Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2012, Blaðsíða 47
Sport 47Helgarblað 17.–19. ágúst 2012
City vinnur aftur
Manchester City ver enska meistaratitil-
inn í vetur ef marka má spár 24 veðbanka.
Nágrannarnir í United verða í öðru sæti og
Chelsea í því þriðja. Tveir af þremur nýlið-
um í deildinni fara rakleitt aftur niður, ef
marka má spárnar. baldur@dv.is
7 Newcastle
Sæti í fyrra: 5
Þjálfari/ráðinn: Alan Pardew / 9. desember 2010
Lykilmaður: Yohann Cabaye
Fylgstu með: Papiss Cissé
Komnir: Romain Amalfitano frá Reims, Gael Bigirim-
ana frá Coventry, Curtis Good frá Melbourne Heart.
Farnir: Leon Best til Blackburn, Fraser Forster til
Celtic, Danny Guthrie til Reading, Michael Hoganson til
Derby, Peter Lövenkrands til Birmingham, Alan Smith
til MK Dons, Daniel Taylor til Oldham
Newcastle teflir fram nærri því óbreyttu liði frá síðustu
leiktíð og tókst að halda öllum sínum sterkustu mönn-
um. Liðið var frábært á síðasta tímabili og hafnaði öllum
að óvörum í fimmta sæti. Liðið háði harða baráttu um
sæti í Meistaradeildinni. Það gekk þó ekki eftir. Vonandi
tekst Alan Pardew að ná jafn miklu út úr liðinu þetta
tímabilið því liðið er stórskemmtilegt á að horfa með
Demba Ba og Pipiss Cissé í broddi fylkingar. Fyrstu leik-
irnir verða erfiðir. Þeir eru á móti Tottenham og Chelsea.
8 Everton
Sæti í fyrra: 7
Þjálfari/ráðinn: David Moyes / 15. mars 2002
Lykilmaður: Leighton Baines
Fylgstu með: Nikica Jelavic
Komnir: Steven Naismith frá Rangers, Steven Pienaar frá Tottenham
Farnir: Tim Cahill í New York Red Bulls, Adam Forshaw til Brentford, Marcus Hahne-
mann, James McFadden, Connor Roberts til Cheltenham, Jack Rodwell til Manchester
City, James Wallace til Tranmere, Joseph Yobo til Fenerbache
Everton-liðið þurfti í sumar að sjá að baki lykilmanni sínum til margra ára; Tim Cahill. Þá
fór Jack Rodwell til Manchester City. Þetta gæti orðið strembið tímabil fyrir strákana
hans David Moyes en reynslan í liðinu og staðfestan mun skila þeim sæti um miðja deild,
ef veðbankar hafa rétt fyrir sér. Enn eitt miðlungsárið er framundan hjá litla liðinu í
Liverpool. Fyrsti leikurinn verður gegn öðru miðlungsliði; Aston Villa á útivelli.
9 Sunderland
Sæti í fyrra: 13
Þjálfari/ráðinn: Martin O‘Neil / 3. desember 2011
Lykilmaður: Stephane Sessegnon
Fylgstu með: James McClean
Komnir: Carlos Cuellar frá Aston Villa
Farnir: Marcos Angeleri til Estudiantes, Trevor Carson til Bury,
Jordan Cook til Charlton, Craig Gordon, Asamoah Gyan til Al-
Ain, Michael Liddle til Accrington Stanley, George McCartney
til West Ham, Michael Turner til Norwich
Martin O‘Neil er nægjusamur knattspyrnustjóri. Hann náði
miklu út úr liðinu eftir að hann tók við því á miðju tímabili í
fyrra. Liðið átti afar góðu gengi að fagna eftir áramótin. Carlos
Cueallar er genginn til liðs við félagið frá Aston Villa en nokkrir
eru farnir, eins og sjá má á listanum. Sunderland er líklegt til
að verða um miðja deildina en er ólíklegt til frekari afreka.
Reading og Swansea verða fyrstu andstæðingar Sunderland.
