Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Blaðsíða 47
50 verðmætustu íþróttafélögin
Sport 47Helgarblað 20.–22. júlí 2012
n Manchester United er verðmætasta íþróttafélag heims n Öll liðin í NFL -deildinni á topp 50 og fjögur á topp 10 n Sjö knattspyrnulið á listanum
verð í ákveðin sæti vallarins til
að trekkja að fleiri áhorfend-
ur. Félagið hefur átt í erfiðleik-
um með að fá áhorfendur á
heimaleiki sína sem fara fram
á MetLife Stadium, leikvangi
sem liðið deilir með grönnum
sínum New York Giants.
13. Houston Texans
Virði: 151 milljarður króna
Eigandi: Robert McNair
Houston Texans er enn eitt NFL-liðið sem kemst á listann. Félagið
tryggði sér sæti í úrslitakeppni
deildarinnar í fyrsta sinn í
sögunni árið 2011, en félagið
var stofnað árið 2001. Helsta
tekjulind félagsins er miða-
sala á heimaleiki, en þar er
að finna 200 sérútbúin stæði
fyrir vellauðuga einstaklinga
og 8.400 lúxussæti. Nær félag-
ið 50 milljónum dala, eða 6,3
milljörðum króna, í kassann á
hverju ári með miðasölu í um-
rædd sæti. Heimavöllur liðsins
ber nafn Reliant Energy-orku-
fyrirtækisins og greiðir orku-
fyrirtækið Texans-liðinu 300
milljónir dala, eða 38 milljarða
króna, fyrir 30 ára samning.
14. Philadelphia Eagles
Virði: 146 milljarðar króna
Eigandi: Jeffrey Lurie
Philadelphia Eagles hefur sett markið hátt á undan-förnum árum en árangur-
inn innan vallar þó látið á sér
standa. Félagið er eitt það fjár-
sterkasta í NFL-deildinni og er
það ekki síst öflugum heima-
velli – sem skilar milljörðum í
kassann á hverju ári – og litl-
um skuldum að þakka. Blikur
eru þó á lofti því eigandinn,
Jeffrey Lurie, stendur nú í
skilnaði við eiginkonu sína til
20 ára og eru eignir hans að
mestu bundnar í félaginu.
15. Ferrari
Virði: 139 milljarðar króna
Eigandi: Fiat Group
Það kann að þykja óvenjulegt að bílafram-leiðandi sé á listanum
yfir ríkustu íþróttafélögin.
Hér er þó að sjálfsögðu átt
við þann arm fyrirtækisins
sem snýr að akstursíþróttum
og þá einna helst Formúlu 1.
Ferrari hefur gert afar verð-
mæta auglýsingasamninga á
undanförnum árum, meðal
annars 52 milljóna dala, eða
6,5 milljarða króna, samning
við spænska bankann Sant-
ander fyrr á þessu ári. Þá
framlengdi fyrirtækið aug-
lýsingasamning við tóbaks-
framleiðandann Marlboro
sem tryggir Ferrari 500
milljónir dala, eða 63 millj-
arða króna, á næstu þrem-
ur árum.
Fleiri verðmæt íþróttafélög
16.–18. Chicago Bears,
138 milljarðar
16.–18. Green Bay Packers,
138 milljarðar
16.–18. Baltimore Ravens,
138 milljarðar
19. Indinapolis Colts, 134 milljarðar
20. Denver Broncos, 133 milljarðar
21. Pittsburgh Steelers,
129 milljarðar
22. Miami Dolphins, 128 milljarðar
23.–24. Carolina Panthers,
126,5 milljarðar
23.–24. Boston Red Sox,
126,5 milljarðar
25. Seattle Seahawks,
126 milljarðar
26.–27. San Francisco 49ers,
125 milljarðar
26.–27. AC Milan, 125 milljarðar
28. Kansas City Chiefs,
124,7 milljarðar
29. Tampa Bay Buccaneers,
124 milljarðar
30. Cleveland Browns,
123,5 milljarðar
31. New Orleans Saints,
122 milljarðar
32. Tennessee Titans,
121,9 milljarðar
33. San Diego Chargers,
116,3 milljarðar
34. Arizona Cardinals,
113,9 milljarðar
35. Los Angeles Lakers,
113,8 milljarðar
36. Chicago Cubs, 111,2 milljarðar
37. Cincinnati Bengals,
110,7 milljarðar
38. Detroit Lions, 106,7 milljarðar
39. Atlanta Falcons, 103 milljarðar
40. McLaren, 101,1 milljarðar
41. Minnesota Vikings,
100,6 milljarðar
42. Buffalo Bills, 100,1 milljarðar
43. New York Knicks,
98,6 milljarðar
44. St. Louis Rams,
98 milljarðar
45. Oakland Raiders,
96,3 milljarðar
46. Chelsea, 96,2 milljarðar
47. Jacksonville Jaguars,
91,7 milljarðar
48. Philadelphia Phillies,
91,4 milljarðar
49. New York Mets,
91 milljarður
50. Texas Rangers,
85,2 milljarðar
Á toppnum Manchester United er
verðmætasta íþróttafélag heims, sam-
kvæmt úttekt Forbes-tímaritsins. Það
er ekki síst góðum árangri United að
þakka undanfarin ár. Hér sjást leikmenn
félagsins fagna meistaratitli sínum á
Englandi vorið 2009. Mynd ReuteRs