Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Side 22
Engar eignir fundust í búi félagsins upp
í þessar kröfur sem námu samtals 647,7
milljónum króna. „Engar eignir fundust í
búinu,“ segir í Lögbirtingablaðinu. Eggert
er fyrrverandi formaður Knattspyrnusam-
bands Íslands (KSÍ) og fyrrverandi stjórnar-
formaður knattspyrnufélagsins West Ham.
Hann var einnig forstjóri kexverksmiðjunnar
Fróns á sínum tíma. Eggert var stjórnarfor-
maður og einn af hluthöfum West Ham eftir
að Björgólfur Guðmundsson, aðaleigandi
Landsbankans, keypti félagið árið 2006.
18 Guðjón Már Guðjónsson Afskriftir: 590 milljónir
Eignarhaldsfélag
í eigu Guðjóns
Más, sem yfirleitt
er kenndur við
hugbúnaðarfyrir-
tækið OZ, skilur eftir
sig tæplega 600
milljóna skuldir sem
ekkert fæst upp í.
Félagið heitir 7 jarðir
ehf. og hélt utan um
fasteign á Skálholtsstíg 7. Guðjón segist
halda fasteigninni þó eignarhaldsfélagið
sé farið í þrot. Arion banki var eini kröfuhafi
eignarhaldsfélagsins. Bankinn hefur nú
afskrifað þessa 593 milljóna króna skuld
Guðjóns í OZ. Orðið sem Guðjón notar til
að lýsa láninu er að það hafi verið „ónýtt“.
Húsið á Skálholtsstíg er tæpir 500 fermetrar
að stærð og er fasteignamat þess tæpar 80
milljónir. Guðjón hefur átt húsið í gegnum
ýmis félög allt frá árinu 1998.
Björgólfur Thor Björgólfsson
Afskriftir: Óvíst
Björgólfiur náði
samningum um
stærstu skuldir sínar
við lánardrottna
fljótlega eftir hrun.
Samningarnir fólu
meðal annars í sér að
hann fékk að halda
flestum eignum sín-
um en hann þurfti að
selja lyfjafyrirtækið
Actavis upp í skuldir. Hagnaður af fyrirtækj-
um hans hefur þá runnið að einhverju leyti
upp í skuldirnar. Ekki er að sjá að Björgólfur
hafi sjálfur eða í gegnum eignarhaldsfélög
fengið afskrifað og hefur hann sjálfur haldið
því fram í yfirlýsingum til fjölmiðla að allar
hans skuldir verði gerðar upp. Hann tengist
þó fyrirtækjum sem hafa fengið afskrifað
með ýmsum hætti. Actavis fékk meðal
annars tugi milljarða afskrifaða á meðan
hann var enn eigandi félagsins. Það er þó
ekki hægt að skrifa það beint á hann.
Björgólfur Thor var og er einn af umsvifa-
mestu fjárfestum landsins. Hann er með
umsvif um allan heim en hann hagnaðist
eins og frægt er orðið með föður sínum
í Rússlandi. Hann mætti svo til landsins
ásamt viðskiptafélögum sínum og keypti
Landsbankann þegar hann var einkavædd-
ur. Þá fór hann að sanka að sér hinum ýmsu
fyrirtækjum. Skuldir Björgólfs voru eins og
eignirnar gríðarlega miklar. Þegar fyrst var
greint frá skuldauppgjöri hans var á sama
tíma greint frá því að hann skuldaði sem
nam tvöföldum fjárlögum íslenska ríkisins.
Björgólfur er einn af auðmönnum nýja
Íslands og ekki stefnir í annað en að hann
verði fyrirferðarmikill í viðskiptalífinu á
næstu árum.
Gylfi og Gunnar
Afskriftir: Óvíst
Eigendur verktakafyrirtækisins Byggs,
Gunnar Þorláksson og Gylfi Héðinsson, eiga
hluti í eignarhaldsfélögum sem skilja eftir
sig skuldir upp á 58 þúsund milljónir króna.
