Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Qupperneq 17
F
imm konur sökuðu Gunn-
ar Þorsteinsson um kyn-
ferðislegt áreiti árið 2010.
Þrjár þeirra komu fram
undir nafni og sendu stjórn
Krossins bréf með ásökunum en
það gerðu einnig tvær konur í við-
bót. Önnur þeirra heitir Jóhanna
Sigrún Jónsdóttir en hin vildi ekki
koma fram undir nafni. Í bréfi
kvennanna kom fram að brotin
væru öll fyrnd fyrir lögum sökum
þess hversu langt væri liðið síðan
þau voru framin.
Tvær af konunum eru systur
fyrrverandi eiginkonu Gunnars,
þær Sigríður og Sólveig Guðnadæt-
ur. Þær sögðu Gunnar hafa áreitt
þær gróflega þegar þær voru á tán-
ingsaldri og haldið því áfram allt
fram á fullorðinsár. Þriðja konan
er Brynja Dröfn Ísfjörð sem sakar
Gunnar um að hafa svívirt sig á
brúðkaupsdegi sínum. Hún seg-
ir hann hafa lyft brúðarslörinu
og kysst sig á munninn áður en
athöfnin fór fram.
Tekin voru opinská viðtöl við
konurnar og fjölskyldu Gunnars í
DV þann 29. nóvember árið 2010.
Sigríður og Sólveig Guðnadæt-
ur sögðu Gunnar hafa káfað á
brjóstunum á sér og beðið um að
fá að smakka brjóstamjólk Sigríðar
þegar hún var nýbúin að eiga barn.
Gunnar og Jónína Benedikts-
dóttir hafa ítrekað vísað þessum
ásökunum á bug og það hafa syn-
ir og dætur Gunnars einnig gert.
Athygli vekur að Ingibjörg Guðna-
dóttir, fyrrverandi eiginkona
Gunnars og systir kvennanna sem
saka hann um kynferðislegt áreiti,
hefur einnig lýst yfir stuðningi við
hann. Félagar úr Krossinum, sem
ekki vilja koma undir nafni, hafa
lýst því yfir í samtali við DV að þeir
telji ásakanirnar runnar undan rifj-
um Ingibjargar og telja þeir stuðn-
ingsyfirlýsingu hennar við Gunnar
vera sjónarspil eitt. Gunnar og Jón-
ína hafa haldið því fram að einungis
vaki fyrir konunum að grafa undan
Krossinum og hjónabandi þeirra.
Gunnar sakaður
um kynferðisbrot
fjölskyldustríð í krossinum
Úttekt 1716 Úttekt
n Dóttir Gunnars snýst gegn föður sínum n Gunnar reyndi að taka völdin n „Þarna er að eiga sér stað fjölskyldutragedía“ n Ingibjörg valdamest
Helgarblað 20.–22. júlí 2012
K
rossinn er einn íhaldssam-
asti kirkjusöfnuður á Ís-
landi en meðlimir safn-
aðarins eru andsnúnir
því að orð Biblíunnar séu
túlkuð frjálslega og aðlöguð sið-
ferði nútímamanna. Söfnuðurinn
er einna frægastur fyrir andstöðu
við samkynhneigð og athafnir sem
Krossinn flokkar undir trú- og kyn-
villu. Þá hafa meðlimir safnaðar-
ins aðstoðað fólk við að bæla nið-
ur kynferðislegar hvatir sem ekki
þykja samræmast heilagri ritningu.
Hjá Krossinum tíðkast helgi-
athafnir á borð við niðurdýfingar-
skírn, fótaþvott og olíusmurningu
og safnaðarmeðlimir trúa því að
erindrekar guðs á jörðu geti lækn-
að fólk af meinum sínum. Sung-
ið er og dansað af miklum móð á
samkomum kirkjunnar auk þess
sem predikarar eiga það til að „tala
tungum“. Samkvæmt hugmyndum
kirkjunnar mun Jesús Kristur snúa
aftur og stofnsetja þúsund ára ríki
sitt á jörðinni. Þá verður fólk ýmist
skilið eftir á jörðinni eða því vísað
til hinnar helgu borgar, himnaríkis
eða helvítis.
Umdeildur boðskapur
Þegar allt lék í lyndi Gunnar Þor-
steinsson og Ingibjörg Guðnadóttir skildu
á haustmánuðum 2009. Ingibjörg er farin
að láta meira að sér kveða í safnaðar-
starfi Krossins, en heimildir DV herma að
Gunnar hyggist stofna nýtt trúfélag.
M
y
n
d
: Sk
já
Sk
o
t a
f fa
ceb
o
o
k
.