Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Síða 37
setjast niður á góðum bar í sólinni í
„happy hour“ og rúlla inn í kvöldið í
rólegheitum, mikið af góðum börum
hérna. Svo er alltaf gaman að vera
bara í heimapartíi með góðum vin
um. Klúbbarnir hérna eru stórkost
leg fyrirbæri og virkilega gaman að
fara á þá og dansa af sér skóna. Það
er þó nokkuð af dópi í umferð en
maður er ekkert í kringum það lið og
skiptir sér ekkert af því. Við drekkum
í hófi, en við reykjum ekki og notum
ekki eiturlyf.“
Mynduð þið hvetja systkini ykkar til
að feta ykkar braut?
Steinunn: „Ég á tvær eldri systur,
hvorug þeirra er í tónlist. Ég hvet
bara frændsystkinin mín til þess í
staðinn.“
Alma: „Ég er langyngst í mínum
systkinahópi svo systkini mín hafa
öll mótað sinn starfsferil. Við höfum
samt öll verið viðriðin tónlist og Hugi
bróður minn starfar sem tónskáld
svo þau skilja hvað ég er að fást við.“
Klara: „Ég á tvær fáránlega hæfileik
aríkar systur. Önnur þeirra, Ásta Júl
ía, er leikkona og er nýútskrifuð af
leiklistarbraut frá Kvikmyndaskóla
Íslands og hin, Elín Lovísa, er söng
kona. Hún er fáránlega góð og ég
sé hana alveg fyrir mér standa sig í
þessum bransa. Hún er með bein í
nefinu og lætur engan vaða yfir sig.
Ég er mjög spennt fyrir laginu Hring
eftir hring sem hún gerði með Redd
Lights og Ölmu og hlakka til að sjá
hvernig það gengur í sumar.“
Fjölskylda?
Steinunn: „Foreldrar mínir eru Krist
jana og Sigurður, sem eiga og reka
Gull og Silfur á Laugaveginum. Berg
lind, eldri systir, mín er kennari og
Rósa, elsta systir mín, er gullsmíða
meistari.“
Alma: „Foreldrar mínir eru Anna
Guðrún Hugadóttir námsráðgjafi
og Guðmundur Hallgrímsson lyfja
fræðingur. Systkini mín eru Vera,
Daði og Hugi. Vera er lífeðlisfræðing
ur að mennt og starfar hjá lyfjafyr
irtæki í Danmörku þar sem hún er
búsett ásamt fjölskyldu sinni. Hugi
starfar sem tónskáld og er einnig
búsettur í Danmörku. Daði er dokt
or í iðnverkfræði og er búsettur í San
Francisco ásamt eiginkonu sinni, þar
sem hann er með sitt eigið fyrirtæki,
Sensor Analytics. Það er gott að eiga
hann að hérna í Kaliforníu og við
hittumst reglulega.“
Klara: „Foreldrar mínir eru Elías
Jónasson, þjónustufulltrúi hjá Ís
landsbanka, og mamma mín er Ingi
björg Ísaksdóttir þroskaþjálfi. Systur
mínar eru Ásta Júlía leikkona og Elín
Lovísa, söngkona og nemi.“
Steinunn var lengi á föstu með Sig-
urði Kaiser. Slitnaði upp úr sam-
bandinu vegna fjarlægðarinnar?
Steinunn: „Ég sleit því sambandi
fyrir mörgum árum, löngu áður en
við fórum að hugsa um að fara til
Bandaríkjanna og þau sambandsslit
voru út af allt öðrum hlutum.“
Var það fjarlægðin sem endaði sam-
band Ölmu og Óskars Páls?
Alma: „Já, hún spilaði vissulega inn
í. Það er ekki auðvelt að halda fjar
sambandi milli landa með sjö til átta
klukkustunda tímamismun.“
Alma og Steinunn hafa báðar verið
með eldri mönnum. Eruð þið gaml-
ar sálir?
Steinunn: „Það getur vel verið að ég
sé gömul sál, aldur hefur bara aldrei
truflað mig.“
Alma: „Ja, ég veit ekki hvort við erum
svo gamlar sálir. Eru konur ekki bara
aðeins meira bráðþroska?“
Ætlið þið að eignast börn í framtíð-
inni?
Steinunn: „Ég stefni á að eignast
stóra fjölskyldu, fullt af börnum og
hundum og yndislegheit, alveg eins
og fjölskyldan sem ég var svo heppin
að alast upp í. En núna vil ég einbeita
mér að okkur stelpunum og elta æv
intýrin út um allan heim.“
Alma: „Já, mig langar að stofna fjöl
skyldu í framtíðinni.“
Klara: „Við vonum auðvitað, ef Guð
lofar, að við eignumst fullt af börnum
og fullt af mönnum … eða kannski
bara einn á mann. Það er bara ekki
tímabært í okkar lífi ennþá að huga
að því. Það eru margir sem skilja
ekki hvernig við getum verið svona
rólegar. Við erum ungar ennþá og
við viljum allar geta sagt við börn
in okkar að við höfum gert allt sem
við gátum, lífað lífinu til fulls og elt
draumana okkar af öllu hjarta. Er
það ekki frábært veganesti fyrir börn
in okkar?“
Spilið þið á hljóðfæri?
