Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 32
S
öngkonan Alda Ingi-
bergsdóttir er sannköll-
uð Hafnarfjarðar-
mær því hún er fædd
og uppalin og býr þar
í dag. „Ég bjó alla mína æsku
í Hafnar firði og ég man ekki
eftir mér öðruvísi en syngj-
andi,“ segir Alda hlæjandi.
„Ein frænka mín sagði mér frá
því að þegar ég var 3 ára göm-
ul var mér stillt upp á borð þar
sem ég söng Yesterday með
Bítlunum. Ég byrjaði sem sagt
mjög snemma að syngja.“
Hitti stórsöngkonu
Þegar Alda var 17 ára fór hún
á tveggja vikna söngnámskeið
sem hún sagði að hefði ver-
ið mjög skemmtilegt og hún
fékk meira að segja að hitta
stórsöngkonuna Guðrúnu Á.
Símonardóttur. Alda fór ekki í
frekara söngnám fyrr en eftir
tvítugt en hún er óperusöng-
kona í dag: „Það er svolítið
skemmtilegt hvernig þetta
byrjaði allt saman. Ég var 21
árs og var að syngja í kór og
vann í fyrirtæki í Hafnarfirði
sem heitir Hagvirki. Þegar
kom að árshátíðinni þá bað
ein sem vann með mér mig
um að taka lagið á árshátíð-
inni því ég væri nú í kór. Ég
sló til og söng tvö lög, annað
þeirra var Ó, Dísa og það var
spilað undir á hljóðfæri.“ Eft-
ir þessa árshátíð lét þessi vin-
kona Öldu hana ekki í friði
með það að fara nú að skrá
sig í söngskóla sem hún svo á
endanum gerði. „Mér fannst
ég alltof gömul til að fara í
Söngskólann en fór svo í inn-
tökupróf hjá Garðari Cortes og
komst inn í öldungadeildina.
Ég fór fyrst á námskeið en end-
aði svo í fullu námi í dagskóla í
Söngskólanum.“
Leysti Diddú af
Áhuginn á söngnum jókst
bara með tímanum og Alda
fór til Englands í diplóma-
nám. Eftir að hún flutti heim
fór hún til Akureyrar og kenndi
söng þar auk þess sem hún
söng í óperum, til dæmis
Sígaunabaróninum, Helenu
Fögru og í Kátu ekkjunni. „Ég
söng líka í sýningu á Egilsstöð-
um sem heitir Næturdrottn-
ingin en síðastliðið haust var
ég beðin um að koma í prufu
í Óperunni því að Diddú þurfti
að vera í burtu eina sýningu af
Næturdrottningunni og það
vantaði einhvern til að leysa
hana af. Það voru fleiri sem
komu til greina en það var hr-
ingt í mig innan hálftíma og
mér sagt að ég fengi starfið og
ég fékk að syngja eitt kvöld í
Hörpu,“ segir Alda en hún seg-
ist alltaf hafa unnið við eitt-
hvað annað með söngnum. Til
dæmis er hún núna að vinna í
húsgagnaversluninni Casa.
32 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað
Stórafmæli Alda Ingibergsdóttir óperusöngkona 50 ára 24. ágúst
82 ára 25. ágúst
Sean Connery, sjarmörinn og
upprunalegi James Bond.
32 ára 26. ágúst
Macaulay Culkin, barnastjarnan sem
heillaði alla í myndunum Home Alone.
24 ára 24. ágúst
Rubert Grint, rauðhærði leikarinn
úr myndunum um Harry Potter.
Söng uppi á borði
Þriggja ára gömul
Veisla fyrir ófæddu börnin
Þ
að hafa eflaust margir
heyrt um það sem
kallast í Bandaríkjun-
um „Baby Shower“ þó
svo að það hafi aldrei tíðk-
ast að halda svona veislu
hérna heima. En þetta mun
vera þekkt í fleiri löndum en
Bandaríkjunum. Veislan er
haldin fyrir konu sem á von
á barni.
Orðið „shower“ eða sturta
eins og það heitir á íslensku
er dregið af því að hin verð-
andi móðir er böðuð í gjöf-
um í veislunni.
Í byrjun var vaninn að
halda svona veislu fyrir konu
sem var að eiga sitt fyrsta
barn og eingöngu konum var
boðið og þessi vettvangur var
kjörinn til að deila reynslu
sinni af barneignum. Í dag
hefur það hinsvegar breyst
þannig að þetta er haldið fyr-
ir barnshafandi konur, óháð
því hvort um fyrsta barn sé
að ræða.
Í Kína var það þannig einu
sinni að „Baby Shower“ var
haldið mánuði eftir fæðingu
barnsins. Það var gert vegna
þess að heilbrigðiskerfið
þar í landi var það slæmt að
fjöldi barna dó við fæðingu
eða á fyrsta mánuði. Hjá
múslimum er þessi veisla
haldin líka en þar er venj-
an að fórna einu dýri í tilefni
af veislunni. Kjöti dýrsins er
svo skipt í þrennt, einn hluti
er fyrir fátæka, einn hluti
fer til ættingja barnsins og
svo fer einn hluti til heimil-
is barnsins.
