Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2012, Síða 40
40 Lífsstíll 17.–19. ágúst 2012 Helgarblað
Tannkremið er
ekki hættulegt
Það kannast eflaust margir við að
hafa heyrt það sem börn að það
mætti ekki kyngja tannkremi því
það innihéldi svo mikið af hættu-
legum efnum sem gætu ver-
ið slæm fyrir líkamann. Það má
segja að það sé hálfgerð mýta
því þú þyrftir að öllum líkindum
að borða innhald heillar tann-
kremstúbu til að finna fyrir ein-
hverjum óþægindum í magan-
um. Tannlæknar ráðleggja meira
að segja fólki yfirleitt að skola ekki
munninn með vatni eftir tann-
burstun því það dregur úr áhrifum
flúorsins.
Þá þarf ekki að bleyta tann-
kremið á burstanum áður en þú
byrjar að bursta.
Appelsínur
gegn streitu
Það er að sjálfsögðu alkunn stað-
reynd að ávextir eru meinhollir og
gott að er að neyta nokkurra slíkra
á degi hverjum. Það getur þó verið
gott að velja sér réttu ávextina, sér-
staklega ef þú þjáist af þrálátum
kvilla eins og streitu. Ef þú finnur
fyrir streitu eða stressi þá getur
nefnilega verið góð hugmynd að fá
sér einhvers konar sítrusávöxt.
Þýskir vísindamenn rannsök-
uðu 120 einstaklinga sem neyttu
C-vítamíns í mismiklu magni og
komust að þeirri niðurstöðu að
þeir sem innbyrtu mikið af því,
til að mynda með neyslu sítrusá-
vaxta, þjáðust síður af streitu og
blóðþrýstingur þeirra var einnig
lægri.
Kanill við
sykursýki
Kanill hefur lengi verið notaður í
matargerð og sem bragðefni í kök-
ur en kanill er einnig talinn getað
hjálpað gegn meltingartruflunum,
sveppasýkingu og liðagigt. Sam-
kvæmt sænskri rannsókn getur
kanillinn verði góður í meðferð
við sykursýki II en niðurstöður
hennar sýndu marktæka lækkun
á blóðsykri hjá sjúklingum sem
notuðu 6 grömm af kanil út á hrís-
grjónagrautinn sinn, í samanburði
við sjúklinga sem ekki notuðu
kanil. Þetta kemur fram á heilsu-
bankinn.is.
Kanill er unninn úr innri berki
kaniltrésins en besti kanillinn
þykir sá sem kemur frá Sri Lanka.
Góð og áhrifamikil blanda er að
hræra saman tvær matskeiðar af
hunangi og 3 teskeiðar af kanil
í um það bil hálfan lítra af vatni
eða tei og drekka daglega. Hann
er einnig hægt að nota út á mat
og nota í olíur.
Þ
eir eru alveg ofsalega ólíkir.
Annar er dökkhærður með
brún augu en hinn ljóshærð-
ur með blá. Annar er með
mikið skap en hinn síbros-
andi. Samt eru þeir báðir hlátur-
mildir og skemmtilegir,“ segir söng-
og leikkonan Íris Kristinsdóttir sem
eignaðist tvíbura í apríl. Drengirn-
ir hafa fengið nöfnin Rökkvi Örn
og Hrafn Unnar en þeir eru hennar
fjórða og fimmta barn.
Værir og góðir
Drengirnir eru tvíeggja en koma
þeirra kom foreldrunum mjög á
óvart. „Við fórum snemmsónar og
fengum að vita að við ættum von á
tvíburum strax á sjöundu viku. Við
vorum samt mjög hissa,“ segir hún
brosandi og bætir við að drengirnir
hafi alltaf verið værir og góðir. „Þeir
hafa sem betur fer verið frískir, fyr-
ir utan smá magakveisu hjá öðrum
þeirra. En það leið allt hjá á fyrstu
þremur mánuðunum. Það er samt
alveg nóg að gera. Maður kvartar
allavega ekki yfir því að hafa ekkert
að gera,“ segir Íris brosandi og bætir
við að litlu synirnir séu smám saman
að uppgötva hvor annan. „Þeir skoða
hvor annan þegar þeir sitja á móti
hvor öðrum í ömmustólnum þannig
að tærnar snertast. Þá ýta þeir gjarn-
an aðeins á hvor annan og hlæja.
