Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Qupperneq 41

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Qupperneq 41
Afþreying 41Helgarblað 6.–8. júlí 2012 Sakamál 3 afkastamestu raðmorðingjar sögunnar eru frá Kólumbíu í Suður-Ameríku. Fjöldi fórnarlamba þeirra er á reiki en talið er að þeir þrír, Daniel Carmargo Barbosa, Pedro Alonso López og Luis Garavito hafi á samviskunni samtals 900–1.000 mannslíf. Garavito var þeirra afkastamestur með jafnvel yfir 400 morð, næstur er López með rúmlega 350 og Barbosa rekur lestina með „aðeins“ 150 morð. Þessar tölur eru ágiskanir og aðeins voru færðar sönnur á 138 morð hjá Garavito, 110 hjá López og 72 hjá Barbosa. U m s j ó n : K o l b e i n n Þ o r s t e i n s s o n k o l b e i n n @ d v . i s Á aðfangadag árið 2002 var til- kynnt að Lacy Peterson væri horf- in af heimili Peterson-hjónanna í Modesto í Kaliforníu. Þegar þar var komið sögu var Lacy gengin átta mánuði með sveinbarn sem hún og eiginmaður hennar, Scott Lee, sem tilkynnti um hvarf hennar, hugðust nefna Connor. Lögreglan í Modesto beindi upphaf- lega ekki sjónum sínum að Scott vegna hvarfs Lacy, ekki síst vegna þess að fjöl- skylda Lacy og vinir lýstu yfir fullkominni sannfæringu um sakleysi hans. En innan tíðar vakti ósamræmi í mál- flutningi hans grunsemdir lögreglu og þegar í ljós kom, 17. janúar 2003, að Scott var ekki við eina fjölina felldur í kvenna- málum styrkust grunsemdir lögreglunn- ar. Nýjasta viðhald Scott, Amber Frey, setti sig í samband við lögregluna þegar hún komst að því að hann var kvæntur maður – og kvæntur konu sem var sakn- að. Um svipað leyti lét fjölskylda Lacy af stuðningi við Scott. Að sögn fjölskyldunn- ar hafði Scott sagt að hann væri búinn að missa konu sína og myndi eyða jólunum án hennar – fjórtán dögum áður en hún hvarf. Amber Frey var helsta vitni lögreglunn- ar og upplýsti að tveimur vikum áður en Lacy hvarf hafi hann sagst vera ekkill – hann hefði misst eiginkonu sína. Amber gaf lögreglu leyfi til að hlera símtöl henn- ar og Scott og síðar, við réttarhöldin, báru þau vitni tvískinnungi Scott. Í símtali ein- hverjum dögum eftir að Lacy hvarf sagði Scott Amber að hann hefði haldið jólin hátíðleg í París með tveimur vinum sín- um. Í reynd hafði hann verið á vöku sem haldin var vegna hvarfs Lacy. Þann 14. apríl skolaði líkamsleifum fósturs á land í San Francisco-flóa, ekki langt norður af Berkeley-smábátahöfninni – þar sem Scott hafði reyndar verið á sjó daginn sem Lacy hvarf. Næsta dag skol- aði á land hluta af kvenmannsbringu, án handleggja, og á svipuðum slóðum fund- ust fætur og höfuð. Í ljós kom að um var að ræða líkamsleifar Lacy og fóstrið var af ófæddu sveinbarni hennar. Ekki reyndist unnt að úrskurða hver dánarorsök hefði verið en leiddar voru að því líkur að Lacy hefði verið kæfð eða kyrkt á heimili Peterson-hjónanna. Leit á heimili hjónanna, í bifreið Scott, vöruhúsi hans og báti leiddu ekkert í ljós nema eitt stakt hár, af Lacy, samkvæmt því sem talið var, í skærum sem fundust í báti Scott. Scott var handtekinn 18. apríl, 2003, í La Jolla í Kaliforníu. Árið 2005 var hann sakfelldur og dæmdur til dauða. Hann er á dauðadeild San Quentin-fangelsisins og hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu. Þ að var ekki falleg sjón sem mætti lögreglunni í Adams- sýslu í Colorado í Banda- ríkjunum á heimili Grimes- fjölskyldunnar í Thornton 4. september 1980. Blóðslettur þöktu baðherbergis- og eldhúsgólfið sem og ganginn sem lá að herbergi eldri dóttur Grimes-hjónanna. Inni í herberginu lá líkið af Nanine Grimes, yngri systurinni, í vatns- og blóðpolli – á bringu henn- ar hafði verið lagður hátalari. Það var eldri dóttir Grimes- hjónanna, Deanna, sem fann lík- ið af Nanine þegar hún kom heim frá vinnu þennan laugardag. Úti- dyrnar voru opnar og hávær tón- list barst um húsið. Nanine hafði verið stungin oftar en 80 sinnum víða um líkamann og á höndum hennar og handleggjum var að sjá varnarsár. En Nanine hafði varist til einskis og átökunum hafði lokið á vatnsrúminu sem hafði