Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Síða 36
36 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað
m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
Hvað er að
gerast?
24.–26. ágúst
Föstudagur24
ágú
Laugardagur25
ágú
Sunnudagur26
ágú
Þórunn á Dolly
Þórunn Antonía heldur
útgáfutónleika á nýja
skemmtistaðnum
Dolly og er frítt inn. Hún
kemur þar fram ásamt Davíð
Berndsen sem samdi Star-Crossed ásamt
Þórunni. Nýtt myndband við lagið So
high verður frumsýnt á slaginu 21:00 og
hefjast svo tónleikarnir að því loknu þar
sem öll lögin af plötunni verða leikin.
Dolly, Hafnarstræti 4 21:00
Varsjárbandalagið á Græna
Hljómsveitin Varsjárbandalagið leikur
á Græna hattinum á föstudag klukkan
22.00. Varsjárbandalagið leikur tónlist
austantjaldslanda, gyðingatónlist, Balkan
og annað sem rekur á fjörur sveitar-
innar. Miðasala er í Eymundsson og við
innganginn.
Græni hatturinn, Akureyri 22:00
Djass í Munnhörpu
Á fjórðu tónleikum djasstónleikaraðar
veitingastaðarins Munnhörpunnar í
tónlistarhúsinu Hörpu laugardaginn 25.
ágúst kemur fram kvartett söng-
konunnar Kristínar Bergsdóttur. Auk
hennar skipa hljómsveitina þeir Kristján
Martinsson á píanó, Leifur Gunnarsson
á bassa og Magnús Tryggvason Elíassen
á trommur. Þau flytja sígræn djasslög af
ýmsum toga. Tónleikarnir hefjast klukkan
15 og standa til 17. Aðgangur er ókeypis.
Munnharpan, Hörpu 15:00 – 17:00
Palli í Mosó
Páll Óskar Hjálmtýsson heldur stuðball í
íþróttahúsinu að Varmá á laugardag eins
og honum einum er lagið. Húsið er opnað
klukkan 23:30 og verður dansað til 04:00.
Palla og hans frægu diskótek þarf vart
að kynna enda fáir jafn duglegir við að
skemmta og hann.
Íþróttahúsið að Varmá í Mosfellsbæ
23:30 – 04:00
Eivör á Græna
Eivör heldur útgáfutón-
leika á Græna hattinum á
sunnudag en hún gaf út
í vikunni plötuna Room.
Eivör er persónuleg á plötunni
en nokkur laganna voru samin stuttu eftir
að faðir hennar féll skyndilega frá en sá
atburður hefur sett mark sitt á tónlist
hennar. Forsala miða er í Eymundsson á
Akureyri.
Græni hatturinn, Akureyri 20:00
Þ
etta verður hörkupartí,“
segir söngkonan Þórunn
Antonía sem er nýkomin
heim frá Los Angeles þar
sem hún var gestasöng-
kona í hljómsveit Dhanis Harrisons,
Thenewno2. Hún er útkeyrð eftir
miklar annir og safnar kröftum því
í kvöld, föstudagskvöld, ætlar hún
að frumsýna myndband við lagið So
High á skemmtistaðnum Dolly. Eft-
ir að myndbandið verður frumsýnt
ætlar hún að flytja efni nýútkominn-
ar plötu sinnar, Star-Crossed, ásamt
Davíð Berndsen og Friðfinni Oculus.
Erfitt að sleppa
Platan Star-Crossed er önnur
hljóðversplata Þórunnar Antoníu.
Plötuna vann hún í samstarfi við
Davíð Berndsen, Oculus og Hermig-
ervil. Samstarf Þórunnar Antoníu og
Berndsen hefur farið fram heims-
hornanna á milli og með honum
segist hún hafa komist yfir feimnina
sem stundum fylgir því að deila hug-
myndum sínum með öðrum.
„Ég og Berndsen hittumst fyrir
tveimur árum síðan. Við byrjuðum
fljótlega að vinna saman, byrjuðum
að grúska þangað til að það var loks
fullbúin plata í höndunum á okk-
ur. Við vinnum rosalega vel saman.
Þetta er algjört samstarfsverkefni
okkar. Hann ákvað að flytja til Portú-
gal stuttu eftir að við hittumst en ég
var ekkert mótfallin því, hann var að
elta ástina þangað og ég hvatti hann
til þess. Það er enda engin fyrirstaða
að vinna tónlist heimshornanna á
milli. Hann sendi mér tóndæmi eða
stúfa og ég setti það inn í Garage-
band í tölvunni og söng yfir, samdi
texta og sendi honum til baka. Þótt
ég hafi samið tónlist frá því ég var
krakki þá var ég samt enn feimin
við að senda honum hugmyndirn-
ar. Þessi feimni fer seint, ég hef alltaf
viljað frelsi. Ég fann það með Bernd-
sen, hann tók vel á móti hugmynd-
unum mínum, án þess endilega að
fíla allt sem ég gerði. Það var góð
tilfinning að finna fyrir því að hann
kunni að meta textana og ýmsar
hugmyndir mínar,“ segir Þórunn.