Steinunn: „Ég spila afskaplega illa á
gítar.“
Alma: „Ég lauk 4. stigi á píanói á sín
um tíma en get ekki sagt að ég spili
neitt af viti í dag. Sá grunnur kemur
sér samt alltaf vel.“
Klara: „Ég er eins og Alma – lærði
heillengi og sá grunnur er alltaf góð
ur. En mér láðist að halda því við og
þar af leiðandi get ég bara heiðarlega
sagst spila eitt og hálft lag á píanó.
Allt annað er frekar slitrótt.“
Hvar verðið þið eftir fimm ár?
„Eftir fimm til tíu ár sjáum við okk
ur fyrir okkur búandi í risastóru húsi,
allar með sína álmu, með verðlaun
in okkar og platínuplöturnar upp um
alla veggi. Og helst bara uppi á sviði
og enn á fullu að vinna í tónlist.“
Hvernig er dæmigerður dagur hjá
ykkur?
Klara: „Það eru eiginlega engir tveir
dagar eins. Við reynum að byrja flesta
daga á að hreyfa okkur, fara „hiking“
í Runyon Canyon eða ræktina. Síðan
eru ýmist æfingar fyrir gigg, „promo“
vinna, upptökur í stúdíói eða önn
ur verkefni sem taka allan daginn og
stundum langt fram á nótt.“
Með hvaða lag eruð þið ánægðastar?
Steinunn: „Ég er alltaf ánægðust
með nýjasta lagið okkar, sama hvað
það er. Í augnablikinu er það lagið
Hello Luv sem við gerðum með vini
okkar og „producer“, Jukebox.
Alma: „Já, maður hlustar alltaf mest
á það nýjasta sem við höfum gert, en
ég á erfitt með að gera upp á milli.“
Klara: „Ég elska alltaf Monster/Eat
ME!“
Hvert stefnið þið?
„Heimsyfirráð eða dauði.“
Hvað hafið þið þið lært af búsetunni
í Ameríku?
Klara: „Hvað Ísland er lítið! Við
erum aldar upp í landi sem held
ur að það sé „stórasta land í heimi“
en hérna komum við og Ísland
er minna en margir smábæir í
Bandaríkjunum. Maður fær ann
að viðhorf til margra hluta. Sér
staklega tónlistarbransans heima.
Heima ætti popptónlist með réttu
að vera kölluð „underground“ og
„indie/rokktónlist“, sem er lang
algengust heima, vera popptónlist.
Popp stendur nú einu sinni fyrir
„popular“!“
Ef þið fenguð eina ósk uppfyllta …?
Steinunn: „Grammy!!!“
Alma: „Okkar eigin „world tour“ og
svo allt sem því fylgir.“
Klara: „World tour“ og rúlla upp
Bill board!!“
Hvað gerir ykkur hamingjusamar?
Alma: „Fjölskyldan, allir stórir og
litlir sigrar með The Charlies og að
eiga þátt í að semja lag og heyra loka
útgáfuna af því.“
Steinunn: „Fjölskyldan mín, vinirn
ir, stelpurnar og ævintýrin okkar,
tónlistin og svo get ég ekki lifað án
súkkulaðis og góðs rauðvíns.“
Hvern ætlið þið að kjósa í forseta-
kosningunum?
„Einar Bárðarson.“
Hvenær verða stórir tónleikar á Ís-
landi?
Alma: „Þegar við fyllum Laugardals
höllina eða Egilshöllina.“
Klara: „Ég efast stórlega um að við
komum nokkurn tímann með að
halda tónleika af þeirri stærðargráðu
heima. En það er aldrei að vita.“
Hver er mesti daðrarinn?
Steinunn.
Hver er feimnust?
Alma.
Hver er opnust?
Klara.
Hver er mesti sælkerinn?
Steinunn og Alma.
Hver er líklegust til að djamma til
morguns?
Klara.
Hver er besti dansarinn?
Steinunn.
Hver er jákvæðust?
Klara.
Hver er neikvæðust?
Alma.
Hver er pabbinn í hópnum?
Steinunn.
Hver drekkur mest af bjór?
Steinunn (hvorki Alma né Klara drekka
bjór!).
Hver er mesta svefnpurkan?
Klara.
Hver er rómantískust?
Steinunn.
Hver er mesti stríðnispúkinn?
Klara.
Fórna öllu Fyrir Frægðin
„Klara er eigin-
lega duglegust að
spotta leikara úr alls kon-
ar þáttum og segir okk-
ur svona laumulega á ís-
lensku í hverju þeir hafa
leikið.“
Viðtal 37Helgarblað 6.–8. júlí 2012