Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Side 2
2 Fréttir 20.–22. júlí 2012 Helgarblað H ann er mjög gómsætur,“ segir Jón Bjarnason, þing- maður Vinstri grænna og fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að- spurður um bragðgæði makríls, fisk- tegundar sem syndir sem aldrei fyrr við strendur Íslands þessa dagana. Makrílgöngur eru nú við allt land og sagði Jón Halldórsson, landpóstur á Hólmavík, í samtali við BB.is, á dögunum að „… allir firðir væru fullir af makríl.“ Þá hefur makríllinn einnig sést í Reykjavíkurhöfn og á Aust fjörðum þar sem ferðamenn hafa jafnvel dregið fram veiðistangir og veitt þessa dýrmætu fisktegund. DV leitaði til Jóns Bjarnasonar og bað hann að gefa lesendum ráð um hvernig best sé að matreiða makríl- inn. Verður að vera ferskur „Hann verður náttúrulega að vera al- veg ferskur. Svona feitur fiskur tekur fljótt bragð,“ segir Jón og bætir við: „Síðan þarf auðvitað að skera úr honum svokallaða fiturönd til þess að draga úr þessu sterka fitubragði sem er af honum.“ Miklu máli skiptir, að sögn Jóns, að fiskurinn sé matreiddur á réttan hátt. „Hann er góður reyktur og hann er góður steiktur. Best er að heil- steikja hann eða flaka hann, skera fituröndina af honum og steikja flök- in á pönnu.“ Jón segir, að þótt hann sé sjálfur ekki mikill sósumaður, þá sé algert hnossgæti að hafa góða sterka lauksósu með makrílnum og pínulítið af sinnepi til hliðar. Vandmatreiddur Jón telur alveg klárt, að makríllinn rati æ oftar á matarborð Íslendinga. „Síðan eru veitingahúsin farin að setja hann á matseðilinn hjá sér. Við verðum að athuga það að margir ferðamenn, sem koma hingað til lands, eru vanir makríl og kunna að meta hann,“ segir Jón og bætir við að þessi tiltekna fisktegund sé sérstak- lega vandmatreidd vegna fitunnar. Deila Íslendinga við Evrópusam- bandið og Norðmenn um veiðar á makríl hefur staðið yfir frá árinu 2008. Þá fór makríllinn að ganga í mun ríkari mæli inn í íslenska efna- hagslögsögu en áður hafði verið. Jón Bjarnason segir makrílinn ránfisk sem éti fisk í íslenskri efnahagslög- sögu sem við gætum ella veitt. Auk þess hrygni hann við Íslandsstrend- ur. „Hann er ekki í neinni kurteisis- heimsókn.“ „Síld“ Tómasar af Akvínó Auk mikillar vitneskju á þjóðréttar- deilum um makríl og reynslu af eldun fisksins, lumar Jón á skemmtileg- um markílsögum. Hann deildi einni slíkri með blaðamanni; sögu sem hann setti gjarnan í ræður sem hann hélt fyrir „Evrópusambandsmenn- ina“ þegar hann ræddi við þá um makríl. „Þegar dýrlingurinn Tómas frá Akvínó liggur banaleguna þá biður hann um síld að borða; hann dauðlangi í síld á sinni hinstu stund. En enginn síld var til. Þá var brugðið á það ráð að matreiða makríl og bera á borð fyrir Tómas, án hans vitund- ar. Eftir að hafa gætt sér á makrílnum segir Tómas: „Ég hef aldrei bragðað svo góða síld.“ Þá töldu menn að hann hafi breytt makríl í síld og var í kjölfarið tekinn í heilagra manna tölu,“ segir Jón og bætir við að af þess- um sökum sé makríllinn álitinn heil- agur fiskur af mörgum þjóðum. n Kennir lesendum að matreiða makríl n Makríll við strendur Íslands Jón Bjarnason sólginn í makríl „Hann er góður reyktur og hann er góður steiktur. Baldur Eiríksson blaðamaður skrifar baldure@dv.is Gómsætur ránfiskur Makríllinn er vandmatreiddur en sé hann eldaður rétt er hann sannkallað hnossgæti borinn fram með sterkri lauksósu. Jón Bjarnason Ekki mikill sósumaður. Einstæð móðir á götuna 1 „Gatan. Ég hef í engin hús að venda,“ sagði Guðrún María Óskarsdóttir, óvinnufær öryrki og einstæð móðir, í DV á mánudag um það sem tæki við ef kröf- ur Hafnarfjarðar- bæjar um útburð næðu fram að ganga. Guðrún stendur í deilum við Hafnarfjarðarbæ vegna vangoldinnar leigu, en skuld hennar við bæinn stendur í þremur milljón- um króna. Guðrún lýsti því í viðtalinu að hún hefði í engin hús að venda en hún býr með veikum syni sínum. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness á mánudag og var af- greiðslu þess frestað fram á haust. Sumarhöll Sig- urðar í leynifélag 3 Eignarhaldsfélagið Veiðilækur ehf. er ekki lengur skráð í eigu Sigurðar Einars- sonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings. Þar með er Sigurður ekki lengur skráð- ur eigandi fyrir 843 fermetra sumarhúsi Veiðilækjar og jarðar sem húsið stendur á við Norðurá í Borgarfirði. Í júní síðast- liðnum fékk Veiðilækur ehf. nýtt nafn og nýja stjórnendur. Nafni Veiðilækj- ar ehf. var breytt í Rhea ehf. Eigend- ur Rhea ehf. og þar með eigendur sumar hússins og jarðarinnar, vilja ekki gefa upp nöfn sín. Þetta kom fram í DV á miðvikudag. Fá ekki að hittast 2 Þrátt fyrir að vera ástfangin og trúlofuð fá Úlfhildur Stefáns- dóttir, heimilis- maður á Sólheim- um í Grímsnesi, og Magnús Helgi Vigfússon ekki að hittast. Fjallað var um málið í DV á miðvikudag. Úlf- hildur kynntist Magnúsi, sem þá var starfsmaður á Sólheimum, fyrir nokkrum árum og felldu þau strax hugi saman. Magnús missti hins vegar starfið og þurfti að flytja burt og segir Úlfhildur að stjórnendur Sólheima hafi sett ferðafrelsi henn- ar þröngar skorður. „Ef ég má ekki hitta manninn minn og má ekki fara af svæðinu, hvað má ég þá?“ Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunniFréttir vikunnar Leiðrétting Í miðvikudagsblaði DV kom fram að munur á ráðstöfunar- tekjum einstaklings á lág- markslaunum og einstaklings á atvinnuleysisbótum væri um 16 þúsund krónur eftir skatt, útsvar og greiðslu í lífeyris- sjóð. Með umfjölluninni birtist súlurit. Þar urðu þau mistök að sú súla sem sýna átti ráðstöf- unartekjur einstaklings á 100 prósent atvinnuleysisbótum sýndi 167 þúsund krónur en hefði átt að sýna 147 þúsund krónur. Rétt súlurit má finna með fréttinni á vefsíðu DV. Leki í kjölfar eldsvoða Eldur kom upp um borð í báti suður af Vestmannaeyjum á fimmtudag. Landsbjörg barst til- kynning um málið rétt eftir klukk- an ellefu á fimmtudag. Sjö menn voru um borð í bátnum sem var um sjö sjómílur suður af Stór- höfða þegar eldsins varð vart. Fljótlega tókst að slökkva eldinn en vélarrúmið tók að fyllast af sjó. Samstundis var þyrla Landhelgis- gæslunnar kölluð út auk björg- unarskipa Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Þórs í Vestmanna- eyjum og Odds V. Gíslasonar í Grindavík. Fóru mennirnir strax í flotgalla og voru tilbúnir með björgunar- báta. Einnig voru nálæg skip og bátar beðnir um að fara til aðstoð- ar en sú aðstoð var síðar afþökkuð. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í loftið um 25 mínútur yfir ellefu. Stóri Örn, hraðskreiður farþega- bátur frá Vestmannaeyjum, var fyrstur á staðinn með dælu og tók þrjá menn úr áhöfninni um borð. Sú dæla hafði undan en engu að síður sótti þyrlan TF-GNA dælu um borð í dráttarskipið Lóðsinn sem einnig var notuð. Fæddi í sjúkrabíl Kona fæddi stúlkubarn í sjúkrabíl á leiðinni til Hafnarfjarðar aðfara- nótt fimmtudags. Stúlkan kom í heiminn klukkan tíu mínútur í fimm og var þá sjúkrabíllinn staddur í Hvassahrauni, á bæjar- mörkum Voga og Hafnarfjarðar. Að sögn Víkurfrétta var bíllinn á leið á fæðingardeild í Reykja- vík en tveir sjúkraflutningamenn sem voru í bílnum tóku á móti barninu. Fæðingin gekk vel og heilsast mæðgunum vel.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.