Tóku upp í þvottahúsi
ömmu Berndsen
Lagið So High hefur verið mjög vin-
sælt undanfarið en það lag sömdu
þau tvö á örskammri stundu í
þvottahúsi ömmu Davíðs. „Það var
skemmtileg uppákoma. Ég var ný-
komin úr yndislegri ferð til London
með fyrrverandi kærasta mínum. Ég
sveif á skýi við heimkomuna. Á þess-
um tíma vorum við með aðstöðu
í þvottahúsi ömmu hans Davíðs.
Okkur vantaði aðstöðu og skilyrðin
voru einfaldlega best þar, segir hún
og hlær og segir þó nokkur lög tekin
upp í þvottahúsinu góða.
„Það leið að því að við áttum að
spila á Airwaves og okkur vantaði lag
í prógrammið. Við vorum stressuð
yfir því og veltum því jafnvel fyr-
ir okkur að taka eitthvað cover lag.
Þangað til ég sagði bara: Nei, hvað er
að okkur. Við getum bæði samið lög.
Við semjum bara lag, einn ,tveir og
10. Gerum þetta bara!
Hann spurði mig hvort ég væri
alveg brjáluð. En svo spilaði hann
lagstúf sem var að virka og úr varð
lagið So high. Við fórum svo heim um
kvöldið og héldum áfram að vinna
úr hugmyndinni um þetta lag sem
varð hið besta mál. Auðvitað er þetta
ekki alvanalegt. Venjulega leyfir mað-
ur innblæstrinum að leiða sig. En
kannski var hann kraumandi undir
niðri eftir ferðina góðu til London.
Það kom mér síðan skemmtilega
á óvart að Ellen Loftsdóttir sem leik-
stýrir myndbandinu við lagið með
Þorbirni Ingasyni kom með þá hug-
mynd að taka það upp í London.
Það er nefnilega í anda þessa lags.
Lög um ástina
Nafn plötunnar, Star-Crossed, vís-
ar í örlög elskenda sem fá ekki að
njótast og Þórunn Antonía vísar
í eigin reynslu. Lögin á plötunni
fjalla öll á einn eða annan hátt um
ástina og á sama tíma og hún var
við tónlistarvinnsluna vann hún
úr eigin reynslu en Þórunn hætti á
árinu með kærasta sínum, Ágústi
Bent.
„Nafnið, Star-Crossed, talaði
sterkt til mín. Þetta er vísun í örlög
elskenda sem eiga ekki að vera
saman, í raun bein tilvísun í Rómeó
og Júlíu Shakespeares. Elskend-
ur sem unnast en fá það ekki. Þetta
er bara lífið. Maður hittir fólk sem
maður elskar en getur ekki verið
með. Þetta er það sem ég sjálf var að
ganga í gegnum. Öll lögin á plötunni
fjalla um ástina, hún er um mína
eigin reynslu, bæði ljúfa og sára og
því sem hreyfir við mér. Hvað hreyfir
meira við fólki en ástin? Ég held að
ég sé ekkert öðruvísi en aðrir hvað
það varðar. Platan er á jákvæðum
nótum, ég vinn þannig úr tilfinning-
um mínum. Ef það var eitthvað nei-
kvætt sem ég gekk í gegnum þá beið
ég og leyfði því að líða hjá. Róin fæst
alltaf á endanum, segir hún og hlær.
Á sama tíma er ég ekkert að reyna að
vera töffari. Reyna að harka af mér,
ég vil frekar vera heiðarleg og vinna
með tilfinningarnar eins og ég geri
í tónlistinni,“ segir Þórunn í fyllstu
einlægni.
Er hún tilbúin að finna ástina
aftur? „Nei, það er ég ekki. Ég held
maður sé aldrei tilbúin. Þetta er svo
mikil efnafræði og ástin kemur alltaf
öllum að óvörum,“ segir hún.
Reynir að hvíla sig
Hún er alsæl með plötuna og vinnsl-
una. „Ég er ekkert smá heppin með
það fólk sem kemur að vinnslu
plötunnar. Það var líka gaman að fá
að vinna með Sögu Sigurðardóttur
og Andreu Helgadóttur sem sáu um
útlitið og tóku ljósmyndir af mér. Ég
er ánægð með útkomuna og hún
er ólík þeirri glamúr-ímynd sem
margir hafa af mér.“
„Maður hittir fólk
sem maður elskar
en getur ekki verið með.
Þetta er það sem ég var
að ganga í gegnum.
Ekki tilbúin fyrir ástina
n Þórunn Antonía vinnur úr eigin tilfinningum á nýrri plötu n Nokkur laganna tekin upp í þvottahúsi í Reykjavík
Ekki tilbúin „Nei, það er ég ekki. Ég held
að maður sé aldrei tilbúin. Þetta er svo mikil
efnafræði og ástin kemur alltaf öllum að
óvörum,“ segir hún.
„Eins og bland í poka.
Nema bara bestu molarnir.“
„Ofhlaðin óþörfum
hasaratriðum“
Hljómskálinn
Ýmsir flytjendur
Total Recall
Len Wiseman