Samanlagðar heildarskuldir eignarhalds-
félaga í eigu Byggs og helsta viðskiptafé-
laga þeirra, eignarhaldsfélagsins Saxhóls,
fjárfestingafélags Nótatúnsfjölskyldunnar,
nema um 130 þúsund milljónum króna.
Áætlaðar endurheimtur af þessum skuldum
eru ekki meiri en þrjátíu þúsund milljónir
króna hið mesta. Því er um að ræða af-
skriftir sem nema um 100 þúsund milljónum
króna í heildina. Þrátt fyrir þetta þá halda
eigendur Byggs eftir verðmætum fasteign-
um. Þá eiga Gunnar og Gylfi verðmætar
eignir persónulega sem þeir halda þrátt fyrir
tugmilljarða króna skuldir í bankakerfinu.
Gunnar býr til að mynda í 500 fermetra
einbýlishúsi í Hólmaþingi í Kópavogi. n
22 Fréttir 6.–8. júlí 2012 Helgarblað
félagsins við Glitni nokkurn veginn sömu
upphæð. Í ársreikningi Leitar ehf. fyrir árið
2009, eftir að Glitnir hafði yfirtekið félagið,
var síðan búið að færa þessar skuldir við
Glitni niður í núll krónur.
Þrátt fyrir þetta hefur Róbert verið
stórtækur síðustu ár. Hann hefur unnið að
því að byggja upp ferðamennsku á Siglufirði
í gegnum fyrirtækið Rauðku ehf. Róbert
hefur gert upp hús í bænum og lappað upp
á umhverfið á Siglufirði þannig að eftir hefur
verið tekið. Hann hefur meðal annars opnað
kaffihús, veitingastað og gallerí í bænum.
Róbert hefur sömuleiðis verið að leita eftir
fjárfestingartækifærum í Reykjavík og
nágrenni, meðal annars á sviði fasteigna,
samkvæmt heimildum DV.
12 SteinþórJónsson Afskriftir: 4 milljarðar
Steinþór Jónsson,
fyrrverandi stjórnar-
maður í SpKef hefur
undanfarið verið
mikið í umfjöllun
fjölmiðla vegna
óreiðunnar sem
ríkti í sparisjóðnum.
Steinþór var annar
eiganda Bergsins
ehf. en kröfuhafar
félagsins – þar á meðal Sparisjóðurinn í
Keflavík sem var á meðal helstu kröfuhafa –
hafa afskrifað tæplega 3,8 milljarða króna
vegna lánveitinga til félagsins. Fleiri fyrir-
tæki tengd Steinþóri hafa að undanförnu
fengið milljarða afskrifaða. Þar má nefna
eignarhaldsfélagið Blikavelli 3 sem tekið var
til gjaldþrotaskipta í febrúar síðastliðnum,
en 280 milljóna skuldir þess félags hafa
verið afskrifaðar.
Steinþór heldur ótrauður áfram þrátt
fyrir þessi áföll, en einkahlutafélagið South
Properties, sem er að stórum hluta til í hans
eigu, eignaðist í upphafi mánaðar tvær
íbúðarblokkir í Innri-Njarðvík. Kaupin voru
fjármögnuð með lánum. „Það eru sumir sem
hafa trú á Suðurnesjum,“ sagði Steinþór í
samtali við DV á dögunum, þegar hann var
spurður út í blokkakaupin. Steinþór sagði í
samtali við DV að markmiðið væri að gera
blokkirnar upp og selja þær svo aftur.
Bergið keypti hlutabréf í Sparisjóða-
banka Íslands síðla árs 2007 fyrir rúmlega
fjóra milljarða króna. Um var að ræða 9,5
prósenta hlut í bankanum og varð Bergið
í kjölfarið einn stærsti hluthafi bankans.
