Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Síða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Síða 42
Hvað er að gerast? Laugardagur Föstudagur Sunnudagur 7 júl 6 júl 8 júl Besta útihátíðin Besta útihátíðin verður í þriðja sinn dagana 5–8.júlí. Hátíðin fer fram á Gaddastaðaflötum við Hellu en aldurstakmark er 18 ár. Miðaverð er 12.500 krónur og verður lífleg dagskrá er alla helgina. Á meðal tónlistaratriða eru Á móti sól, Botnleðja, Blaz Roca, Gísli Pálmi, Úlfur úlfur, Páll Óskar, GusGus og ótal fleiri. Rauðasandur Festival Rauðasandur Festival er haldin í annað sinn á Rauðasandi á Vest- fjörðum. Lögð er áhersla á kántrí, þjóðlagatónlist, blús og reggítón- list. Meðal listamanna sem koma fram í ár eru Lay Low, Prinspóló, Snorri Helgason, Ylja og fleiri. Jóga á sandinum, gönguferðir á söguslóðir, sandkastalakeppni og bátsferðir eru dæmi um aðrar upp- ákomur á hátíðinni. Rauðasandur Festival er haldin á bóndabænum Melanesi. Hægt er að kaupa miða á midi.is. Date á Norðurlandi Leikverkið Date er sýnt í Rýminu á Akureyri um þessar mundir. Sýn- ingin fjallar um það sem þú átt ekki að gera á stefnumóti. Leikstjóri sýningarinnar er Jón Gunnar en hann hefur meðal annars sett upp Hárið, Rocky Horror, Himnaríki og Með fullri reisn. Aldurstakmark á sýninguna er 14 ár en á meðal leikara eru Aron Óskarsson, Hjalti Rúnar Jónsson, Karen Rebecca Olrich White, Kristján Guðmunds- son og Sölvi Árnason. Hægt er að nálgast miða á midi.is. Four á Jómfrúnni Á sjöttu tónleikum djasssumar- tónleikaraðar veitingahússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu, laugardaginn 7. júlí, kemur fram bandaríski djasssaxófónkvartett- inn Four. Kvartettinn skipa þeir Mark Watkins á sópran- og altsax- ófóna, Ray Smith á altsaxófón, Sandon Mayhew á tenórsaxófón og Jon Gudmundson á barítónsax- ófón.Tónleikarnir hefjast klukkan 15 og standa til klukkan 17. Leikið er utandyra á Jómfrúartorginu. Aðgangur er ókeypis. Nyström á Klaustri Sunnudaginn 8. júlí, mun danska listakonan Litten Nyström opna nýja sýningu í gallerí Klaustri undir heitinu Árangur (Landvinding/ Achievement). Sú sýning er innsetning unnin sérstaklega með tilliti til staðarins og mun Litten vinna bæði úti og inni á sunnu- daginn frá klukkan 14 og fram eftir degi við að skapa innsetninguna. 42 6.–8. júlí 2012 Helgarblað „Fyndin og hjartnæm mynd“ „Umgerð leiksins og öll myndræn úrvinnsla er mikið augnagaman“Menning m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g Moonrise Kingdom Wes Anderson Gamli maðurinn og hafið Berg Ogrodnik Ákveðinn, öruggur og skondinn D V leitaði til fjölbreytts hóps málsmetandi álitsgjafa í leit að besta sjónvarpsmanni Íslands í dag. Fjölmargir komust á blað en það er hinn fjölhæfi Sigmar Guðmundsson sem stendur uppi sem sigurvegari. Sigmar hóf ferilinn sem rokkari í út- varpinu en starfar í dag sem ritstjóri Kastljóss auk þess sem hann hef- ur verið annar stjórnenda spurn- ingaþáttarins Útsvars um árabil. Hinn stjórnandinn, Þóra Arnórs- dóttir, hefur áður hlotið þenn- an eftirsóknarverða titil. Þar sem Þóra starfar ekki lengur í sjónvarpi vekur athygli að hún hlýtur samt nokkur atkvæði. Aðrir sem lentu ofarlega eru þeir Logi Bergmann Eiðsson sem álitsgjafar blaðsins segja mest af öllum minna á ekta sjónvarpsstjörnu, bæði hvað varð- ar trúverðugleika sem og líflegan og skemmtilegan sjarma. Annar góður, samkvæmt álitsgjöfum, er Kastljósmaðurinn Helgi Seljan en Helgi þykir einstaklega beittur, spyr spurninga sem aðrir þora ekki. 1. sæti Sigmar Guðmundsson RÚV „Stórkostlegur í öllu sem hann tek- ur sér fyrir hendur. Flottur í Kastljósi, flottur í Útsvari, flottur sem kynnir í Eurovision og ætti að vera kynnir okk- ar þar í framtíðinni.