Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2012, Blaðsíða 54
54 Fólk 20.–22. júlí 2012 Helgarblað
Tók 110 kíló í axlapressu
n Björgólfur Thor tók á því á hlýrabolnum í World Class
A
uðkýfingurinn Björg
ólfur Thor Björgólfsson
var í miklu stuði í World
Class Laugum á mið
vikudaginn var. Hann stund
aði þar líkamsrækt af miklu
kappi en Björgólfur hefur lengi
lagt mikið upp úr líkamlegu
atgervi. Klæddur í svartan
hlýrabol „refsaði“ Björgólfur
lóðunum eins og jafnan er
sagt á lyftingamáli en hann tók
meðal annars 110 kíló í axlar
pressutæki. Það var mikið að
gera hjá Björgólfi en á milli
þess sem hann lyfti var hann í
símanum.
Líkt og áður sagði hefur
Björgólfur lengi lagt mikið upp
úr því að vera vel á sig kominn
en Ármann Þorvaldsson sagði
frá því í bók sinni Ævintýraeyj
unni sem kom út skömmu eft
ir hrun að Björgólfur væri mik
ið heljarmenni og tæki heil 200
kíló í bekkpressu. Þá var frétt
í DV síðasta sumar um það
þegar Björgólfur sýndi maga
vöðvana á Quarashitónleik
um á Nasa. Þá bauð starfs
stúlka Björgólfi að kaupa bol
og hann spurði hana hvaða
stærð hún teldi sig nota. Medi
um/Large skaut hún á og sló
Björgólfur þá á létta strengi
og lyfti upp bolnum sínum,
spennti magavöðvana og
spurði hana hvort hún teldi
virkilega að hann passaði í þá
stærð.
Það voru fleiri stjörnur á
vappi í Laugum á miðviku
daginn. Fyrrverandi lands
liðsfyrirliðinn Eiður Smári
Guðjohnsen og ísdrottn
ingin, Ásdís Rán Gunnars
dóttir, voru á svæðinu sem
og stjörnulögfræðingurinn
Sveinn Andri Sveins
son.
n Berlínarrefirnir í æfingaferð n „Læðast út á lífið“
saman í herbergi
D
agur Sigurðsson er
búinn að vera hér á
landi síðustu daga
með liðið sitt Füchse
Berlin. Dagur segir
að ferðin hafi aðallega verið
ætluð sem æfingaferð en líka
skemmtiferð sem hristir hóp
inn saman. „Það sem af er hef
ur verið ansi mikil dagskrá. Við
vorum að í gær frá klukkan sex
um morguninn og kláruðum
að spila „paintball“ í Skemmti
garðinum klukkan eitt í nótt,“
segir Dagur og bætir við:
„Strákarnir voru orðnir frekar
lúnir í gær þegar þeir fóru að
sofa enda eru þeir líka búnir að
vera á æfingum inn á milli.“
Dagur segir strákana vera
mjög hrifna af landinu. „Dag
skráin hefur verið mjög fjöl
breytt. Þeir eru búnir að fara í
Bláa lónið og svo fór Dóri DNA
með þá í Vesturbæjarlaugina
og kenndi þeim Müllersæf
ingar. Svo hefur ratleikur verið í
gangi og strákarnir hafa ferðast
á hjólum um allan bæ að safna
sér stigum. Sumir þeirra náðu
sér í stig með því að hlaupa
upp á Esjuna í morgun.“
Liðið dvelur á Kex Hostel og
gista strákarnir í einu 16 manna
herbergi. Dagur segir að kokk
urinn á Kex Hostel, Gunnar
Karl, sé búinn að setja saman
rosalega góðan mat seðil fyrir
þá, enda þurfa drengirn
ir að borða vel eftir stífar æf
ingar og eru þeir mjög ánægð
ir með íslenska matseld. „Við
fljúgum aftur til baka á sunnu
daginn og þeim verður gefinn
örlítið lausari taumurinn um
helgina. Við ætlum að vera á
Kex á föstudagskvöldið og gera
okkur glaðan dag og ég býst al
veg við því að þeir kíki aðeins á
næturlífið, það er hætt við því,“
segir Dagur og hlær.
