Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2012, Síða 32
É
g er borinn og barn-
fæddur Keflvíkingur
og er yngst af 5 systk-
inum,“ segir Pálína
Hildur sem verð-
ur fertug þann 17. ágúst.
„Það var fínt að alast upp í
Keflavík, það er mátulega
lítið samfélag. Það er líka
eftirminnileg nálægðin við
herstöðina á Keflavíkurflug-
velli en pabbi vann einmitt
hjá hernum þannig að mað-
ur fékk stundum amerískt
góðgæti.“
Hrakföll kisu
Pálína átti kisu í æsku sem
er henni mjög minnis-
stæð: „Við eignuðumst kisu
og nefndum hana Mál-
fríði Snót en hún var alltaf
kölluð Malla og hún lenti í
ýmsu blessunin. Einu sinni
varð hún til dæmis fyrir bíl
en slapp nokkuð vel nema
rófan á henni drapst þannig
að það varð að taka hana
af, eftir það minnti hún mig
alltaf á kanínu.“
Lá á að stofna fjölskyldu
Skólaganga Pálínu hófst á
því sem þá hét „núll bekk-
ur“ því þá var skólakerf-
ið öðruvísi en í dag: „Ég
hóf skólagönguna í Myllu-
bakkaskóla í Keflavík en
þegar ég var 12 ára fór ég í
gagnfræðaskóla sem heit-
ir Holtaskóli í dag. Þegar
ég var 16 ára fór ég í Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja en
lá svo mikið á að stofna fjöl-
skyldu að ég entist ekki lengi
þar. Ég fór svo í Kennarahá-
skóla Íslands og útskrif-
aðist þaðan sem leikskóla-
kennari 2001. En árið 2007
skipti ég um starfsvettvang
og í dag vinn ég í Gæðadeild
Icelandair.“ Pálína segir að
sín uppáhaldsminning frá
fullorðinsárunum hafi ver-
ið þegar hún gekk í hjóna-
band. „Við maðurinn minn
giftum okkur árið 2007 og
það var dásamleg stund í
faðmi nánustu fjölskyldu
okkar beggja.“
Hleypur 10 kílómetra
Sumarið hjá Pálínu hef-
ur einkennst af æfingum
fyrir 10 kílómetra hlaupið
sem hún ætlar að taka þátt
í, sem hluta af Reykjavíkur-
maraþoninu. „Ætli sjálfur
afmælisdagurinn verði ekki
svona frekar hversdags. Ég
á afmæli föstudaginn 17.
ágúst og dagurinn mun fara
í undirbúning fyrir hlaup-
ið og veisluna sem verður
daginn eftir. Þann 18. ætla
ég svo að byrja daginn á
því að hlaupa 10 kílómetra
í Reykjavíkurmaraþoninu.
Þetta er mikil áskorun fyr-
ir mig og fannst mér töff
að gera þetta núna, svona
nálægt 40 ára afmælisdeg-
inum mínum. Seinnipart-
inn ætla ég að hafa veislu
fyrir fjölskyldu og nánustu
vini.“ Pálína kvíðir því alls
ekki að eldast: „Mér finnst
flott að verða fertug. Ef ég
er raunsæ þá get ég gefið
mér að ég muni ná áttræðu
þannig að núna er ég hálfn-
uð með ævina. Fyrri hálf-
leikur er liðinn og seinni
hálfleikurinn rétt að byrja.
Og hvernig ætla ég að hafa
hann? Ég ætla að hafa hann
stórkostlegan,“ segir þessi
hressa kona að lokum.
32 17.–19. ágúst 2012 Helgarblað
43 ára 18. ágúst
Edward Norton átti stjörnuleik í myndunum
Fight Club og American History X en leikstýrði
sinni fyrstu mynd árið 2000.
43 ára 19. ágúst
Matthew Perry er þekktastur fyrir hlutverk
sitt sem Chandler Bing í gamanþáttunum
sívinsælu Friends.
69 ára 17. ágúst
Leikarinn Robert De Niro sem er þekktur fyrir
Taxi Driver, Anger Management og Guðföðurinn.
n Daiquiri
Hráefni
4 sentilítrar romm
2 sentilítrar lime eða sítrónusafi
1 teskeið flórsykur
Aðferð: Hrist vel ásamt klaka. Hægt að skreyta með því að
væta glasabarminn með sítrónusneið og dýfa glasinu síðan
í sykur. Skreyta síðan með jarðarberi, lime eða sítrónusneið.
n Jarðarberja-daiquiri
Hráefni
4 sentilítrar romm
Safi úr 1/2 sítrónu
1 teskeið flórsykur
4 stykki jarðarber
Aðferð: Setjið 2–3 ísmola og allt hráefnið í blandara og
blandið vel. Skreytið með einu fersku jarðarberi.
Síðsumarkokteilar
N
ú er komin notalegur
árstími og smá myrkur
á kvöldin og við erum
minnt á að sumarið
varir því miður ekki að eilífu.
Það þýðir ekki að við eigum
að leggjast í vetrardvalann
strax heldur að njóta síð-
ustu vikna sumarsins og það
getum við gert heima við og
boðið vinum í sumarkok-
teila.
Ferskir og freistandi kok-
teilar til að skála í, á síðsum-
arkvöldi í sumarbústaðnum,
úti á palli, úti á svölum eða
jafnvel bara heima í stofu.
