Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Blaðsíða 61

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Blaðsíða 61
Leikur á móti kLámstjörnu Fólk 61Helgarblað 6. - 8.júlí 2012 n Klámmyndaleikari leikur kærasta Lindsay Lohan K lámmyndastjarnan James Deen sá sig knúinn til að leið- rétta þann misskilning að hann myndi leika í ástaratriði á móti Lindsay Lohan en leik- ararnir leika saman í kvikmyndinni The Canyons. „Ég get fullvissað ykk- ur um að við Lindsay Lohan munum ekki stunda saman kynlíf,“ sagði Deen í viðtali við bandarískan vefmið- il. Sögusagnir þess efnis fóru á kreik eftir að James og Lindsay sáust reykja saman fyrir framan veitingastað í Los Angeles. Þótt Deen stundi kynlíf að atvinnu þá segir hann sambandið við Lohan einungis faglegt. „Ég veit ekkert um Lindsay nema að hún er venjuleg, vingjarnleg, jarðbundin 25 ára stelpa,“ sagði klámmyndaleikar- inn og bætti við: „Við funduðum á veitingastaðnum. Hún drakk kaffi og vatn. Svo þurfti hún að hringja á bíl af því að veitingastaðurinn var um- kringdur ljósmyndurum.“ Deen mun leika kærasta leikkon- unnar í myndinni en þetta er hans fyrsta hlutverk sem ekki tilheyrir klám- myndageiranum. „Það getur vel ver- ið að það verði eitthvað um kossa en þetta er ekki klámmynd. Ef einhver æsist þá er það bara svoleiðis. Það get- ur alltaf gerst.“ Leika par James Deen, sem sérhæfir sig í bláum myndum sem markaðsettar eru fyrir konur, og Lindsay Lohan leika saman í myndinni The Canyons. Fjölskylduferð n Cristiano Ronaldo og fjölskylda í Frakklandi F ótboltastjarnan Cristiano Ronaldo slakar þessa dag- ana á eftir langt tímabil og Evrópumót. Hann dvelur á frönsku eyjunni Saint-Tropez þar sem hann er með stærðarinnar snekkju. Ronaldo er þar ásamt syni sínum Cristiano Jr., kærustu sinni Irinu Shayk og vinum og fjölskyldu. Ronaldo tilkynnti mjög óvænt þann 3. júní 2010 að hann væri orðinn pabbi. Ronaldo sagði í yfir- lýsingu á Facebook-síðu sinni að hann færi með fullt forræði yfir syni sínum og að sú ákvörðun hefði verið tekin í samráði við móður hans. Fluttar hafa verið fréttir af því að Ronaldo hafi eignast son sinn með hjálp staðgöngumóður. Um þetta leyti hóf kappinn einnig samband sitt við rússnesku fyrirsætuna Shayk. Þau hafa vakið nokkra athygli við strendur Saint-Tropez enda þykja bæði vel heppnuð og oftar en ekki talin til fallegasta fólks heims. Senior og Junior Cristiano og Cristiano yngri að leika í sólinni. Kroppar Cristiano og Irina hafa verið saman síðan árið 2010. Ísbíltúr með mömmu n Suri Cruise og Katie Holmes Þ rátt fyrir fjölmiðlafárið kringum mæðgurnar Katie Holmes og Suri Cruise um þessar mundir reyna þær að lifa eðlilegu lífi. Á þriðju- daginn fóru þær saman í ísbíltúr í New York-borg en sú stutta fékk sér vænan kúluís. Athygli heimspressunnar er á þeim mæðgum eftir að Katie, sem er 33 ára, sótti um skilnað frá eigin- manni sínum, Tom Crusie. Fréttir herma að það sé að stærstum hluta vegna trúarbragða Toms en hann er frægasti meðlimur Vísindakirkjunn- ar. Katie er sögð ætla að sækja um fullt forræði en búast má við hörðum skilnaðardeilum fyrir dómstólum. Þessa dagana vinnur Katie við tökur á ónefndri mynd sem byggir á smásögu Chekhovs, The Seagull. Ísbíltúr Suri og Katie saman á þriðjudags- kvöld. www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur www.birkiaska.is Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika og verkjum í liðamótum og styrkir heilbrigði burðarvefja líkamans. 2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni. Bodyflex Strong Tökum að okkur veislur og mannfagnaði Föstudagskvöld Ásgeir trúbador Laugardagskvöld Hljómsveitin Sín n Réttur dagsins alla virka daga n Hamborgarar, steikarsamlokur og salöt n Hópamatseðlar Bol tinn í be inni Hamraborg 11 n 200 Kópavogur n Sími: 554 2166 n www.catalina.is Bolta- tilboð www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. Endurnærir og hreinsar ristilinn Í boði eru 60-150 töflu skammtar + Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is OXYTARM Sól og heilsa ehf 30 = Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur days detox
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.