Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Síða 8
Skortur á neyðarblóði
n Blóðgjafar hvattir til að mæta í Blóðbankann
Þ
að er ekki neyðarástand en
okkur vantar þetta neyðar-
blóð,“ segir Anna Margrét
Halldórsdóttir, sérfræðilækn-
ir hjá Blóðbankanum. Blóðbankinn
sendi á fimmtudag ákall til svokall-
aðra O neg blóðgjafa og voru þeir
blóðgjafar sem eru í þeim blóðflokki
beðnir um að renna við í Blóðbank-
anum. Sú staða er í bankanum að
aðeins eru til sextíu einingar af O
neg blóði, en bankinn vill eiga 100
einingar.
Anna Margrét segir að á mið-
vikudag hafi komið fleiri en vana-
lega af O neg blóðgjöfum, en bet-
ur má ef duga skal. „Óskastaðan er
að vera með hundrað einingar af O
neg blóði. Það kom ekki gífurlegur
fjöldi í gær [miðvikudag: innsk.blm]
þó það hafi komið fleiri en vana-
lega,“ sagði Anna í samtali við DV á
fimmtudag. Fólk í O-flokki mynd-
ar ekki mótefnisvaka og því er blóði
sem það gefur sjaldnast hafnað af
blóðþega og geta nánast allir þegið
slíkt blóð.
Á Vísindavef Háskóla Íslands
kemur fram að blóðgjafa í O-flokki
mætti því kalla algjafa og því er mik-
ilvægt að Blóðbankinn eigi nægilegt
magn af slíku blóði.
Á sumrin eru blóðgjafar sérstak-
lega hvattir til þess að mæta en færri
skila sér í blóðgjöf yfir sumartímann
en á öðrum árstíðum. Margvíslegar
ástæður eru fyrir því, meðal annars
sumarleyfi, en af þeim sökum er fólk
sérstaklega hvatt til þess að koma í
bankann.
Anna Margrét áréttar að ágæt
staða sé í öðrum blóðflokkum, en
það sé þó alltaf mikilvægt að það
skili sér 70–80 blóðgjafar á dag í
bankann. astasigrun@dv.is
8 Fréttir 6.–8. júlí 2012 Helgarblað
88 eiga
von á sekt
Brot 88 ökumanna voru mynduð
á Hafnarfjarðarvegi á miðviku-
dag. Fylgst var með ökutækjum
sem var ekið Hafnarfjarðarveg
í suðurátt, yfir gatnamót Vífils-
staðavegar. Á einni klukku-
stund, eftir hádegi, fór 801 öku-
tæki þessa akstursleið og því óku
allmargir ökumenn, eða 11 pró-
sent, of hratt eða yfir afskipta-
hraða. Meðalhraði hinna brotlegu
var 74 kílómetrar á klukkustund
en þarna er 60 kílómetra há-
markshraði. Þrettán óku á 80 kíló-
metra hraða eða meira en sá sem
hraðast ók mældist á 91.
Vöktun lögreglunnar á Hafnar-
fjarðarvegi er liður í umferðar-
eftirliti hennar á höfuðborgar-
svæðinu, en síðastliðinn föstudag
varð harður, þriggja bíla árekstur
á fyrrnefndum gatnamótum og
voru sjö fluttir á slysadeild.
Lýst eftir
stolnum bíl
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu lýsir eftir grá-
um Volkswagen Golf með skrán-
ingarnúmerinu MV-K12, en
bílnum var stolið frá bílaleigu við
Vatnsmýrarveg í Reykjavík í síð-
asta mánuði. Þeir sem geta gef-
ið upplýsingar um hvar bíllinn
er niðurkominn eru vinsamleg-
ast beðnir um að hafa samband
við lögregluna í síma 444-1000
eða senda tölvupóst á netfangið
abending@lrh.is.
Vantar blóð Blóðgjafar í O-flokki eru sér-
staklega hvattir til að mæta í Blóðbankann
til að gefa blóð.
M
ikil umræða hefur verið
milli unglinga í netheim-
um vegna nýrrar vefsíðu.
Enginn veit hver stend-
ur að baki síðunni en á
henni eru viðhöfð ljót ummæli um
unglinga undir lögaldri. Slíkt einelti
meðal unglinga á internetinu virðist
vera mjög algengt að sögn þeirra sem
DV hefur rætt við.
Ekki vitað hver er með síðuna
Á vefsíðunni sem um ræðir eru birt-
ar myndir af unglingum, þeir nafn-
greindir og ljótir hlutir sagðir um þá.
