Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Blaðsíða 46
46 Lífsstíll 6.–8. júlí 2012 Helgarblað Vín geymist best úti á sjó Franskir vínsérfræðingar halda því fram að vín geymist best úti á sjó. Sérfræðingarnir ákváðu að kanna málið þar sem fréttir af vínum sem seljast dýrum dómi eftir að hafa fundist í skipsflökum vöktu athygli þeirra. Samkvæmt The Daily Mail geymdu þeir tvær tunn- ur af Bordeaux 2009 í vínkjallara fransks sveitaseturs og aðrar tvær lengst úti í Atlantshafi. Eftir sex mánuði rannsökuðu og smökk- uðu þeir vínið. Í ljós kom að vínið sem hafði verið geymt úti á hafi hafði breyst vegna osmósuáhrifa, áfengismagnið hafði minnkað og natríummagn aukist. „Það var mun betra á bragðið,“ sagði einn vínsérfræðinganna og bætti við að Rómverjar til forna hefðu notað saltvatn út í vín sitt. Bólusetning gegn reykingum Ný rannsókn hefur aukið vonir manna á að hægt verði að bólu- setja fólk fyrir nikótínfíkn með einni sprautu. Vísindamenn við Cornell-háskólann spraut- uðu bólusetningarlyfinu í mýs og komust að því að 80 prósent þeirra músa sem voru bólusettar urðu ekki háðar nikótíni. Þetta kemur fram í Wall Street Journal. Frekari rannsóknir eru nauðsynlegar áður en hægt verður að prófa efnið á mönnum. „Þetta virðist ætla að ganga,“ sagði einn af aðstandend- um rannsóknarinnar. „Við munum ekki fá að vita það fyrir víst fyrr en við prófum á fólki.“ Hýðingar hafa áhrif Niðurstöður nýrrar rannsóknar gefa til kynna að börn sem voru hýdd í æsku geti átt erfiðara upp- dráttar á fullorðinsárum. Í banda- rískri rannsókn á 35.000 þúsund einstaklingum kom í ljós að 2–7 prósent þeirra sem þjáðust af geð- kvillum, eins og kvíða, eða áttu við áfengisvandamál að stríða höfðu verið beitt líkamlegu of- beldi í refsingarskyni í æsku. Þetta kemur fram í USA Today. Að sögn vísindamanns sem kom að rann- sókninni er aldrei í lagi að nota líkamlegar refsingar á börn, sama á hvaða aldri þau eru. Hipsterinn í andaslitrunum H vað er að vera hipster? Hug- takið hefur tröllriðið vest- rænum heimi. DV skoðaði þetta forvitnilega fyrirbæri og komst að því að líklega er hipsterinn í andaslitrunum. Fatasmekkur Fatasmekkurinn er jafnmikilvægur tónlistarsmekk hipstersins. Þeir versla í búðum sem selja notaðan fatn- að. Nokkrar verslanir sérhæfa sig í að framleiða fatnað sem fellur að smekk hipstersins, svo sem American App- arel, H&M, ASOS og Urban Outfitters. Helsti einkennisklæðnaður, bæði karl og kvenhipstera, eru þröngar gallabuxur. Kvenhipsterinn gæti valið þröngar gallabuxur með háu mitti eða leggings. Allir hipsterar elska sólgleraugu. Buddy Holly-gleraugu, nördagleraugu og Ray Ban Wayfarers. Liturinn í ár er víst hvítur. Converse-skór eru alheims- samþykktur staðalbúnaður hipstera. Doc Martens-skór eru það líka en best þykir hipsterum að finna flotta notaða skó. Þá þykir hipsterum fínt að eiga ferðatuðru, helst frá Freitag, sem rúmar Macbook, Iphone og vinýl-plötur. (Ath – aldrei geisladiska – það er svo 1999!) Kúltíveraðir hipsterar með reynslu, klæðast lagskiptum klæðnaði sem passar ekki saman. Til dæmis í smókingjakka og bol innan undir með mynd af hasarhetjum. Kvenhipsterinn klæðist blómakjólum eða skósíðum kjólum með áberandi skarti. Yfir kjól- ana klæðast þær stundum gallavest- um. Pelsinn er öllum kvenhipsterum ómissandi yfir veturinn. Umhirðing líkamans Margir hipsterar safna skeggi. Mikill skeggvöxtur er prýði hvers hipsters. Skeggvaxnir hipsterar eru kallað- ir bangsahipsterar eða OH (Original Hipster). Karlhipsterar eru gjarnan með klippingu í anda stríðsáranna, Erroll Flynn gæti verið fyrirmyndin. Kvenhipsterar leita líka margir til þessara ára en annars til