Lánin til að kaupa hlutabréfin í Sparisjóða-
bankanum komu frá bankanum sjálfum og
frá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis og
Sparisjóðnum í Keflavík en Steinþór, einn
af eigendum Bergsins, var varaformaður
bankaráðs hans á þessum tíma.
13 Pétur Guðmundsson Afskriftir: 3 milljarðar
Á svipuðum tíma og kröfuhafar
eignarhaldsfélags í eigu Péturs Guðmunds-
sonar þurftu að afskrifa um þrjú þúsund
milljónir króna vegna skuldar sem ekkert
fékkst upp í hjá fyrirtækinu lauk byggingu
áttatíu milljóna króna sumarbústaðar
Péturs. Bústaður Péturs er sannkallað
glæsihýsi og gnæfir yfir aðra bústaði í
Grímsnes- og Grafningshreppi. Úr bústaðn-
um er óhindrað útsýni yfir Hvítá og er hann
byggður þannig að útsýni er úr mörgum
herbergjum yfir ána. Glerveggur er á einni
hlið hússins, þeirri er snýr að Hvítá. Stór
verönd, þar sem meðal annars er setlaug
og myndarlegt grill, snýr einnig þannig
að útsýni er yfir ána. „Er ekki í lagi heima
hjá þér?“ spurði Pétur þegar blaðamaður
leitaði eftir upplýsingum um sumarhúsið.
DV greindi frá því í vor að kröfuhafar
tveggja eignarhaldsfélaga í eigu móður-
félags verktakafyrirtækisins Eyktar hafi af-
skrifað samtals þrjú þúsund milljónir króna
af skuldum félaganna. Eigandi Eyktar er
eignarhaldsfélagið Holtasel en eigandi þess
er Pétur Guðmundsson. Milljónirnar 3.000
bætast við afskriftir hjá öðrum eignarhalds-
félögum sem tengjast Eykt, meðal annars
eignarhaldsfélaginu Höfðatorgi og Bleiks-
stöðum. Í árslok í fyrra var greint frá því að
kröfuhafar Höfðatorgs, eignarhaldsfélags-
ins sem byggði og átti turninn í Borgartúni
að öllu leyti, hefðu þurft að afskrifa um
fimmtán þúsund milljónir króna af skuldum
félagsins. Átján þúsund milljónir af skuldum
félagsins hafa þannig þegar verið afskrif-
aðar. Miðað við stöðu annarra félaga sem
tengjast Eykt ættu afskriftir vegna þeirra að
nema vel á fjórða tug milljarða króna þegar
yfir lýkur.
14 Katrín Pétursdóttir Afskriftir: 2,5 milljarðar
Katrín Pétursdóttir,
forstjóri Lýsis,
stóð í miklum
framkvæmdum á
landareign sinni í
Fljótshlíðinni í fyrra-
sumar. Á jörð sinni,
Velli 1, hefur Katrín
verið að byggja
reiðhöll en þar er nú
þegar rekið hrossa-
ræktarbú. Á landareigninni er þegar eitt
hesthús, lítil reiðhöll og íbúðarhús ásamt
litlum skúr. Heimildir DV herma að Katrín
og fjölskylda hyggist nota reiðhöllina
til einkanota og til að sinna sínu helsta
áhugamáli – hestamennskunni. Katrín á
aðra landareign í nágrenninu, Þórunúp.
Ljóst er að þrátt fyrir mikla skuldasöfnun
og persónulegar ábyrgðir er Katrín ekki illa
stödd fjárhagslega.
