Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Qupperneq 13
Fréttir 13 Frjálshyggjumenn ná vopnum sínum n Sjálfstæðismenn stofna rannsóknarsetur n Hannes Hólmsteinn, Ragnar Árnason og Þór Whitehead sameinast Stjórn rannsóknarsetursins Gísli Hauksson Gísli er framkvæmdastjóri ráðgjafarfyrirtækisins GAMMA. Gísli starfaði hjá Kaupþingi á Íslandi á árunum 2006 til 2008 og hafði yfirumsjón með skuldabréfa- viðskiptum og afleiðum. Þar á undan starfaði hann hjá Kaupþingi í London. GAMMA hefur verið í fréttum að undanförnu vegna ráðningar Jóns Sigurðssonar til fyrirtækisins, en Jón var forstjóri FL Group og hefur verið stefnt af skilanefnd Glitnis vegna falls bankans. Jónas Sigurgeirsson Jónas er framkvæmdastjóri RNH, en einnig fram- kvæmdastjóri og eini fastráðni starfsmaður Almenna bókafélagsins. Bókafélagið hefur meðal annars gefið út bækur Ármanns Þorvaldssonar, Egils „Gilzeneggers“ Einarssonar og Hannesar Hólmsteins. Áður starfaði Jónas sem almannatengill og framkvæmdastjóri sam- skiptasviðs Kaupþings. Honum var sagt upp í desember árið 2008, stuttu eftir bankahrun. Mynd: facebook Jónmundur Guðmarsson Jónmundur var bæjarstjóri á Seltjarnarnesi áður en hann tók við sem framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks- ins árið 2009. Hann var umsvifamikill í viðskiptalífinu fyrir hrun og átti stóran hlut í félaginu Berginu sem ný- verið var tekið til gjaldþrotaskipta. Kröfuhafar Bergsins ehf. afskrifuðu tæplega 3,8 milljarða króna af skuldum þess, en Bergið keypti hlutabréf í Sparisjóðabankanum Icebank, fyrir um fjóra milljarða króna árið 2007 með lánum frá bankanum sjálfum, SPRON, Sparisjóðnum í Keflavík og Byr. einnig skattasérfræðingur Cato Institute og hagfræðiprófessorinn Phil Booth halda fyrirlestur á Ís- landi. Fræðimennirnir sem boðið verður til landsins aðhyllast nær allir róttæka hægristefnu. eimreiðarhópurinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Þór Whitehead voru félagar í Eimreiðarhópnum, félagi karla sem gaf út tímarit á áttunda ára- tugnum og boðaði frjálshyggju af miklum móð. Hópurinn varð valdamikill innan Sjálfstæðis- flokksins og nær allir meðlimir hans komust til áhrifa í íslensku þjóðlífi. Ásamt Hannesi og Þór voru í hópnum menn á borð við Davíð Oddsson, Geir H. Haarde, Jón Steinar Gunnlaugsson, Vil- hjálm Þ. Vilhjálmsson og Þor- stein Pálsson. Baldur Guðlaugsson og Kjartan Gunnarsson, tveir af eigendum Almenna bókafélagsins, voru einnig í hópnum. DV hefur fjallað ítarlega um Eimreiðarhóp- inn, en nokkrir af meðlimum hans hafa fengið dóma, meðal annars í tengslum við efnahagshrunið. Meðlimir Eimreiðarhópsins áttu stóran þátt í að kynna Ís- lendinga fyrir frjálshyggjunni. Fyrir lestraröðin sem RNH undirbýr virðist vera í sama anda og kynn- ingarherferð sem meðlimir Eim- reiðarhópsins réðust í á níunda áratugnum. Þá var erlendum frjáls- hyggjumönnum boðið til lands- ins, meðal annars hagfræðingun- um Milton Friedman og Friedrich Hayek. Hugmyndir þeirra höfðu gríðarleg áhrif á Íslandi, sérstaklega á útrásarárunum. Margir telja að hugmyndafræði frjálshyggjumanna hafi beðið skipbrot þegar bankarn- ir hrundu, en forsvarsmenn rann- sóknarsetursins eru ósammála því. Nú virðast þeir, ásamt Almenna bókafélaginu, vera að ná vopn- um sínum á ný og skipuleggja aðra frjálshyggjuherferð á Íslandi. Hannes Hólmsteinn Lykilmaður í Rannsóknarsetri um nýsköpun og hagvöxt og einn af eigendum Almenna bókafélagsins. Helgarblað 20.–22. júlí 2012

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.