Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Page 34
34 Viðtal 6.–8. júlí 2012 Helgarblað
með ríkisborgararétt og útlendingar
mega ekki kaupa íbúðir hér á landi.
Fólk sem flytur hingað á alveg jafn
mikla möguleika og Íslendingar á að
byggja upp líf sitt hér,“ segir Amal.
„Ef innflytjandi lærir eitt íslenskt
orð á dag, þá talar hann íslensku
eftir fimm ár,“ staðhæfir Amal. Það
átti við um hana sjálfa. Eftir fimm
ár hafði hún náð tökum á íslensk-
unni. „Það tók mig fimm ár að læra
íslenskuna nógu vel til að geta farið
í háskólann. Þar fór ég í félagsfræði
og þá fann ég baráttukonuna í mér
aftur. Ég hafði verið virk í kvenna-
baráttu í Palestínu og ég fann sjálfs-
traustið vaxa. Ég tók félagsfræðina
á þremur árum og útskrifaðist árið
2004. Þá fékk ég starf sem fræðslu-
fulltrúi, ráðgjafi og túlkur hjá Al-
þjóðahúsinu,“ segir Amal.
Í skuld við íslenskt samfélag
Árið 2008 markaði tímamót hjá
Amal. Þá fékk hún samþykkta tillögu
að fyrstu framkvæmda áætlun stjórn-
valda í málefnum innflytjenda og
varð fyrsti innflytjandinn sem stýrði
fundum innflytjendaráðs, en í ráð-
inu sátu fulltrúar félags- og trygg-
inga mála ráðuneytis, heilbrigðis-
ráðuneytis, menntamála ráðu neytis,
dóms- og kirkju mála ráðu neytis og
Sam bands íslenskra sveitarfélaga
auk fulltrúa innflytjenda. Þá stofn-
aði hún Jafnréttishús 2008 sem hefur
það hlutverk að aðstoða innflytjend-
ur við aðlögun að íslensku samfé-
lagi og stuðla að virkum samskiptum
milli Íslendinga og innflytjenda. Það
er gert með því að vera með íslensku
og lífsleiknikennslu, samfélagsnám-
skeið og ýmsa viðburði, einnig ráð-
gjöf og túlkaþjónustu.
„Mér fannst ég skulda íslensku
samfélagi. Ég vissi hvað skipti mig
máli og hvað varð til þess að gera líf
mitt og barnanna farsælt. Það sem
skiptir mestu máli er hversu mikið
Íslendingar hafa verið til í að spjalla
við okkur og blanda við okkur geði.
Ég tel ýmislegt hafa breyst í íslensku
samfélagi sem gerir að verkum að
út lend ingar eru einangraðri en áður
og samlagast því ekki eins vel. Nú
er vinna fyrir útlendinga og það er
vinna fyrir Íslendinga.
Þú þarft að tala við fólk til þess
að fá tengingu við samfélagið. Þá
verður líka að vera íslenskukennsla
á vinnustað. Á vinnutíma. Þetta er
mjög mikilvægt, fólk af erlendum
uppruna er með lægri laun en Ís-
lendingar en þarf samt að lifa af í
samfélaginu, vinnudagar þess eru
því oft langir. Þeir fá oft ekki tæki-
færi til þess að læra íslensku nema
á vinnutíma.
Því miður eru fáir atvinnurek-
endur sem taka þessa samfélags-
legu ábyrgð. Í fyrirtækjum er oft
töluð enska og lítið lagt upp úr sam-
skiptum á íslensku. Það finnst mér
léleg framkoma. Margir stjórnendur
verða hreinlega pirraðir á því að það
sé ætlast til þess að þeir beri ábyrgð
hvað þetta varðar.“
Hún tekur fram að nokkur fyr-
irtæki sýni góða viðleitni í þessum
efnum. „Eitt af því er ISS ræstinga-
fyrirtækið sem leggur mikið upp úr
því að kenna starfsmönnum sínum
íslensku. Það skilar sér í betri vinnu-
stað og betra samfélagi. Ávinningur-
inn er allra,“ segir hún ákveðin í fasi.
