Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Side 12
S
ett hefur verið á lagg-
irnar Rannsóknarset-
ur um nýsköpun og hag-
vöxt (RNH) sem berst
fyrir markaðsfrelsi og gegn
ríkisafskiptum. Í rannsóknarráði
setursins eru Hannes Hólmsteinn
Gissurarson stjórnmálafræðipró-
fessor og Þór Whitehead sagn-
fræðiprófessor auk Ragnars Árna-
sonar hagfræðiprófessors sem
er formaður ráðsins. RNH hefur
aðsetur í Fákafeni, í sama hús-
næði og Almenna bókafélagið, en
Jónas Sigurgeirsson er bæði fram-
kvæmdastjóri setursins og bóka-
félagsins. Í stjórn Rannsóknar-
setursins eru ásamt honum Gísli
Hauksson, framkvæmdastjóri
Gamma og Jónmundur Guðmars-
son framkvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins.
Samstarf við erlend
frjálshyggjusamtök
Á vefsíðu RNH er setrinu lýst sem
nokkurs konar hugmyndaveitu (e.
think tank) en slík fyrirbæri eru
sérstaklega algeng í Bandaríkjun-
um og iðulega fjármögnuð af fjár-
sterkum aðilum. Bandarískar hug-
myndaveitur hafa átt veigamikinn
þátt í að móta viðhorf almenn-
ings þar í landi og stefnu stjórn-
valda í ýmsum málaflokkum. Svo
virðist sem RNH eigi í samstarfi
við ýmsar áhrifamiklar hugveitur
vestanhafs. Á vefsíðu setursins má
finna umfjöllun um fjárframlög og
stuðning við starfsemi þess, en þar
er sérstaklega tekið fram að RNH
eigi samstarf við hugmyndaveitur
á borð við Adam Smith Institute í
Lundúnum, Heritage Foundation
og Cato Institute í Washington DC.
Þessar hugmyndaveitur hafa boð-
að frjálshyggju af miklum krafti
síðustu áratugi og haft það að
markmiði að færa hvers kyns um-
ræðu um samfélagsmál í hægriátt.
Tengsl við amx.is
Friðbjörn Orri Ketilsson er vef-
stjóri RNH. Hann hefur verið um-
sjónarmaður og ábyrgðarmað-
ur vefsíðunnar amx.is um árabil,
en hann er tengdasonur Gunn-
laugs Sævars Gunnlaugssonar,
stjórnarmanns Ísfélagsins, sem er
sjávarútvegsfyrir tæki Guðbjargar
Matthíasdóttur í Eyjum. Friðbjörn
er vinur Hannesar Hólmsteins og
hefur meðal annars starfað með
honum að skattaskýrslu fyrir fjár-
málaráðuneytið.
Á amx.is er skrifað um þjóð-
félagsmál í skjóli nafnleynd-
ar. Tekin er skýr afstaða gegn
Evrópusambandinu, ríkisstjórn-
inni, umhverfisverndarsinnum
og flestum þeim stjórnmálaöflum
sem ekki aðhyllast hægristefnu.
Þá er vefritið þekkt fyrir að koma
kvótaeigendum, Þjóðkirkjunni og
Sjálfstæðisflokknum til varnar, en
einnig hefur umfjöllun þess um
hælisleitendur og fjöldamorðin í
Noregi vakið talsverða hneykslun.
Hannes Hólmsteinn hefur verið
sakaður um að skrifa reglulega
undir nafnleynd á vefinn og því
hefur hann aldrei vísað á bug.
