Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Page 48
Hætti á hormónum og blómstrar
n Lára Bryndís selur frjósemistölvuna Lady Comp
D
V fjallaði á dögunum um tæki
sem heitir Lady Comp og er
frjósemistölva og hentar þeim
sérstaklega sem þola ekki
hormóna. Lára Bryndís Pálmarsdóttir
er umboðsaðili fyrir Lady Comp á Ís-
landi og hún notar tölvuna sjálf og DV
spjallaði við hana: „Ég var gjörsamlega
búin að fá ógeð af líðan minni þegar ég
var á hormónum og svo var ég að taka
líf mitt í gegn á þessum tíma, en ég er
matarfíkill og ég var að breyta algjör-
lega mataræði mínu líka. Ég eignað-
ist barn fyrir tveimur og hálfu ári en
fyrir það hafði ég verið á pillunni og
notaði hormónalykkjuna í 6 ár og fór
aldrei á blæðingar á þessum 6 árum.
Mér fannst það æðislegt á þeim tíma
og kvensjúkdómalæknirinn minn
sagði að ég væri „ein af þeim heppnu“
en í dag þegar ég hugsa til baka þá
finnst mér það mjög óeðlilegt. Það er
ástæða fyrir því að konur fara á blæð-
ingar og þetta er hálfógeðslegt inngrip
að hætta þeim í mörg ár.“ Lára Bryn-
dís segir að í dag valdi öll svona inn-
grip henni óhug. „Ég hef heyrt að pill-
an sé krabbameinsvaldandi og svo er
ég með lélegt blóðflæði í fótleggjunum
og mamma mín er það líka og henni
var stranglega bannað að taka pill-
una af því að pillan minnkar blóðflæði
til fótanna. Ég er hjá hómópata og ég
spurði hann hvort það væri ekki eitt-
hvað hægt að nota einhverja náttúru-
lega leið til að verða ekki ófrísk og hún
hvatti mig til að nota Lady Comp og
byrja að flytja þessa frjósemistölvu inn.
Ég hef notað Lady Comp í tvö ár núna
og mér finnst þetta frábært. Ég mæli
mig bara um leið og ég vakna og þetta
er ekkert vesen. Þegar ég var á öðrum
getnaðarvörnum missti ég alla kyn-
hvöt og hún er alveg komin aftur og ég
get stundað óvarið kynlíf alla þá daga
sem eru grænir en þeim fjölgar eftir því
sem ég nota tölvuna lengur.“
Lady Comp er mjög einfalt tæki og
þægilegt í notkun en ef þið viljið nálg-
ast það er hægt að fara á facebook.
com/frjosemistolvur.
48 Lífsstíll 6.–8. júlí 2012 Helgarblað
Kjóll úr
mannshárum
Hárgreiðslukona í Bretlandi,
Jodie Breeds, hefur búið til kjól
úr mannshárum. Keppandi í feg-
urðarsamkeppninni Miss Eng-
land, hin 18 ára Holly Lyons,
klæddist kjólnum og vakti að von-
um mikla athygli.
Pabbi tók á móti
D
rengurinn er dásamlegur og
við erum öll alsæl,“ segir fyr-
irsætan Ósk Norðfjörð sem
eignaðist sitt sjötta barn þann
23. júní. Kærasti og barnsfaðir
Óskar er frjálsíþróttakappinn Sveinn
Elías Elíasson en litli drengurinn er
hans fyrsta barn.
Ósk fæddi barnið heima en þetta
var hennar þriðja heimafæðing. „Sama
ljósmóðirin, hún Kristbjörg, hefur tek-
ið á móti hjá mér í öll þrjú skiptin en
þetta var heimafæðing hjá henni núm-
er 101. Þetta var vatnsfæðing og hún
var verkjalaus. Enda margir bænaher-
menn í kringum okkur,“ segir Ósk sem
er trúuð. Aðspurð segir hún heima-
fæðingu yndislegan valkost sem henti
henni.