Konur leita betra lífs
Jafnréttishús er í samstarfi við sjö
stofnanir; í Bretlandi, Tékklandi, á
Grikklandi, Ítalíu og Kýpur í verkefni
til tveggja ára sem heitir „Woman
Understanding Woman“, eða kon-
ur sem skilja konur. „Okkur tókst að
færa saman konur úr mismunandi
umhverfi. Það er merkilegt,“ segir
Amal sem telur að konur gegni lykil-
hlutverki í samfélaginu. Þær aðlagist
frekar breytingum og þeim sé eðlis-
lægt að leita betra lífs. „Verkefnið
hófst árið 2010 og hefur fært saman
konur úr mismunandi umhverfi til
að greina málefni kvenna og deila
skoðunum sínum og reynslu.“
Vill fimm sæti á þingi
Amal varð í nóvember í fyrra fyrsta
konan af erlendum uppruna til að
taka sæti á Alþingi. Hún segist hafa
verið fremur stressuð í fyrstu og
hugsað mikið um hvaða þekkingu
hún þyrfti að tileinka sér.
„Þetta var frábær reynsla. Í síð-
ustu kosningum bauð ég mig fram
og gerði það meira til gamans. Ég
var á þingi í einn mánuð og lærði
mikið á þeim stutta tíma. Ég get sagt
frá því að burtséð frá því hverju Ís-
lendingar trúa, þá vinna þingmenn
og ráðherrar sleitulaust. Sitja á
nefndarfundum sem hefjast klukk-
an átta á morgnana og þurfa meira
að segja að skrá sig inn til vinnu
með stimpilklukku. Þetta kom mér
á óvart, ég hélt að þetta væri frjáls-
legra vinnufyrirkomulag. Þing-
menn réðu sér sjálfir og væru meira
svona: Hæ, hæ, bæ, bæ!“ segir hún
og hlær.
„Þá kom mér líka á óvart að þótt
að þingmenn rífist og bítist í þingsal
þá setjast þeir skömmu síðar saman
við matarborð og hlæja og gera að
gamni sínu. Margir hörðustu and-
stæðingar á þingi eru mestu mátar
utan þingsalarins.
Ég er stolt af því að hafa setið á
þingi. Ég ætla að vinna meira fyrir
íslenskt samfélag enda finnst mér
ég standa í eilífri þakkarskuld. Eftir
þennan stutta tíma á þinginu er ég
full innblásturs. Og það er góð til-
finning.
Ég ætla mér að vinna að stefnu-
málum innflytjenda. Þeir eru sí-
stækkandi hópur, 7–8 prósent þjóð-
ar innar. Þá eru ótaldir þeir sem hafa
fengið íslenskan ríkisborgararétt og
láta sig enn málefnin varða. Ég fæ
fimm sæti á þingi og ætla að sitja
í þeim öllum,“ segir hún með lát-
bragði og hlær hressilega.
Synirnir femínistar
Þegar Amal horfir til baka og á af-
raksturinn í dag getur hún ekki ann-
að en verið stolt. „Ég bý í landi tæki-
færanna. Ég er frjáls og ég er á lausu,
var ég búin að nefna það?“ segir
hún og hlær dátt og lengi. „Það má
sko alveg koma fram,“ bætir hún við
í miðri hláturroku.
„Ég má vera stolt segir hún svo
þegar hún hefur jafnað sig. „Þetta
var erfitt en það tókst. Ég og börn-
in mín fengum ný og góð tækifæri
til betra lífs. Það er svo margt sem
ég er stolt af sem þau hafa tileinkað
sér. Til dæmis er ég stolt af strákun-
um mínum því ég kenndi þeim auð-
vitað að bera virðingu fyrir konum.
Strákarnir mínir eru femínistar.
Sonur minn er faðir tvíbura-
stráka og byrjar strax að vaska
upp og elda og hjálpa konu sinni.
Stelpurnar mínar eru líka frábærar.
Og öll hafa þau staðið sig vel í námi
og í lífinu.“ n
Keypti íbúð eftir þrjú ár „Ég keypti mína fyrstu íbúð fljótlega eftir að ég kom hingað til lands,“ segir Amal sem bjó við kröpp kjör með börnunum. Á föstudögum fengu þau svala og
banana og það var hátíðarstund. mynd Eyþór ÁrnaSon
Á þingi Amal er stolt af því að vera fyrsta konan af erlendu bergi brotin til að sitja á þingi og
ætlar að láta til sín taka í stjórnmálum. mynd Sigtryggur ari
„Hann lamdi mig
oft, í fyrstu barði
ég frá mér en seinna lét
ég það vera.
Opnunartímar
mán–fim 8.00 - 18.00
föst 8.00 - 19.00
laugardaga 10.00 - 13.00
Þekking
gæði Og
Þjónusta