Bókafélag sjálfstæðismanna
Jónas Sigurgeirsson er fram-
kvæmdastjóri RNH, en einnig
framkvæmdastjóri og eini fastráðni
starfsmaður Almenna bókafélags-
ins. Bókafélagið, eða BF útgáfa,
var stofnað árið 1995 og var Hann-
es Hólmsteinn Gissurarson lengi
eini eigandi félagsins. Eftir hluta-
fjáraukningu um miðjan sept-
ember 2011 hafa fleiri eigendur
bæst í hópinn, en þeir eru þekktir
einstaklingar úr þjóðlífinu. Bald-
ur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðu-
neytisstjóri sem situr nú í fangelsi
fyrir innherjasvik, greiddi 10 millj-
ónir fyrir hlutabréf í félaginu. Ár-
mann Þorvaldsson, fyrrverandi
forstjóri Kaupþings Singer &
Friedlander í London, og Kjartan
Gunnarsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins
og stjórnarmaður úr Landsbank-
anum, eiga einnig hlutabréf í Al-
menna bókafélaginu. Öld ehf., fé-
lag í eigu Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar á helmingshlut, en
eins og áður segir er Rannsóknar-
setrið til húsa á sama stað og Al-
menna bókafélagið.
Á vefsíðu RNH kemur fram
að setrið eigi í samstarfi við Al-
menna bókafélagið um að birta
reglulega vönduð verk um efna-
hagsmál og stjórnmál. Þá eru til-
greind nokkur verk sem Almenna
bókafélagið hefur gefið út á þessu
ári en það eru bækurnar Íslensk-
ir kommúnistar 1918–1998 eftir
Hannes Hólmstein Gissurarson,
Uppsprettan eftir bandaríska rit-
höfundinn Ayn Rand og Icesave-
samningarnir: Afleikur aldarinnar?
eftir Sigurð Má Jónsson. Ljóst er að
Almenna bókafélagið hefur fært sig
töluvert upp á skaftið að undan-
förnu, því árið 2011 voru gefn-
ar út fleiri bækur á vegum þess en
nokkru sinni fyrr.
Veita engar upplýsingar
um fjármál
Jónas Sigurgeirsson og Hannes
Hólmsteinn sögðu báðir að fyrra
bragði að þeir hefðu ekkert að fela
varðandi starfsemi rannsóknarset-
ursins. Hannes tók fram að hann
hefði enga upplýsingaskyldu gagn-
vart DV og bætti við: „Ef þið eruð
að fiska eftir einhverjum fjár-
málum þá fáið þið engar upplýs-
ingar um þau.“ Honum var tíðrætt
um samband sitt við forsvars-
menn erlendra hugmyndaveitna.
„Ég er í góðu samstarfi við þess-
ar stofnanir. Mennirnir í Cato og
Heritage Foundation eru allir vin-
ir mínir,“ sagði Hannes. „Ég vona
að þeir hjálpi okkur við að flytja
inn erlenda fyrirlesara. Ég mundi
gjarnan vilja að stofnanirnar tækju
þátt í kostnaðinum og ég mundi
ekki skammast mín fyrir að fá
stuðning frá þeim.“
Fyrirlestraröð um frelsi
Þótt fram komi á vefsíðu hug-
myndaveitunnar að tilgangur
hennar sé að rannsaka hvað örvi
og hindri nýsköpun og hagvöxt
virðist mikill einhugur ríkja meðal
forsprakka hugmyndaveitunnar
um það hvaða leiðir séu best til
þess fallnar að ná þessum mark-
miðum. RNH skipuleggur nú fyrir-
lestraröð um frelsi og kapítalisma
undir heitinu „Frelsið til að vaxa
og þroskast: Uppgjör við sósíal-
ismann.“ Erlendum fræðimönnum
verður boðið til landsins til að halda
fyrirlestra og meðal þeirra sem tala
verða Matt Ridley, vísindamaður
sem gagnrýnt hefur málflutning
loftslagsvísindamanna um hlýnun
jarðar af mannavöldum. Þá munu
Frjálshyggjumenn ná vopnum sínum
n Sjálfstæðismenn stofna rannsóknarsetur n Hannes Hólmsteinn, Ragnar Árnason og Þór Whitehead sameinast
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannp@dv.is
„Ef þið
eruð að
fiska eftir ein-
hverjum fjár-
málum þá fáið
þið engar upp-
lýsingar um þau
Eimreiðarhópurinn Kynnti
Íslendinga rækilega fyrir frjáls-
hyggjunni og komst til áhrifa
innan Sjálfstæðisflokksins.
12 Fréttir 20.–22. júlí 2012 Helgarblað