Þá er einfalt að útbúa og þeir
eru himneskir á bragðið.
17. ágúst
682 – Leó 2. varð páfi.
1424 – Hundrað ára stríðið:
Englendingar unnu sigur á stærri
her Frakka í orrustunni við Verneuil.
1560 – Mótmælendatrú var
formlega tekin upp í Skotlandi.
1945 – Indónesía lýsti yfir
sjálfstæði.
1946 – Valgerður Þorsteinsdóttir
varð fyrsta íslenska konan til að
ljúka einkaflugmannsprófi.
1960 – Gabon fékk sjálfstæði frá
Frakklandi.
1980 – Heklugos hófst og stóð
stutt, aðeins í nokkra daga. Aftur
hófst stutt gos þann 9. apríl 1981 og
er það talið framhald þessa goss.
1988 – Forseti Pakistans
Muhammad Zia-ul-Haq og
sendiherra Bandaríkjanna Arnold
Raphel létust í flugslysi.
18. ágúst
1786 – Reykjavík fékk kaup-
staðarréttindi ásamt Grundar-
firði, Ísafirði, Akureyri, Seyðisfirði
og Vestmannaeyjum. Þetta ár
voru Íslendingar 38 þúsund, en
Reykvíkingar töldust 167.
1877 – Bandaríkjamaðurinn Asaph
Hall uppgötvaði tunglið Fóbos.
1886 – Haldið var upp á afmæli
Reykjavíkurkaupstaðar með
samkomu á Austurvelli og sam-
sæti á Hótel Íslandi. Bæjarbúar
töldust vera 3.540 og því var spáð
að þeir yrðu tífalt fleiri árið 1986,
en sá fjöldi náðist fyrir 1940.
1961 – Grasagarður Reykjavíkur
var formlega opnaður.
1966 – Tekin var fyrsta skóflu-
stunga að myndlistarhúsi á
Miklatúni. Það gerði Jóhannes S.
Kjarval og var húsið síðar nefnt
Kjarvalsstaðir honum til heiðurs.
1986 – Haldið var upp á 200 ára
kaupstaðarafmæli Reykjavíkur.
Talið var að 70–80 þúsund manns
hafi verið í miðbænum þegar
mest var. Þar var í boði stærsta
terta, sem sögur fara af á Íslandi,
200 metra löng. Íslenska ríkið gaf
Reykjavíkurborg Viðeyjarstofu og
Viðeyjarkirkju í afmælisgjöf. Flug-
eldasýning var rétt fyrir miðnættið.
2003 – Norðurlandasamningur
um almannatryggingar var
undirritaður.
2008 – Pervez Musharraf sagði
af sér sem forseti Pakistan.
19. ágúst
1399 – Ríkharður 2. Englands-
konungur gafst upp fyrir Hinriki Bol-
ingbroke og afsalaði sér krúnunni.
1561 – María Skotadrottning sneri
heim frá Frakklandi, þar sem hún
hafði alist upp.
1745 – Uppreisn Jakobíta hófst í
Skotlandi.
1809 – Jörundur hundadagakon-
ungur afsalaði sér völdum á Íslandi.
1871 – Alþingismenn stofnuðu
Hið íslenska þjóðvinafélag til þess
að efla meðvitund Íslendinga um
þjóðerni sitt.
1939 – Blindrafélagið var stofnað
á Íslandi.
1949 – Kvikmyndafyrirtækið
Edda-Film var stofnað í Reykjavík.
1964 – Kvikmynd Bítlanna, A hard
days night, var frumsýnd í Tónabíói.
Myndin sló öll fyrri sýningarmet.
1993 – Veiðar íslenskra togara
hófust í Smugunni svonefndu,
sem er hafsvæði á milli fiskveiði-
lögsagna Noregs og Rússlands.
Áður höfðu Færeyingar veitt þar
undir hentifána.
1996 – Netscape Navigator 3.0
kom út. Þetta var fyrsti vafrinn
með innbyggðan JavaScript-túlk.
2008 – Rauðhumla sást í fyrsta
sinn á Íslandi.
Merkis-
atburðir
n Einfaldir að útbúa og himneskir á bragðið
Kokteilar
Það er eitthvað
við þá.
Fjölskylda
Pálínu
n Foreldrar:
Sigurður Sverrir Einarsson
f. 27.5. 1934 – d. 11. 2. 2011
Stefanía Lórý Erlingsdóttir
f. 27.10. 1935 – d. 7.11. 2007
n Systkin:
Sigurður Júlíus Sigurðsson
f. 24.9. 1954
Helga Ellen Sigurðardóttir
f. 7.10. 1955
Ólafía Þórey Sigurðardóttir
f. 8.1. 1958
Ásta Rut Sigurðardóttir
f. 26.8. 1968
n Maki:
Rafnkell Jónsson - f. 27.5. 1964
n Börn:
Nína Rún Bergsdóttir
f. 4.10. 1990
Karítas Lára Rafnkelsdóttir
f. 16.1. 1997
Stórafmæli Pálína Hildur Sigurðardóttir 40 ára 17. ágúst
Ætlar að hafa seinni
hálfleikinn stórkostlegan
Pálína Hildur Borinn og
barnfæddur Keflvíkingur.