Venjur í þessum veislum
eru misjafnar eftir löndum
og það gæti nú verið gaman
að taka upp þennan sið á Ís-
landi og sníða að íslenskum
siðum.
kidda@dv.is
n Venja sem hefur aldrei náð til Íslands
Fór í söngnám um
tvítugt Þriggja ára söng
Alda uppi á borðum, í dag
er hún óperusöngkona.
Fjölskylda
Öldu
n Foreldrar:
Ingibergur Friðrik Kristinsson
f. 15.3. 1928 – d. 21.3. 1990
Ásdís Guðmundsdóttir f. 22.11. 1930
n Systkin:
Ingibjörg Sveinsdóttir, f. 4.7. 1952
Elísabet Ingibergsdóttir
f. 27.10. 1953
Gunnar Ingibergsson, f. 27.12. 1954
Kristinn Ingibergsson, f. 30.7. 1956
Steinþór Ingibergsson,
f. 20.1. 1961
n Maki:
Haukur Steinbergsson f. 17.8. 1967
n Börn:
Ásdís Guðmundsdóttir f. 10.4. 1981
Linda Guðmundsdóttir f. 11.6.1992
24. ágúst
79 – Vesúvíus gýs. Borgirnar
Pompei, Herculaneum og Stabiae
grafast í ösku.
1215 – Innósentíus 3. páfi lýsti
Magna Carta ógilt.
1572 – Bartólómeusarvígin í París.
Kaþólikkar myrtu þúsundir húgen-
otta samkvæmt skipun Karls 9.
1608 – Fyrsti opinberi fulltrúi
Bretlands steig á land við Surat á
Indlandi.
1906 – Ritsími á milli Skotlands
og Íslands um Hjaltland og Færeyj-
ar var opnaður og var sæsíma-
strengurinn 534 sjómílur á lengd.
1944 – Sveinn Björnsson, forseti
Íslands, og Franklin D. Roosevelt,
forseti Bandaríkjanna, ræddust
við í Hvíta húsinu í Washington, en
Sveinn var í opinberri heimsókn í
Bandaríkjunum.
1968 – Norræna húsið í Reykjavík
var vígt. Finnski arkitektinn Alvar
Aalto teiknaði bygginguna. Norð-
maðurinn Ivar Eskeland var ráðinn
fyrsti forstöðumaður hússins.
1980 – Fyrstu alþjóðlegu rall-
keppni á Íslandi lauk eftir fimm
daga keppni.
1991 – Úkraína fékk sjálfstæði frá
Sovétríkjunum.
2006 – Á þingi Alþjóðasam-
bands stjarnfræðinga var sam-
þykkt að telja Plútó ekki lengur til
reikistjarna sólkerfisins.
2008 – Ísland vann silfurverð-
laun í handbolta á Ólympíuleikun-
um í Peking.
25. ágúst
1609 – Galileo Galilei sýndi
nokkrum feneyskum kaupmönn-
um stjörnukíki sem hann notaði til
að skoða tungl Júpíters og afsanna
þannig jarðmiðjukenninguna.
1718 – Borgin New Orleans stofn-
uð í Louisiana.
1825 – Úrúgvæ lýsti yfir sjálf-
stæði frá Brasilíu.
1912 – Þjóðernisflokkur Kína,
Kuomintang, stofnaður.
1944 – Síðari heimsstyrjöldin:
Bandamenn frelsuðu París.
1960 – Sumarólympíuleikar
settir í Róm.
1970 – Stífla var sprengd í Mið-
kvísl í Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu
í mótmælaskyni við stækkun
Laxárvirkjunar.
1980 – Microsoft kynnti sína
útgáfu af Unix, Xenix.
26. ágúst
55 f. Kr. – Júlíus Caesar hóf
innrás í Bretlandseyjar.
1492 – Rodigo de Borja varð
Alexander 6. páfi.
1652 – Fyrsta stríð Englands og
Hollands: Orrustan við Plymouth.
1883 – Eldfjallið Krakatá í Indó-
nesíu sprakk í gríðarlega öflugu
eldgosi.
1896 – Jarðskjálfti reið yfir
Suðurland og féllu margir bæir í
Rangárvallasýslu. Styrkur skjálft-
ans hefur verið metinn 6,9 stig á
Richter.
1972 – Sumarólympíuleikar settir
í Munchen í Vestur-Þýskalandi.
1978 – Albino Luciani varð
Jóhannes Páll 1. páfi.
1984 – Fyrsta Reykjavíkurmara-
þon var haldið með 214 þátttak-
endum. Tíu árum síðar voru þeir á
fjórða þúsund.
1991 – Ísland tók fyrst allra ríkja
upp formlegt stjórnmálasam-
band við Eistland, Lettland og
Litháen.
2008 – Dmítrí Medvedev,
Rússlandsforseti, viðurkenndi
sjálfstæði Suður-Ossetíu og
Abkasíu, en aðeins eitt annað ríki
hefur gert hið sama.
Merkis-
atburðir
Veislan er haldin fyrir konur
sem eiga von á barni Orðið
„shower“ eða sturta á íslensku er
dregið af því að hin verðandi móð-
ir er böðuð í gjöfum í veislunni.