Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Qupperneq 10
Svona má hlífa
grunnþjónuStunni
10 Fréttir 6.–8. júlí 2012 Helgarblað
G
runnþjónusta er hugtak sem
flestir kannast við. Grunn-
þjónusta ríkisins er talin
mikil væg og hana má helst
ekki skera niður. Samt er það
gert; heilbrigðisþjónustan, mennta-
málin, löggæslan – enginn sleppur
við hárbeittan niðurskurðarhníf-
inn. Á sama tíma og stjórnmála-
menn segjast nauðbeygðir til að skera
niður hjá heilbrigðisstofnunum og
sameina skóla eyða þeir milljónum
í samhæfingarnefnd um siðferðileg
viðmið fyrir stjórnsýsluna, vest-nor-
rænt menningarhús í Kaupmanna-
höfn og Listskreytingasjóð. Útgjöld
til heilbrigðismála lækkuðu um 3.905
milljónir króna á milli áranna 2009
til 2010, sem eru nýjustu saman-
burðartölur, að sögn Fjársýslu ríkis-
ins. Á sama árabili lækkuðu útgjöld
til löggæslumála um 2.696 milljónir.
Ljóst er að ef tekið er tillit til vísitölu-
breytinga og fleiri þátta þá er niður-
skurðurinn töluvert meiri. DV leitaði
til álitsgjafa úr röðum þingmanna og
spurði: Hvar á að skera niður til að
hlífa hinni umtöluðu grunnþjónustu?
„Við ætlum að drepa ykkur hægt“
Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins
n Utanríkisþjónustan
„Það má skera mjög víða niður.
Það má til dæmis skera niður í
utanríkisþjónustunni. Sendiráðin
eru alltof fjárfrek; það má skera
niður þar.“
n Fiskistofa
„Það má fækka og draga saman
í Fiskistofu, sem er orðin eins og
hálfgert skrímsli.“
n Veiðimannasamfélag
„Við erum veiðimannasamfélag.
Við þurfum þess vegna að hegða
okkur eftir flóði og fjöru í gangi
mála. Þegar það er ætlast til þess
að atvinnulífið dragist saman,
þá er ekki ætlast til hins sama
af stjórnsýslunni. Þegar þess er
krafist kemur þetta eilífa svar:
„Við erum með þetta í ferli og við
eigum eftir að skoða þetta.“ Og
það þýðir nánast bara í einni setn-
ingu: „Við ætlum að drepa ykkur
hægt.“ Þetta er bara della sem við
búum við.“
n Hlífa grunnþjónustunni
„Það sem skiptir máli er að sinna
grunnþjónustunni, sem er heil-
brigðisþjónustan, menntakerfið
og löggæslan. Við þurfum aukin-
heldur að sinna atvinnulífinu svo
það geti skapað okkur verðmæti.
Þau verðmæti geta svo gert okkur
betur í stakk búin til að fram-
kvæma það sem er hægt að gera
og væri skemmtilegt að gera.“
Gæluverkefnið ESB
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknar
n Eftirlitsstofnanir
„Ég ætla fyrst að nefna eftirlits-
stofnanir sem hafa verið settar á
fót eftir að EES-samningurinn var
samþykktur. Hér er ég til dæmis að
vísa til umhverfisstofnunar. Hún
hefur brugðist sínu lögbundna
hlutverki, samanber iðnaðarsalts-
málið. Þá má draga stórlega úr
starfsemi Fjármálaeftirlitsins. Ég
efast um allan eftirlitsiðnaðinn.
Það má raunverulega leggja niður
allan eftirlitsiðnaðinn, að frátöldu
Fjármálaeftirlitinu.“
n Samhæfa rekstur ráðuneytanna
„Í öðru lagi má samhæfa rekstur
ráðuneytanna. Þar má spara mik-
ið. Ég er hér að tala um reksturinn
– ekki málefnastarfið.“
n Gæluverkefni
„Í þriðja lagi má nefna ýmis gælu-
verkefni ríkisstjórnarinnar. Til
dæmis ESB-umsóknina. Það á að
draga umsóknina til baka vegna
þess að þar liggja fleiri tugir millj-
óna í nefndarstarfi.“
n Allar nefndir og stofnanir
„Það má leggja niður allar nefndir
og stofnanir sem stofnað hefur
verið til með lögum eftir hrun.
Opinbera kerfið er að tútna alltof
mikið út. Það er varla til sú laga-
setning sem fer í gegnum Alþingi
sem gerir ekki ráð fyrir fjölgun
opin berra starfsmanna. Þetta hef-
ur verið minn málflutningur síðan
ég settist á þing.“
n Utanríkisþjónustan
„Það er hægt að skera alveg óhemju
mikið niður í utanríkisþjónust-
unni. Við getum lagt niður ákveðin
sendiráð til dæmis eða tekið upp
frekara samstarf við Norðurlanda-
þjóðirnar í þessum efnum.“
Talið endalaust
„Það má leggja umboðsmann
skuldara af. Það er enginn árang-
ur þar inni; fólk fær ekki úrlausn
sinna mála. Sú starfsemi ætti bet-
ur heima í bankakerfinu. Fjöl-
miðlanefnd má leggja af. Það má
leggja af nefndina um kynjaða
hagstjórn. Það má skera niður hjá
Lyfjastofnun ríkisins. Seðlabanki
Íslands þarf að sæta stórkostlegum
niðurskurði. Svona gæti ég talið
endalaust.“
Ósáttur við fjárlög
Atli Gíslason, utan þingflokka
n ESB útgjöldin
„Ég vil fyrst nefna ESB útgjöldin.