verið skor- ið með morðvopninu. Einnig fund- ust blóðblettir á garðslöngu sem úr rann vatn inn í kjallarann og á klút sem fannst í limgerðinu og við bíla- stæði gegnt húsinu. Blindgata Lögreglan kannaði fimm einstakl- inga sem komu til greina sem morð ingi Nanine, en í kjölfar blóð- greiningar og fingrafarakönnunar voru þeir allir útilokaðir. Lögreglan leitaði langt yfir skammt því einn af mörgum sem ekki var skoðaður nánar var unglingur að nafni Troy Brownlow. Troy var þekktur í götunni enda algeng sjón að sjá hann rekja bolta upp og niður hana og kasta síðan í körfu sem var í enda hennar. Það var vitað að Troy dreymdi um að verða íþróttastjarna. Í kjölfar morðsins hafði Troy reynt að hugga Deönnu og meira að segja haldið tölu þegar hún útskrif- aðist. „Hann hafði komið nokkrum sinnum heim, en hann þekkti eig- inlega ekki systur mína. […] Það var ég sem hann hafði áhuga á, en hann átti í rómantísku sambandi við hvoruga okkar,“ sagði Deanna síðar. Eftir að skóla lauk skildu leiðir þeirra og Troy flutti til Denver þar sem hann fékk starf sem íþróttaleið- beinandi hjá YMCA (KFUM). Grunnt á ofbeldinu Troy var ekki við eina fjölina felldur í kvennamálum en kvæntist að lok- um þegar hann var 25 ára. Tveim- ur árum síðar fór kona hans fram á skilnað og bar við líkamlegum hótunum. Troy kvæntist fljótlega aftur og eignaðist tvö börn. Hann flutti með fjölskyldu sinni til Pitts- burg þar sem hann fékk vinnu hjá YMCA. Árið 2000 skildi Troy við aðra konu sína og flutti aftur til Denver. Í nóvember sama ár hafði kærasta hans samband við lögregluna; Troy hafði beint að henni skammbyssu þegar hún vildi binda endi á sam- band þeirra. Troy var ákærður en flúði til Arizona, þar sem hann var síðar handtekinn fyrir þjófnað. Eftir að hafa afplánað þriggja ára dóm, í febrúar 2004, var hon- um sleppt, en áður hafði verið tek- ið af honum DNA-sýni sem fór í gagnagrunn bandarísku alríkislög- reglunnar, FBI, tæpu ári síðar. Sumarið 2004 settu starfsmenn lögregluembættisins í Adams- sýslu blóðsýni af vettvangi á heim- ili Grimes-hjónanna inn í gagna- grunn í veikri von um að eitthvað kæmi út úr því. Bingó! Viti menn – í byrjun apríl 2005 gerðust undur og stórmerki. Í ljós kom að blóð sem fundist hafði á garðslöngunni samsvaraði sýni úr gagnagrunni FBI – sýni úr Troy Brownlow. Troy var handtekinn tíu dögum síðar á vinnustað hans í Tucson í Arizona. Troy var framseldur til Adams- sýslu þar sem réttað skyldi yfir honum vegna morðsins á Nanine nærri aldarfjórðungi fyrr. Réttarhöldin hófust í júní 2006 og verjandi Troy hélt því fram að hann hefði slasast á hendi áður en hann fór inn á heimili Nanine. Þar hefði Troy rekist á „hörkulega bif- hjólatýpu“ og ekki litist á blikuna. „Hann hefði getað leikið hetju þennan dag, ef hann hefði ráðist á þennan stóra mann í húsinu. En hann var hræddur táningur, svo hann forðaði sér. […] Þess vegna fannst blóð úr honum á þessum stöðum,“ sagði verjandinn. Saksóknari vísaði frásögn Troy á bug og sagði hana endaleysu: „Í fyrsta skipti í 25 ár viðurkennir hann að hafa verið inni á heimili Grimes, að hafa séð þar einhvern ókunnugan, fullorðinn mann yfir- gefa húsið, og sagði aldrei neinum neitt.“ Að sögn saksóknara hugði Troy að hann hefði komist upp með viðurstyggilegan glæp, en allan tím ann hefði DNA-efnið í blóði Troys verið til staðar og tækn- in hefði að lokum orðið til þess að færa sönnur á sekt Troy. Kviðdómur var saksóknara sammála og sakfelldi Troy. Hann fékk lífstíðardóm með fyrsta möguleika á reynslulausn eftir 20 ára afplánun. n Í aldarfjórðung hélt morðingi Nanine að hann væri hólpinn Skuggar fortíðar „Hann hafði komið nokkrum sinnum heim, en hann þekkti eiginlega ekki systur mína. […] Það var ég sem hann hafði áhuga á, en hann átti í rómantísku sambandi við hvoruga okkar. Nanine Grimes Í aldar- fjórðung gekk morðingi hennar laus. Troy Brownlow Grunur lögreglunnar beindist ekki að Troy í kjölfar morðsins á Nanine. DæmDur til Dauða Myrti barnshafandi eiginkonu sína
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.