Katrín var í persónulegum ábyrgðum
fyrir um milljarði króna vegna lána sem
eignarhaldsfélag hennar, Hnotskurn, fékk
hjá Glitni árið fyrir hrun. Félagið skuldaði
2.800 milljóna króna í lok árs 2007, en á
sama tíma námu eignirnar ekki nema 244
milljónum í fasteignum og lóðum. Eins og
DV hefur greint frá mun Katrínu hafa tekist
að semja um afskriftir á skuldum sínum
við Glitni. Af þessu má ljóst vera að Katrín
og fyrirtæki hennar hafi fengið um 2.500
milljónir afskrifaðar. Katrín hefur setið í
stjórnum fjölda fyrirtækja og situr ennþá í
mörgum þeirra. Hún var meðal annars með-
stjórnandi í stjórn FL Group, í stjórn Glitnis
allt til ársins 2008, og í Bakkavör Group til
ársins 2011. Hún á og rekur einkahlutafyrir-
tæki eins og Þórunúp, Hex og Bol. Óljóst er
hvort og þá hvaða fyrirtæki í hennar eigu
kemur að framkvæmdunum við reiðhöllina.
15 Bjarni Ármannsson Afskriftir: 800 milljónir
Bjarni komst að
samkomulagi við
skilanefnd bankans
sem hann stjórnaði
um afskriftir á rúm-
lega 800 milljóna
króna skuldum
eignarhaldsfélags
í sinni eigu. Bjarni
hefur síðan komið
sér vel fyrir og heldur
áfram að græða milljónir á fyrirtækjum og
eignarhaldsfélögum sínum.
16 Björn Ingi Hrafnsson Afskriftir: 730 milljónir
Útgefandi og ritstjóri
Pressunnar var einn
þeirra fjölmiðla-
manna sem nefndir
voru sérstaklega í
rannsóknarskýrslu
Alþingis vegna
gífurlega lána sem
hann fékk hjá bönk-
unum. Eignarhalds-
félag hans, Caramba
- hugmyndir og orð ehf., fékk slíkt lán en
það endaði í þroti eftir að hafa vanrækt
að skila ársreikningum í nokkur ár. Afskrifa
þurfti um 730 milljónir króna hjá félaginu
og fengust aðeins 2,2 milljónir króna upp
í skuldir þess. Björn Ingi er þó ennþá einn
aðaleigandi Vefpressunnar, sem á og rekur
nokkra frétta- og afþreyingarvefi. Caramba
fjárfesti í fyrirtækjum sem tengdust Kaup-
þingi og eigendum þess og sýna kröfulýs-
ingarnar í búið að það var bankinn sjálfur
sem fjármagnaði þessi viðskipti Björns Inga.
Caramba keypti meðal annars hlutabréf í
Kaupþingi, Exista, Bakkavör og SPRON.
17 Eggert Magnússon Afskriftir: 650 milljónir
Kröfuhafar
eignarhaldsfélags
í eigu Eggerts
Magnússonar hafa
afskrifað tæplega
650 milljóna króna
skuldir hjá félaginu.
Félagið heitir Kex
ehf. og var tekið til
gjaldþrotaskipta
í janúar og lauk
skiptum á búi þess þann 4. maí síðastliðinn.
Lúxushús Pétur Guðmundsson, oft kenndur við Eykt, fékk lúxus-sumarhúsið sitt afhent stuttu eftir að afskrifa þurfti milljarða skuldir.
Hvað væri hægt að gera við peningana?
n Átján aðilar fengu 434 milljarða afskrifaða
Löggæsla í 124 ár
Hægt væri að reka lögregluembættið á höfuðborgarsvæðinu í 124 ár miðað við þær
afskriftir sem auðmenn landsins hafa fengið. Samkvæmt fjárlögum ársins 2012 er gert
ráð fyrir að rekstur embættisins kosti um 3,5 milljarða króna, en það er minna en margir
auðmenn hafa fengið afskrifað af skuldum félaga tengdum sér. Í raun væri nóg að taka
afskriftir Steinþórs Jónssonar til rekstur embættisins.
Milljónir hamborgara
Ef allar afskriftir auðmanna sem taldar eru upp í lista DV væru notaðar til að kaupa stóra
Heimsborgaratilboðið á skyndibitastaðnum Metro væri hægt að kaupa 288.639.093
máltíðir. Það jafnast á við að hver Íslendingur myndi nýta sér um það bil 920 ham-
borgaratilboð.