Það eru hundruð milljóna eða
milljarðar þar.“
n NATO
„Það eru verulegir fjármunir sem
fara til NATO. Við höfum ekkert
með það að gera að ausa fjármun-
um þangað.“
n Utanríkisþjónustan
„Utanríkisþjónustan er orðin út-
belgd. Og alltof stór miðað við
höfðatölu Íslendinga. Þetta nefni
ég sérstaklega í ljósi þess að það
er hægt að sinna erlendum sam-
skiptum á rafrænan hátt.“
n Úrskurðarnefndir
„Mig langar líka að nefna allar
þessar úrskurðarnefndir. Ég lagði
fram fyrirspurn um það á Al-
þingi fyrir nokkrum árum síðar;
þá kostuðu þær samtals 600 millj-
ónir. Þær kosta miklu meira í dag.
Ég hugsa að þær kosti tvo eða þrjá
milljarða.“
Hættulegur niðurskurður
Jón Bjarnason, Vinstri grænum
n Heilbrigðisþjónustan
„Ég tel að það hafi verið alltof mikill
niðurskurður í heilbrigðisþjónust-
unni. Svo mikill niðurskurður að
hann er hættulegur. Heilbrigðis-
þjónustan, löggæslan og þessi
grunnþjónusta hefur orðið fyrir of
miklum niðurskurði; sérstaklega
úti á landi.“
n Stofnanir sprottið upp
„Svo getur þú velt fyrir þér hvaða
stofnanir hafa verið að spretta
upp og í kjölfarið þanist út. Og
hverju hafa þær skilað? Hvað er
umboðsmaður skuldara að taka
mikið til sín? Og hverju er hann að
skila? Það veit enginn hvað hann
er að gera. Þú getur velt fyrir þér
Samkeppnisstofnun. Hvað eru
margir starfsmenn þar? Svo getur
þú velt fyrir þér stofnun eins og
Fjármálaeftirlitinu. Seðlabankinn
hefur þanist út án þess að maður
viti til hvers.“
n Fjáraustur í tengslum við ESB
„Þó að einhverjir segi að það fari
ekki mikið fjármagn í aðildarvið-
ræðurnar þá má ekki gleyma því
að stofnanir og ráðuneytin verða
að leggja fram starfsmenn sína til
verkefna í tengslum við þær. Þeir
geta ekki sinnt öðrum verkefnum á
meðan.“
n Stofnana- og
höfuðborgarvæðing
„Og hvernig verður þetta þegar við
erum komin inn í ESB? Þá þurfum
við nú heldur betur stórar opinber-
ar stofnanir. Þetta er mikil stofn-
anavæðing og mikil höfuðborgar-
væðing sem núna er í gangi. Það er
verið að sanka allri starfsemi; heil-
brigðisþjónustu, löggæslu og öllu
dæminu inn á höfuðborgarsvæð-
ið.“
Sameina sýslumannsembætti
Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Sam-
fylkingar
n Sameina háskóla
„Það má sameina háskóla, bæði
landbúnaðarháskólana og þá
einkareknu. Ríkið á ekki að halda
úti fjölda háskóla með beinum og
óbeinum hætti. Þar má hagræða
um hundruð milljóna króna á ári.“
n Búvöruframleiðsla
„Síðan má nefna það, að bein-
greiðslur vegna búvöruframleiðslu
nema á þessu ári um 12 milljörðum
króna, og hafa verið verðbættar frá
efnahagsáföllum. Á meðan hefur
margt annað mátt þola niðurskurð.
Þetta fyrirkomulag á að endur-
skoða með nýju, hagstæðara fyrir-
komulagi.“
n Sýslumannsembættin
„Sýslumannsembættin á landinu
eru að mig minnir 24. Við kæm-
umst að hluta af án þeirra. Þar má
sameina og hagræða.“
n Sameining
„Neytendastofu og talsmann neyt-
enda á að sameina. Landgræðsl-
una og Skógræktina á svo að leggja
af í núverandi mynd og sameina.“
n Þingmenn leita leiða til að hlífa grunnþjónustunni með niðurskurði annars staðar
Baldur Eiríksson
blaðamaður skrifar baldure@dv.is
Ný Hobby hjólhýsi
Til sýnis og sölu - getum afgreitt strax!
HOBBY 540 ufe excellent.
Hjónarúm, stór ísskápur, setustofa. Nýtt 2012.
Verð 3.630.000.-
HOBBY 560 kmfe excellent.
Stór ísskápur, hjónarúm, 2 kojur, setustofa
Nýtt 2012. Verð 3.890.000.-
Upplýsingar gefur Bóas í síma 777 5007, netfang: b1@b1.is
B1.is - Fagradalsbraut 25 - 700 Egilsstaðir -
HOBBY 560 ul premium.
Tvö rúm sem hægt er að gera að einu
stóru, stór ísskápur, setustofa.
Nýtt 2012.
Verð 4.530.000.-
B1.is - Fagradalsbraut 25 - 700 Egilsstaðir
og fleira.
Ný Hobby hjólhýsiAllar gerðir af nýjum Hobby-Hjólhýsum á frábæru verði