Undir einni myndinni er þetta skrif-
að: „Hóra* einsvo sumir vilja frekar
kalla hana. Reið X á meðann hann
var á föstu með x.“ Stúlkan sem um
ræðir er 15 ára. Í öðrum færslum
eru viðhöfð misfögur ummæli um
viðkomandi einstaklinga sem eru á
meðfylgjandi myndum.
Vefsíðan var sett upp fyrir aðeins
örfáum dögum og því ekki komnar
margar færslur inn á hana en greini-
legt að sá sem stendur að baki síð-
unni ætlar sér að halda henni gang-
andi. Á miðvikudagskvöld auglýsti
sá hinn sami eftir meira slúðri til að
setja inn: „Gossip girl here. Vá strax
komin með 300 followers á 2 dög-
um! vel gert allir, nú má alveg fara
að senda inn eld heit gossip!“ Hug-
myndin er augljóslega sú sama og
er að baki þáttunum um Gossip Girl.
Þar sem viðkvæmar upplýsingar um
sögupersónur þáttanna eru settar á
vefsíðuna, veldur það sögupersón-
unum miklu hugarangri.
Erfitt að fylgjast með
DV hafði samband við móður einn-
ar stúlkunnar sem færsla er um inni
á síðunni. Móðirin kom af fjöllum
og sagðist ekki vita hvað væri hægt
að gera til þess að láta loka síðunni.
Henni fannst ekki gott að vita til
þess að mynd og ummæli um 14 ára
dóttur hennar væru inn á síðunni.
„Það er svo mikið af þessum síðum í
dag og erfitt að fylgjast með því sem
er að gerast á netinu,“ segir hún.
Í samtölum við nokkra unglinga
virðast síður sem þessar vera al-
gengar á internetinu. „Þetta er bara
einelti. Það er alltaf verið að setja
upp svona síður en yfirleitt lokar lög-
reglan þeim, þetta er mjög algengt,“
sagði einn þeirra.
Átta sig ekki á alvarleikanum
Starfsmaður í félagsmiðstöð ung-
linga sem DV ræddi við, segir mik-
ið um slíkar síður og að mikið sé
um einelti meðal unglinga á netinu.
„Maður sér mikið af þessu. Ég hef
reyndar ekki séð akkúrat svona síðu
áður en þetta er mjög algengt inni á
Formspring-síðum,“ segir starfsmað-
urinn og á við formspring.com. Þar
getur hver og einn verið með sína
síðu og svo getur hver sem er lagt
inn nafnlausa spurningu á viðkom-
andi. „Þar er oft mikið einelti inni á
síðunni og líka á Facebook. Krakk-
arnir eru að hakka sig inn á Face-
book-síður annarra og birta neyðar-
legar myndir. Svo er myndunum
kannski eytt en þá hafa þær staðið í
einhvern ákveðinn tíma og á meðan
hefur verið hægt að nota myndirn-
ar. Það er eins og þau átti sig ekki á
alvarleikanum og að svona geti verið
á internetinu í mörg ár.“
Geta ekki brugðist við
Þar sem vefsíðan er vistuð erlend-
is virðist lítið hægt að gera til þess
að láta loka henni. „Við getum ekk-
ert brugðist við þessu, ekki ef hún
er vistuð erlendis og ekki vitað hver
er að baki henni. Hins vegar ef það
kæmi fram kæra frá einhverjum sem
teldi á sér brotið og vissi hver héldi
úti síðunni þá myndum við skoða
það,“ segir Grímur Grímsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn hjá lög-
reglunni í Reykjavík. Grímur hafði
ekki séð tiltekna vefsíðu en kannað-
ist við vandamálið. „Við verðum svo-
lítið varir við þetta. Það koma reglu-
lega inn á borð til okkar svona mál þó
það sé lítið við þeim að gera. Ef það
er vitað hver er að baki síðunni þá er
frekar hægt að bregðast við því.“
„Þetta er
bara einelti“
„Gossip girl here.
Vá strax komin
með 300 followers á 2
dögum! vel gert allir, nú
má alveg fara að senda
inn eld heit gossip!
n Ólga meðal unglinga vegna íslenskrar slúðursíðu í anda Gossip Girl
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Íslensk slúðursíða Ólga er meðal unglinga sem DV talaði við en
einhver heldur úti vefsíðu þar sem birtar eru myndir af unglingum
og ljót ummæli viðhöfð um þá. Síðan er í anda Gossip Girl-síðunnar
sem samnefnd þáttaröð er byggð á.
Mikið úrval af
fallegum skóm
og töskum
Gæði &
Glæsileiki
www.gabor . i s - f a cebook . com/gaborse r ve r s lun
FÁKAFENI 9 - Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16
Sérverslun með
25 ár
á Íslandi