Annars finnst þeim mamma sín mest
fyndin. Og eldri systkin þeirra.“
Eitt og eitt ball
Íris vakti á sínum tíma mikla athygli
sem söngkona hljómsveitarinnar
Buttercup. Hún hefur nú bætt leik-
listarnámi við sig en starfar ennþá
við tónlistina. „Leiklistin situr á hak-
anum þessa stundina. Það er ekki
hægt að gera allt í einu. Ég tek því
sem kemur og núna er ég að syngja.
Þessa dagana er það ofan á. Svo get-
ur það breyst á morgun,“ segir Íris
sem syngur í bandi sem heitir Berg-
mál. „Ég er bara að dúlla mér í þessu
og mig langar ekkert í sama pakkann
og í gamla daga. Núna er þetta bara
eitt og eitt ball. Það er voðalega gott
að komast út úr húsi annað slagið og
gera eitthvað allt annað,“ segir Íris
en bandið var stofnað á Egilsstöðum
þegar fjölskyldan bjó þar í fyrra.
Flutt til Grindavíkur
Íris er nú nýflutt til Grindavíkur með
fjölskylduna eftir stutt stopp í Hafnar-
firði. „Ég bjó í Grindavík um tíma og
fjölskylda föður elsta sonar míns býr
þarna og svo býr mamma þarna. Ég
á líka fullt af vinum í Grindavík. Það
átti ekki við mig að búa í svona litlu
samfélagi þegar ég var yngri en þegar
maður er kominn með svona mörg
börn er það mjög þægilegt. Hér eru
börnin frjálsari auk þess sem fast-
eignaverðið hér er mun lægra. Svo
er þetta stutt frá borginni. Krökkun-
um líður vel hérna. Stelpan mín er að
byrja í grunnskóla og strákur inn fékk
pláss á leikskóla um leið og við flutt-
um. Ég er búin að flytja oft um ævina
og er nú komin í nógu stórt og við-
ráðanlegt hús. Hér ætla ég að vera
þar til ég fer á elliheimili. Eða það
vona ég allavega.
Í fyrstu fannst mér þetta afleitt af
því að ég er svo mikill Hafnfirðing-
ur í mér en núna hef ég vanist til-
hugsuninni og sé kostina. Þetta er
allt gert fyrir börnin og fjölskylduna
– að börnin geti fengið smá pláss og
ég geti leyft þeim að stunda tónlistar-
nám og íþróttir en samt keypt nammi
á laugardögum og það án þess að
sprengja sig á afborgunum.“
Tímabundið álag
Íris segir systkinin ánægð með stækk-
un fjölskyldunnar. „Þeim finnst þetta
alveg rosalega spennandi og eru
mjög góð við tvíburana. Sérstaklega
dóttir mín en hún er sex ára og er
alltaf í mömmuleik. Hún hjálpar mér
mikið,“ segir Íris brosandi og játar að
vissulega geti álagið verið mikið. „Ég
væri að skrökva ef ég segði að þetta
væri ekki stundum erfitt en ég veit
að þetta er tímabundið álag. Þetta er
svona erfitt á meðan þau eru svona
lítil. Vissulega er þetta mikil breyting
fyrir alla en ég hef einbeitt mér að því
að sinna eldri börnunum jafn mik-
ið núna og áður. Þau skortir enga
athygli en vissulega krefst svona stór
fjölskylda mikillar skipulagningar. Ég
þarf að skipuleggja hverja einustu
mínútu dagsins.“
Söng- og leikkonan Íris Kristinsdóttir eignaðist
tvíbura í apríl en drengirnir eru hennar fjórða og
fimmta barn. Íris hefur oft flutt upp á síðkastið en er
nú búin að koma sér fyrir með barnaskarann í góðri
íbúð í Grindavík og stefnir á að dvelja þar þangað til
hún fer á elliheimili.
Allt fyrir börnin
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Viðtal
„Ég væri að skrökva
ef ég segði að
þetta væri ekki stundum
erfitt en ég veit að þetta
er tímabundið álag.
„Annars
finnst
þeim mamma
sín mest fyndin
Mamma Íris nýtur lífs-
ins innan um barnaskar-
ann sinn. MYND JG