona um það bil klukku­ tíma.“ Hvar stendur þú í pólitík? „Sjálfstæðismaður.“ Kommentar á morgn- ana og á kvöldin Nafn: Ragnhildur Kolka Búseta: „101 Reykjavík.“ Hjúskaparstaða: „Fráskilin og bý ein.“ Hvers vegna tekur þú þátt í umræðum í athugasemdakerfinu? „Ég geri þetta bara mér til gamans. Ég er bara að skemmta mér. Mér finnst sjálfsagt að gera athugasemdir þegar ég er annaðhvort sátt eða ósátt við ákveðin mál en stundum er það bara orðalagið sem ég geri athugasemdir við.“ Hvað eyðir þú miklum tíma á dag í kommentaskrif? „Ég veit það ekki, ég geri þetta bara alltaf á morgnana og stundum á kvöldin. Ég renni bara yfir síðurnar og stundum kommenta ég og stundum ekki.“ Hvar stendur þú í pólitík? „Ég held að það sjái það allir sem lesa kommentin mín; hægri sinnuð. Kýs Sjálfstæðisflokkinn.“ Anarkisti sem vill hafa áhrif Nafn: Eva Hauksdóttir Búseta: „Glasgow.“ Hjúskaparstaða: „Í sambúð með Einari Steingrímssyni.“ Hvers vegna tekur þú þátt í umræðum í athugasemdakerfinu? „Athugasemdakerfið er ágætur vettvangur að því leyti að þar er alls konar fólk með alls konar viðhorf. Þarna nær maður til fólks úr öllum þjóðfélagshópum. Í athugasemdakerfinu getur maður haft áhrif á það, hvernig fólk skoðar hlutina.“ Hvað finnst þér um umræðuna sem þarna fer fram? Auðvitað er eitthvað að umræðunni. Það er eitthvað að fólki og þá er líka eitthvað að umræðunni. En þó að umræðan sé ekki nákvæmlega eins og ég vil hafa hana, þá þýðir það ekki að hún eigi ekki rétt á sér. Það er alltaf einn og einn sem er ósmekk­ legur og dónalegur. Ég held að meiri umræða sé alltaf betri en minni. Ég vil frekar taka þá áhættu að einhverjir óvandaðir aðilar hafi sig í frammi heldur en að skrúfað sé fyrir umræðu.“ Eyðir þú miklum tíma í athugasemdaskrif? „Það er erfitt að segja. Ég skrifa blogg og kommenta á blogg hjá öðrum. Ég get ekki alveg greint í sundur hvað er hvað. Ef ég á að slumpa þá eyði ég að jafnaði tveimur klukkustundum á dag í samfélagsumræðu; bæði á bloggsíðum og í athugasemdakerfum netmiðlanna. Þetta er náttúrulega áhugamál hjá mér.“ Áttu þér eitthvað uppáhaldskomment? „Nei. Ég er búin að skrifa svo mikið – það erfitt að greina þetta í sundur með þessum hætti.“ Er hægt að breyta samfélaginu með athugasemdaskrifum? „Ég held ekki að ein athugasemd breyti neinu. En eftir því sem fleiri raddir viðra fleiri sjónarmið; því dýpri verður umræðan. Ég væri ekki í þessu nema ég héldi að ég gæti haft einhver áhrif á umræðuna. Ég finn að ég verð fyrir áhrifum sjálf. Athugasemdir sem ég les við fréttir fá mig oft til að hugsa hlutina út frá fleiri sjónarmiðum. Ætli ég geti ekki fengið aðra til umhugsunar á sama hátt.“ Hvar stendur þú í pólitík? „Ég get helst flokkað mig sem anarkista. Ég hef líka viðrað hugmyndir um að flokkakerfið sé ónýtt og forsetaembættið óþarft.“ Athugasemdakerfið er tákn tjáningarfrelsisins Nafn: Ragnar Halldórsson Búseta: „Bý í Kaupmannahöfn en hef aðsetur víðs vegar um Evrópu.“ Starf: „Það hentar mér mjög vel að vera svolítið svona dularfullt eintak. Ég starfa á eigin vegum við meðal annars ráðgjöf. Þessa ráðgjöf veiti ég opinberum stofnunum, hjálparsam­ tökum og fyrirtækjum – ýmist gegn greiðslu eða frítt.“ Hvað eyðir þú löngum tíma á dag í kommentaskrif? „Þegar ég er hvað virkastur eyði ég frá þremur klukkustundum og allt upp í fimm klukkustundir í slík skrif.“ Hvers vegna tekur þú svona virkan þátt? „Ég er í eðli mínu brautryðjandi. Við lifum á tímum byltingar; samskiptabyltingar sem birtist okkur einna helst í formi athugasemdakerfisins. Ég vil standa í fremstu víglínu þeirrar byltingar og breyta þannig samfél­ aginu til batnaðar. Athugasemda­ kerfið er miklu forvitnilegra, miklu áhugaverðara og í því felst miklu meiri innsýn inn í þjóðfélagið og mannlegt eðli; eðli Íslendinga, heldur en fólk vill láta í veðri vaka. Það eru miklu fleiri perlur en skítur í athugasemdakerfinu. Athugasemdakerfið er tákn tjáningarfrelsisins.“ Kommentakóngar og drottningar Tilkoma athugasemdakerfa netmiðlanna hefur valdið straumhvörfum í umræð- um á Íslandi. Úr jarðvegi þessa nýja vettvangs hefur sprottið nýr þjóðfélagshópur; kommentarar. Kommentarar hafa á undanförnum mánuðum rutt sér æ meira til rúms í hinni opinberu umræðu. Skrif þeirra hafa ekki síst vakið athygli fyrir þær sakir að á þessum athugasemdavettvangi koma saman aðilar úr öllum stéttum, af báðum kynjum og hafa ólíkan bakgrunn – allt litróf mannlífsins. En hvaðan kom þetta fólk? Hvert er það að fara? Og síðast en ekki síst; hvað er það? Umsjón: Baldur Eiríksson, baldure@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.