Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Side 20
AfskriftAkóngAr ÍslAnds
20 Fréttir 6.–8. júlí 2012 Helgarblað
A
fskriftir til íslenskra auð-
manna sem voru áberandi
og fyrirferðarmiklir í ís-
lensku viðskiptalífi bæði
fyrir og eftir hrun nema á
fimmta hundrað milljarða króna.
Afskriftirnar eru svo miklar að hægt
væri að reka íslenska ríkið um nokk-
uð langt skeið fyrir upphæðina.
Afskriftirnar eru flestar vegna mis-
heppnaðra fjárfestinga í gegnum
eignarhaldsfélög sem hafa aðeins
búið yfir verðlitlum eignum. Ein-
hver dæmi eru þó um að samið hafi
verið um skuldirnar og að eitthvað
hafi fengist upp í þær. Allir þeir sem
komast á lista DV yfir afskriftakónga
landsins eru þrátt fyrir allt vel settir
í dag þegar kemur að peningum og
eignum.
Björgólfur á toppnum
Persónulegt gjaldþrot Björgólfs Guð-
mundssonar kemur honum í efsta
sætið yfir þá sem hafa fengið mest
afskrifað. Karl Wernersson, fyrr-
verandi eigandi Milestone og fleiri
félaga, er hins vegar í efsta sætinu
ef litið er til þeirra sem enn standa
þrátt fyrir milljarða afskriftir. Útlit er
fyrir allt að 90 milljarða afskriftir hjá
félögum tengdum Karli en enn er
ekki búið að ljúka skiptum á Mile-
stone. Ólafur Ólafsson er svo í þriðja
sætinu með 64 milljarða króna af-
skriftir í gegnum samning sem hann
gerði um skuldauppgjör félaga sem
honum tengdust. Ólafur var einn
þeirra sem leiddi S-hópinn svokall-
aða sem keypti Búnaðarbankann
af ríkinu þegar ríkisbankarnir voru
einkavæddir. Eins og flestir vita
sameinaðist bankinn síðar Kaup-
þingi og varð að hinum gríðarstóra
alþjóðlega banka sem Hreiðar Már
Sigurðsson og Sigurður Einarsson
stjórnuðu.
Aðrir auðmenn hafa þó fengið
meira afskrifað en venjulegir Ís-
lendingar geta átt von á að eignast á
ævi sinni. Meðal annarra er Jón Ás-
geir Jóhannesson sem fékk 30 millj-
arða afskrifaða hjá eignarhaldsfélagi
sem hann og faðir hans, Jóhannes
Jónsson, áttu. Sjálfir hafa þeir feðgar
haldið því fram að þeir hefðu geta
borgað allar sínar skuldir til baka
hefðu þeir fengið að halda fyrirtækj-
um sínum. Það eru einmitt ein verð-
mætustu fyrirtæki landsins og er
reiknað með að sala á Iceland í Bret-
landi komi til með að standa undir
stórum hluta Icesave-skuldarinnar.
Afskriftirnar lenda
á útlendingum
Þegar skuldir eru afskrifaðar
hverfa þær hins vegar ekki nema
úr skuldabókum sem til þeirra
n Björgólfur og Karl Wernersson hafa fengið mest afskrifað n Hátt í fimm hundruð milljarðar afskrifaðir eftir hrunið
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
1 Björgólfur GuðmundssonAfskriftir: 96 milljarðar
Fyrrverandi
aðaleigandi og
stjórnarformaður
Landsbankans, gaf
bú sitt upp til gjald-
þrotaskipta sumarið
2009 tæpu ári eftir
fall Landsbankans.
Persónulegar skuldir
Björgólfs námu þá
96 milljörðum króna.
Þetta er stærsta gjaldþrot einstaklings í
Íslandssögunni. Fyrir hrun átti Björgólfur
meðal annars Eimskip, fótboltaliðið West
Ham og Morgunblaðið.
