Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Side 20
K
ínverskir milljóna- og millj-
arðamæringar eru í aukn-
um mæli farnir að yfirgefa
heimaland sitt og beina fjár-
festingum sínum annað. Í
umfjöllun breska ríkisútvarpsins,
BBC, kemur fram að nokkrar ástæð-
ur liggi að baki, til að mynda betri
möguleikar til menntunar fyrir börn
þessara stóreignamanna, hreinna
loftslag en í stórborgum Kína, sveifl-
ur í kínversku hagkerfi og breytingar
í æðstu embættum Kommúnista-
flokksins. Uppgangurinn í kínversku
efnahagslífi hefur verið lyginni lík-
astur á undanförnum árum og hef-
ur stóreignamönnum fjölgað gríðar-
lega. Samkvæmt tölum sem komu út
í fyrra teljast meira en milljón Kín-
verjar milljónamæringar, er þá átt við
einstaklinga sem eiga meira en eina
milljón Bandaríkjadala, jafnvirði 118
milljóna króna á núverandi gengi.
Áhyggjufullir
Einn þessara milljarðamæringa sem
telja hag sínum betur borgið utan
Kína er Louie Huang sem hagnaðist
mikið á fasteignaviðskiptum í Kína.
Huang er einn af fjölmörgum ung-
um milljarðamæringum í Kína; hann
ekur um á flottum Porsche og á sann-
kallaða lúxusíbúð í miðborg Sjang-
haí. Í umfjöllun BBC kemur fram að
Louie sé meðal annars maðurinn
á bak við stóra blokk í Sjanghaí en í
henni eru 200 lúxusíbúðir. Þá á hann
fasteignir í fimm öðrum löndum.
Nýlega fjárfesti Huang í
byggingarverkefni í Singapore, en til-
gangurinn með fjárfestingunni var
ekki endilega sá að græða sem mest
af peningum. Erlendir ríkisborgar-
ar sem fjárfesta í Singapore hafa
möguleika á að sækja um dvalar-
leyfi í landinu til lengri tíma og það
er einmitt tilgangur Huangs; hann
vill skapa fjölskyldu sinni, sem hann
stefnir á að eignast á næstu árum, ör-
yggi. Hann óttast að ef illa fer í kín-
versku efnahagslífi muni yfirvöld
taka stóran hluta þeirra eigna sem
hann á.
Bandaríkin trekkja að
Huang er langt í frá eini milljarða-
mæringurinn sem hyggst yfirgefa
Kína. Bandarísk yfirvöld hafa í aukn-
um mæli beint spjótum sínum að
moldríkum Kínverjum og hvatt þá
til að fjárfesta í bandarísku hag-
kerfi. EB-5 nefnist áætlun í Banda-
ríkjunum sem miðar að því að út-
deila græna kortinu, landvistarleyfi,
til þeirra útlendinga sem koma með
fjármagn inn í bandaríska hagkerfið.
Fjárfestar sem hyggjast nýta sér þetta
þurfa að sýna fram á að fjárfesting
þeirra hafi skapað að lágmarki 10 ný
störf í Bandaríkjunum.
Augljóst er að Kínverjum sem nýta
sér þetta kerfi hefur fjölgað mjög á
undanförnum árum; árið 2006 voru
þeir aðeins 63, árið 2011 voru þeir
orðnir 2.408 og það sem af er þessu
ári eru þeir nú þegar orðnir fleiri en
3.700. Þetta þýðir að sífellt meira fjár-
magn frá Kína streymir inn í banda-
ríska hagkerfið. Aðilar frá öllum ríkj-
um heimsins geta nýtt sér EB-5, en
75 prósent þeirra sem nýta sér áætl-
unina eru kínverskir ríkisborgarar. Í
umfjöllun BBC kemur einnig fram að
bandarískar fasteignasölur hafi orðið
varar við mikla söluaukningu lúxus-
íbúða frá kínverskum kaupendum.
Tölurnar um EB-5 eru ekki eina
vísbendingin um að kínverskir stór-
eignamenn séu farnir að hugsa sér
til hreyfings. Á síðasta ári var gerð
könnun meðal tæplega þúsund kín-
verskra milljónamæringa og leiddi
niðurstaða þeirrar könnunar í ljós að
60 prósent hefðu íhugað að flytja frá
Kína.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Hótar að taka alla af lífi
n Mannréttindasamtök eru áhyggjufull vegna orða forseta Gambíu
F
orseti Afríkuríkisins Gambíu,
Yahya Jammeh, hefur til-
kynnt að allir fangar sem
dæmdir hafa verið til dauða
í landinu verði teknir af lífi í næsta
mánuði. Þetta sagði Jammeh í
sjónvarpsávarpi í byrjun vikunnar
og hafa orð hans valdið áhyggjum
hjá mannréttindasamtökum. „All-
ir sem hafa gerst sekir um alvar-
lega glæpi munu borga fyrir það.
Öllum refsingum verður framfylgt
í landinu til að glæpamennirnir
fái það sem þeir eiga skilið,“ sagði
Jammeh í ávarpinu. Orð hans eru
athyglisverð í ljósi þess að enginn
fangi á dauðadeild hefur verið
tekinn af lífi síðan árið 1985.
