Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Side 50
12 ráð við sólbruna
Öll vitum við um skaðsemi þess að sólbrenna. Besta leiðin til að koma í veg fyrir bruna er að maka á sig sólarvörn og sitja í skugga en
þegar sumarið er loksins komið gleymist stundum að bera á sig sólarvörn. Hér að neðan má finna nokkur góð ráð við sólbruna.
50 Lífsstíll 6.–8. júlí 2012 Helgarblað
Fituskert
mjólk
Áhrif: Mjólkin býr til prótínfilmu á
húðina sem dregur úr óþægindum
vegna sólarbruna.
Hvernig? Settu ískalda mjólk á
húðsvæðið með hreinum klút eða
grisju. Láttu þetta liggja á í 15 til 20
mínútur og endurtaktu á tveggja til
fjögurra tíma fresti.
Sólarvörnin er nauðsynleg
Mikilvægt er að verja sig fyrir skað-
legum geislum sólarinnar.
Kartöflur
Áhrif: Það er ekki gott ráð að
borða mikið af kartöflum ef þú
ert að passa upp á línurnar en það
gæti verið gott að hafa nokkrar
við höndina ef þú brennur í sólinni.
Sterkjan í kartöflunum hjálpar til við
að lina sársaukann vegna brunans.
Hvernig? Skerðu hráa kartöflu í
sneiðar og nuddaði þeim á þá staði
þar sem svíður mest. Þegar þörf er
á enn meiri meðferð er hægt að rífa
sneiðarnar niður og úr verður eins
konar maukbakstur.
Grænt te
Áhrif: Andoxunarefnið „catachin“
hjálpar til við að vernda húðina
gegn skaðlegum geislum sólarinnar
á meðan tannín eða sútunarsýra
hjálpar til við að lina bruna.
Hvernig?Rannsóknir sýna að með
því að drekka tvo bolla af grænu tei
á dag eykur þú varnir húðarinnar
gegn sólargeislum. Það skal þó tek-
ið fram að ávallt skal nota sólarvörn
á húðina þrátt fyrir tedrykkju. Ef
þú hefur brunnið er gott að setja
tepoka í kalt vatn og leggja þá
svo á brunasvæðið. Það dregur úr
sársaukanum.
Haframjöl
Áhrif: Þegar þú hefur brunnið í
sólinni á öllum líkamanum er hafra-
mjöl kannski besta ráðið.
Hvernig? Settu um það bil bolla af
haframjöli í matvinnsluvélina, settu
það út í kalt baðvatn og leggstu í
baðið. Þú getur einnig sett hafra-
mjöl í grisju og látið vatn renna í
gegn. Hentu haframjölinu og leggðu
grisjuna á brennda svæðið á tveggja
til fjögurra tíma fresti.
Granatepli
Áhrif: Það er mikið af „ellag“-sýru
í granateplum en hún hjálpar til við
að vernda húðina gegn skaðsemi
UVA- og UVB-geisla. Þetta kemur
fram í niðurstöðum rannsóknar
næringarfræðistofnunar við A&M-
háskólann í Texas.
Hvernig? Láttu það eftir þér að
borða granatepli á sumrin því
bólgueyðandi og andoxunareig-
inleikar ávaxtarins gætu gefið
húðinni auka kraft til að verjast
sólargeislum.
Jarðarber
Áhrif: Tannín í berjunum dregur úr
sviða í brenndri húð.
Hvernig? Merjið nokkur vel þroskuð
ber og berið á sólbrunann. Þetta
náttúrulega sólbrunalyf dregur
úr sársauka. Þvoið eftir nokkrar
mínútur. Annar möguleiki er blanda
saman maíssterkju og vatni og bera
á brunasvæðið.
Agúrkur
Áhrif: Agúrkur draga úr óþægind-
um og sársauka af völdum bruna
jafnvel og lyf sem keypt eru í
búðum. Auk þess eru þær án allra
aukaefna sem finna má í kremum.
Hvernig? Ef þú hefur brunnið settu
agúrku á brunasvæðið. Dian Dincin,
höfundur bókarinnar The Complete
Herbal Guide to Natural Health and
Beauty, segir að agúrkur geti einnig
veitt vörn gegn bruna. Þá er best
að taka agúrku, afhýða hana, skera
og kreista safann úr henni. Blandið
safanum við glýserín og rósavatn og
þá er komin hin fínasta sólarvörn.
Salat
Áhrif: Í salati má finna náttúruleg
efni sem deyfa sársauka og hjálpa á
þann hátt við sólbruna.
Hvernig? Best er að sjóða salat
í vatni. Taktu salatið úr vatninu
og leyfðu vökvanum að kólna í ís-
skápnum. Dýfðu bómullarhnoðrum
í vökvann og berðu á brunann.
Guava
Áhrif: Guava-aldinið er ríkt af
andoxunarefnum sem geta hjálpað
til við að verja húðina. Eitt guava-
aldin inniheldur fimm sinnum meira
magn af C-vítamíni en meðalstór
appelsína.
Hvernig? Fáðu þér ávöxtinn þegar
þú getur. Ef þú getur ekki nálgast
hann þá eru parprika, jarðarber og
spergilkál einnig rík af C-vítamíni.
Hvítt edik
Áhrif: Ediksýran virkar eins og
staðbundið bólgueyðandi lyf.
Hvernig? Ef þú ert rauð/ur eftir
sólina settu örlítið af hvítu ediki á
brunann. Það mun deyfa sársauk-
ann eftir um það bil 20 mínútur.
Gullfífill eða
morgunfrú
Áhrif: Blómið sem er af körfu-
blómaætt er auðvelt að rækta og
er stútfullt af bólgueyðandi efnum
sem draga úr bruna og óþægindum.
Hvernig? Búðu til mauk úr blómun-
um og berðu á brunann og hann
grær fyrr.
Aloe
Áhrif: Aloe er vinsælt í heilsu-
drykkjum en er einnig gott á
brunasár.
Hvernig? Brjóttu blað af blóminu,
kreistu safann eða gelið úr og berðu
á brunann. Settu fyrst á lítinn blett
til að athuga hvort þú sért með
ofnæmi fyrir því. Ef þú átt ekki
aloe-plöntu er hægt að kaupa gel úr
henni í apótekum. Gott er að setja
það í kæli áður en það er borið á
brunann.