Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Side 47
Lífsstíll 47Helgarblað 6.–8. júlí 2012 Hipsterinn í andaslitrunum Frægir erlendir hipsterar Kirsten Dunst Olsen tvíburarnir Liv Tyler Alexa Chung Kate Bosworth Alexi Wasser Shia LeBeouf Devendra Banhart Vincent Gallo Gavin McInnes (Stofnandi Vice magazine) Frægir íslenskir hipsterar Magni í Kron Kron Hugrún í Kron Kron Högni Egilsson Davíð Berndsen Steinþór Helgi Atli Bollason Þórunn Antonía Heiða Kristín Helgadóttir Jón Gnarr Sigurður Blöndal Huginn Arason Magni í Kron Kron Erkihipster á Íslandi. Alltaf á undan í tískunni. Högni hipster Högni Egilsson söngvari í Hjaltalín og tónskáld er hipster sem stund- um er uppnefndur wipster vegna klæðaburðar síns. (Hipster+wizard) Alexa Chung Að senda mynd á Instagram Devandra Banhart Í fimmta hipstergír. Er hipsterinn búinn að vera? „Hipsterinn er líklega alltaf með puttann á púlsinum, er á undan öll- um hinum að tileinka sér nýjungar, nýjar hugmyndir, tækni og tísku- sveiflur. Þannig fólk hlýtur alltaf að vera til.“ Hvað er hipster? „Hipsterinn fer allra sinna ferða á hjóli, verður að eiga töff hjól frá Kríu – ekki spurning. Hipsterinn gengur alls ekki í merkjavöru né fer hátt með það að hann eigi einhver tískumerki heldur er bara natural, afslappaður í eigin skinni. Veit samt ekki um þetta hugtak. Er þetta tískumótandi? Er þetta ein- hver sem er mjög umhugað um út- lit. Annars vegar þýðir þetta í mín- um huga fólk sem eltist við nýungar, vill sífellt vera á nýjum „it“ stöðum, veitingastöðum og prófa nýja hluti, vera með nýju tískufyrirbærin. Hins vegar er þetta fólkið sem uppgötvar nýju hlutina á und- an hinum. Þetta er fólk sem er sí- fellt að kynna sér nýja hluti, endur- uppgötva. Það eru hipsterarnir sem breyta merkingu hverfa t.d. hverfi er í niðurníðslu – hipsterarn- ir koma og hverfið verður vinsælt.“ Staðalbúnaður hipsterins? „Staðalbúnaður hipstersins hlýtur að vera sólgleraugu, sólarvörn og reiðhjól.“ Hipsterinn er á hjóli Ilmur Dögg Gísladóttir verkefnastjóri í Norræna húsinu Er hipsterinn búinn að vera? „Já. Ég held alltaf að þegar tísku- fyrirbæri er búið að fá nafn, þá séu endalokin að nálgast. Flest svona tískufyrirbæri verða til vegna ein- hvers aðskilnaðar frá hópnum. Um leið og hópurinn hefur tileinkað sér tískuna þá er hún úr tísku.“ Hvað sérðu taka við? „Í herrabransanum tekur tísku- þróun lengri tíma. Sjóliðatískan er ennþá sterk og mér finnst afslapp- að kántrí koma sterkt inn á næst- unni. Svona Louisiana-fílingur.“ Hvað er þá að detta úr tísku? „Ég er búinn að segja það oftar en einu sinni að það er mjög tímabært að fólk hætti að ganga í þessum leggings-gallabuxum. Þær klæða afar fáa, þá er alveg dottið úr tísku að nota leggings eins og buxur. Ég verð mjög sáttur þegar ég hætti að sjá konur klæddar í slíkar buxur. Þá ætti enginn að kaupa sér not- aða skó nema hann komist ekki upp með annað. Hins vegar verða klassísku Ray Ban-gleraugun alltaf í tísku.“ Endalokin nálgast Stefán Svan verslunarstjóri hjá Sævari Karli Hipsteretta Heiða Kristín er stefnumótandi. Bæði í tísku og í stjórnmálum og þarafleiðandi hipsteretta. Er hipsterinn búinn að vera? „Já, alveg tvímælalaust. Hann er orð inn of mainstream til að vera í tísku.“ Hvað er hipster? „Góð spurning, ætli það sé ekki fólk sem reynir að vera öðruvísi og skera sig úr hópnum með tiltekn- um klæðnaði. Þegar hann getur ekki skorið sig úr hópnum, þá deyr hann út.“ Staðalbúnaður hipstersins? „Converse-skór, skinny jeans, vin- tage-klæðnaður. Og að sjálfsögðu bolli af latté. MacBook og allt sem er Apple. Er eitthvað af staðalbúnaðinum orðið lummó? „Já, allt sem hefur verið ofnotað, til að mynda Converse-skórnir sem eru komnir á bannlista. Ballerínu- skórnir líka. Svo er líka afleitt að buffaló-tískan sé að koma aftur. Það er bara hræðilegt fyrir hipsterinn að taka þeim veruleika.“ Hvað tekur við? „Ætli rokkið taki ekki við eða grung- ið, tískan gengur alltaf í hringi.“ Converse-skór komnir á bannlista n Guðný Björnsdóttir ritstjóri og eigandi Novum magazine n Gunnar Þorvaldsson grafískur hönnuður Er hipsterinn búinn að vera? „Já, hann hlýtur eiginlega alltaf að vera búinn að vera. Þeir úreldast á hverjum degi enda elta þeir tískuna og það sem er í tísku fer úr tísku. Hvað er hipster? „Ég held að þeir sem skilgreina sig sem hipster, séu að reyna aðeins of mikið. Þeir sem eru mest áber- andi í dag myndu líklega aldrei gera það nema að vera að gera að gamni sínu.“ Staðalbúnaður hipstersins? „Iphone, reiðhjól og kaffibolli. Sumir eru svo langt á undan að þeir eru komnir hringinn og finnst uppáhelling meira kúl en tvöfald- ur espressó.“ Kaffibolli er staðalbúnaður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.