10 Aston Villa
Sæti í fyrra: 16
Þjálfari/ráðinn: Paul Lambert / 2. júní 2012
Lykilmaður: Darren Bent
Fylgstu með: Charles N‘Zogbia
Komnir: Karim El Ahmadi frá Feyenoord, Brett Holman frá AZ
Alkmaar, Matthew Lowton frá Sheffield United, Ron Vlaar frá
Feyenoord
Farnir: James Collins til West Ham, Carlos Cuellar til Sunder-
land, Emile Heskey, Connor Taylor til Walsall
Metnaðarleysi hefur einkennt Aston Villa undanfarin ár. Paul Lamb-
ert tók við liðinu í sumar en hann náði fínum árangri með Norwich í
fyrra. Það er þó erfitt að ná miklu út úr liði sem hefur á að skipa jafn
þunnum leikmannahópi og Villa. James Collins og Carlos Cuellar eru
farnir úr vörninni og þá er Emile nokkur Heskey horfinn á braut – þó
fyrr hefði verið. Liðið hefur fengið þrjá tiltölulega óþekkta leikmenn
frá hollenskum liðum í sumar. Vængmaðurinn Charls N‘ Zogbia verð-
ur að stíga upp ef liðinu á að takast að halda sig um miðja deildina
í vetur. Darren Bent getur ekki einn og sér borið liðið á herðum sér.
Liðið mætir nýliðum West Ham í fyrstu umferðinni.
11 Fulham
Sæti í fyrra: 9
Þjálfari/ráðinn: Martin Jol / 7. júní 2011
Lykilmaður: Clint Dempsey
Fylgstu með: Mousa Dembele
Komnir: Mladen Petric frá Hamburger SV,
Sascha Riether frá Köln (lán), Hugo Rodallega
frá Wigan, George Williams frá MK Dons
Farnir: Dickson Etuhu til Blackburn, Marcel
Gecov til Gent, Andrew Johnson til QPR, Danny
Murphy til Blackburn, Pavel Pogrebnjak til
Reading, Björn Helge Riise
12 QPR
Sæti í fyrra: 17
Þjálfari/ráðinn: Mark Hughes / 10. janúar 2012
Lykilmaður: Adel Taarabt
Fylgstu með: Junior Hoilett
Komnir: Fabio Da Silva frá Manchester United (lán),
Samba Diakite frá Nancy, Robert Green frá West Ham,
Junior Hoilett frá Blackburn, Park Ji-Sung frá Manchester
United, Andrew Johnson frá Fulham, Ryan Nelsen frá Tottenham
Farnir: Patrick Agyemang, Daniel Gabbidon, Fitz Hall til Watford, Heiðar Helguson til Cardiff, Paddy
Kenny til Leeds, Peter Ramage til Crystal Palace, Daniel Shittu til Millwall, Rowan Vine til St. Johnstone 13 Stoke
Sæti í fyrra: 14
Þjálfari/ráðinn: Tony Pulis / 15.
júní 2006
Lykilmaður: Peter Crouch
Fylgstu með: Ryan Shawcross
Komnir: Michael Kightly frá
Wolves, Jamie Ness frá Rangers
Farnir: Ryan Brunt til Leyton
Orient (lán), Danny Collins til
Nottingham Forest, Florent Cuvelier til Walsall (lán), Andrew Davies til Brad-
ford, Salif Diao, Ricardo Fuller, Matthew Lund til Bristol Rovers (lán), Louis
Moult, Thomas Soares, Jonathan Woodgate til Middlesbrough
20 Reading
Sæti í fyrra: 1. sæti í næst efstu deild
Þjálfari/ráðinn: Brian McDermott /20. desember 2009
Lykilmaður: Alex Pearce
Fylgstu með: Pavel Pogrebnyak
Komnir: Chris Gunter frá Nottingham Forest, Danny,
Guthrie frá Newcastle, Adrian Mariappa frá Watford,
Garath McCleary frá Nottingham Forest, Pavel Pogrebnjak
frá Fulham, Nicky Shorey frá WBA, Pierce Sweeney frá Bray
Wanderers
Farnir: Michail Antonio til Sheffield Wednesday (lán), Harry
Cooksley til Aldershot, Michael Hector til Shrewsbury (lán),