Samkvæmt síðustu upplýsingum DV býr
Björgólfur í Laugarneshverfinu í Reykjavík,
í húsi sem skráð er eiginkonu hans en ekki
hann persónulega, og hefur sést keyra um
götur bæjarins á Benz-jeppa sem einnig er
í eigu konu hans. Björgólfur lætur lítið fyrir
sér fara, lifir hæglátu lífi og sést stundum
ganga um hverfið með hund þeirra hjóna í
bandi. Björgólfur hefur ekki gerst líklegur
til að stunda fjárfestingar hér á landi eftir
hrun og er afar ólíklegt að hann verði aftur
þátttakandi í íslensku viðskiptalífi.
2 Karl WernerssonAfskriftir: 90 milljarðar
Karl Wernersson,
fjárfestir og fyrr-
verandi aðaleigendi
eignarhaldsfélags-
ins Milestone sem
úrskurðað var gjald-
þrota eftir hrunið
árið 2009, hefur
fengið hið minnsta
um nítján þúsund
milljónir króna
afskrifaðar, í gegnum eignarhaldsfélög sín.
Þannig hefur SJ Eignarhaldsfélag, sem áður
hét Sjóvá og var í eigu eignarhaldsfélagsins
Milestone, afskrifað um nítján þúsund
milljóna króna kröfur sem félagið átti á
hendur Milestone og dótturfélaga eins og
Vafnings. Skiptum á þrotabúi Milestone er
ekki lokið en reiknað er með að kröfuhafar
fái einungis nokkur prósent, í mesta lagi,
upp í 90 milljarða króna kröfur á hendur
félaginu. Síðasti skiptafundur Milestone var
18. júní en á næstu vikum kemur í ljós hvað
fæst upp í skuldir.
Karl hefur það gott þrátt fyrir að hafa
misst stóran hluta af eigum sínum. Karl er
til að mynda forstjóri og eigandi Lyfja og
heilsu sem gengur vel, en það er stærsta
keðja lyfjabúða hér á landi og telur 63 búðir
undir merkjum Lyfja og heilsu og Apótek-
arans. Þá býr hann í glæsilegu einbýlishúsi
í Engihlíð og heldur eftir hestabúgarðinum
Feti í nágrenni við Hellu, auk nokkurra
lúxusbifreiða.
Þar að auki á Karl víngarð og ræktar ólífur
á Ítalíu en hann á meðal annars þriggja
hæða sumarhöll í Luca í Toskana-héraði á
Ítalíu, þar sem glæsibifreiðar voru hýstar í
kjallaranum fyrir hrun. Húsið keypti Karl á
sex milljónir evra þegar góðærið stóð sem
hæst. Samkvæmt álagningu árið 2010
námu eignir Karls umfram skuldir tæpum 1,1
milljarði króna.
3 Ólafur Ólafsson Afskriftir: 64 milljarðar
Ólafur, sem oftast er kenndur við S-hópinn
og Samskip,
hefur fengið um
64 milljarða króna
afskrifaða hjá
félögum í sinni eigu.
Skuldir Kjalars hafa
til að mynda verið
nánast afskrifaðar
að fullu. Þrátt fyrir
skuldirnar er Ólafur
stóreignamaður
í dag en hann fékk að halda yfirráðum í
Samskipum með samkomulagi á milli hans
og Arion banka.
4 Magnús Kristinsson Afskriftir: 50 milljarðar
Útgerðarmaðurinn
og fyrrverandi
þyrlueigandinn
Magnús Kristins-
son fékk stóran
hluta tæplega 50
milljarða skulda
eignarhaldsfélags
síns afskrifaðan.
Hann samdi um
skuldir sínar við
skilanefnd Landsbankans. Þrátt fyrir það
hélt Magnús eftir kvótanum sínum, enda
var hann ekki persónulega ábyrgur fyrir
skuldunum. Hann stendur þó ekki lengur
í því að fljúga á milli lands og Eyja í einka-
þyrlunni sinni sem hann keypti fyrir hrun og
var seld úr landi árið 2010.