“ „Það er eitthvað mjög faglegt við Simma og um leið einhver grallari í honum sem fær mann til að missa ekki af einni sekúndu þegar hann er á skjánum. Þá skiptir ekki máli hvort hann er í Kastljósinu eða Útsvari. Alinn upp í útvarpi og fyrir vikið skipt- ir ekki máli hvort hann þarf að lesa af prompter eða fara sjálfur með texta. Hikar ekki eina sekúndu eða tafsar á orðum.“ „Fagmaður fram í fingurgóma. Ber af öðrum hvað varðar sjónvarpsþokka og sjarma. Ákveðinn, öruggur og skondinn þegar það á við. Ég fíla Sig- mar og fæ aldrei leið á honum.“ „Sjálfsöruggur töffari. Fer honum betur að vera í hörðum fréttum held- ur en skemmtilegum spurningaþætti.“ 2.–3. sæti Logi Bergmann Eiðsson Stöð 2 „Ekta sjónvarpsstjarna. Lætur fátt koma sér á óvart. Getur bæði sagt fréttir á trúverðugan hátt og stjórnað skemmti- og spurningaþætti þar sem hans sérlega skemmtilegi húmor skín í gegn.“ „Ég trúi honum þegar hann les fréttir. Hlæ að honum í golfþættinum og hann fær mig til að hlæja í spurn- ingabombunni. Ansi gott. Sjónvarps- kóngur Íslands.“ „Fyrir sinn skemmtilega húmor og líflega sjarma.“ 2.–3. sæti Helgi Seljan RÚV „Segir hlutina eins og allir vilja segja þá, en þora því ekki.“ „Einstaklega næmur fréttaskýrandi og hefur með vönduðum fréttaskýr- ingum sínum náð að kafa vel undir yf- irborð hlutanna og komið upp með vel unnar fréttir á mannamáli.“ „Beittur í viðtölum sem gefur hon- um ákveðna sérstöðu á meðal sjón- varpsfólks. Hann þorir.“ 4.–9.sæti Jóhannes Kr. Kristjánsson „Veltir við steinum. Hispurslaus og kafar dýpra en aðrir.“ „Hefur sýnt og sannað að það er hægt að stinga á fjölda kýla í íslenska samfélaginu með því að fjalla um þau. Ef þagað er um vandann (t.d. læknadóp og ofbeldi) er næsta víst að hann þrífst og dafnar áfram í skjóli þagnarinnar.“ 4.–9.sæti Ragnhildur Steinunn „Fagleg og flott sjónvarpskona. Skýr og alltaf glaðleg. Stendur sig alltaf þrusuvel.“ „Flott og viðkunnanleg. Kemur vel fyrir. Hefur skilað af sér vönduðu og skemmtilegu efni í gegnum tíðina. 4.–9.sæti Þóra Arnórsdóttir „Vandvirk og vel menntuð. Nær að heilla með sterkri nærveru sinni. Á vitræna og upplýsandi samræðu við fræðimenn og aðra, oft á erlendum málum. Öllum líður vel á meðan á samtalinu stendur.“ „Var þetta ekki örugglega grín hjá henni, þessi frammistaða í kapp- ræðunum? Sjónvarpskona ársins í dulargervi?“ 4.–9.sæti Helga Arnardóttir „Tiltölulega ný á skjánum en fjallaði til dæmis mjög vel og á raunsæjan hátt um Geirfinnsmálið. Kafaði þangað sem þurfti að kafa til að leita svara. Hún er skýrmælt, mismælir sig nánast aldrei og talar fallegt íslenskt mál.“ „Góðum gáfum gædd, skemmtileg og svo hefur hún fallega framkomu. Hefur gott nef fyrir mannlegum frétt- um. Falleg, sem skemmir ekki fyrir.“ 4.–9.sæti Sigurlaug Margrét Jónasdóttir „Nigella Íslands! Ekki bara sexí og flott. Nær mjög góðum tengslum – maður finnur kaffilyktina ef hún er að drekka kaffi. Ætti að vera miklu, miklu oftar í sjónvarpinu!“ „Svo yndislega ljúf og frábær. Frábær fjölmiðlamanneskja, jafnvíg í sjónvarpi og útvarpi.“ 4.–9.sæti Gísli Einarsson „Hinn sanni íslendingur. Fullur af fróðleik en samt svo mikill bolur.“ „Talar rosa skýrt íslenskt mál. Skemmtilega öðruvísi. Leitar uppi öðruvísi efni. Sveitalegur töffari. Sjarmerandi á sinn hátt. Með þægi- lega rödd.“ ÞAU VORU LÍKA NEFND: Egill Helgason „Samkvæmur sjálfum sér.“ Andri Freyr Viðarsson „Hefur allt það sem hinir hafa ekki, þ.e.a.s. einlægni. Er bara hann sjálf- ur.“ n Sigmar Guðmundsson er besti sjónvarpsmaður landsins ef marka má álitsgjafa DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.