Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.2012, Blaðsíða 40
E
r samræmi milli þess sem við
gerum og þess sem við þráum?
Hvernig myndum við vilja verja
tímanum ef við ættum tak-
markaðan tíma eftir?
Margir velta þessari spurningu fyrir
sér og eiga svörin til innra með sér en
gera þau ekki að aðalatriðum í lífi sínu.
Edda Jónsdóttir, mannréttinda-
fræðingur, útvarpskona og nú mark-
þjálfi hefur gert það að verkefni sínu
að hjálpa fólki að gera aðalatriðin að
aðalatriðum. Hún aðstoðar fólk við að
láta drauma sína rætast, koma lífinu í
skorður, færa saman bilið milli þess
sem það þráir og þess sem það gerir
með tímann sem takmarkaða auðlind.
„Eina leiðin til þess að fá tíma til
þess að gera það sem okkur langar er
að taka hann,“ segir Edda.
Þjálfar á Skype
„Markþjálfun er tækni sem dregur
fram það besta í fólki, fær það til að
uppgötva sjálft sig og möguleika sína,“
segir Edda sem býr og starfar í Nor-
egi. Með aðstoð Skype getur hún hins
vegar starfað með fólki um allan heim.
„Ég hef verið að vinna með Indverj-
um sem ég kynntist þegar ég var að
læra markþjálfunina. Svo er ég með
Bandaríkjamenn en mest þjálfa ég
fólk í Evrópu og af þeim eru flestir Ís-
lendingar.“
Skorti yfirsýn
Sjálf segir hún markþjálfun hafa leitt
sig á réttar brautir en árið 2009 vissi
hún ekki sitt rjúkandi ráð. „Þegar Fé-
lag markþjálfunar á Íslandi var stofn-
að heyrði ég fyrst minnst á markþjálf-
un. Þá fór ég á stuttan kynningarfund
og féll fyrir þessari aðferðafræði. Hún
byggist í stuttu og afar einfölduðu máli
á því að hver einstaklingur búi yfir
svörum til að bæta líf sitt sjálfur. Hlut-
verk markþjálfans er að ferðast með
hann frá einum stað á annan betri. Ég
ákvað stuttu seinna að ráða mér mark-
þjálfa og við unnum saman í marga
mánuði. Þetta var árið 2009. Árinu eft-
ir hrun. Á þessum tíma var ég föst í því
að taka ákvarðanir og hætta við þær.
Ég sveiflaðist eins og pendúll, þenn-
an daginn vildi ég stefna í eina átt og
næsta dag í allt aðra átt. Þetta olli mér
innra óöryggi og ég hugsaði með mér
að nú þyrfti ég hjálp. Ég væri á slík-
um stað að ég hefði ekki fulla yfirsýn
sjálf yfir eigin vanda. Ég hafði því sam-
band við markþjálfa og var hjá hon-
um í níu mánuði. Ég þurfti bara heila
meðgöngu,“ segir hún og hlær. „Það
sem er skemmtilegt er að markþjálfun
er mikið lærdómsferli sem hefur sterk
áhrif á sjálfsmyndina. Ég var með tvö
háskólapróf en þarna var ég fyrst kom-
in í skólann sem ég hafði alltaf þurft á
að halda. Ég var að læra um sjálfa mig
og hvernig ég gat nýtt það sem er gott í
mér til góðs.“
Forvitnin styrkur
Edda hugsaði með sér að hún vildi
sjálf læra aðferðafræði markþjálfunar
og gera það sama fyrir aðra. „Ég vildi
læra aðferðafræðina og leiðbeina öðr-
um og skráði mig í nám í alþjóðlegan
skóla. Þegar ég var lítil fannst mér
minn helsti styrkleiki vera forvitnin og
það að spyrja spurninga og hugsaði oft
með mér hvað ég gæti nú unnið við
þar sem reyndi á þennan styrkleika.
Ég fann mér þennan vettvang í fjöl-
miðlum. Þar fékk ég mjög áhugaverð
tækifæri til að spyrja fólk spurninga
og oft deildi það með mér lífi sínu og
þrám. Oftast var það reyndar „off the
record“,“ segir hún og hlær. „En ég fann
að með markþjálfuninni fékk ég enn
eitt tækifærið til þess að vinna með
þessi augnablik og vinna markvisst
með þau til góðs.“
Að láta draumana rætast
Edda segir markþjálfun hjálpa fólki
að horfast í augu við drauma sína og
vinna markvisst að því að láta þá ræt-
ast. „Við eigum okkur öll drauma,
en við verðum að þora að toga þá úr
skýjunum og niður á jörðina. Mark-
þjálfunin aðstoðar fólk við að lifa lífinu
sem það hafði bara látið sér nægja að
dreyma um í einrúmi. Draumar eiga
að vera hluti af lífinu, vera raunveruleg
markmið sem við vinnum að.“
Þjálfunaraðferðirnar byggjast á
rannsóknum, meðal annars úr já-
kvæðri sálfræði og unnið er að því að
setja sér skýr markmið sem eru í sam-
ræmi við þau lífsgildi sem hver og einn
lifir eftir.