Mannréttindasamtökin Am-
nesty International hafa með-
al annars fordæmt orð gambíska
forsetans. „Orð hans vekja ugg
og munu án efa valda fjölskyld-
um þeirra sem sitja á dauðadeild
miklum áhyggjum,“ segir Audrey
Gaughran, yfirmaður Afríkudeild-
ar Amnesty International. „Verði
þessi hótun að veruleika mun
það verða áfall fyrir stöðu mann-
réttinda í landinu,“ bætir Gaugh-
ran við í samtali við The Los Ang-
eles Times og segir einnig að staða
mannréttinda í landinu sé mjög
slæm fyrir. Þannig séu dauðarefs-
ingar notaðar sem verkfæri til að
berja niður stjórnarandstöðuna
og réttarhöld alla jafnan ósann-
gjörn.
Ekki liggur fyrir hversu margir
fangar eru á dauðadeild í Gamb-
íu en samkvæmt frétt AFP eru þeir
að minnsta kosti 47. Dómsmála-
ráðuneyti Gambíu segir að talan
sé þó mun hærri. Árið 2009 hót-
aði Jammeh einnig að lífláta alla
fanga á dauðadeild í landinu en
lét þó ekki verða af því.
einar@dv.is
20 Erlent 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað
n Stóreignamenn í Kína áhyggjufullir n Sífellt fleiri fara til Bandaríkjanna„Bandarísk yfirvöld
hafa í auknum
mæli beint spjótum sín-
um að moldríkum
Kínverjum.
Þungt yfir Kínverskir milljarða-
mæringar eru í auknum mæli farnir
að yfirgefa Kína. Ástæðan er meðal
annars sú að þeir hafa áhyggjur af
kínverska efnahagskerfinu.
Áhyggjufullur Louie Huang er einn fjölmargra ungra milljarðamæringa í Kína. Hann stefn-
ir á að flytja sig um set til Singapore.
Hinir moldríku
yfirgefa kína
Vinsælir
hjá þjófum
Bílar frá japanska framleiðand-
anum Honda eru afar vinsælir
hjá bílaþjófum í Bandaríkjun-
um. Þetta kemur fram í skýr-
slu frá bandaríska fyrirtækinu
NICB sem heldur utan um tölur
um stolna bíla í Bandaríkjun-
um. Vinsælasti bíllinn hjá þjóf-
um vestan hafs árið 2011 var
1994 árgerð af Honda Accord.
Tvær ástæður liggja þar að baki:
Þessi árgerð var ein mest selda
bifreiðin í Bandaríkjunum árið
1994, en aðalástæðan er þó sú
að mjög auðvelt er að stela bif-
reiðinni. Í öðru sæti á listanum
var 1998 árgerðin af Honda Ci-
vic. Í þriðja sæti var Ford F-150
Pickup, árgerð 2006, Toyota
Camry, árgerð 1991, var í fjórða
sæti og í fimmta sæti var Dodge
Caravan, 2000 árgerð.
Selur allt
á eBay
Shane Butcher, 29 ára kaupsýslu-
maður frá Flórída í Bandaríkjun-
um, ætlar að hefja nýtt líf. Þess
vegna hefur hann ákveðið að selja
allar eigur sínar á uppboðsvefnum
eBay. Ekki er um neinar smáeignir
að ræða; tvo lúxusbíla, tvö glæsi-
leg einbýlishús, verslanakeðju sem
selur tölvuleiki og hund. Butcher
vonast til þess að fá 3,5 milljón-
ir dala í sinn hlut, 415 milljón-
ir króna. Fyrir peningana ætlar
Butcher að ferðast um heiminn
með eiginkonu sinni. Þegar þeirri
ferð lýkur ætlar hann að setja upp
nýtt viðskiptaveldi á Flórída. Sjálf-
ur segist Butcher vera að selja sinn
eigin „ameríska draum“.
Vilja reyk-
lausa kynslóð
Yfirvöld í Tasmaníu, fylki í Ástr-
alíu sem ekki er á meginlandinu,
íhuga að banna sölu á sígarettum
til þeirra sem fæddir eru eftir árið
2000. Eins og gefur að skilja mun
breytingin taka gildi árið 2018.
Markmiðið er að skapa nýja kyn-
slóð reyklausra Tasmaníubúa og
yrði breytingin sú fyrsta sinnar
tegundar í heiminum. Samkvæmt
frétt breska ríkisútvarpsins, BBC,
eru sams konar breytingar einnig
til skoðunar í Singapore og Finn-
landi.
Tóbakslöggjöf í Ástralíu er ein
sú harðasta í heimi. Hæstiréttur
komst að þeirri niðurstöðu í síð-
ustu viku að ný lög um merk-
ingar á tóbaksumbúðum stæðust
stjórnarskrá. Það þýðir að eftir 1.
desember næstkomandi verður
aðeins leyfilegt að selja sígarettur
í ólífulituðum pakkningum með
myndum tengdum skaðsemi reyk-
inga.
Umdeildur Yahya Jammeh
gaf út sams konar yfirlýsingu
árið 2009 án þess að fram-
fylgja henni. Mynd ReUteRs