5 Jón Ásgeir Jóhannesson Afskriftir: 30 milljarðar
Félagið 1998 gat
ekki staðið í skilum
á skuldum sínum
þegar það var tekið
til gjaldþrotaskipta
eftir hrun. Afskrifa
þurfti 30 milljarða
króna. Félagið hélt
utan um eignarhlut
Jóns Ásgeirs og
fjölskyldu hans
í mörgum verðmætustu fyrirtækjum
landsins. Þrátt fyrir afskriftir, gjaldþrota
fyrirtæki og kyrrsetningu eigna er Jón
Ásgeir þokkalega vel settur. Hann ekur um
á glæsibílum og býr ásamt eiginkonu sinni,
Ingibjörgu Pálmadóttur, í einu dýrasta og
flottasta hverfi borgarinnar.
6 Magnús Þorsteinsson Afskriftir: 25 milljarðar
Magnús varð þjóð-
kunnur þegar hann
keypti kjölfestuhlut
í Landsbankanum
ásamt Björgólfi
Guðmundssyni og
syni hans, Björgólfi
Thor Björgólfssyni,
árið 2002. Þremenn-
ingarnir mynduðu
Samson-hópinn
svokallaða. Þeir ráku saman bruggverk-
smiðjuna Bravo í Rússlandi sem þeir seldu
síðan til Heineken fyrir um 400 milljónir
dollara árið 2002.
Magnús var úrskurðaður gjaldþrota árið
2009 og hefur skiptastjóri bús hans unnið
að því gera bú hans upp. Fjárfestirinn er
búsettur í Rússlandi um þessar mundir en
bjó áður á Akureyri. Kröfur upp á ríflega 25
milljarða króna hafa borist í þrotabú hans.
Reikna má með að afskrifa þurfi stóran
hluta af þessum skuldum.
7 Guðmundur Kristjánsson Afskriftir: 20 milljarðar
Guðmundur, oft
kenndur við Brim,
hefur fengið tuttugu
þúsund milljónir
króna, hið minnsta,
afskrifaðar af
skuldum sínum við
nýja Landsbankann.
Þrátt fyrir þetta hélt
hann áfram þeim
hlutabréfum sem
hann átti í vinnslustöðinni í Vestmannaeyj-
um. Nýlegar fréttir af Guðmundi eru þær að
hann fékk stóran hluta af þeim 850 milljóna
króna arðgreiðslum sem Vinnslustöðin í
Vestmannaeyjum greiddi nýlega út, eða
sama dag og rúmlega 40 starfsmönnum
fyrirtækisins var sagt upp störfum. Guð-
mundur fékk arðinn greiddan í gegnum fé-
lagið Silla útgerð. Félagið á fjórðungshlut í
Vinnslustöðinni en Guðmundur á fyrirtækið
með föður sínum, Kristjáni Guðmundssyni.
Einfalt reikningsdæmi leiðir í ljós að þeir hafi
fengið um 212 milljónir greiddar í arð.
DV hefur áður fjallað um milljarða
afskriftir á skuldum Guðmundar í Brimi.
Þannig fékk hann, í gegnum félagið Hafnar-
hól, fimm þúsund milljóna króna lán hjá
Landsbankanum í desember 2006, til að
kaupa 4,2 prósenta hlut í fjárfestingabank-
anum Straumi-Burðarási. Þegar félagið
Hafnarhóll var síðan lýst gjaldþrota árið
2010 fundust engar eignir í félaginu upp í
skuldir sem voru þá komnar í 9,5 milljarða
króna. „Þetta voru bankabréf, keypt í
banka, fjármögnuð af banka og geymd
í banka,“ sagði Guðmundur í samtali við
Morgunblaðið í desember árið 2010 um
félagið Hafnarhól. „Þetta var keypt froða
og lánuð froða, og svo bara hvarf froðan,“
bætti hann við. Guðmundur virðist því ekki
hafa haft mikla trú á Straumi-Burðarási þar
sem hann sat í stjórn frá því í mars 2007 og
þar til bankinn var yfirtekinn af Fjármála-
eftirlitinu í mars 2009.