Angus MacDonald til Wimbledon (lán), Mathieu Manset
til Sion, Joseph Mills til Burnley (lán), Karl Sheppard til
Accrington (lán)
19 Southampton
Sæti í fyrra: 2. sæti í næst efstu deild
Þjálfari/ráðinn: Nigel Adkins /12. september 2010
Lykilmaður: Rickie Lambert
Fylgstu með: Adam Lallana
Komnir: Nathaniel Clyne frá Crystal Palace, Steven
Davis frá Rangers, Paulo Gazzaniga frá Gillingham,
Jay Rodriguez frá Burnley
Farnir: Bartosz Bialkowski til Notts County, Harlee
Dean til Brentford, Ryan Doble til Shrewsbury,
Tommy Forecast til Gillingham (lán), Dan Harding
til Nottingham Forest, Lee Holmes til Preston
14 WBA
Sæti í fyrra: 10
Þjálfari/ráðinn: Steve Clarke / 8. júní 2012
Lykilmaður: Chris Brunt
Fylgstu með: Romelu Lukaku
Komnir: Yassine El Ghanassy frá Gent (lán),
Ben Foster frá Birmingham, Romelu Lukaku frá
Chelsea (lán), Markus Rosenberg frá Werder
Bremen, Claudio Yacob frá Racing Club
Farnir: Keith Andrews til Bolton, Simon Cox til
Nottingham Forest, Paul Downing til WBA, Lateef
Elford-Alliyu til Bury, Marton Fülöp til Asteras
Tripoli, Joe Mattock til Sheffield Wednesday, Paul
Scharner, Nicky Shorey til Reading, Somen Tchoyi
15 Swansea
Sæti í fyrra: 11
Þjálfari/ráðinn: Michael Laudrup / 15. júní 2012
Lykilmaður: Danny Graham
Fylgstu með: Michel Vorm
Komnir: Jonathan de Guzmán frá Villarreal (lán), José
Manuel Flores frá Genoa, Michu frá Rayo Vallecano
Farnir: Joe Allen til Liverpool, Gylfi Þór Sigurðsson til
Tottenham (var í láni frá Hoffenheim)
16 Norwich
Sæti í fyrra: 12
Þjálfari/ráðinn: Chris
Hughton / 7. júní 2012
Lykilmaður: Grant Holt
Fylgstu með: John Ruddy
Komnir: Jacob Butterfield frá
Barnsley, Robert Snodgrass
frá Leeds, Michael Turner frá
Sunderland, Steven Whittaker
frá Rangers
Farnir: Daniel Ayala til
Nottingham Forest (lán),
Andrew, Crofts til Brighton,
Adam Drury til Leeds, Zak
Whitbread til Leicester, Aaron
Wilbraham til Crystal Palace
17 West Ham
Sæti í fyrra: 3. sæti í næst efstu deild
Þjálfari/ráðinn: Sam Allardyce /
1. júní 2011
Lykilmaður: Mark Noble
Fylgstu með: Carlton Cole
Komnir: James Collins frá Aston
Villa, Mohamed Diame frá Wigan,
Alou Diarra frá Marseille, Stephen
Henderson frá Portsmouth, Jussi
Jääskeläinen frá Bolton, Modibo
Maiga frá Sochaux, George McCart-
ney frá Sunderland, Raphael Spiegel
frá Grasshoppers
Farnir: Pablo Barrera til Cruz Azul,
Jordan Brown til Barnet, Sam Cowler
til Barnet, Abdoulaye Faye til Hull,
Robert Green til QPR, Ravel Morrison
til Birmingham (lán), Frank Nouble til
Wolves, Freddie Sears til Colchester
18 Wigan
Sæti í fyrra: 15
Þjálfari/ráðinn: Roberto Martínez /15. júní
2009
Lykilmaður: Gary Caldwell
Fylgstu með: Ryo Miyaichi
Komnir: Fraser Fyvie frá Aberdeen, Arouna
Kone frá Levante, Ryo Miyaichi frá Arsenal (lán),
Ivan Ramis frá Mallorca
Farnir: Mohamed Diame til West Ham, Steve
Gohouri, Chris Kirkland til Sheffield Wednesday,
Lee Nicholls til Northampton (lán), Hugo Rodal-
lega til Fulham, Ryan Watson til Accrington (lán)