sjötta ára- tugar og hippatískunnar. Kvenhipsterar raka ekki litla bikíní- línu heldur safna í góðan brúsk. Þá þykir fínt að vera ekki að hrófla við öðrum líkamshárum. Förðun kven- hipstersins er í lágmarki, húðin á að vera föl og náttúruleg, maskarinn lítið sem ekkert notaður og þá helst rauð- ur varalitur og augnlínupenni til spari. Sólarvörnin er númer 50+ til að gæta að húðlitn- um (því sól- brúnka er svo 1999!) Lífsstíll Hipsterar ferðast um á hjólum. Þeir endurvinna ruslið sitt og eru meðvit- aðir um framleiðsluhætti þess varn- ings sem þeir kaupa inn. Krafa þeirra um dýra merkjavöru, svo sem Apple vörur, er í mótsögn við þann hreinlífa lífsstíl en svo virðist sem hver hipst- er verði að eiga allar helstu nýjungar frá því fyrirtæki. Þessa dagana er hipsterinn upptekinn af Apple sjón- varpi og gif-snjallsímaforriti á Ipho- ne-símann sinn. Hipsterinn borðar líka eins og heimsborgari. Þekkir rétti flestra þjóða heims og borðar að sama skapi hollan mat. Morgunmatur hipstersins er bolli af latté, grænn orkudrykkur sem er kenndur við bombu eða hafragrautur úr lífrænt ræktuðum tröllahöfrum með goji-berjum stráðum ofan á. Hipsterinn mætir ekki í líkams- ræktarstöðvar, nema þá til að fara í hot-jógatíma. Hann stundar útivist, hjólreiðar, útihlaup og fjallgöngur. Hipster/ hipsteretta – átta atriði 1 Þú ert útskrifaður úr listnámi eða ert að stunda skapandi nám eða félagsvísindi. 2 Þú notar oft hugtakið: Póst-módernískt (og segir jafnvel: Þetta er pómó!). 3 Þú átt hliðartösku og Ray Ban Wayfarer-sólgleraugu. 4 Þú átt vin í Framsóknarflokknum og kynnir hann svona: „Þetta er hann Jón vinur minn í Framsóknar- flokknum.“ 5 Þú drekkur rauðvín úr lífrænt ræktuðum vínberjaþrúgum. 6 Þú átt að minnsta kosti þrjá hluti úr Apple-fjölskyldunni. 7 Kolagrill er betra en gasgrill og vinyl-plötur betri en geisladiskar. 8 Þú horfir á heimildarmyndir á netinu og segir engum frá því að þú halir þeim ólöglega niður. (Það er svo 2009). Ekki hipster/ hipsteretta – átta atriði 1 Þú átt kósí-galla sem þú klæðist sérstaklega til að borða kvöld- matinn. 2 Þú keyrir rauðan sportbíl eða eyðslufrekan bíl. 3 Þú ferð í brasilískt vax og plokkar af þér sem flest líkamshár. 4 Þú berð á þig sólarolíu og nærð upp góðri sólbrúnku. 5 Þú lest skáldsögur með upp-hleyptu letri á bókarkápunni. 6 Þú lítur á heimsókn í stórmarkað eða IKEA sem tómstundaiðkun. 7 Þú drekkur Breezer á djamminu. Með röri. 8 Þú ert PC-maður og átt fatnað þar sem sú staðhæfing kemur skýrt fram. Skilgreiningar OH/Original hipster Hipster af eldri kynslóð Pósthipster eða Pómóhipster Hipster af yngstu kynslóð Hipsteretta Kvenkyns hipster Bangsahipster Hipster með myndarlegt skegg og þéttan líkamsvöxt. D.I.Y. Hipster Hipsterar og hipsterettur sem prjóna og smíða. Hippahipster Hipster sem leggur mikið upp úr siðgæði og lífrænni framleiðslu. Nostalgíu hipster Hipster sem líkar við allt sem er svo hrikalega slæmt að það fer hringinn og verður frábært. Uppahipster Uppahipsterinn keyrir Prius bifreið og á hálfrar milljóna króna safapressu. Vínyll og vintage Hipsteretta hlustar á músík í dæmigerðri hipsteraíbúð. Vintage, retrómunir og vínyll. Bangsahipster Skeggjaður hipster á gangi. American Apparel Hipsterar dá flott vörumerki eins og Amer- ican Apparel. „Þeir úreldast á hverjum degi enda elta þeir tískuna og það sem er í tísku fer úr tísku Ray Ban Wayfarers Eftir að þessi klassísku gleraugu urðu staðalbúnaður hipstersins hefur framleiðslan blómstrað og nú fást gleraugun í mörgum útfærslum. Vín og reiðhjól Hipsterar drekka gott vín, helst lífrænt ræktað og ferðast um á reiðhjólum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.