„Það er ekki hægt að setja sér
markmið sem eru í beinni andstöðu
við lífsgildin. Sumir halda til dæmis
að þeir vilji klára eitthvert verkefni
á stuttum tíma, svo kemur kannski
í ljós að eigin gildi krefjast yfirsetu
og rannsókna eða þess að það gef-
ist tími til að næra sig með fjöl-
skyldunni.
Stundum þarf markþjálfinn að
lesa á milli línanna,“ útskýrir hún.
„Við erum oft í samskiptum við fólk
sem er búið að þekkja okkur lengi og
þegar fólk er orðið vant okkur þá hlust-
ar það ekki jafn vel og oft er það hrein-
lega ekki hlutlaust. Mitt verkefni er að
hlusta og helga tíma minn því að leysa
verkefni hvers einstakl ings. Í öllu fel-
ast skilaboð. Stundum segir fólk eitt-
hvað sem það heyrir ekki sjálft, eða
notar líkamstjáningu til að tjá tilfinn-
ingar sem liggja undir niðri. Þá tölum
við oft um okkur sjálf á ákveðinn hátt
og margir tala sig niður við ákveðnar
aðstæður.“
Vinnur mikið með framakonum
Viðskiptavinir Eddu eru með marg-
víslegan bakgrunn. „Ég hef verið
mikið með framakonur og ofsalega
sterkar konur sem kannski vantar
hjálp við ákveðna ákvarðanatöku eða
eru á tímamótum. Konur í stjórnmál-
um hafa leitað til mín, þá standa þær
frammi fyrir ákvörðunum varðandi
frama sinn. Vilja vera vissar um næstu
skref, vilja fá yfirsýn og jafnvægi. Ég
er líka að vinna með fólk sem vill ná
markmiði en tekst það ekki. Sjálfs-
myndin hefur beðið hnekki. Oft er þá
áherslan á röngum stað. Aukaatriði
hafa fengið að verða að aðalatriði og
þá gleymir fólk að næra sig. Markþjálf-
un er heildstæð og ég vinn að því að
skoða lífið í samhengi.“
Eddu finnst ánægjulegt fylgjast
með þeim sem hún þjálfar afreka í
lífinu. Hún fær að að taka þátt í veg-
ferðinni.
„„Coach“ hefur verið notað yfir
íþróttaþjálfara þannig að að mörgu
leyti er það tengt. Orðið þýðir: Að
flytja einhvern frá einum stað til
annars. Það finnst mér skemmtilegt
því það er það sem ég upplifi. Fólk
er auðvitað í þessu ferðalagi sjálft en
maður fær einhvern veginn að vera
með þeim í þessari vegferð,“ seg-
ir Edda og vitnar að lokum í Alan
Alda: „Þú þarft að yfirgefa þæginda-
borgina þína og halda út í óbyggðir
innsæis þíns. Þar muntu uppgötva
dásamlega hluti. Þú munt uppgötva
sjálfa/n þig.“ n
40 Lífsstíll 24.–26. ágúst 2012 Helgarblað
Þjálfar pólitíkusa
í gegnum Skype
„Konur í stjórnmál-
um hafa leitað
til mín, þá standa þær
frammi fyrir ákvörðunum
varðandi frama sinn.
Sjö heilræði
Eddu við mark-
miðasetningu
1 Aðeins 5 prósent fólks skrifar niður markmið sín en 95 prósent
þess nær markmiðum sínum. Byrjaðu að
skrifa niður markmið þín.
2 Settu þér tímamörk og búðu þér til framkvæmdaáætlun. Þannig
verða draumar þínir að veruleika.
3 Ef þú vilt breyta aðstæðum þínum – byrjaðu þá á sjálfri/sjálfum þér.
4 Veldu að vera í kringum fólk sem gefur þér byr undir báða vængi.
5 Hafðu trú á því sem þú ætlar þér. Mundu það sem Henry Ford sagði
– hvort sem þú trúir því að þú getir eða
getir ekki – þá hefurðu rétt fyrir þér. Ekki
gefast upp!
6 Verðlaunaðu sjálfa/n þig – líka fyrir áfangasigrana. Það er ekki
síður mikilvægt að njóta ferðarinnar en
áfangastaðarins.
7 Mundu að vera þakklát/ur og treystu á innsæið.
n Þeir sem vilja kynna sér betur mark-
þjálfun Eddu geta skoðað heimasíðu
hennar: eddacoaching.com
n Edda Jónsdóttir útvarpskona hjálpar fólki að láta drauma sína rætast
Vissi ekki sitt rjúkandi ráð Markþjálfun kom Eddu til bjargar árið 2009 þegar hún var
föst í ákveðnu fari. Í dag þjálfar hún aðra í að láta drauma sína rætast.
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
OREO
BANANA
SÚKKULAÐIKAKA
Sími: 561 1433
Innihald: Súkkulaðibotnar, súkkulaðimousse, bláberja
sulta
, ba
nan
ar
og
O
re
ok
ex
.
Opnunartími:
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugar- og sunnudaga 8.00 -16.00
P
R
E
N
T
U
N
.IS