„Þetta var yndisleg meðganga og
ég var dugleg að hugsa um heilsuna á
meðan ég var ófrísk. Svo var líka mik-
ið beðið fyrir mér og barninu. Ég á svo
frábæra vini í kringum mig,“ segir hún
og bætir við: „Meðganga og fæðing eru
dásamlegir hlutir sem konur geta not-
ið í botn með réttu hugarfari. Fyrir mig
er heimafæðing dásamlegur kostur. Þú
ert í þínu umhverfi með það fólk við-
statt sem þig langar að hafa hjá þér.
Ekkert stress – bara falleg stund sem
ég naut að upplifa með fólkinu mínu í
ró og næði,“ segir hún og bætir við að
hinn nýbakaði faðir hafi staðið sig vel
í fæðingunni. „Hann stóð sig eins og
hetja og tók sjálfur á móti.“
Á nóg að gefa
Eldri börnin fimm voru ekki við-
stödd en voru í staðinn í góðu yfir læti
hjá afa sínum og ömmu á meðan litli
bróðir kom í heiminn. Systkinahópur-
inn samanstendur núna af fimm
drengjum og einni stúlku. Sá elsti heit-
ir Brynjar og er fjórtán ára, Bjartur er
tólf ára, Bekan níu ára, Freyja fimm
ára og Brimir tveggja ára auk þess ný-
fædda sem hefur ekki enn fengið nafn
en eitthvað sem byrjar á B-i hlýtur að
teljast líklegt.
„Prinsinn mun að sjálfsögðu fá
nafn sitt tattúerað á okkur,“ segir hún
brosandi en bæði hún og Sveinn Elías
eru með nöfn allra barnanna húð-
flúruð á líkama sinn, Ósk á bakinu en
hann á brjóstkassanum.
Ósk hafði vonast til þess að Freyja
fengi systur en er að sjálfsögðu alsæl
með litla herramanninn. Hún segist
ekki eiga erfitt með að deila ást sinni
enda eigi hún nóg að gefa. „Það er nú
ekki mikið mál. Þau þurfa á einlægum
samskiptum að halda og heiðarleika.
Svo veit ég að þau elska hvert annað
auk þess sem það er endalaust mik-
ið af góðu fólki í kringum okkur, eins
og afar og ömmur, sem elska þau með
mér. Ég reyni líka að vera dugleg að
gera eitthvað skemmtilegt með þeim.
Til dæmis að fara með þeim í sund,
út að ganga eða bara vera saman inni
og spila og spjalla. Við erum alltaf að
gera eitthvað skemmtilegt saman. Ég
er ekki ennþá farin út að ganga með
prinsinn enda er hann bara rétt rúm-
lega viku gamall en ég er þegar búin að
fara út að hjóla með hinum,“ segir Ósk.
Ósk metur ríkidæmi sitt í börn-
unum og útilokar ekki að hún eignist
fleiri börn. „Það er alls ekkert útilokað
að ég komi með fleiri börn í framtíð-
inni en ekki í bráð. Nú ætla ég bara
að njóta þeirra gersema sem ég á. Sex
heilbrigð börn! Það er ekki hægt að
biðja um meiri blessun en það.“
indiana@dv.is
„Prinsinn
mun að sjálf-
sögðu fá nafn sitt
tattúerað á okkur
Fyrirsætan Ósk Norðfjörð eignaðist sitt sjötta barn
í júní. Kærasti og barnsfaðir Óskar, frjálsíþrótta
kappinn Sveinn Elías Elíasson, tók á móti barninu
en um heimafæðingu var að ræða. Ósk útilokar ekki
frekari barneignir og hlakkar til að njóta lífsins með
gullmolunum sínum.
Nýfæddur prins Litli prinsinn fæddist í vatni heima hjá sér.
Hamingja Ósk Norðfjörð naut sín á meðgöngunni enda var hún dugleg að hugsa um
heilsuna.
Hamingjusöm Lára Bryndís og eiginmað-
ur hennar Bragi Þór Gíslason