Dagur er einn af eigendum
Kex Hostels en meðeigendur
hans eru m.a. Eiður Smári,
Pétur Marteinsson, Her
mann Hreiðarsson og Kristinn
Vilbergsson.
„Kex Land er nýr angi af
þessu hjá okkur og mun taka
að sér að skipuleggja ferðir
fyrir útlendinga sem koma til
Íslands og vilja upplifa landið
á annan hátt en hefur verið í
boði, í ferðum sem eru svolítið
í okkar stíl. Við höfum æft þetta
á Füchse Berlin núna á meðan
þeir hafa dvalið hjá okkur og
þetta hefur verið alveg rosa
lega skemmtilegt.“
Dagur segir að Eiður Smári
hafi ekki verið með þeim fram
að þessu: „Kannski fáum við
að hitta hann eitthvað ef hann
fórnar sér á föstudagskvöldið.“
Dagur Sigurðsson „Við ætlum
að vera á Kex á föstudagskvöldið
og gera okkur glaðan dag og ég býst
alveg við því að þeir kíki aðeins á
næturlífið, það er hætt við því.“
Löng dagskrá Leikmenn liðsins hafa æft stíft á Íslandi en einnig fengið að láta gamminn geysa.
Füchse Berlin
Mjög hrifnir af Íslandi.
Afsökunar-
beiðni HVH
Grínistinn Halldór Halldórs
son, betur þekktur sem Dóri
DNA, er ritstjóri síðunnar
„Hverjir voru hvar“ en á
mánudaginn birtu þeir ljós
mynd af fólki í atlotum á
Austurvelli. Myndin var síð
an tekin út af vefnum og í
kjölfarið sendi Dóri frá sér
yfirlýsingu þar sem hann
baðst afsökunar á þessari
myndbirtingu. Í yfirlýs
ingunni segir meðal annars
„Síðan var upphaflega stofn
uð til þess að fanga tíðar
andann hverju sinni. Gera
grín að öfgunum í kring
um okkur og að reyna setja
kynslóð okkar í sögulegt og
spaugilegt samhengi. Ljós
mynd af fólki að gera það á
Austurvelli kemur málinu
nákvæmlega ekkert við.“ Í
lok yfirlýsingarinnar segir
Dóri svo: „Ég skeit á mig,
bæði með því að draga síð
una niður á plan sem ég
sjálfur þoli ekki, og með því
að þykjast heilagri en annað
fólk. Þess vegna birti ég hér
mynd af mér að kúka.“
„Leiðin-
leg“ Dísa
Söngkonan Dísa Jakobs leit
aði til Facebookvina sinna á
fimmtudag þegar hún lenti í
tækniörð
ugleikum.
„Þetta
er án efa
leiðin
legasta
stöðu
uppfær
sla sem
ég mun
nokkurn tímann skrifa
en hér kemur hún,“ sagði
söngkonan sem hafði lent
í vandræðum með Mack
book Profartölvuna sína.
Vinir söngkonunnar voru
ekki lengi að koma henni
til bjargar en Dísa er búsett
í Danmörku þar sem hún
ræktar fjölskyldu sína og
tónlistina.
Frægir á
frumsýningu
Stórmyndin The Dark
Knight Rises var forsýnd í
Sambíóunum Egilshöll á
miðvikudag og var fjöldi
frægra íslendinga sem barði
Batman augum fyrst lands
manna. Á sýningunni voru
meðal annarra Erpur Ey
vindarson, Steindi Jr, Björn
Bragi Arnarsson, Ágúst Bent
Sigbertsson, Sverrir Berg
mann, Marín Manda, Hall
dór Halldórsson, Kalli Lú,
Svali og fleiri. Gestum líkaði
myndin nokkuð vel og var
klappað vel og lengi þegar
henni lauk.
Voru ekki
langt und-
an Eiður
Smári og
Ásdís Rán.
Björgólfur
Thor Tók
hraustlega
á því í World
Class.