8 Finnur Ingólfsson Afskriftir: 18 milljarðar
Félög sem hafa að
hluta verið í eigu
Finns Ingólfssonar
hafa fengið um 18
milljarða króna skuld
irafskrifaðar eftir að
hafa verið keyrðar
í þrot. Bæði félögin
hafa verið tekin til
gjaldþrotaskipta.
Önnur félög í eigu
Finns hafa hins vegar skilað myljandi hagn-
aði frá hruni og er Finnur þrátt fyrir allt einn
af auðmönnum nýja Íslands.
9 Nóatúnssystkinin Afskriftir: 12 milljarðar
Jón Þorsteinn Jónsson, Einar Örn Jónsson,
Júlíus Þór Jónsson og Rut Jónsdóttir, eða
Nóatúnssystkinin eins og þau eru kölluð,
fengu 12 milljarða afskrifaða vegna fast-
eignafélags sem þau áttu sameiginlega.
Félagið skuldaði 15 milljarða króna og að-
eins þrír milljarðar fengust upp í kröfurnar.
Það þýðir þó ekki að þau séu illa stödd enda
fengu þau að halda eftir stórhýsinu sem
Nóatúnsverslanirnar eru kenndar við og
verslunarhúsnæði í Hamraborg í Kópavogi
sem hýsir verslun Nóatúns í dag.
10 Sundararnir Afskriftir: 9 milljarðar
Kröfuhafar Eignarhaldsfélagsins Sævar-
höfða og Fasteignafélagsins Sævarhöfða
þurfa að afskrifa samtals um níu þúsund
milljónir króna af kröfum sínum í gjaldþrota
bú eignarhaldsfélaganna tveggja. Félögin
voru í eigu Gunnþórunnar Jónsdóttur, eftir-
lifandi eiginkonu Óla Kr. Sigurðssonar í Olís,
sonar hennar Jóns Kristjánssonar, Páls Þórs
Magnússonar og Kristins Þórs Geirssonar.
Þau áttu og ráku fjárfestingarfélag sem
kallað var Sund á árunum fyrir hrunið 2008.
Félög sem tengdust Sundurunum svoköll-
uðu, voru afar stórtæk í fjárfestingum á
Íslandi á árunum fyrir hrun og skulduðu fleiri
tugi milljarða króna í íslensku bönkunum.
Eins og DV hefur greint frá voru rúmar fjögur
hundruð milljónir króna útistandandi hjá
eignarhaldsfélagi Sundaranna út af kaupun-
um á Harley Davidson-umboðinu árið 2007.
Þetta þýðir að kaupverðið á Harley-umboð-
inu var aldrei greitt, að það sé ennþá ógreitt
og fáist aldrei greitt sökum þess að ekkert
fékkst upp í kröfurnar hjá Eignarhalds-
félaginu Sævarhöfða.
11 Róbert Guðfinnsson Afskriftir: 6,4 milljarðar
Róbert var
framkvæmdastjóri
útgerðarfyrirtæk-
isins Þormóðs
ramma á Siglufirði
á tíunda áratug
síðustu aldar og
var einn af þekktari
kaupsýslumönnum
landsins. Á árunum
fyrir hrunið fór
Róbert í útrás til Suður-Ameríku í gegnum
einkahlutafélagið Leitar ehf. Félagið sló
meðal annars lán hjá Glitni upp á rúmar þrjú
þúsund milljónir króna án sérstakra veða,
fyrir kaupum á danska eignarhaldsfélaginu
Atlantis Group Holding ApS, en það átti
og rak fiskeldisfyrirtæki í Mexíkó og Chile.
Þegar Glitnir banki tók síðar yfir Leitar ehf. í
kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi kom í ljós
að virði undirliggjandi eigna var óverulegt.
Heildatap Leitar nam nærri 6,4 milljörð-
um króna árið 2008 og námu skuldir
„Er ekki
í lagi
heima hjá þér?
Þau sluppu undan lánum
Taka á sig tap Afskriftir er í raun ekkert annað en tap lánastofnana. Erlendir kröfuhafar
hafa beðið mest tjón af afskriftum íslenskra auðmanna.